Þjóðviljinn - 02.04.1981, Side 3
Fimmtudagur 2. april, 1981. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3
Hafnfirsk menningarvaka:
F j ölbrey tt
dagskrá I
hefla
Dagana 4. til 11. april veröur i
Hafnarfiröi menningarvaka meö
fjölbreyttri dagskrá. Bæjarstjórn
stendur fyrir vökunni, en undir-
búning hefur annast þriggja
manna nefnd sem i eru: Siguröur
Hallur Stefánsson, Berent Svein-
björnsson og Árni Ibsen Þorgeirs-
son.
Menningarvakan hefst laugar-
daginn 4. april með einsöngstón-
leikum i Bæjarbiói, en sama dag
verða einnig opnaðar tvær mál-
verkasýningar. Eirikur Árni Sig-
tryggsson sýnir oliu-og vatnslita-
myndir að Reykjavikurvegi 66 og
i húsi B jarna riddara sýnir Gunn-
laugur Stefán Gislason vatnslita-
myndir. Sunnudaginn 5. april kl.
17 verður fimleikasýning i
iþróttahúsinu við Strandgötu,
mánudaginn 6. april sýnir Leik-
félag Flensborgarskóla „Jakob
eða agaspursmálið” eftir Ionesco
og þriðjudaginn 7. april verða
kammertónleikar i Hafnarfjarð-
arkirkju.
Fimmtudaginn 9. april verður i
Hrafnistu dagskrá um örn
Arnarson, skáld, og kvikmyndin
„Punktur, punktur, komma,
strik ” verður sýnd tvivegis i
Bæjarbiói. Föstudaginn 10. april
leikur Lúðrasveit Hafnarfjarðar
viku
fyrir dansi i samkomusal Flens-
borgarskóla og ennfremur verða
skemmtiatriði. Siðasta dag vök-
unnar laugardaginn' 11. april
verða svo tónleikar i Hafnar-
fjarðarkirkju og Hafnarfjarðar-
myndin „Þú hýri Hafnarfjörður”
verður sýnd i Bæjarbiói.
Dagskrá vökunnar verður
nánar kynnt i Þjóðviljanum
jafnóðum.
Það var á siðasta ári að bæjar-
stjórn Hafnarfjarðar skipaði
nefnd til að kanna skipulagningu
á „menningar- og skemmti-
dögum” i bænum og komst
nefndin fljótlega að þvi að það
væri ekki einungis mögulegt
heldur æskilegt að efna til menn-
ingarvöku i bænum.
Eitt helsta leiðarljós nefnd-
arinnar var að sögn nefndar-
manna vitneskjan um mikinn
fjölda af góðum listamönnum i
hinum ýmsulistgreinum sem búa
i bænum eða hafa búið þar ein-
hvern tima. Af nógu er að taka
eins og dagskrá vökunnar ber
með sér en undirtektir og aðsókn
að þessari fyrstu vöku mun ráða
miklu um hvort framhald verður
á næstu árum. Nóg púður er i
tunnunni að sögn þeirra sem
undirbúið hafa vökuna. —AI
Nefndm sem annaöist undirbúning Menningarviku Hafnarfjaröar
ásamt bæjarstjóranum, f.v. Einar I. Halldórsson, bæjarstjóri, Siguröur <
Hallur Stefánsson, Arni Ibsen, Þorgeirsson og Berent Sveinbjörnsson. j
(Ljósm. —eik—)
Frétt Þjóöviljans igær um vind-og sólarorkuvinnslu á Hallgrfmskirkju
var að sjálfsögðu aprilglens I tilefni dagsins. En heiðurinn af módeli
kirkjunnar með vindorkurafstöð og sólarspegli á Einar Þorsteinn As-
geirsson arkitekt, sem gekk i lið mcð okkur og hér sést blása I mylluna.
— Ljósm.: —gel—
Kjarnfóðrið:
Skömmtun hætt
A fundi Framleiðsluráðs land-
búnaðarins i fyrradag var sam-
þvkkt að fella niður um sinn
skömmtun þá á kjarnfóðri, sem
gilt hefur siðan 1. sept. i haust.
Astæðan fyrir afnámi skömmt-
únarinnar er sú, að menn óttast
grasleysi á komandi sumri vegna
þess tiðarfars, sem lengstaf hefur
rikt i vetur. Jörð er óvenjulega
svellrunnin og það ástand býður
kalhættunni heim.
Kjarnfóðurskömmtunin var,
sem kunnugt er, tekin upp i þvi
augnamiði að draga úr búvöru-
framleiðslunni, einkum mjólk-
inni. Skömmtunin, ásamt þeim
ráðstöfunum öðrum, sem gerðar
voru i sama skyni, hefur verkað
fljótar en flestir áttu von á. Er nú
svo komið, að ftijólkurframleiðsl-
an er við það inark, að fullnægja
aðeins innanlandsneyslu. Það
verður þvi ekki annað sagt en að
þær hafi sannað gildi sitt.
Þótt kjarnfóðurskömmtunin
hafi nú verið afnumin gildir
fóðurbætisskatturinn áfram.
—mhg
ÓsammáJa
túlkun
ráðherra
Félagsfundur Lyfja-
fræðingafélags tslands hald-
inn 16.03. ’81 samþykkti ein-
róma eftirfarandi ályktun:
„Félagsfundur LFt hald-
inn 16.3.’81 lýsir sig ein-
dregið ósammála þeirri túlk-
un heilbrigðismálaráðherra
á 5. tl. 9. gr. lyfsölulaga frá
1963 er fram kemur i
greinargerð ráðherra vegna
veitingar lyfsöluleyfisins á
Dalvik og send var fjöl-
miðlum.
Þessi túlkun er i ósam-
ræmi við ákvæði um starfs-
leyfi i lögum um lyfja-
fræðinga nr. 35/1978 en þar
segir i 4. tl. 3. gr. að til þess
að öðlast starfsleyfi þurfi
lyf jafræðingur að „hafa
unnið að minnsta kosti eitt ár
við framleiðslu lyfja, til-
búning, merkingu og af-
greiðslu, eða önnur lyfja-
fræðistörf hér á landi”, sbr.
greinargerð sem lögð var
fram með frumvarpinu á
Alþingi áður en lögin voru
samþykkt, sbr. og 8. og 9. gr.
laganna.”
Grohe-
skákmót í
Borgamesi
Sunnudaginn 5. april n.k.
gengst Skákdeild UMF
Skallagrlms I Borgarnesi
fyrir skákmóti i Hótel
Borgarnesi. Mótið hefst kl.
13 og verða tefldar 15
minútna skákir, ellefu
umferðir eftir Monradkerfi.
Vegleg verðlaun, sem
Þýsk-islenska verslunar-
félagið gefur, eru i boði og
þátttaka er ötlum heimil.
Þátttökugjald er kr. 30.
Skákstjóri verður Guðjón
Ingvi Stefánsson fram-
kvæmdastjóri Sambands
sveitarfélaga á Vesturlandi.
Jónas Þorvaldsson skák-
meistari mun tefla fjöltefli
viðþá þátttakendur i mótinu
sem mæta kl. 10 f.h. á móts-
stað. Vegna timaskorts getur
þó þurft að takmarka fjölda
þeirra.
MARTEINN JÖNASSON,framkvæmdastjórí,um ásakanir Vísis:
Ætterni Halidórs
skipti engu máli
heldur hitt að hann er harðduglegur sjó-
maður og hefur reynst vel í störfum
sandkorn
.*>
Jdhanna S. Sigþórsdóttir
blaðamaður skrifar:
Hrossakaup
Svo sem Sandkorn
grcindi frá i gær, hefur
veriö ákveöiö bak viö
tjöldin, aö Björgvin
Guömundsson setjist i
sæti framkvæmdastjóra
Bæjarútgeröar Reykja-
vfkur innan tíöar. Þykir
þaö gott og blessaö. þvf
Björgvin er hinn ágætasti
maöur I alla staði.
Hitt hefur aftur vakiö
megna öánægju, hvernig
staöiö hefur veriö ab
ráöningu n v s skipstjóra á
togarann Bjarna Bcne-
diktsson. sem er i eigu
BCR. 1 þaö starf hefur
'veriö ráöinn Halidór
Pélursson, áöur 2. stýri-
maöur.
Heyrast þær raddir. aö
þarna hafi veríö gcngiö
fram hjá mönnum, sem
heföu þann starfsferil aö
baki, aö þeir heföu átt aö
ganga fyrir. Skýringín á
þessu er sögö sú, aö
Haildór sé bróöir Sigur-
jóns Péturssonar, sem
hafl styrkt Björgvin I
framkvæmdastjórastól-
inn, gegn þvi aö bróöir
fengi skipstjórann.
1 tveimur fréttum I Visi I gær er fjallað um „hrossakaup” um skip-
stjórastijðuna á Bjarna Benediktssyni og framkvæmdastjórastöðuna
hjá BUR.
Ætterni Halldórs Péturssonar
réði engu um ráðningu hans sem
skipstjóra á BjarnaBenediktssyni
og sú ráðning hefur heldur ekkert
með Björgvin Guðmundsson að
gera sem ég reyndar efast um að
hafi hugmynd um hverjir eru þar
um borð, sagði Marteinn Jónas-
son, framkvæmdastjóri Bæjarút-
gerðarReykjavikur i gær.t Vísi i
gær er fullyrt að hrossakaup hafi
orðið um ráðningu Halldórs,
þannig að bróðir hans, Sigurjón
Pétursson, hafi keypt stöðu
hans sem skipstjóra fyrir stuðn-
ing við Björgvin Guðmundsson í
framkvæmdastjórastöðu BÚR.
Sigurjón Pétursson er nú
erlendis og Björgvin Guðmunds-
son hefur neitað þvi að neitt hafi
verið afráðið um eftirmann Mar-
teins Jónassonar en i samtali við
Þjóðviljann i gær sagöi Björgvin
aö Marteinn myndi hætta næsta
haust. Samkvæmt öðrum heim-
ildum blaðsins hefur Marteinn
óskað eftir að minnka við sig, en
hann verður 65 ára i haust.
Marteinn sjálfur vildi hins
vegar ekkert um þau mál
tala i gær en sagði að sér væri
ljúft að skýra frá þvi hvernig
ráðningu Halldórs Péturssonar
sem skipstjóra á Bjarna Bene-
diktssyni bar að.
Það var staðið að þessari ráðn-
ingu á ósköp venjulegan hátt,
sagði Marteinn. Það var fyrir
þremur árum þegar tilfinnanlega
vantaði annan stýrimann á
Bjarna, að Halldór var ráðinn til
BÚR. Það er skemmst frá þvi að
segja að hann hefur reynst frá-
bærlega vel og hefur verið jöfnum
höndum 1. og 2. stýrimaður á
skipinu og auk þess farið með það
einn túr sem skipstjóri.
Þegar Ottó N. Þorláksson (hinn
nýi togari BÚR) bættist i flotann
var Magnúsi Ingólfssyni skip-
stjóra á Bjarna boðið nýja skipið.
Hann þáði það og þá lá fyrir að
finna skipstjóra á Bjarna. 1.
stýrimaður, Siguröur Steindórs-
son, en hann hefur leyst Magnús
af og Halldór þá verið 1. stýri-
maður, óskaði hins vegar ekki
eftirskipstjórastööunni, sem hon-
um var margboðin. Hann vildi
heldur fara með Magnúsi á nýja
skipið og leysa hann þar af.
Það er álit okkar hér hjá BÚR
þegar menn hafa reynst vel i
starfi og eru búnir að venjast
skipinu eins og Halldór Péturs-
son, þá liggi beint við að falast
eftir slikum manni, að Sigurði
frágengnum. Ætterni mannsins
skipti þar engu máliheldur hitt að
hann er harðduglegur sjómaður
og hefur á fjórða ár reynst vel i
starfi fyrir BÚR, sagði Marteinn
Jónasson að lokum.
—AI
FundurutanA
ríkisráöherra,
Norðurlanda\
Utanrikisráðherrar Norð- I
urlanda héldu sameiginleg- I
an fund I Stokkhólmi á |
þriðjudag. Þar bar á góma •
mörg mál sem snerta stjórn- I
málaastandið í heiminum og
lýstu ráðherrarnir áhyggj- |
um sinum yfir vaxandi ■
spennu.
I frétt frá fundinum segir
að ráðherrarnir hafi látið i |
ljós óskir um að Bandarikin ■
og Sovétrikin haldi áfram
Salt-viðræðunum um frið-
samlega sambúð og gengið
verði til alvarlegra samn- ■
ingaviðræðna um kjarnorku- I
vopn i Evrópu, með það fyrir
augum að þeim verði veru- |
lega fækkað. Einnig voru ■
látnar i ljós óskir um að her-
sveitum verði fækkað i Evr-
ópu. Þá var rætt um ástandið I
iPóllandi og var lögö áhersla •
á að Pólverjar sjálfir fyndu I
lausn á sinum málum.
Ráðherrarnir ræddu
mikilvægi þess að undirbún- ■
ingur viðræðna milli iðnrikj- I
anna og þróunarrikjanna I
leiddi til jákvæðrar niður-
stöðu. Þeir voru sammála ■
um að harma þá seinkun I
sem orðið hefur á hafréttar-
ráðstefnunni og hvetja til j
þess að vinnu þar verði hrað- ■
±_________________|