Þjóðviljinn - 11.03.1981, Qupperneq 1

Þjóðviljinn - 11.03.1981, Qupperneq 1
Kosið í Háskólanum Kosningar fara fram i Háskóla Islands i dag og verða kosnir 13 fulltrúar i Stúdentaráð og 2 i Háskólaráð. Þrir listar bjóða fram, listi Vöku sem merktur er bókstafnum A.listi Vinstri manna merktur B,og umbótasinnar sem merktur er með C.Kosningar hefjast klukkan 9 og lýkur kl. 18. Kosiðer i hátiðarsal og ættu úrslit að liggja fyrir um kl. 22, ef talning gengur samkvæmt venju. Um kvöldið verður úrslita beðið á ýmsum stöðum, en það eitt vitum við hér að vinstri menn munu láta sem ekkert ,,C” og halda ball i Klúbbnum. Fasteigna- markaðurinn í Reykjavík: Aðeins 10% hækkun í janúar Alger kyrrstaða frá september til desemberloka Á siðasta ársfjórðungi 1980 var alger kyrrstaða á fasteigna- markaði á höfuðborgarsvæðinu og hækkuðu fasteignir ekki frá septembermánuði til desember- loka. Ýmsir höfðu spáð hækkunarskriðu uppúr áramót- um en könnun á sölusamningum i Reykjavik sýnir að I janúar hækkaði verð á stórum eignum i Vesturbæ, Stóragerðis- og Foss- vogssvæðinu nokkuð, aðrar eignir hækkuðu ekki. Heildarhækkun i janúar nam 10%. Tölur frá febrúarmánuði eru ekki mark- tækar en gefa visbendingu um að ekki verði framhald á hækkun fasteignaverðs i bili. Þessar upplýsingar fékk Þjóð- viljinn i gær hjá Fasteignamati rikisins en þvi berast nokkurn veginn jafnóðum allflestir sölu- samningar sem fara i gegnum fasteignasölur á landinu. Stefán Ingólfsson.deildarstjóri, sagði að þetta væri lengsta kyrrstaða á fasteignamarkaðinum sem þeir hefðu orðið varir við siðan reglu- lega var farið að fylgjast með þessum málum. Héöan i frá verður hver mánuður gerður upp i fyrstu viku þess næsta. Svo sem menn muna varð geysileg hækkun á fasteigna- markaði i Reykjavik á ársbyrjun 1980 en i aprilmánuði sama ár lækkaði verðið og i fyrsta sinn um árabil. Siðan hækkaði verðið aftur i mai og júni en 1 júlimánuði lækkaði það hins \tegar aftur. I ágúst varð vart nokkurrar hækkunar og eins i septembet en siðan þá haggaðist verðið ekki i október, nóvember og desember sem fyrr segir. Stefán Ingólfsson sagði að á þvi timabili hefði verðið verið um 10% yfir fast- eignamati þvi sem gildi tók 1. desember s.l. og byggist könnun- in á úrtaki tæplega 100 sölu- 'samninga þessa þrjá mánuði. I janúar var unnið úr 30 sölum i Reykjavik og kom i ljós að heildarhækkunin var um 10%, mest á stórum eignum en litil og engin hreyfing á þeim minni. Mjög fáar tölur hafa enn borist frá febrúarmánuði og sagði Stefán að þær væru ekki mark- tækar ennþá. Þó virtust þær ekki benda til þess að frekari hækkun yrði i bili. Sama þróun hefur orðið á öllu höfuðborgarsvæðinu. _AI Aðalfundur Flugleiða Stjórn Flugleiða ákvað á fundi sinum i gær að aöalfundur félags- ins skyldi haldinn 24rða april n.k. Sagði Orn O. Johnson að reikningar siðasta árs yrðu ekki tilbúnir fyrr og að fullt samkomu- lag væri um þessa dagsetningu við rikisstjórnina. —AI Hjörleifur Guttormsson, iönaðarráöherra i hópi noröanmanna i anddyri alþingishússins i gær. — Ljósm. eik. Margir Norðlending- ar vilja Blönduvirkjun 3256 undirskriftir afhentar ráðherra Hópur norðanmanna safnaðist saman i and- dyri Alþingishússins um tvö leytið í gær. Þeir höfðu lagt land undir fót í þeim tilgangi að afhenda Hjörleifi Guttormssyni iðnaðarráðherra undir- skriftir 3256 kjósenda í Norðurlandskjördæmi vestra, sem kref jast þess að næsta etórvirkjun verði virkjun Blöndu. 1 anddyrinu gat að lita ýmsa framámenn Húnvetninga, en yngra fólkið klæddist sérstökum bolum sem á var þrykkt mynd af Blöndu og áletrunin: Virkjum Blöndu. Stefán A. Jónsson hreppstjóri á Kagaðarhóli i Torfalækjarhreppi hafði orð fyrir Norðlendingum. Hann sagði að þær góðu undirtektir sem undirskriftasöfnunin hefði fengið (um 56,2% kjósenda) sýndi að vaxandi áhugi væri fyrir Blönduvirkjun, það væri vilji manna að unnið yrði mark- visst að virkjuninni, bæði með hagsmuni heimamanna og heildarinnar i huga. Auk undirskriftanna fylgdi með yfirlýsing frá þeim sem stóðu að söfnuninni óg einnig frá sex bændum sem verða næstu nágrannar virkjunarinnar. Þeir segja i sinu bréfi að þeir vilji ekki standa i vegi fyrir að hægt sé að stunda raforkuöflun á hag- kvæman hátt á þessu svæði. Eftir afhendinguna var haldið út á Hótel Borg og þar gerðu nokkrir forystumenn norðan- manna grein fyrir sjónarmiðum sinum. — ká Sjá frásögn á 3. síðu UNDIRSKRIFTIR BÆÐI MEÐ OG A MÓTI: Þurfum að leysa málin með friði — segir Hjörleifur Guttormsson, iðnaðarráðherra um virkjanadeilur L lljörleifur Guttormsson, iön- aðarráðherra tók á móti sendi- nefnd stuöningsmanna Blöndu- virkjunar i gær og veitti undir- skriftalistunum viötöku. Hann sagði sendimönnunum, að iðnaðarráðuneytið hefði nú til athugunar þá kosti sem til greina kæmu i virkjunarmál- um, — og að verið væri að þreifa fyrir sér um samninga við þá sem málin snertu. Hann gat þess að fyrr i vetur hafi hann tekið við undirskriftum að norðan sem gengu gegn Blöndu- virkjun með þeirri tilhögun sem mest hefur verið á dagskrá. I þeim orðum sem Hjörleifur mælti við móttöku undirskrift- anna lagði hann áherslu á mikil- vægi þess að sæmilegur friður rikti um meiriháttar virkjunar- framkvæmdir. I samtali við blaðamann Þjóðviljans siðdegis i gær minnti ráðherrann á, að samn- ingaviðræður hefðu staðið yfir frá þvi i fyrra um Blöndu- virkjun og þeim væri enn ekki lokið. Hjörleifur tók lika fram að viðar en á Norðurlandi vestra væri fyrir hendi mikill áhugi heimamanna fyrir að fá virkjað i heimah^raði. 1 þeim efnum mætti t.d. minna á af- stöðu Austfirðinga. Við spurðum Hjörleif hverjir það hefðu aðallega verið sem fyrir nokkrum mánuðum lögðu fram undirskriftalista og and- mæltu Blönduvirkjun miðað við þá tilhögun hennar sem mest hefur verið á dagskrá. Hjörleifur sagði að þar hafi aöallega verið um að ræða fólk úr nokkrum sveitahreppum Húnavatnssýslu og úr sveitum i Skagafiröi. Við erum að vinna af fullum krafti i ráðuneytinu að þessum virkjanamálum, sagði Hjör- leifur og væntum þess að yfir- standandi þing fái þau til með- ferðar. En það er öllum kunnugt að hér koma fleiri en einn kostur til álita. —j 'J Fasteignamat Torfunnar: Lækkaö um 739 gamlar miljónir Landlœknishúsið hœkkað um 54 miljónir kr. Fasteignamat rikisins hefur tekið kæru Torfusamtakanna fyr- ir og iækkað fasteignamat á Torf- unni, húsum og lóðum um sam- tals 738 miljónir, 862 þúsund gamalla króna, eða um riflega 50%. Borgarráð ákvað i gær að áfrýja þessari niðurstöðu til yfir- fasteignamatsnefndar með 3 atkvæðum Sjálfstæðisflokks og Alþýðuflokks. FuIItrúar Alþýðu- bandalags og Framsóknar sátu hjá. Með samningi þeim sem Torfu- samtökin gerðu við rikið um leigu Torfunnar til 12 ára, tóku þau að sér greiðslu fasteignagjalda en þau skipta tugum miljóna og hafa samtökin eðlilega ekki getað staðið undir þeim um leið og endurbyggingin er i fullum gangi. Fasteignamat miðar sem kunnugt er við hámarks nýtingu lóða og á skipulagi er gert ráð fyrir stór- hýsum á Torfunni. Leigusamn- ingurinn jafngildir hins vegar ákvörðun um að húsin standi út aðalskipulagstimabilið og nýting lóðanna verði þvi ekki aukin og kærðu samtökin matið með tilliti til þess. Allar lóðirnar voru f endurmati lækkaðar svo og öll hús á þeim önnur en þaö sem búið er að gera upp; Landlæknishúsið var hækk- að úr 4 miljónum gamalla króna i 58miliónir. Sem fyrrsegir nemur heildarlækkunin samt sem áður tæpum 739 miljónum gamalla króna. — AI Þorskafli mun minni en í fyrra Auknar veiðitak- markanir segja til sin Þorskaflinn fyrstu tvo mánuði ársins er mun minni en var á sama tima i fyrra. Koma þarna til auknar veiðitakmarkanir á þessari vetrarvertið. Fyrstu tvo mánuðina i fyrra veiddu togarar 53.459 lestir af þorski en i ár 24.998 lestir. Bátar veiddu i fyrra 28.436 lestir en i ár heldur meira eða 30.834 lestir. Og heildaraflinn fyrstu tvo mánuöi ársins i fyrra var 400.507 lestir en i ár 188.872 lestir. Hér munar að sjálfsögðu mest um loönuaflann. 1 fyrra voru veiddar 291.093 lestir af loðnu i janúar og febrúar en i ár aöeins 86.249 lestir. —S.dór

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.