Þjóðviljinn - 06.03.1981, Blaðsíða 13
Föstudagur 6. mars, 1981. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 13
Sovétmeistaramótið:
Tveir jafnir og efstir
Sovéska meistaramótið i skák
var haldið stuttu eftir Olympiu-
mótið á Möltu. Flestir af þekkt-
ustu stórmeisturum Sovétrikj-
anna, meistarar á borð við
Karpov, Tal, Polugajveski,
Petrosjan, Kasparov, o.fl.,héldu
að sér höndum að þessu sinni, og
mótið var þvi að mestu skipað
ungum skákmönnum á uppleið.
Af eldri kynslóðinni mátti aðeins
finna Geller, Sovétmeistara sið-
asta árs, og Vasjúkov. Keppnin
var geysilega hörð, en i upphafi
virtist svo sem kunningi okkar
Islendinga, Viktor Kupreitchik,
ætlaði að hlaupa á brott með
sigurinn, þvi hann vann 5 fyrstu
skákir sinar, og eftir 10 umferðir
hafði hann hlotið 8 vinninga af 10
mögulegum. En þá sprakk hann
gjörsamlega, tapaði næstu fjór-
um skákum, og sigurmöguleikar
hans ruku út i veður og vind.
Efsta sætinu deildu tveir kepp-
endur sem væntanlega verða að
tefla um titilinn. Þetta voru þeir
Alexander Beljavski og Lev
Psachis, hlutu 10 1/2 vinning af 17
mögulegum. Pschais var fyrir
þetta mót meðölluóþekktur innan
sem utan Sovétrikjanna, en þarna
tefldi hann sitt lifs mót. Hann hélt
sig allan timann i námunda við
sHák
Umsjón: Helgi Ólafsson
toppinn og tefldi margar afbragös
skákir. Beljavski, sem einu sinni
áður hefur orðið i efsta sæti á
Sovétmeistaramótinu, árið 1974,
tefldi af mikilli hörku og er
örugglega einn sterkasti skák-
maður heims um þessar mundir.
Hann teflir rafmagnaðan hasar-
stil eins og eftirfarandi skák frá
meistaramótinu ber meö sér.
Hvítt: Rashkovski
Svart: Beljavski
Katalónsk byrjun
1. Rf3-Rf6
2. c4-e6
3. g3-d5
4. d4-dxc4
5. Bg2-c5
6. Da4 + -Rc6
7. 0-0-Bd7
8. dxc5
(Annar möguleiki er 8. Dxc4 b5
o.s.frv.)
8. .. Re5
9. Dc2-Rxf3 +
10. Bxf3-Dc8
11. Be3-Bxc5
12. Bxb7-Dxb7
13. Bxc5-Hc8
14. Ba3-h5!
15. h4-De4
16. Dd2-Bc6
17. f3-De5
ALÞVÐUBANDALAGIÐ
Alþýðubandalagið Húsavík
Aðalfundur Alþýðubandalagsins á Húsavik verður haldinn þriðjudag-
inn 10. mars i Snælandi og hefst kl. 20.30
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
Alþýðubandalagið Hafnarfirði.
Fundur verður haldinn i Skálanum fimmtudaginn
12. mars kl. 20.30. — Kjartan ólafsson ritstjóri fjall-
ar um bjóðviljann og svarar fyrirspurnum. —
Félagarfjölmenniðog takið þátt i umræðu um blað-
iðokkar,— Stjórnin.
Alþýðubandalagið i Suðurlandskjördæmi
Kjördæmisráðsfundur Alþýðu-
bandalagsins i Suðurlandskjör-
dæmi verður haldinn laugardag-
inn 7. mars kl. 14 I Verkalýðshús-
inu á Hellu.
Fundarefni: Atvinnumál.
Framsöguerindi flytja Guðrún
Hallgrimsdóttir og Sigurjón Er-
lingsson.
Stjórnin Sigurjón
Alþýðubandalagið á Akureyri
Bæ jarmá laráðsf undur
verður haldinn mánudaginn 9. mars kl. 20.30 i Lárusarhúsi.
Fundarefni: Fjárhagsáætlun bæjarins.
Alþýðubandalagið í Kópavogi
Félagsfundur
Fundur verður haldinn i' Þinghóli Hamraborg 11 laugardaginn 14 mars
n.k. kl. 13.30.
Fundarefni verður húsnæðisvandi framhaldsskólans i Kópavogi og
m.a. fjallað um hvort ráðist skuli i að reisa nýja byggingu til lausnar
honum.
Dagskrá verður auglýst nánar innan skamms.
Stjórn ABK
VIÐT ALSTÍM AR
þingmanna og borgarfulltrúa
Laugardaginn 7. mars milli
kl. 10 og 12 verða til viðtals
fyrir borgarbúa á Grettis-
götu 3:
Ólafur Ragnar Grimsson
Sigurjón Pétursson
Eru borgarbúar hvattir til að
nota sér þessa viðtalstima.
Ólafur Ragnar
Sigurjón
18. Kf2-Hd8
19. Db4-Hd7 21. Del-Hh6
20. Hdl-a5 22. Hxd7
22. .. Rg4+!
23. Kfl
(En ekki 23. fxg4 Hf6+ 24. Kgl
De3+ 25. Kh2 Hf2+ o.s.frv.)
23. .. Bxd7
24. e4
(Sem fyrr er riddarinn frið-
helgur.)
24. .. Df6
25. Ke2
(25. Kg2 veitti meira viðnám.)
25. .. Dd4!
26. fxg4-Hf6
27. Rd2-Dd3 +
28. Kdl-Ba4 +
— Hvitur gafst upp.
Þingsályktun
Framhald af bls.3
sem tiltölulega litið er vikiö að i
Austurlandsáætlun, efnistaka,
samgöngur, staðarval fyrir skóg-
rækt, staðarval fyrir iðnaö,
orlofsbústaðir, náttúruvernd, úti-
vist o.fl.
Þessa vinnu væri jafnframt
hægt að tengja gerð iðnþróunar-
áætlunar og þá ef til vill sér
staklega með tilliti til samgangna
og staðarvals fyrir iðnað af ýmsu
tagi.
—lg-
erlendar
bækur
Montaillou
Cathars and Catholics in a
French village 1294-1324.
Emmanuei Le Roy Ladurie.
Translated by Barbara Bray.
Penguin Books 1980.
Montaillou kom fyrst út hjá
Gallimard i Paris 1978. Sama ár
var bókin þýdd og gefin út i Eng-
landi og er nú endurprentuö hjá
Penguin. Saga Ladurie hlaut
þegar mjög lofsamlega dóma
franskra sagnfræðinga, hún var
talin einstök og viötökurnar urðu
sams konar erlendis. Höfundur-
inn er meðal fremstu sagnfræð-
inga Frakka og er meðal þeirra
sem standa að þvi ágæta sagn-
fræöiriti „Annales”. Hann er pró-
fessor viö Collége de France.
Höfundurinn styðst við skýrslur
rannsóknardómara rann-
sóknarréttarins, Jaques Four-
nier, sem siöar varð biskup og
kardináli og loks páfi i Avignon,
og kallaöist þá Benedikt XII.
Fournier var mjög vel að sér i
réttrúnaöi, dogmum þeirra tima
og átti i deilum við Eckhart
ásamt fleirum um trúardogmur.
Hann var mjög skarpur og skýr i
öilum sinum útlistunum og mjög
nákvæmur sem rannsóknar-
dómari i trúvillumálum. Skýrslur
hans eru þvi einstakar, hann þótti
mjög laginn að fá sannleikann út
úr hinum ákærðu án haröræða.
Ladurie hefur siðan unniö úr
þessum efniviði ásamt meö hlið-
sjón af öðrum samtima heimild-
um, verk sem er lifandi sam-
félagslýsing frá Suður-Frakk-
landi um og eftir aldamótin 1300.
Lýsing á þorpsbúunum i Montail-
lou, atvinnu þeirra, viðhorfum til
landstjórnarmanna og kirkju-
Jóhann
Sveinsson
frá Flögu
er látinn
Aöfaranótt 20. febrúar lést i
Reykjavik Jóhann Sveinsson frá
Flögu, 84 ára að aldri. Otför
hans hefur farið fram i kyrrþey.
Jóhann var fæddur 31. jan. 1897 i
Myrkárdal i Hörgárdal i Eyja-
firði. Foreldrar hans voru Sveinn
Jóhannsson bóndi þar og á Flögu
og Hólkoti i Hörgárdal og kona
hans Hallfriður Jóhannsdóttir.
Jóhann lauk búfræöiprófi frá
Hólum 1917, stúdentsprófi 1927 og
Cand. mag. prófi i norrænum
fræðum frá Háskóla Islands 1936.
Framan af æfi stundaði Jóhann
m.a. kennslustörf, en var frá 1941
bókavörður i Borgarbókasafni
Reykjavikur. Nokkur fróðleiksrit
liggja eftir Jóhann svo og greinar
og kvæði i blööum og timaritum.
Kona Jóhanns var Sigriður Sig-
urðardóttir, listmálari, sem látin
er fyrir nokkrum árum.
Jóhann Sveinsson frá Flögu
lætur eftir sig tvö börn.
Ávarp
Framhald af bls. 9.
föstudaginn 6. mars til sunnudags
8. mars verður sérhannað merki
selt á almannafæri og i ibúðar-
hverfum.
Kjörorð söfnunarinnar er:
EFLUM FRAMFARIR
FATLAÐRA
Sýnum það i verki meö þvi að
sameinast um það stórátak sem
kaup á taugagreini er. ATAKS
ER ÞÖRF VEGNA FATLAÐRA
— MEÐ VON UM STUÐNING.
Framkvæmdanefnd BKR vegna
verkefnis á Alþjóðaári fatlaðra
fursta, ástamálum þeirra og bar-
áttu innbyrðis, allt þetta birtist i
þeim persónum sem koma út úr
siðum þessarar bókar. Ladurie
hefur blásið lifsanda i hin fornu
réttarskjöl, svo að hinir lifandi
dauðu bændur, vinnumenn,
vinnukonur, greifar, prestar og
dómarar risa upp og samfélag
þessa fólks verður á næsta leiti.
Þetta er ein þeirra fágætu bóka,
sem verða sigildar svo til strax.
Clemens Brentano:
Gedichte. Herausgegeben von
Wolfgang Fröhwald, Bernhard
Gajek und Friedhelm Kemp.
DQnndruck-Ausgabe dtv-
bibliothek. Deutscher Taschen-
buch Verlag 1977.
Kvæöi Brentanons voru ekki
gefin út i heild fyrr en tiu árum
eftir fráfall hans þ.e. 1852 og sú
útgáfa var gölluð. Það var ekki
fyrr en með Hanser útgáfunni
1968, að verk hans komust
óbrengluð i hendur lesenda.
Brentano varð fyrstur til þess aö
koma Lorelei sögninni á framfæri
isögu sinni Godwi 1800—01. Hann
gaf út ásamt mági sinum Achim
von Arnim safnið Knaben
Wunderhorn, safn þjóðkvæða.
Fyrirmynd sumra ljóða hans
voru þjóðkvæðiaen jafnframt orti
hann um trúarleg efni með heim-
spekilegu ivafi. Þessi útgáfa er
vönduð og fylgja all ýtarlegar at-
hugagreinar og eftirmáli eftir
Wolgang Frlihwald.
Föstudagur: Opið kl. 19—03.
Hljómsveitin Glæsir og diskó ’74.
Laugardagur: Opið kl. 19—03.
Hljómsveitin Glæsir og diskó ’74.
Sunnudagur: Opiö kl. 19—01.
Stefán i Lúdó með sextett.
£lMurinn
Borgartúni 32
Símj. 35355.
Klúbburinn
FöSTUDAGUR: Opið frá kl.
22.30—03. Hljómsveitin Goðgá og
diskótek.
LAUGARDAGUR: Opið frá kl.
22.30—03. Hljómsveitin Goðgá og
diskótek.
SUNNUDAGUR :
Opið frá kl. 21—01. Diskótek.
HÓTEL
LOFTLEIÐIR
Simi 22322
VIKINGASALUR: BULGARIU-
KYNNING, matur, skemmtidag-
skrá og happdrætti.
BLÓMASALUR: Opið alla daga
vikunnar kl. 12—14.30 og
19—23.30.
VINLANDSBAR: Opið alla daga
vikunnar, 19—23.30, nema um
helgar, en þá er opið til kl. 01.
Opið í hádeginu kl. 12—14.30 á
laugardögum og sunnudögum.
VEITINGABUÐIN: Opið alla
da,ga vikunnar kl. 05.00—21.00.
#HOTilL<^
Í$kálafelT$h
FÖSTUDAGUR: Opið kl. 19—01.
Organleikur.
LAUGARDAGUR: Opið kl.
12—14.30 og 19—23.30. Organleik-
ur.
SUNNUDAGUR: Opið kl.
12—14.30 og kl. 19—01. Organleik-
ur. Tiskusýningar alla fimmtu-
daga.
ESJUBERG: Opið alla daga kl.
8—22.
i 82200
Sigtún
FöSTUDAGUR: Opið frá kl.
22—03. Hljómsveitin Brimkló,
diskótek og „Video-show”, Grill-
barinn opinn.
LAUGARDAGUR: Opið frá kl.
22—03. Hljómsveitin DEMO,
diskótek og „Video-show”. Grill-
barinn opinn.
Bingó kl. 14.30 laugardag.
FÖSTUDAGUR: Opið frá kl.
21—03. Hljómplötutónlist við allra
hæfi.
LAUGARDAGUR: Opiö frá kl.
21—03. Meira fjör, komið
snemma og forðist biðraðirnar
SUNNUDAGUR: Gömlu dans-
arnir frá kl. 21—01. Hljómsveit
Jóns Sigurðssonar svikur
engann!