Þjóðviljinn - 27.02.1981, Síða 13
Föstudagur 27. febrúar 1981 ÞJóÐVILJINN — SIÐA 13
Vard honum gengið hjá
Ungverski stórmeistarinn
Lajos Portisch er án efa sá
skákmaður, sem hvaö best geng-
ur undirbúinn til leiks, þegar
meiriháttar mót eða einvigi fer
fram. Þessi rólegi Ungverji situr
8 klst. á degi hverjum og fer yfir
skákir andstæðinga sinna, reynir
að greina veilur og finna nýjar
hugmyndir. Það kemur enginn að
tómum kofunum hjá honum, svo
mikið er vist. Þegar 1. umferð
Olympiumótsins á Möltu fór
fram, gerðist dálitið skemmtileg-
ur atburður. íslenska sveitin sat
að tafli og andstæðingarnir voru
frá Luxemborg. Það kom auð-
vitað ekki annað til greina en aö
vinna sveit þeirra stórt, enda
varð sú raunin. Þegar upp var
staðið höfðum við hlotið 3 1/2
vinning gegn l/2vinningi Lúxem-
borgarmanna. Það var Jón L.
Árnason sem missti þennan hálfa
vinning niður, og má kannski
rekja það til annrrar skákar, sem
tefld var þarna i 1. umferð. Það
var skák Pritchetts frá Skotlandi
og Portisch, Ungverjalandi.
Þegar Jón hafði leikið sinum 13.
leik varð honum gengið framhjá
borðinu, þar sem þessi viðureign
fór fram, og þá var Portisch enn
einu sinni með nýja og magnaða
hugmynd i einu afbrigði Sikil-
eyjarvarnarinnar og það i sömu
stöðu og skák Jóns. Það hefði
vitaskuld verið óþægilegt hefði
andstæðingur Jóns komið aúga á
þessa nýju leið Portisch, en hann
virtist ekki hafa mikinn áhuga á
öðru en eigin skák. Skákin tók þvi
allt aðra stefnu og Jóni tókst að
ná fram öflugu frumkvæði, þó að
siðar meir hafi hann misst
þráðinn og orðið að sætta sig við
iafntefli. En litum á hugmynd
Portisch:
Hvitt: Pritchett (Skotlandi)
Svart: Portisch (Ungverjalandi)
Sikilevjarvörn
U e,,-c5 4. Rxd4-Itf6
2. Rf3-d(i 5 Rc3-a6
3. d4-cxd4
(Najdorf-afbrigðið. Það hefur
undanfarin ár verið meðal vopna
i vopnabúri Portisch. Það er til
marks um hversu menn óttast
þetta afbrigði, að bæði Karpov og
Geller sniðgengu það i skákum
sinum á Ölympiumótinu.)
6. Be2
Lajos Portisch.
(Traustasta leiðin. Karpov hef-
ur beitt þessum leik með frábær-
um árangri.)
6. ,..-e5
7. Rb3-Be7
8. O—O-O—O
9. Bg5-Be6
10. f4-exf4
11. Bxf4-Rc6
12. Khl-IIc8
13. Del
(Og nú er komin upp alþekkt
staða i Najdorf-afbrigðinu og
Portisch lætur sig ekki muna um
aðhrista fram úrerminni nýja og
stórsnjalla hugmynd.)
13. ...-Re8!
(Svartur gerir auðvitað ekki út
um taflið með þessum óvænta
riddaraleik, en að baki honum
ALÞVÐUBANDALAGIÐ
býr ákveðin hugmynd, sem
Pritchett áttar sig ekki á.)
14. Hdl(?>
(Gengur beint til móts við fyr-
irætlanir andstæðingsins. Betra
var 14. Rd5.)
14. ...-Bh4 15- Dd2-Bf6
Umsjón: Helgi Ólafsson
(Á löngu skálinunni þrýstir
biskupinn óþægilega á drottn-
ingarvænginn.)
16. Be3-Be5 18. Bxd4-Rf6!
17. Rd4-Rxd4
(Tilfinning fyrir samræmi.
Riddarinn á eftir allt saman
heima á f6. Hann var bara svo
riddaralegur að hliðra til fyrir
guðsmanninum. Svartur hefur
greinilega náð frumkvæðinu, en
þvi virðist stjórnandi hvitu mann-
anna ekki hafa áttað sig á.)
19. Bxe5-dxe5 21. Dg3
20. Dg5-Rd7
(Drottningaruppskipti bæta
ekki stöðu hvits.)
21. ...-Db6! 23- Dxg4-Rf6
22. Bg4-Bxg4 24- DS3
(Eða 24. Dc 1-Hxc3, 25.
bxc3-Rxe4 o.s.frv..)
24. ...-Dxb2 25- Hf3
— Hvitur gafst upp um leið og
hann hafði leikið þessum leik.
Portisch hefur væntanlega, róleg-
ur og yfirvegaður, ihugað mögu-
leikann 25. -Hxc3, 26. Hxc3-Rxe4
o.s.frv..
Námskeið hjá Rannsóknastofnun
vitundarinnar:
Slökun og mannleg
samskipti
Um næstu helgi, dagana 28.
febrúar og 1. mars, leiðbeinir
Geir Viðar Vilhjálmsson sál-
fræöingur á námskeiði þar sem
fjallað er um slökun og mannleg
samskipti.
Meöal viðfangselna
námskeiðisins er:
— losun spennu, sállikamleg
orkuvinnsla, sjálfstjáning, skynj-
un annarra, iélagsleg hlutverk,
slökunaræfingar.
Námskeiðið helst næstkomandi
laugardag kl. 10 f.h. og stendur
skráning yfir. 1 kjölfar þessa
námskeiðs geta þátttakendur
farið á framhaldsnámskeiö og er
annarsvegar um að ræða sérstakt
helgarnámskeið i mannlegum
samskiptum, en hinsvegar kvöld-
námskeið þar sem varnir gegn
streitu eru aðalvið<angscfnið.
(Fréttatilkynning)
Ahugasamir félagar og Stéttabaráttuhópur
FRESTA FUNDI
Samtök sem nefna sig „Áhuga-
sama félaga innan BSRB" og
„Stéttabaráttuhópurinn i verka-
lýðshreyfingunni" hafa ákveöið
að fresta auglýstum iundi nk.
iaugardag um kjaraskerðinguna
1. mars og bráðabirgðalög rikis-
stjórnarinnar. Ástæðan fyrir
frestuninni er sú aö þeir forystu-
menn verkalýðshreyfingarinnar,
sem haft var samband við, gátu
ekki mætt á fundinn vegna anna
eða áhugaleysis. Meðal umræðu-
efna á fundinum átti að vera það
sem fundarboðendur nefna
aðgerðarleysi verkalýðsforyst-
unnar. — ekh
Alþýðubandalagið Selfossi og nágrenni
Viðtalstimi Garðars Sigurðssonar færist fram um viku vegna kjör-
dæmisráðsfundar og verður laugardaginn 28. febrúar kl. 14, að Kirkju-
vegi 7, Selfossi. — Stjórnin.
Alþýðubandalagið Selfossi og nágrenni
Félagsfundinum sem átti að vera 25. febrúar er frestaö. Nánar auglýst .
siðar. — Stjórnin.
Viðtalstimar
þingmanna
og borgarfulltrúa
Laugardaginn 7. mars milli kl. 10
og 12 verða til viðtals fyrir
borgarbúa á Grettisgötu 3: Ólafur
Ragnar Grimsson.
Sigurjón Pétursson
Eru borgarbúar hvattir til aö nota
sér þessa viðtalstima.
Sigurjón ólafurRagnar
Alþýðubandalagið á Akranesi
Félagsfundurinn
sem halda átti i Rein 16.2. en féll niður vegna óveðurs, verður haldinn
miðvikudaginn 4. mars kl. 20.30. Málefni: Staða verkalýðshreyfingar-
innar á Akranesi Framsögumenn:Bjarnfriður Leósdóttir, Guðmundur
M. Jónsson og Sigrún Clausen.
Alþýðubandalagið i Reykjavik
— innheimta félagsgjalda —
Alþýðubandalagið i Reykjavik minnir þá félagsmenn sem enn hafa
ekki greitt útsenda giróseðla að greiða gjaldfallin félagsgjöld nú um
mánaðamótin.
Stjórn ABR
Alþýðubandalagið Húsavík
Aðalfundur Alþýðubandalagsins á Húsavik verður haldinn þriðjudag-
inn 10. mars i Snælandi og hefst ki. 20.30
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
V-Berlín
Framhald af bls. 5
sig, og kom i veg lyrir aö annað
hús yrði setið. Þetta kallaði á
mótmælagöngur og ýmsar aö-
gerðir og stigmögnuðust átökin
koll af kolli þangað til að menn
þóttust ekki hafa séð stærri
tiðindi siðan stúdentar börðust
við lögreglu i lok sjötta áratugar-
ins.
Springerblöðin hafa svo verið
óspör á að lýsa „standsetningar-
fólki” sem ránsmönnum og
skemmdarvörgum. Allmargir
hafa verið handteknir og sektaðir
og nokkrir munu sitja i fangelsi
enn. Um leið reynir senatið,
borgarstjórn Vestur-Berlinar að
ná samkomulagi við hreyfingu
unga fólksins, sem hefur að sinu
leyti reynt að treysta innviði sina
og samstöðu. Og býr sig undir að
setjast að i fleiri húsum — einnig
þeim sem allir ofnar, baðkör og
klósett hafa verið rifin úr tii að i
þeim verði óbyggilegt.
(Byggt á SoDa)
Leiðrétting:
360 milj.,
en ekki 260
Svo hrapallega tókst til viö birt-
ingu greinar öddu Báru Sigfús-
dóttur ,,Að frelsa borg” I blaöinu i
gær, aö leiðrétting sem Adda
Bára vildi koina á framfæri
komst ekki til skila.
Það sem féll niður að lagfæra
var tala um heildarfjárveitingu
til Borgarspitalans árið 1978.
Heildarfjárveitingin á þvi herr-
ans ári var 360 miljónir króna, en
ekki 260 miljónir, einsog stóð i
blaðinu. Þetta leiðréttist hérmeð
með viðeigandi afsökunar-
beiðnum.
— ih
Blikkiðjan
Asgaröi 7» Garöabæ
Onnumst þakrennusmíöi og
uppsetningu — ennfremur
hverskonar blikksmiöi.
Gerum föst verötilboö
SÍMI53468
Sími 86220
Föstudagur: Opiö kl. 19—03.
Hljömsveitin Glæsir og diskó ’74.
Laugardagur: Opið kl. 19—03.
Hljómsveitin Glæsir og diskó ’74.
Sunnudagur: Opiö kl. 19—01.
Stefán I Lúdó með sextett.
KlnWjurinn
Borgartúni 32
Símj. 35355.
Klúbburinn
FöSTUDAGUR: Opið frá kl.
22.30—03. Hljómsveitin Goðgá og
diskótek.
LAUGARDAGUR: Opið frá kl.
22.30—03. Hljómsveitin Goðgá og
diskótek.
SUNNUDAGUR :
Opiö frá kl. 21—01. Diskótek.
HOTEL
LQFTLEIÐIR
Simi 22322
BLÓMASALUR: Opið álla daga
vikunnar kl. 12—14.30 og
19—23.30.
ViNLANDSBAR: Opið alla daga
vikunnar, 19—23.30, nema um
helgar, en þá er opið til kl. 01. Op-
ið i hádeginu kl. 12—14.30 á laug-
ardögum og sunnudögum.
VEITING ABÚÐIN : Opið alla
daga vikunnar kl. 05.00—21.00.
Skálafell sími 82200
FÖSTUDAGUR: Opið kl. 19—01.
Organleikur.
LAUGARDAGUR: Opið kl.
12—14.30 og 19—23.30. Organleik-
ur.
SUNNUDAGUR: Opið kl.
12—14.30 og kl. 19—01. Organleik-
ur. Tiskusýningar alla fimmtu-
daga.
'KSJUBERG: Opið alla daga kl.
8—22.
Sigtún
Sigtún
FÖSTUDAGUR: Opið frá kl.
22—03. Hljómsveitin Brimkló,
diskótek og „Video-show”, Grill-
barinn opinn.
LAUGARDAGUR: Opið frá kl.
22—03. Hljómsveitin Brimkló,
diskótik og „Video-show”. Grill-
barinn opinn.
Bingó kl. 14.30 laugardag.
Hótel Borg.
Föstudagur: Opið frá kl. 21—03.
Diskótek.
Laugardagur: Einkasamkvæmi.
Sunnudagur: Gömlu dansarnir
frá kl. 21—01. Hljómsveit Jóns
Sigurðssonar leikur. Glimrandi
gleði.