Þjóðviljinn - 27.02.1981, Side 4
4 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 27. febrúar 1981
UOÐMUINN
Málgagn sósíalisma, verkalýds-
hreyfingar og þjóðfrelsis
Otgefandi: útgáfufélag Þjóðviljans
Framkvæmdastjóri: Eiður Bergmann.
Ritstjórar: Arni Bergmann. Einar Karl Haraldsson, Kjartan
Ölafsson.
Auglvsingastjóri: Þorgeir Ólafsson.
Umsjónarmaður sunnudagsblaös: Guðjón Friðriksson.
Afgreiðslustjóri: Valþór Hlöðversson
Blaöamenn: Alfheiður Ingadóttir. Einar örn Stefánsson. Ingi
björg Haraldsdóttir, Kristin Astgeirsdóttir, Magnús H. Gislason,
Sigurdór Sigurdórsson
iþróttafréttamaður: Ingólfur Hannesson.
útlit og hönnun: Guðjón Sveinbjörnsson, Sævar Guðbjörnsson.
I.jósmvndir: Einar Karlsson, Gunnar Elisson
llandrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elias Mar.
Auglýsingar: Svanhildur Bjarnadóttir.
Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Jóhannes Harðarson.
Afgreiðsla: Kristín Pétursdóttir, Bára Sigurðardóttir.
Simavarsla: ölöf Halldórsdóttir, Sigriður Kristjánsdóttir.
Bilstjóri: Sigrún Bárðardóttir.
Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir,
Karen Jónsdóttir.
Útkeyrsla, afgreiösla og auglýsingar: Siðumúla 6,
Keykjavik, simi 8 12 38.
Prentun: Blaðaprent hf.
Einstakur árangur
• Okkur er tamara að dvelja við það sem miður fer
heldur en það sem vel er gert. Áeinu sviði höf um við nýtt
einstæða möguleika okkar hraðar og betur en nokkurn
óraði fyrir árið 1973 þegar orkukreppan skall yfir heim-
inn af f ullum þunga. Óðum líður nú að því að óhagkvæm
húshitun með olíu verði ekki þjóðarvandi heldur
áhyggjuefni Iftils minnihluta sem auðvelt mun reynast
að bæta úr með aðstoð úr sameiginlegum sjóðum lands-
manna.
• Árið 1973 nam olíunotkun til húshitunar um 186 millj-
ónum lítra og hafði aukist jafnt og þétt um langan tíma.
Á þvi ári hafði AAagnús Kjartansson þáverandi iðnaðar-
ráðherra forgöngu um könnun á því, hvernig unnt væri
með sem skjótustum hætti að nýta innlenda orkugjafa í
stað olíu til húshitunar og til annarra þarfa. í skýrslu
sem Verkfræðistofa Sigurðar Thoroddsen gerði um
málið kom m.a. í Ijós að 46% þjóðarinnar notuðu jarð-
varma til húshitunar i byrjun árs 1973;7% notuðu raf-
magn, en 47% olíu. í sömu skýrslu er gert ráð fyrir að
þegar olíuhitun hef ur verið útrýmt með öllu myndu 66%
landsmanna hafa hitaveitu, en 34% hita hús sín með raf-
magni.
• Hlutur jarðhita í orkukerfi landsmanna hefur hins-
vegar vaxið mun meira en gert var ráð fyrir. Á árinu
1980 var talið að um 160 þúsund manns byggju á stöðum
sem hefðu hitaveitu eða ættu hana í vændum innan
skamms, eða um 71% þjóðarinnar, 5% f leiri en ætlað var
í spánni f rá 1973. Á sama tíma hef ur raf hitun húsa aukist
nokkuð, en út frá þekktum f jölda olíustyrkja var áætlað
á árinu 1980 að um 21% landsmanna bygg ju í olíuhituðum
húsum, eða um 42 þúsund manns. Árangur stjórnvalda i
því að draga úr olíunotkun til húshitunar byggist í yrst og
fremst á örum vextí hitaveitna og ekki verður séð að
niðurgreiðsla á húshitunarolíu hafi tafið þessa þróun
eins og margir óttuðust. Árið 1975 var úthlutað 363 þús-
und olíustyrkjum, en á árinu 1979 hafði þeim fækkað
niður í 184 þúsund, eða um tæp 50%.
• Á þessi mál má líta út frá öðru sjónarhorni,það er að
segja hlutdeild orkugjafa i heildarorkunotkun til húshit-
unar. Samkvæmt drögum að húshitunaráætlun sem
unnið er að á vegum iðnaðarráðuneytisins er talið að
hlutur oliu i húshitun veröi aöeins 3,7% árið 1983, en hann
var i f yrra 11,5% Árið 1985 er gert ráð fyrir að olía verði
komin niður i 1.9% og eftir 19 ár eða árið 2000, verði hlut-
deild oliu í húshitun komin niður í 0.1%. Samkvæmt áður-
nefndum drögum er áætlað að hlutdeild jarðhita i húshit-
un, sem var 75,3% árið 1980, verði 80,7% árið 1985 og
80,5% árið 2000. Þá er gert ráð fyrir að hlutdeild raforku
i húshitun, sem var 13,2% árið 1980 verði 15,9% árið 1983,
17,4% árið 1985 og 19,4% árið 2000.
• Væntanlega hefur engin þjóð haft sömu möguleika
og Islendingar til þess að bregðast við afleiðingum
hækkandi olíuverðs í húshitun. Árlegur samdráttur i
notkun húshitunarolíu hefur að meðaltali verið frá 1973
um 10% á ári, og notkunin hrapað úr 186 milljónum lítra í
90 milljónir litra. Reiknað hefur verið út miðað við oliu-
verð siðari hluta árs 1980 að nyti hitaveitna ekki við og
rafhitun væri svipuð og nú er, væri árlegur olíukaupa-
reikningur vegna húshitunar um 55 milljarðar króna í
stað rúmlega 11 milljarða. Árlegur sparnaður er því 44
milljarðar gamalla króna. Þótt hér sé um lauslegar tölur
að ræða má sjá af þessu hversu gífurlega þýðingu hita-
veiturnar hafa í þjóðarbúskapnum, auk hinna óbeinu
áhrifa,svo sem framleiðslu gróðurhúsa o.fl.
• Ljóst má því vera að því mikla f jármagni sem veitt
hef ur verið í gerð hitaveitna og verja á næstu árin er vel
varið. Framþróunin á þessu sviði hefur farið fram úr
björtustu vonum. Um helmingur landsmanna hitaði hús
sin með olíu árið 1974, en 6 árum síðar er hlutur olíu í hús-
hitun komin niður í 11.5% og verður árið 1985 aðeins 1.9%
eins og áður var að vikið. Aðeins brot af þjóðinni verður
þá að nota olíu til þess að kynda hús sín.
• Fyrir einstaklinga og heimili er um verulega kjara-
bót að ræða. Hagkvæmustu hitaveiturnar selja orkuna á
30% oliuverðs, en aðrar á 30 til 60%. Þegar olíu hefur
verið útrýmt úr húshitunarkerfinu er gert ráð fyrir að
hlutdeild rafhitunar húsa verði aðeins 19,4%, í stað 34%
eins og áætlanir bentu til 1974, en raf hitun kostar nú um
61% olíuhitunar. Hér hefur tvímælalaust verið stefnt í
rétta átttil hagsbóta fyrir heimilin og þjóðina í heild.
— ekh
Hlippt
i
Fögnuður
án fyrirvara
Hér innanlands hefur Morg-
unblaðið ekki margt að gleðjast
yfir þessa dagana. Þeim mun
barnslegri og innilegri er fögn-
uður blaðsins yfir boðskap hins
nýja Bandarikjaforseta, Ronald
Reagan.
Ronald Reagan boðar auka-
þessu ári um nær 40% — og
Morgunblaðið klappar saman
lófunum.
Ronald Reagan boðar stór-
felldan niðurskurð á öllum
rikisútgjöldum, nema til her-
mála — og Morgunblaðið nær
tárfellir af gleði.
Ronald Reagan heitir blóð-
hundunum sem fara með stjórn
i Mið-Amerikurikinu E1 Salva-
dor og öðrum þeirra likum full-
tingi hinna voldugu Bandarikja
— og Morgunblaðið lofar dýrð
kúrekans i Hvita húsinu.
Ronald Reagan tiikynnir, að
hér eftir muni Bandarikin alls
ekki láta neins konar
mannúðarsjónarmið komast að
iskiptum meirihluta mannkyns.
Nú skal sérhver brauðhleifur til
sveltandi barna goldinn með
pólitiskum og hernaðarlegum
friðindum — og lof Morg-
unblaðsins lætur ekki á sér
standa.
Liklega er hvergi I Evrópu
finnanlegt meiriháttar dagblað,
sem tekur boðskap Reagans um
leiftursókn fyrir hagsmunum
hervalds og. auðvalds
Bandarikjanna með svo fyrir-
varalausum fögnuði sem Morg-
unblaðið: 1 þessum efnum er
Morgunblaðið satt að segja i
hópi þeirra pólitisku sértrúar-
rita, sem fámennir söfnuðir
öfgafylistu hægri afla halda
gangandi hér og þar.
að þeir riku verði rikari og þeir
fátæku fátækari.
Verkin hafa
talað
Ronald Reagan hefur aðeins
setið að völdum fáar vikur og
þvi enn ekki komið nema litlu i
hátt á annað ár, enda sýna
verkin merkin i Bretlandi. Þar
hefur fjöldi atvinnulausra tvö-
faldast og er nú kominn upp i
tvær og hálfa miljón manna, og
verðbólgan samt meiri en var
þegar járnfrúin tók við. Tvær og
hálf miljón atvinnuleysingja i
Bretlandi samsvarar þvi að hér
Slikt ógnarástand er árangur
þeirrar miklu leiftursóknar, |
sem háð hefur verið af hvað ■
mestri trúmennsku við kenn-
ingarnar um alræði auðsins, —
þær sem i öfugmælum eru
kenndar við frjálshyggju. ■
Það verður vafalaust mikið
um dýrðir i Washington þegar
járnfrúin breska riður þar i
garð og ekki minni fögnuður i •
Morgunblaðshöllinni i
Reykjavik, — ef að vanda lætur,
jafnvelhættaáaðeinhverjir hér |
heima fái ofbirtu i augun eins og ■
þeir ungu Sjálfstæðismenn I
(„með hreinar hugsanir”?),
sem fyrir sérstaka náð fengu að' |
hitta Nixon fyrrverandi •
Bandarikjaforseta á siðasta ári, I
eins og sjá mátti á myndum i
Morgunblaðinu. ’
■
Þar eru engar I
sættir í boði
— En hvað sem þvi liður þá J
ætti fundur þeirra Reagans og ■
Thatcher að verða til þess að I
minna okkur hin rækilega á
breytt viðhorf i stjórnmálum 1
grannrikja okkar.
Fyrir fáum árum var það trú ■
ótrúlega margra að við værum I
á friðsælli leið inn i einhvers
konar velferðarriki og þangað I
bæri okkur á næstu árum fyr- ■
irhafnarlaust án allra meiri- |
háttar stjórnmálaátaka.
Nú hafa ýmsir vaknað af þeim I
væra blundi. Þau Thatcher og ■
Reagan hafa komið til dyranna J
grimulaus og boðað óvægilega I
aukið misrétti og ójöfnuð á I
öllum sviðum. — Viglinan ætti •
að vera sæmilega skýr og sættir
virðast engar i boði.
Viðast hvar i nágrannarikjum
okkar má greina tvær megin- !
fylkingar i stjórnmálum. Þá
sem boða alræði auðsins og |
þann ójöfnuð og hyldýpi mis- ]
Skiptar skoðanir um efnahagsf rumvarp Reagans:
Friedman ánægð-
ur meö Reagan
kveðst þó hafa viljað ganga enn lengra í samdrætti hins
opinbera
Handariski haglræðingurinn
hcimskunm. Milion I ricdman hcfur
hrósað hinu nýja cfnahagsfrumvarpi
Konalds Rcagan cn umkvæmt þvf
scrða skaliar lækkaðir og mjög
drcgið ur utgjoldum hins opinbcra.
f rialshyggjuposiulinn F ncdmann
kscðsi þó hafa viljað ganga cnn
lcngra i mðurskurðinum.
MjOg skipiar skoðanir cru um á-
Igit-h cfnahagsfrumvarps þcssa og
iclja margir að það komi mjög illa
sið þá scm vcrsi cru scilir l þjöð-
lclaginu cn sé aflur á móli til þess
fallið að bæia cnn slOðu þcirra ríku.
Friedman kvcösi hins vcgar
anægður: „Ég lcl það ágæil,” segir
hann. ,,Ég gel aðeins gagnrýnt
frumvarpiö fynr þaö, aö það gengur
Or Dagblaðinu.
ckki nógu langt i þvi að draga úr
rikisútgjöldunum.” sagði Frícdman i
viðtali við franska (imarítið Fari
Match I gær
RonaW Rragan.
Mihoa Friedaua.
ÆVjpmJMi
II tlil •>!*. iiru'
I IMM 11 I* \*.l i; I‘i I l.ltlCI \|{ |M<1
Báknið hefur vax-
: 'ið okkur yfir höfuð
99-
44
Konald Keagan
boóaói efnaliauv
aógcróir .sijórn-
imiar i nóll
fjárveitingu til að hækka hlut framkvæmd af stefnumálum
hernaðarútgjalda i rikisútgjöld- sinum. Margaret Thatcher hef-
um Bandarikjanna strax á ur aftur á móti farið með völd
Margarcl Thatchcr hcimsa kir Bandarikin:
ikoðanasystkini hittas
Thatcher til
Reagan
Og nú ku Margaret Thatcher,
forsætisráðherra Bretlands
vera á leiðinni vestur um haf, til
fundar við Reagan. Það fer
sannarlega vel á þvi, að járn-
frúin breska gangi fyrst
forsætisráðherra Evrópurikja á
fund hins nýja Bandarikjafor-
seta svo mjög sem stefnumið
þeirra fara saman.
Bæði heimta leiftursókn gegn
lifskjörum hinna mörgu en fyrir
auðsöfnun hinna fáu, fyrir þvi
væru tiu þúsundir manna at-
vinnulausir, sé tekið mið af
fólksfjölda I báðum löndum. Og
til að myndin verði skyrari skal
minnt á, að atvinnuleysið i
Bretlandi samsvarar þvi að hér
á fslandi væri hver einasti
Dagsbrúnarmaður i Reykjavik
atvinnulaus og einnig á sama
tima álika fjölmennur hópur
verkfærra manna utan
Reykjavikur.
-----------©9
réttis sem þvi alræði fylgir. —
Og hina sem með einum eða
öðrum hæti vilja verja það sem
áunnist hefur i jafnréttisátt á 1
liðnum árum og áratugum og ■
sækja þar fram til nýrra sigra.
Við skulum ekki gleyma þvi, I
að einnig hér er barist undir
sömu merkjum. Þar höfum við *
Morgunblaðið til vitnis dag j
hvern og lofsöngva þess um kú-
rekann i Hvita húsinu.
— k. 1
I
skorið
V