Þjóðviljinn - 06.03.1981, Page 1

Þjóðviljinn - 06.03.1981, Page 1
UÚDVIUINN Föstudagur6. mars 1981—54. tbl. 46 árg. Setið fyrir Ekkier amalegt fyrir listamenn aö fá fyrirsæiar sem stilla sér upp I nánast hvaOa stellingu sem er — og halda henni, einsog Stefania ballettdansari hér. Viö litum inn hjá Myndlistarskólanum þar sem ungir og aldnir stunda kvöldnám og segir frá þvi i OPNU. — Ljósm. — eik —. Báts með tveim bræðrum saknað Siðan á miðvikudagskvöld hef- ur staðið yfir leit að 12 tonna báti, Bárunni VE 141, sem gerður er út frá Sandgerði. Á bátnum eru tveir menn, bræður úr Garðinum, Bjarni og Jóel Guðmundssynir. Það var um kl. 16.00 á miðviku- dag, sem siðast heyrðist til Bár- unnar VE, en hún var þá á linu- veiðum 30 sjómilur V-Nv af Garð- skaga og var þá allt i lagi um borð. Sögðust þeir bræður þá vera að draga linuna en sögðust ekki geta sagt til um það hvenær þeir myndu leggja af stað i land. Sögð- ust þeir myndu hafa samband við Keflavikur-radió siðar. Um kl. 18.30 höfðu þeir ekki haft sam- band og reyndi Keflavikur-radió þá að hafa samband við bátinn en hann svaraði ekki. Aftur var reynt að hafa samband við bátinn kl. 20.00 en án árangurs, Þá tóku menn að óttast um að ekki væri allt með felldu og þvi var haft samband við báta er ver- ið höfðu á svipuðum slóðum og spurt hvort þeir hefðu orðið varir við Báruna, en enginn hafði orðið hennar var. Voru nærstaddir bát- ar þá beðnir að hefja skipulega leit, hvað þeir gerðu. Leituðu 10 bátar um nóttina og einnig flugvél með radar. 1 gærmorgun lögðu svo 30 bátar af stað til leitar og flugvél Landhelgisgæslunnar leit- aði i allan gærdag fram i myrkur en án árangurs. Þessar upplýsingar fékk Þjóð- viljinn hjá Hannesi Hafstein framkvæmdastjóra SVFl sem skipulagði leitina. Hann sagöi að á miðvikudaginn hefði verið bræla á miðunum þar sem Báran VE var, 7—8 vindstig og slæmt sjólag að þvi er sjómenn sögðú. Undir kvöld lægði og i gær var skaplegt veður á leitarsvæðinu. Báran VE 141 er sem fyrr segir 12 tonna bátur, úr eik, mjög vel búinn og hefur honum verið hald- ið ákaflega vel við. Báturinn var smiðaður 1970. —S.dór Landsvírkjunarsamningurinn samþykktur í borgarstjórn: LAKARI KOSTUR ENSA FYRRI Sjöfn vill Sultartanga Þótt sameignarsamningur um stækkun Landsvirkjunar hafi hlotið 14 atkvæði i borgarstjórn i gær voru menn alls ekki á eitt sáttir um ágæti hans i saman- burði við þann samning um nýja Landsvirkjun sem Sjöfn Sigur- björnsdóttir felldi með ihaldinu fyrir tveimur árum. Sigurjón Pétursson, Björgvin Guðmunds- son, Kristján Benediktsson, og Sigurður G. Tómasson töldu nýja samninginn lakari kost en þó rétt að samþykkja hann úr þvi sem komið væri. Sjöfn Sigurbjörns- dóttir taldi samninginn hins vegar mun betri og undir það tók Davið Oddsson. Albert Guðmundsson greiddi atkvæði gegn honum og sagði orð Sjafnar „kattarþvott”. Þá bar það við að Sjöfn lagði fram tillögu um áskorun á rikis- stjórnina að hraöa ákvörðun um næstu virkjun og jafnframt að borgarstjórn teldi Sultartanga besta kostinn. Undir það tók Davið Oddsson og Björgvin lika með þeirri viðbót að lika ætti að virkja i Fljótsdal um leið en forsendan fyrir þvi væri stóriðja. Sigurður G. Tómasson taldi slika samþykkt ekki timabæra og var samþykkt að hans ráði að fresta tillögunni til næsta fundar. Sigurjón Pétursson sagði versta gallann á nýja samn- ingnum að með honum væri Landsvirkjun ekki tryggður einkaréttur á virkjunum um landið allt. Markmið fyrri samn- ingsins hefði verið að stofna eitt orkuöflunar- og dreifingarfyrir- tæki en það væri yfirlýst stefna Alþýðubandalags, Framsóknar- flokks og Alþýðuflokks. Þannig mætti koma i veg fyrir að hreppa- rigur og kjördæmapot réði virkjunarstöðum en nú væri það ekki á valdi Landsvirkjunar að ráða neinu um virkjunarstaði. Kristján Benediktsson taldi samninginn lakari kost og sagöi að Sjöfn og Sjálfstæðisflokkurinn gætu sjálfum sér um kennt þegar þau nú kvörtuðu undan valdi iönaðarráðherra og Alþýðu- bandalagsins við val á virkjunar- stöðum. Þau hefðu komið i veg fyrir að Landsvirkjun réði þar nokkru um. Björgvin Guðmundsson sagðist ánægður með hversu viðtæk sam- staða hefði náðst i borgarstjórn um samninginn nú. Þó hann gengi skemur en sá fyrri væri hann sannfærður um að með honum væri stigið fyrsta skrefið i átt að einu stóru virkjunarfyrirtæki en það væri á stefnuskrá Alþýðu- flokksins.____________ —AI Bát með þremur mönnum hvolfdi A 7. timanum i gærkvöld hvolfdi litlum bát frá OIis úti fyrir Laugarnestanga i Keykjavik. Um borð voru þrir menn en þeir voru á leið út i oliuskipið Kyndil til að hagræða festingu skipsins. Er fréttist um slysið fór bafnsögubáturinn llaki, sem var i Sundahöfn, þegar á vettvang og bjargaði ntönn- unum úr sjónum. Þeir voru allir i björgunarvestum en injög þrekaöir af kulda. Voru þeir fluttir þegar á sjúkrahús og var tvisýnt um lif cins þeirra er siðast fréttist í gær- kvöldi. S.dór/FGr Sósíalistar á þingi Norðurlandaráðs: Vllja sérstakan fund um öryggismál • Klofningur hjá finnska lýðræðisbandalaginu Fulltrúar á Norður- landaráðsþingi i Kaup- mannahöfn úr stjórnmála- flokkum/ sem taldir eru vinstra megin við sósial- demókrata/ lögðu i gær fram formlega ósk um að haldinn verði sérstakur fundur norrænna þing- manna til að fjalla um þá hugmynd að Norðurlönd verði lýst kjarnorkuvopna- laust svæði. Þetta kom fram er Þjóðviljinn ræddi i gærkvöld við Svavar Gestsson félagsmálaráðherra og innti hann nýjustu tiðinda af þing- inu. Svavar sagði: Þessi ósk var sett fram i bréfi, sem var undirritað af átta aðal- mönnum og varamönnum i Norðurlandaráði frá þessum flokkum: Þjóðveldisflokknum i Færyjum, Lýðræðisbandalaginu i Finnlandi, Vinstri flokknum — kommúnistunum i Sviþjóö, SF i Danmörku og Alþýðubandalaginu (Guörún Helgadóttir af hálfu Alþýðubandalagsins). 1 bréfinu sem sent var for- sætisnefnd Norðurlandaráðs er þess farið á leit að hinn sérstaki fundur þingmanna um þessi mál verði haldinn fyrir næsta þing Norðurlandaráðs. 1 bréfinu er nokkur rökstuðningur fyrir þeirri óks, sem þar kemur fram, og þar segir m.a., aö krafan um kjarn- orkuvopnalaust svæði á Norður- löndum sé brýnni nú en nokkru sinni fyrr, vegna vaxandi vig- búnaðarkapphlaups. Einnig er lögð á það áhersla að slik yfirlýsing af hálfu Noröur- landanna væri þýöingarmikið framlag til afvopnunar og til þess að draga úr spennu i heiminum. Þetta bréf til forsætisnefndar- innar hefur vakið mikla athygli hér á þinginu. Forsætisnefndin mun á næstunni fjalla um þær óskir, sem bornar eru fram i bréf- inu. Það er ljóst að undirtektir undir þau sjónarmið sem túlkuð eru i bréfinu um að Noröurlanda- ráð ræði einnig öryggismál hafa verið jákvæðar en þó er ekkert sem liggur fyrir um það, að til- mælin verði samþynkt. Einnig hafa komið fram hugmyndir um að öryggismálin verði rædd á al- mennum fundum Noröurlanda- ráðs sem sérstakur dagskrárlið- ur, og kom þetta sjónarmið m.a. fram i viðtali rikisútvarpsins við Gunnar Thoroddsen. forsætisráö- herra á þriðjudagskvöldið. — Þá hefur einnig vakið hér mikla athygli, aö einn af fulltrú- um finnskra kommúnista i Norðurlandaráði skrifar ekki undir þaö bréf sem gerö var grein fyrir hér á undan. — Hann hefur raunar ekki látið þar við sitja, þvi nú rétt áðan sendi hann frá sér sérstaka fréttatilkynningu, þar sem hann lýsir þvi yfir, að Norðurlandaráð, eða fundir á vegum þess, séu ekki réttur vett- vangur til að fjalla um öryggis- mál. Þessi fulltrúi finnskra kommúnista — Sten Söderström — lætur það koma sérstaklega fram i sinni fréttatilkynningu að umræður um þessi mál megi ekki fara fram i Norðurlandaráði. Þaö sé hins vegar verkefni friðar- hreyfinga á Norðurlöndum að fjalla um þessi efni. Stjórn Flugleiða: ENGIN ÁKVÖRÐUN ENN t gær var stjórnarfundur hjá Flugleiðum og var umræðuefni á honum tilmæli rikisstjórnarinnar um að aðalfundur félagsins veröi haldinn hiö fyrsta. Ekki virðist ganga beint vel að taka þessa ákvörðun þvf að mál- in vorurædd fram og tilbaka en engin niðurstaða fékkst. Næsti stjórn- arfundur verður haldinn á mánudaginn kemur og þá fæst væntanlega niðurstaða. __Qpr

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.