Þjóðviljinn - 06.03.1981, Page 7

Þjóðviljinn - 06.03.1981, Page 7
Ftistudagur 6. mars, 1981. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 7 20-30 sinnum á dag Ragnar Aðalsteinsson spurði hve oft á dag menn yrðu fyrir þessu hávaðaáreiti og hve lengi það stæði hvert sinn. Borgar- læknir sagði að hámarkið væri trúlega milli 20 og 30 sinnum á dag og stæði það frá hálfri upp i heila minútu i einu. Ragnar benti á þann hávaða sem hlýst af bila- umferð á 20—30 sekúndna fresti og sagði borgarlæknir að full ástæða væri ti þess að byggja Skúli Johnsen Adda Bára Sigfúsdóttir, borgarlæknir. formaður heilbrigðisráðs Reykjavíkurborgar. Albert Guðmundsson alþingismaður. Ásthildur Pétursdóttir húsmóðir. Pétur Sigurðsson alþingismaður. Mesti hávaðavaldurinn I Reykjavik er flugvöllurinn. Jtin E. Ragnars- son, spyr Skúla Johnsen borgarlækni. Hagkvæmt aö reisa ibúðarbyggð á svæðinu. Jtin E. Ragnarsson spyr Bjarka Jtihannesson arkitekt. Ljtism. —AI lega kosta um hálfan miljarð gamalla króna, en teikningar liggja fyrir. Að lokum var hann spurður um hvort það væri ekki æskilegur timi akkúrat núna að taka ákvörðun um flutning vallarins ef ætti að flytja hann á annað borð. Ég væri geðveikur ef ég svaraði þvi játandi, sagði flug- málastjóri. r Ahœttan afstœð Þorgeir Pálsson, dósent i verk- fræði i H1 var næsta vitni Ragnars Aðalsteinssonar en hann hefur haft afskipti af tæknimálum flug- vallarins i 4—5 ár og einnig starf- að erlendis. Þorgeir sagði að áhættan af flugvellinum væri af- stæð og benti á að hávaðamengun frá honum eða slysahætta hefði engin áhrif haft t.a.m. á fast- eignaverð i vesturbænum. Fólki fyndist alls ekki verra að búa i nálægð hans. Hann sagði að framþróunin i gerð flugvalla og flugvéla yrði sú að vélarnar yrðu hávaðaminni og myndu þurfa styttri brautir og hvoru tveggja væri áframhaldandi veru flug- vallarins á sinum stað i hag. Hann lagði áherslu á að flug- völlurinn væri nú hávaðaminni eftir að millilandaflugið var flutt i burtu og spurningum um á hvaða stöðum hávaðinn mæddi mest sagði hann að það væri viðskipta- hverfið i miðbænum, t.d. i Austurstræti, Kársnesið, Skerja- fjörðurinn, Ægissiðan og reyndar stór hluti vesturbæjarins en ekkert hefði borið á þvi að fólk reyndi að losa sig við hús sin þar af þeim sökum. Jón E. Ragnarsson spurði um öryggismál flugvallarins og sagði Þorgeir að þau væru i sérlega góðu lagi. Næst var leitt vitni Jóns E. Ragnarssonar, Skúli Johnsen, borgarlæknir. Hann sagði að hávaði almennt væri eitt af verri einkennum nútimasamfélags og að i Reykjavik væri tilvist flug- vallarins mesti hávaðavaldurinn. Þúsundir manna byggju við það að margoft á dag færi hávaði vegna hans yfir þau mörk sem talin eru vera truflandi fyrir at- hygli manna og yfirgnæfði allan annan hávaða. Áhrif sliks hávaða sagði hann vera hækkandi blóð- þrýsting og önnur óþægindi m.a. truflun á atferli og athygli en langvarandi áhrif væru ekki full- könnuð. Hann benti á að flugi stórra véla rétt yfir höfðum manna fylgdi einnig óöryggistil- finning og fæstir kæmust hjá þvi að hugsa sem svo, — hvað skeður ef vélin hrapar, jafnvel i hvert skipti. Þá sagði hann að sér væri ekki kunnugt um að nein könnun hafi verið gerð á þvi hvernig við slysi yrði brugðist. hljóðmúra og vernda fólk fyrir hávaða af umferðarþunga. Næsta vitni Ragnars Aðal- steinssonar var Karl Eiriksson framkvæmdastjóri en hann á sæti i rannsóknanefnd flugslysa. Karl sagði að veðurfræðilega séð væri Reykjavikurflugvöllur vel stað- settur og með samanburði við aðra flugvelli sem væru i byggð hefði hann ekki fundið neinn sem væri betur staðsettur en þessi. Einar Helgason, framkvæmda- stjóri innanlandsflugs Flugleiða var næsta vitni Ragnars, og sagði hann að á vegum Flugleiða færu um 240 þúsund farþegar um Reykjavikurflugvöll á ári, og um 60% þess fólks væri utan af lands- byggðinni. Einar sagðist óttast að mjög myndi draga úr fólks- flutningum i lofti innanlands ef flugvöllurinn yrði fluttur og það myndi þýða hækkuð fargjöld og óhagkvæmari rekstur. Þá sagði hann að 300—350 manns störfuðu við flugreksturinn i Reykjavik. Hann sagðist hafa orðið var við mikinn ótta manna utan af lands- byggðinni vegna þessara hug- mynda um flutning vallarins og nær einróma væru menn henni mjög mótfallnir enda hefði það óhagkvæm áhrif á ferðalög manna. Jón E. Ragnarsson minnti á að þegar millilandaflugið var flutt mótmæltu Flugleiðir þvi harðlega og töldu að það myndi hækka far- gjöld enda væri óhagkvæmara að reka flugið á tveimur stöðum. Einar sagði að auðvitað yrði sparnaður af þvi að hafa allt i Keflavik en flugtiminn yrði lengri og ef farþegum fækkaði yrði niðurstaðan dýrari fargjöld. Ekki „sérfrœðingur”, en reyndur Siðasta vitni Ragnars Aðal- steinssonar var Bjarni Einars- son fyrrum bæjarstjóri á Akur- eyri og var hann eina vitnið sem ekki telst til „sérfræð- inga” á einhverju sviði. Bjarni þurfti starfa sins vegna að fara margar snöggar ferðir til fundarhalda i höfuð- borginni og sagðist hann oft hafa stoppað aðeins örfáa klukku- tima i einu. Af þessu hefði verið mikið hagræði en útilokað væri að gera slikt ef flytja ætti völlinn til Keflavikur. Hann sagðist þrisvar hafa lent i þvi á 9 árum að lokað var á Reykjavikurflugvelli og þá lent i Keflavik. Það væri tóm vit- leysa að halda þvi fram að það lengdi timann aðeins um 30—35 minútur þvi þá hefði hann þurft að biða eftir siðust töskunum og siðasta farþeganum upp i rútuna. Einn og hálfur timi væri nær lagi. Hann lagði áherslu á að það væri skylda höfuðborgarinnar, að hafa góða aðstöðu fyrir fólk utan af landi sem þangað þyrfti að sækja þjónustu og Reykjavikurflug- völlur væri þar aðalatriði. Jón E. Ragnarsson spurði vitnið hvort hann hefði ekki trú á þvi að bæta mætti samgöngur á landi milli Keflavikur og Reykja- vikur og t.d. hafa bilaleigu þar. Kvað Bjarni já við þvi en sagðist viss um að farþegum i innan- landsflugi myndi fækka um helm- ing ef völlurinn yrði fluttur. Að loknum vitnaleiðslum töluðu lögmennirnir og drógu saman rökin fyrir sinum málflutningi Siðan dró kviðdómurinn sig i hlé og niðurstaðan varð að 7 vildu Bytja völlinn og 5 hafa hann áfram. -A1 Heim- speki og frá- sagnir Dr. Páll Skúlason, prófess- or í heimspeki, flytur opin- beran fyrirlestur á vegum heimspekideildar Háskóla tslands laugardaginn 7. mars 1981 kl. 15:00 i stofu 101 i Lögbergi. Fy rirlesturinn nefnist: „Hugleiðingar um heim- speki og frásagnir” og er hinn fyrsti i röðinni af fjórum fyrirlestrum, sem kennarar heimspekideildar flytja nú á vormisseri um rannsóknirog fræði i deildinni. Ollum er heimill aðgangur. Helgi- stundir í Firöinum I kvöld, föstudaginn 6. mars, kl. 20,30, verður haldin helgi- og bænastund i kapellu St. Jóepssystra, i Hafnar- firði. Verður svo áfram hvern föstudag fram að páskum. Helgistundirnar verða i umsjá presta kaþ- ólska safnaðarins og þjóð- kirkjusaínaðanna i Hafnar- firði og eru þær liöur i ein- ingarviðleitni kirkjunnar á kristniboðsári. 1891-1981 Málefni aldraðra Verzlunarmannafélag Reykjavíkur heldur borgarafund um málefni aldraðra að Hótel Sögu, Átthagasal, laugardaginn 7. marz klukkan 14.00. Fundurinn er öllum opinn. Þeirra hlutskipti í dag, verður okkar á morgun. Hvernig búum við að þeim sem arfleiddu okkur að velferðarþjóðfélaginu? Eru kjör þeirra í samræmi við hugmyndir æskunnar um eigið ævikvöld? Frummælendur verða:

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.