Þjóðviljinn - 11.03.1981, Qupperneq 13

Þjóðviljinn - 11.03.1981, Qupperneq 13
Miðvikudagur 11. mars 1981 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 13 Samgönguráðherra um afganginn af ríkisábyrgð til Flugleiða: Verða að uppfylla öll skílyrði fyrst Steingrímur Hermannsson samgönguráðherra greindi frá þvi á Alþingi i gær að hann hefði tilkynnt stjórn Flugieiða aö fyrir- tækið myndi ekki fá þann fjórð- ung af rikisábyrgð sem enn hefur ekki verið afgreiddur fyrr en það hefði uppfyllt öll þau skilyrði sem Alþingi setti fyrir rikisábyrgðinni. Meðal þeirra skilyrða sem sett höföu verið var að boðað væri til aðalfundar Flugleiða til að tryggja rlkissjóði auknu aðild að stjórn fyrirtækis- ins í samræmi við aukna hluta- fjáreign landsmanna. Við umræðu um þetta mál lýsti Ólafur Ragnar Grimsson þeirri skoðun sinni að enn væru óupp- fyllt 3 af þeim skilyrðum sem Al- þingsjá þingi hefði sett. I fyrsta lagi hefði starfsfólki Flugleiða verið gert nær ókleift að eignast hlut i fyrir- tækinu með ýmis konar undan- brögðum. í öðru lagi hefði skil- yrði um aukna aðild rikissjóðs að stjórn Flugleiða ekki verið upp- fyllt. 1 þriðja lagi hefði verið reynt aö hindra kaup starfsfólks Arnarflugs á hlutabréfum i fyrir- tækinu með þvi að skylda það til að kaupa stóran varahlutalager er kostaöi meira en allt hlutaféð. Auk Ólafs og Steingrims tóku Halldór Asgrimsson, Arni Gunnarsson, Eiður Guðnason og Kjartan Jóhannsson til máls um máliö, en sá siðastnefndi hóf um- ræðuna með þvi að spyrjast fyrir hversu mörg af áðurgreindum skilyrðum fyrir rikisábyrgð hefðu verið uppfyllt. — þ Samgönguráðherra: Landsmenn í herkví hárra flugfargjalda Komið í veg fyrir ódýrt leiguflug Arnarflugs ,,A það að liðast að okkur sé haldið í herkvi hárra fargjalda?” spurði Steingrimur Hermannsson samgönguráðherra á Alþingi i gær þegar rætt var um málefni Flugleiða. Sagði ráðherra aö nú lægi fyrir að fjölmörg erlend leiguflugfélög væru reiðubúin að bjóða ferðir til tslands á mun lægra verði en Flugleiðir gætu boðiö. Ráðherra sagöi aö hér væri mál sem nauðsynlegt væri að at- huga. Samgönguráðherra tók sem dæmi að danskt flugfélag byði upp á ferðir til tslands fyrir um 3200 isl. krónur. Væri þar gert ráð fyrir vikudvöl i 2 manna herbergi. Fram kom hjá ráðherra að ákveðnir aðilar hefðu komið i veg fyrir aö Arnarflug fengi að bjóða i leiguflug til Norðurlanda, en með sliku leiguflugi hefði tslendingum liklega staðið til boða ferð á svipuðu verði og hjá hinu danska flugfélagi. Sneiðmyndatæki keypt fyrir Borg- arspitalann Borgarráð samþykkti i gær að taka tilboði i tölvusneiðmynda- tæki fyrir Borgarspitalann og á tækið að kosta rúmar 300 milljón- ir gamalla króna. Munu þvi bæði Landspitali og Borgarspitali fá slik tæki i þjónustu sina á þessu ári. _ AI Leiðrétting 1 Sunnudagsblaði Þjóðviljans datt niður lina þar sem greint var frá atkvæðagreiðslu i borgar- stjórn um 17 miljón g.króna skuldajöfnun við Kristján Knúts- son, eiganda Hafnarstrætis 20. Allir borgarfulltrúar Alþýðu- bandalagsins greiddu atkvæði á móti þessari skuldajöfnun þar með talin þau Guðmundur Þ. Jónsson og Guðrún Agústsdóttir, en nöfn þeirra duttu niður i prentuninni. Er beðist velvirð- ingar á þessu. Skipsskaði við Grímsey Ellefu tonna bátur strandaði og sökk Enn einn skipskaðinn átti sér stað i fyrrakvöld og að þessu sinni var það 11 tonna bátur frá Grims- ey, Valþór EA 210, sem strandaði við eyjuna og sökk skömmu siðar. Mannbjörg varð. Óhappið átti sér stað um kl. 21.30 þegar báturinn var á heimleið úr róðri. Steytti hann þá á grynningum sem sjómenn þarna þekkja vel,en venjuleg leið i land liggur rétt fyrir utan þessar grynningar en að þessu sinni fór báturinn of nærri. Þessar grynn- Ólafur Ragnar Grimsson minnti á i þessu sambandi að gróði Flugleiða af Evrópuflugi 1979 var um 2 miljarðar gamalla króna. Með hinum háu far- gjöldum Flugleiöa væri i reynd verið að leggja ferðahaft á lands- menn. Nauðsynlegt væri að stuðla að flugsamgöngum er tryggöu jafnódýr fargjöld og nágrannar okkar byggju við. — Þ ingar eru ekki langt frá höfninni og kom Magnús EA skipverjum, sem voru tveir, til bjargar og tókst honum að komast upp að hlið Valþórs og ná skipverjunum um borð rétt áður en báturinn sökk. Veður var heldur slæmt þegar óhappið átti sér stað, hriðar- mugga og 6 vindstig. Skipstjóri á Valþóri EA var Haraldur Jóhannsson. — S.dór Blikkiöjan Ásgaröi 7/ Garðabæ Önnumst þakrennusmíði og uppsetningu — ennfremur hverskonar blikksmíöi. Gerum föst verötilboö SIMI 53468 A Bílbeltin hafa bjargað IUMFEROAR RÁO ALÞYÐUBANDALAGID Alþýðubandalagið Hafnarfirði. Fundur verður haldinn i Skálanum fimmtudaginn 12. mars kl. 20.30. — Kjartan Ólafsson ritstjóri fjall- ar um Þjóðviljann og svarar fyrirspurnum. — Félagar f jölmennið og takið þátt i umræðu um blað- iðokkar.— Stjórnin. Alþýðubandalagið i Suðurlandskjördæmi Kjördæmisráðsfundur Alþýðu- bandalagsins i Suðurlandskjör- dæmi verður haldinn laugardag- inn 14. mars kl. 14 i Verkalýðs- húsinu á Hellu. Fundarefni: Atvinnumál. Framsöguerindi flytja Guðrún Hallgrimsdóttir og Sigurjón Er- lingsson. Stjórnin Sigurjón Guðrún Alþýðubandalagið Grundarfirði Almennur félagsfundur verður haldinn i húsi Verkalýðsfélagsins fimmtudaginn 12. mars kl. 20.30. Fundarefni: Blaðaútgáfa félagsins. — Stjórnin. Alþýðubandalagið í Kópavogi Félagsfundur. Fundurverður haldinn i Þinghóli, Hamraborg 11, laugardaginn 14. mars n.k. kl. 13.30. Fundarefni er húsnæðisvandi framhaldsskólans i Kópavogi. Dagskrá: 1. Framsögurum a) hvort nýta eigi hluta af núver- andi húsnæði grunnskólans fyrir framhaldsskólann.Gisli ólafur Pétursson. b) Hvort byggja eigi nýjan skóla fyrir framhaldsskólann i Kópa- vogi. Arni Stefánsson. 2. Frjálsar umræður 3. Starfshópar Kaffihlé Arni Gisli 4. Inntaka nýrra félaga 5. Starfshópar skila áliti Fundarlok verða kl. 18.30 Mætið stundvislega. Stjórn ABK. Alþýðubandalagið á Akranesi Opið hús i Rein. Mánudaginn 16. mars frá kl. 20.30 hefur Alþýðubandalagið á Akra- nesi opið hús i Rein. Guðrún Helgadóttir og Skúli Alexander- son alþingismenn koma og spjalla viö gesti um stjórnmálaviðhorfið. Kaffiveitingar. — Félagar fjöl- mennið og takið með ykkur gesti. — Alþýðubandalagið á Akranesi. Skúli Guðrún Alþýðubandalagið i Reykjavik Fundaröð um starf og stefnu Alþýðubanda- lagsins Ríkisstj órnarþá tttaka Alþýðubandalagsins 1971-74, 1978-79 og í núverandi ríkisstjórn Fundur um ofanskráð efni verður n.k. fimmtudagskvöld (12. mars) kl. 20.30 að Grettis- götu 3 (athugið breyttan fundarstað). Frummælendur á fundinum verða Svavar Gestsson og Þröstur Ólafsson. Félagar fjölmennið Stjórn ABR Svavar Þröstur Herstödvaandstæðingar Herstöðvaandstæðingar — Al- þýðubandalag Héraðsmanna Opinn fundur um herstöðvamálið i Menntaskól- anum á Egilsstöðum laugardaginn 21. mars kl. 2 e.h. Bragi Guðbrandsson menntaskólakennari heldur framsöguerindi. Umræður. Bragi Guð- brandsson

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.