Þjóðviljinn - 02.04.1981, Qupperneq 12
12 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 2. aprll, 1981.
DREGIÐ112. Fb
HÚ/E
FY
DA/ Langstærsti vinningur á
ScíEraALD® einn miöa hérlendis.
Aörir vinningar.
Bílavinningur á 30 þús. 20 húsbúnaðarvinningar á 1 þús.
8 bílavinningar á 20 þús. 50 húsbúnaðarvinningar á 500 kr.
25 utanlandsferðir á 5 þús. 395 húsbúnaðarvinningar á 350 kr.
Nú má enginn gleyma að endurnýja.
Söluverö á lausum miðum 168 kr.
miÐI ER mÖGULEIKI
ÐÚUm ÖLDRUÐUm
ÁHYGGJULAU/T ÆVIKVÖLD
Lausar stöður
Eftirtaldar stóður við tannlæknadeild Háskóla Islands eru
lausar til umsóknar:
Lektorsstaða i gervitannagerð með kennsluskyldu í narta-
gerð
Lektorsstaða (hálf staöa) i tannvegsfræði.
Lektorsstaða (hálf staöa; i bitfræði.
Stöður þessar veröa veittar til þriggja ára.
Laun samkvæmt launakeríi starfsmanna rikisins.
Umsækjendur skuiu láta fyigja umsókn sinni rækilega
skýrslu um visindastörf sin, ritsmiðar og rannsóknir svo
og námsferil sinn og störf.
Lmsóknir skulu sendar menntamáiaráðuneytinu,
Hverfisgötu 6, 101 Reykjavik, fyrir 30. apríl n.k.
Menntamálaráðuneytið
24. mars 1981.
xttfræði
Vakin skal athygii á að nú eru þau
Sunnudagsblöð Þjóöviljans, sem ætt-
fræðiþættir birtust i, löngu uppseld.
Hins vegar er nú hægt að fá alla þætti
þessa ljósprentaða á afgreiðslu
blaðsins, Siðumúlaö.
Ættfræði mun áfram verða fastur þátt-
ur i Sunnudagsblöðum Þjóðviljans og er
áhugaíólki bent á að tryggja sér eintök i
tima. Þjóðviijinn fæst á blaðsölustöðum
um land allt og hjá umboðsmönnum
blaðsins.
DIOÐVIUINN
Síðumúla6,
s. 81333.
+ f =
w| UMFERÐAR
UrAo
Jóhann J.E. Kúld
fiskimá!
Af
innlendum
vettvangi
Grunnslóðina þarf að friða fyrir botnsköfuveiðarfærum.
Verða dragnótaveiðar
leyfðar á grunnslóð í
Faxaflóa
aný?
Fyrir alþingi liggur nú frum-
varp til laga flutt af sjávarút-
vegsráðherra Steingrimi
Hermannssyni, um að leyfðar
verði dragnótaveiðar i Faxaflóa.
Mikiil styrr stendur um það nú
hvort rétt sé og forsvaranlegt að
opna grunnslóð Faxaflóa fyrir
dragnót. Sjómenn á minni vélbát-
um sem atvinnu hafa af þvi að
veiða með linu, netum og hand-
færum, yfir vor-, sumar- og
haustmánuði ársins, hér á grunn-
slóð flóans, frá hinum ýmsu ver-
stöðvum, munu upp til hópa vera
á móti slikri opnun flóans fyrir
dragnót. Hver er þá ástæðan fyrir
þvi, að sjómenn vilja ekki láta
leyfa dragnótaveiðar á grunnslóð
flóans? Hún er einfaldlega sú, að
á meðan dragnótaveiðar voru
leyfðar á þessum miðum þá fór
fiskgengd i flóanum minnkandi ár
frá ári. Reynsla sjómanna var sú,
að dragnótaveiðar spilltu veiðum
á ýsu og þorski með linu og hand-
færum. Akurnesingar gengu
mjög hart fram i þvi að fá drag-
nótina bannaða á grunnslóð fló-
ans af þessum sökum, og var Pét-
ur Ottesen alþingismaður ötull
málsvari þeirra sem verja vildu
grunnslóð flóans fyrir dragnót-
inni. Strax og bannið gegn drag-
nótinni gekk i gildi þá tók fisk-
gengd i flóanum aftur að aukast
með hverju ári. En málsvarar
dragnótarinnar voru alla tið m jög
óánægðir með þetta bann og reru
að þvi öllum árum að fá þvi aflétt.
Sögðu þeir að skarkolinn væri
farinn að liggja i margföldum
lögum i miðunum og væri illt til
þess að vita að fá ekki að veiða
hann. Alþingi sat þó við sinn keip
og viðhélt banninu, þrátt fyrir
uppihaldslausan áróður drag-
nótamanna.
Dragnótadraugur-
inn uppvakinn
Dragnótamenn fengu menn á
Hafrannsóknastofnun til liðs við
sig, sem mæltu með þvi, að þess-
ar veiðar yrðu leyfðar til reynslu
undir visindalegu eftirliti. Nú átti
að vera komin ný tegund af drag-
nótmeð stærri möskvum sem átti
ekki að valda skaða. Þessar svo-
kölluðu veiðar undir visindalegu
eftirliti voru þó i smáum stil og
þeim haldið fyrir utan markaða
linu i flóanum. En dragnótamenn
i Keflavik undir forystu ólafs
Björnssonar vildu stærri opnun
flóans, lengra upp á grunnslóð-
ina, og nú er komið fram á Al-
þingi frumvarp flutt af sjálfum
sjávarútvegsráðherra sem miðar
að þvi að þetta verði leyft með
nýrri lagasetningu. Þar sem ég
veit að núverandi sjávarútvegs-
ráðherra er hvorki sjómaður né
fiskifræðingur, þá tel ég óliklegt
að hann flytji slikt frmvarp um
opnun á grunnslóð Faxaflóa fyrir
dragnót, nema að hann hafi þar á
bak við sig visindaleg meömæli
frá Hafrannsóknastofnun. En ef
svo er, þá tel ég að það þurfi að
koma skýrt fram.
Faxaflói er
uppeldisstöð
Nú gætu menn máske ályktað
að ég væri alfarið á móti dragnót-
inni sem veiðarfæri. En svo er
alls ekki. Ég veit að það eru ýms-
ir staðir við landið þar sem veiða
má með dragnót á ákveðnum árs-
timum, án þess að hún valdi stór-
felldum skaða. En á grunnslóð
Faxaflóa.þar sem á hverju sumri
heldur sig mikil mergð fisk-
seiða, þar valda veiðar með
dragnót bæði truflun og skaða.
Dragnótin er oftast dregin eftir
sand- eða leirbotni, hún gruggar
þvi sjóinn þar sem hún er dregin,
og fiskseiðum verður ekki vært
þar. Það er af þessum sökum sem
nauðsynlegt er að friða grunn-
slóðina hér i flóanum fyrir veið-
um með dragnót. Við höfum alls
ekki ráð á þvi sem fiskveiðiþjóð
að spilla Faxaflóa sem uppeldis-
stöð milljóna fiskseiða sem flóann
gista yfir skemmri eða lengri
tima. Ég vil ráðleggja Haf-
rannsóknastofnun að rannsaka
fiskseiðamergðina hér á
grunnslóð flóans siðari hluta
sumars. Af þvi mætti vafalaust
ýmislegt læra, þvi þessi fisk-
seiðamergð er misjafnlega mikil
eftir árum.
Hægt að veiða
skarkola án þess að
spilla Flóanum
Það er t.d. hægt að veiða skar-
kola i net á grunnslóðinni, það
mundi valda litlum skaða. Danir
sem eru mestu fiskveiðimenn
með dragnót, þeir sáu sig þó til-
neydda að banna veiðar með
dragnót á miðunum i Kattegat
fyrir fáum árum, en leyfðu þar þá
að veiða skarkolann i net, og það
gekk bara vel. Þetta var gert til
að vernda fiskseiði á þeim miðum
þá. Svo er lika vandræðalaust að
veiða skarkolann þegar hann
gengur út af grunnslóðinni. Það
gerðu Bretar i tugi ára hér i utan-
verðum flóanum og fengu þar
mikinn skarkolaafla i botnvörpur
sinar.
Kenning dragnótaveiðimanna
um margföld skarkolalög á botn-
inum á grunnslóð flóans sem
hlæðust þar upp, sú kenning gerði
vist aldrei ráð fyrir þvi, að skar-
kolinn leitaði á dýpri mið. Hún
var ekki visindalegri en það. Að
sjálfsögðu þurfum við að nytja
skarkolastofninn við landið, en
eins og ég hef bent á, þá getum
viö veitt hann i net á grunnslóð-
inni i flóanum ef við viljum veiða
hann þar, en I dragnót eða
botnvörpu yst i flóanum. Það
þýðir ekki að segja, að þetta sé
ekki hægt, þar sem slikar veiðar
hafa verið stundaðar með góðum
árangri. Andstaða min gegn veið-
um með dragnót á grunnslóð
Faxaflóa, hún byggist á þeirri
vitneskju minni, að á sama tima
sem þessar veiðar voru stundað-
ar, og yrðu stundaðar nú þ.e. yfir
vorið, sumarið og framan af
hausti, þá er hvað mest af fisk-
seiðum á þessum miðum. Sér-
staklega verður þetta áberandi
siðari hluta sumars.
Ég tel Faxaflóa það mikilvæga
uppeldisstöð fyrir nytjafiska að
við megum ekki aðhafast neitt
sem getur leitt til breytinga til
hins verra á þvi sviði. Þar er það
grunnslóðin sem við þurfum að
friða gegn botnsköfu-veiðarfær-
um, svo fiskseiðin, undirstaða
okkar fiskistofna, fái að vera i
friði meðan þau dveljast þar.
Þetta er mergurinn málsins,
þegar um það er rætt hvort opna
skuli nú grunnslóð Faxaflóa fyrir
veiðum með dragnót. Sjómenn i
verstöðvum hér við Faxaflóa
hafa slæma reynslu af si-
minnkandi fiskgengd á grunn-
miðum flóans, frá þeim tima
þegar dragnótaveiðar voru
stundaðar á þessum miðum. A
þessu sviði sem öðrum sviðum
verður reynslan okkar besti
kennari.
30. mars 1981
Stofnað Mynd-
/istarfélag Arnes-
sýslu:
Hefur
starf sitt
meö
páska-
sýningu
Nýlega var stofnað á Sel-
fossi Myndlistarfélag Arnes-
sýslu og eru stofnendur 28
talsins. Mun félagið hefja
starfsemi sina með samsýn-
ingu féiaga I safnahúsinu á
Selfossi um páskana.
Félagið ætlar að beita sér
fyrir bættri aðstöðu til sýn-
inga og aðstoða aðkomufólk
við framkvæmd sýninga,
standa fyrir fyrirlestrum og
fræðslu fyrir félaga og beita
sér fyrir öðrum menningar-
auka innan sýslunnar.
Þeim sem vilja gerast fé-
lagar eða taka þátt i páska-
sýningunni er bent á að snúa
sér til sýningarnefndar eða
stjórnar, en i henni eru: Páll
Isaksson, Svava S. Gests-
dóttir og Aðalheiður Jóns-
dóttir. Sýningarnefndina
skipa Elvar Þórðarson, Ar-
mann Einarsson og Svava S.
Gestsdóttir.