Þjóðviljinn - 25.02.1981, Blaðsíða 11
Miövikudagur 25. febrúar 1981 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11
íbróttir íþróttir n*] iþróttirí
... V I Umsjón: Ingólfur Hannesson. V J ■ V
j A-riðill
Úrslit leikja i A-riðli
■ B-keppninnar i Frakklandi
I urðu sem hér segir:
3. umferð:
, Island Sviþjóð .... 15:16
a Pólland-Aust-
urriki........25:9
I Frakkland-Holland
17:16
Staðan i riðlinum er nú
þessi:
Pólland .....3 3 0 0 81:52 6
Sviþjóð.........3 3 0 0 59:50 6
Island..........3 2 0 1 65:46 4
Frakkland.. .3 1 0 2 58:66 2
Holland .....3 0 0 3 53:69 0
Áusturriki... 3 0 0 3 39:73 0
• ••
B-riðill j
Úrslit leikja i B-riðli i gær- I
kvöldi urðu sem hér segir:
Búlgaria-Noregur .. 15:14
Danmörk-Tékkóslóvakia
15:17
Sviss-lsrael ....21:19
Staðan i riðlinum er nú
þessi:
Tékkósl.......3 3 0 0 66:45 6 I
Sviss.........3 3 0 0 57:54 6 I
Búlgaria ... .3 2 0 1 53:52 4 1
Danmörk.... 3 1 0 2 57:53 2
Noregur.......3 1 0 2 46:54 2
ísrael........3 0 0 3 51:71 0
Það vekur eftirtekt hversu
góð markanýting er hjá
Svisslendingum. Þeir eru
einungis með 3 mörk i plús
en hafa samt fullt hús stiga.
• ••
Komst aldrei í
takt við leikiim
Ólafur H. Jónsson var eins
og aðrir ieikmenn islenska
liðsins heldur óhress i bragði
eftir leikinn i gærkvöldi.
„Það sem fór úrskeiöis var
fyrst og fremst það, að við
náðum aldrei að komast i
takt við leikinn. Við fengum
erfiða byrjun en unnum á
jöfnum. Sviar héldu
forystunni langt fram i hálf-
leik. Þá jöfnuðum við,
náðum jafnvel forystunni,
Sviar komast aftur yfir. Við
jöfmum og komumst enn yfii
Þannig gekk þetta. Við
náðum forystunni 10:9 og
erum með boltann en fáum á
okkur 4 mörk i röð. Þetta eru
vonbrigði en það ber að hafa
i huga að þetta er ekki i
fyrsta sinn sem lsland tapar
i 3. leik i mikilvægri keppni.
• ••
„Mikil
vonbrigði”
„Jú, ég er svo sannarlega
geysiíega vonsvikinn að
loknum þessum leik,” sagði
Hilmar Björnsson eftir leik-
inn i gærkvöldi, „einkum
vegna þess að ég veit að
strákarnir geta mun betur.
Liðsmenn voru alltof
upptrekktir þegar út i
sóknarleikinn kom og nýttu
þvi ekki marktækifærin. Ég
hafði uppálagt leikmönnum
að skjóta neðarlega á mark-
vörðinn, en þegar til átti að
taka var þvi alls ekki til að
dreifa. Sænska liðið lék aö
minu viti, afar klókinda-
legan handknattleik. Við
veröum að gleyma þessum
leik; á morgun tekur annar
mikilvægur við. Hann
J verðum við að vinna.”
„Tókst að
stöðva
íslenska
eldgosið”
Æsispennandi leik við Svía lyktaði með eins marks ósigri
Þau voru þung skrefin, sem
hetjur islenskra iþrótta, gengu til
búningsherbergjanna, þegar leik
tslands og Sviþjóðar lauk i
gærkvöldi i Grenoble í
Frakklandi. Einhverjum magn-
aðasta landsleik íslands var lokið
með ósigri, fyrir bestu hand-
knattleiksþjóð Norðurlanda,
Svium. Lokatölur urðu 15:16. Það
var afar slæm byrjun sem lagði
grundvöllinn að óförum tslend-
inga i þessum ieik og hugsanlega
sú ráðstöfun Hilmars Björns-
sonar, landsliðsþjálfara að láta
ungan og litt reyndan markvörð,
Einar Þorvarðarson standa i
markinu allan fyrri hálfleik.
Kristján Sigmundsson sem varið
hafði eins og berserkur i fyrstu
tveimur leikjum islenska liðsins
var hvildur og þar sem talið var
að Sviarnir þekktu of vel til hans.
Eftir aðeins 6 minútna leik
höfðu Sviar náð forystu, 3:0 og
allan fyrri hálfleikinn börðust
leikmenn tslands við að jafna
metin. Tölurnar breyttust óðum,
1:3, 2:3, 2:4, 3:4, 3:5, 4:5, 5:5, 5:6,
6:6 og fyrst á 23. minútu leiksins
náðu Islendingar forystunni, 7:6.
Sivar jöfnuðu fljótlega metin og
komusti 9:7. t hálfleik var staðan
9:8.
Þó Sviar hafi byrjað seinni
hálfleik voru það samt tslend-
ingar sem skoruðu tvö fyrstu
mörkin. Axel byrjaði með látum
og siðan skoraði Guðmundur
Guðmundsson. „Slæmi kaflinn”
sem nú virðist sem óðast vera að
fá á sig staðlaða merkingu lét
ekki á sér standa: Sviar skoruðu 4
mörk i röð! Það var e.t.v. ekki
aðeins góður sóknar og varnar-
leikur sem gaf þessa forystu
heldur einna helst frábær mark-
varsla. Hellgren i marki Svianna
sem varði allt er að markinu
kom, alls eitthvað i kringum 20
skot i leiknum. Islensku mark-
verðirnir, sem að þessu sinni voru
langt frá sinu besta, vörðu
samtals aðeins 8 skot. Það munar
um minna.
Bestu eiginleikar hins islenska
vikings komu i ljós þrátt fyrir
mótbyrinn. Sigurður Sveinsson
minnkaði muninn i 11:13, þá Páll
Björgvinsson i 12:13 og þegar
Þorbergur Aðalsteinsson lét vaða
og jafnaði, 13:13 þá var byrjað að
fara um islenska áhorfendur i þvi
gimaldi sem kallast iþróttahús
héri Grenoble. (Þessi iþróttahöll,
ein stærsta sinnar tegundar
rúmar 8 þús. manns i sæti og 2
þús. manns i stæði) Sviar komast
i 14:13, þá 14:14 og siðan skora
Sviar tvivegis eftir að Hellgren
hefur varið snilldarlega i tvigang.
Timinn er að renna út. Axel lagar
stöðuna i 15:16 en siðustu
múnútur tefja Sviar með til-
gerðarlegum „sóknarleik”.
Ólafur H. Jónsson var langbesti
maður islenska liðsins, klettur i
vörninni og harður i sóknarleikn-
um. Axel lék vel og einnig
Þorbergur en stórskyttan
Sigurður Sveinsson fann sig
engan veginn og lék langt undir
getu.
Hellgren markvörður var sá
sem barg sænskum sigri með frá-
bærri markvörsiu á mikilvægum
augnablikum og ekki i fyrsta sinn
sem hann gerir islenskum hand-
knattieiksmönnum gramt i geði.
Mörkin:
Þorbergur og Axel, 4. Páll
Björgvinsson og Guðmundur 2.
Ólafur H. Bjarni og Sigurður
Sveinsson eitt mark hver.
Hjá Svium skoraði Sjögreen
mest, alls 5 mörk. Rassmussen
skoraði 4 mörk og Olafsson 3
mörk.
Þorbergur Aðalsteinsson.
Þorbergur aftur
atvinnumaður?
Eftir þvi sem að blaðamaður
Þjóðviljans á B-keppninni kemst
næstþá mun afar náið vera fylgst
með helstu skyttu islenska liðs-
ins, Þorbergi Aðalsteinssyni.
Munu það einkum vera útsendar-
ar þýskra liða sem þar eru á
ferðinni enda Þorbergur að góðu
kunnur frá þvi að hann lék með
Göppingen ekki alls fyrir löngu.
Tvö þýsk lið hafa haft samband
við Þorberg, gamla félagið hans
Göppingen og Huttenberg sem
eins og Göppingen leikur i
V-þýsku Bundesligunni.
I samtali við blaðamann
Þjóðviljans fyrir leikinn i
gærkvöldi staðfesti Þorbergur og
sagði að menn á vegum þessara
félaga hefðu haft samband við
sig. Hann kvaðst ekki hafa tekið
af skarið með þessi mál myndi
sýna aðgát i hvarvetna. Málin
myndu þó væntanlega skýrast
innan skamms.
„Þessi leikur var virkilega erf-
iður. íslensku leikmennirnir
börðust eins og ljón og voru svo
sannarlega engin lömb að leika
sér við”.
Svo fórust sænska landsliðs-
þjálfaranum, Bertil Anderson
orð, eftir leik tslands og Sviþjóðar
þegar blaðamaður Þjóðviljans
haföi samband við hann i gær-
kveldi. „Islensku strákarnir léku
fastan en samt ekki grófan
varnarleik. Þetta voru tvö þung
lið. Ég held að tsland hafi með
sömu spilamennsku og i kvöld
góða möguleika gegn Pólverjum.
Innan liðsins eru frábærir hand-
knattleiksmenn. „Ég er auðvitað
ánægður með sigurinn. Okkur
tókst að stöðva islenska eld-
gosið”.
Ólafur H. Jónsson bar af öðrum leikmönnum islands I gærkvöldi. Barðist frábæriega, bæði i vörn og
sókn.
„Slæmí kaflinn” gerði útslagið