Þjóðviljinn - 11.03.1981, Side 3

Þjóðviljinn - 11.03.1981, Side 3
Miðvikudagur 11. mars 1981 ÞJÓDVILJINN — SIÐA 3 Tveir norðanmanna um Blönduvirkjun Þýðingarmikið öryggisatriði Gisli Pálsson bóndi á Hofi i Vatnsdal var i hópi þeirra sem voru viðstaddir i gær þegar iðn- aðarráðherra voru afhentar undirskriftirnar að norðan. Hann sagði að höfuðrökin fyrir þvi að nú yrði ráðist i virkjun Blöndu væru þau að tryggja þyrfti rekstraröryggi rafveitnanna og næga raforku og veturinn i vetur hefði sýnt fram á að gripa þyrfti til skjótra aðgerða. „Blanda er i fyrsta lagi ekki á eldvirku svæði og auk þess er hún á öðru úrkomusvæði en virkjan- irnar fyrir sunnan sem er þýð- ingarmikið öryggisatriöi”. Gisli taldi að afstaða manna i héraðinu stjðrnaðist ekki af bú- setu eða atvinna manna; bændur væru siður en svo meiri andstæð- ingar virkjunarinnar en aðrir. Hann vildi ekki gera mikið úr þeim landskemmdum sem fram- kvæmdirnar hefðu i för með sér. Talsvertland fer undir vatn sagði hann en taldi að það ætti ekki að koma i veg fyrir að virkjað yrði. Þá taldi Gisli að Blönduvirkjun væri hagsmunamál fyrir fleiri en Húnvetninga t.d. yki hún stórlega á öryggi Vestfjarðalinunnar. Þetta mál er núna i höndum fjögurra manna áleit Gisli, þ.e. Hjörleifs Guttormssonar og odd- vita Torfalækjar og Svinavatns- hreppa og sveitarstjórans á Blönduósi. Jón Jónsson framkvæmdastjóri rækjuvipnslunnar á Skagaströnd tók i sama streng og Guðjón að I Listahátið: | Borgarráð \breytti nýju ! lögunum Svo sem skýrt var frá i Þjóðviljanum i siðustu viku samþykkti fulltrúaráðs- fundur Listahátiðar ný lög fyrir hátiðina á fundi sinum eftir áramót. Til þess að lög- in öðlist gildi þurfa þau stað- festingu menntamálaráðu- neytis og borgarráðs og er staðfesting ráðuney tisins þegar fengin. Borgarráð Reykjavikur fjallaði hins vegar um lögin i gær og sam- þykkti nokkrar breytingar á þeim að tillögu Davíðs Odds- sonar. Þarf fulltrúaráðs- fundur þvi að fjalla um þau að nýju. Þær breytingar sem borgarráð samþykkti voru að framkvæmdastjórn skuli ábyrgjast fjárreiður Lista- hátiðar, ekki framkvæmda- stjóri, — að fulltrúar rikis og borgar hafi neitunarvald i sambandi við ákvarðanir sem krefjast fjárútláta og að framkvæmdastjóri skuli aldrei ráðinn til lengri tima en næsta fulltrúaráðsfundar eftir hverja Listahátið. —A1 Gisli Pálsson. Jón Jónsson það væri öryggisatriði að virkja Blöndun umfram önnur fallvötn vegna legu hennar á óeldvirku svæði og á öðru úrkomusvæði en virkjanir sunnanlands. Hann lagði einnig áherslu á að það væri þjóðhagslega mikilvægt að tryggja að næg raforka væri til húsahitunar á landinu öllu. Jón sagði einnig að hinn harði vetur sem nú stendur yfir sýndi mönn- um vel fram á það fyrir norðan hvert óöryggi þeir byggju við i raforkumálum og sagði sem dæmi að i þvi fyrirtæki sem hann veitir forstöðu hefði engu mátt muna að mikið magn verðmæts hráefnis hefði eyðilagst vegna rafmagnstruflana i óveðrinu á dögunum. Báðir töldu þeir Jón og Gisli, að samningar væru mögulegir og að hægt ætti að vera að finna lausn sem allir gætu sætt sig við. Mjög fáir væru andstæðir Blöndu- virkjun i hvaða mynd sem væri. Blandast stóriðjudraumar inn i þetta mál? Þvi svöruðu báðir neitandi. Engar hugmyndir væru uppi um stóriðju i tengslum við virkjunina. Blönduvirkjun væri hagkvæm lausn á raforkuþörf landsmanna, hún skapaði ákveðið öryggi sem aðrar virkjanir gætu ekki tryggt, auk þess sem hún efldi atvinnulif i héraðinu. —T í I Seðlabankinn: Hættum nú að tala um gamlar krónur „Aðaláfanga gjaldm iðils- breytingarinnar er nú náð”, segir I fréttatilkynningu frá Seðla- banka tslands. Þar kemur fram að aðeins eru útistandandi 27 mil- jónir af gömlum krónum, sem er um 9% af seðlum og mynt i um- fcrð. Þá þakkar Seðlabankinn það góðum undirtektum almennings og góðri samvinnu banka og sparisjóða hve hratt og vel gjald- miðilsbreytingin gekk fyrir sig en siðan segir orðrétt: „Þótt gjaldmiðilsskiptin sjálf hafi gengið svona greiðlega fyrir sig, er enn áberandi, hve tamt fjölmiðlum og almenningi er enn aö tilgreina fjárhæðir i gömlum krónum. Nú þegar skattaframtöl og reikningsuppgjör fyrir siöast- liðið ár eru að mestu að baki, er ástæöa til þess að hvetja alla til að tilgreina fjárhærðir sem allra mest i nýjum krónum og án þess að merkja þær sérstaklega sem nýkrónur. Hins vegar er mjög nauðsynlegt, þegar fjallað er um fjárhæðir i gömlum krónum, að þess sé sérstaklega getiö”. Stuðningsmenn Blönduvirkjunar: Biönduvirkjun er hag- kvæmasta leiöin til orku- öflunar. Þaö veröur hægt að tengja hana inn á lands- kerfið, hún kemur ekki aðeins Norðlendingum til góða, heldur öllum lands- mönnum. Hún mun skapa atvinnu, verða lyftistöng fyrir atvinnulífið, auk þess sem hún er utan eldfjalla- svæða og á öruggu vatna- svæði og mun tryggja orku á svæðum sem hafa búið við rafmagnsskort, stund- um sólarhringum saman. Þannig hljómuðu rök þeirra norðanmanna sem kölluðu blaða- Stefán A. Jónsson bóndi á Kagaöarhóli afhendir Hjörleifi Guttormssyni iðnaðarráðherra undirskriftirnar. Blönduvirkjun hagkvæmust menn á sinn fund að Hótel Borg eftir að hafa afhent Hjörleifi Guttormssyni undirskriftalista þar sem hvatt var til ákvörðunar um Blönduvirkjun. A fundinum voru flestir þeirra 70—80 karla og kvenna sem komið höfðu ýmist landveg eða fljúgandi til að vera með i aðgerðunum. Pálmi Jónsson landbúnaðarráð- herra var viðstaddur og kom greinilega i ljðs að margir stuðn- ingsmanna hans voru staddir á Borginni, þvi honum var fagnað með lófaklappi. Magnús Ólafsson bóndi á Sveinsstöðum kynnti ræöumenn sem voru menn úr ýmsum hrepp- um og öllum stjórnmálaflokkum. Þeir röktu siðan einn af öðrum helstu rök sem mæltu með Blönduvirkjun.þausem talin voru hér að ofan. Stuðningsmenn Blönduvirkj- unar nefndu einkum hagkvæmni, öryggi fyrir Norðlendinga, það að tryggja betur jafnvægi i byggð landsins, og aukin atvinnutæki- færi, sem virkjunin myndi skapa. A fundinum kom ekki fram hvaða áform eru uppi um atvinnumál, en Þórður Skúlason hreppstjóri á Hvammstanga og varaþing- maður Alþýðubandalagsins nefndi að virkjunin þyrfti ekkiað tengjast stóriðju. Þá komu náttúruverndarsjðnarmið litt viö sögu. Grimur Gislason frá Blönduósi og form. Framsóknar- félags A-Húnvetninga spurði aðeins hvort öllum framkvæmd- um fylgdi ekki röskun á lifrikinu. Þeirri spurningu var beint til Pálma Jónssonar ráðherra hvaða skoðun hann hefði á virkjunar- málinu. Hann sagöist telja nauð- syn á að lagaheimildar yrði aflað á þessu þingi og ákvöröun tekin um næstu stórvirkjun fyrir vorið. Það kom fram að i hreppunum vestan Blöndu er hvað mest fylgi við Blönduvirkjunina, en austan árinnar eru skoðanir skiptari, enda er mestur hluti þess lands sem fer undir vatn þeim megin Blöndu. Þeir norðanmenn voru spurðir hvernig þeir ætluðu aö fylgja að- gerðum sinum eftir og var svar þeirra á þá lund að nú heföu þeir komið vilja sinum á framfæri; þeir vonuðu aö ráðamenn myndu taka tillit til þess. —ká Gærufóðruð kuldastígvél herra, 481,- Gærufóðraðir kuldaskór herra 372,- Loðfóðraðir kuldaskór barna, Duffys, 330,- Loðfóðraðir kuldaskór f. fullorðna, Duffys,... 365,- Loðfóðruð kuldastigvéi fuilorðinna Loðfóðruð kuldastigvélbarna, Loðfóðruð kuldastigvél kvenna, 407,- Loðfóðruð kuldastigvél kvenna, 363,- Skiðagallar í herrastærðum, ••••«••■•••••••»»•••604,- Skiðagallar i dömu-unglingastærðum, • •••••*••••«•«•••••• 4öö}“ Skiðagaliar i barnastærðum, •••••••••••«•«•••■••331,- Skiðavesti barna Snjóbuxur i unglingastærðum, Vélsleðagallar, Herraúlpur, Duffys, Herraúlpur, Marks & Spencer, Döniuúlpur Duffys, Barnaúlpur, Duffys, 266,- Barnaúipur, VIR, Ungbarnagallar, heilir og tviskiptir frá Athugið að framvegis verða beinir simar í verslunina: Búsáhöld — Gjafavara ..................19004 Fatnaður — Skór....................... 12723 Raftæki — Ferðavörur — Leikföng.........16441 Verslunarstjóri....................... 26414

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.