Þjóðviljinn - 13.05.1981, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 13.05.1981, Blaðsíða 8
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 13. mai 1981 Miðvikudagur 13. mai 1981 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 9 Foreldraástin leynir sér ekki (Ljósm. D.V.) Séð yfir Mawson-stöðina þar sem Dagur var 116 mánuði. Fyrir f jórum árum síðan birtist i Þjóðviij- anum viðtal við Dag Vilhjáimsson loftskeyta- mann, sem þá var að koma heim eftir árs dvöl á Suðurheimskautinu, þar sem hann starfaði sem loftskeytamaður á vísindastöð sem Ástralíu- menn eiga. Siðan þetta viðtal birtist höfum við litlar spurnir haft af Degi, þar til nú fyrir skömmu að við fréttum að hann væri nýkominn til islands eftir að hafa farið aftur til Suður- skautsíns og dvalist þar f 16 mánuði samf leytt. — Manstu að þegar við hittumst síðast sagðist ég að öllum lilcindum ætla aftur suður eftir. Þegar ég var svo búinn að vera hér heima i tvö ár, var út- þráin orðin svo sterk að ég hélst ekki við. Ég fór til Astraliu og réð mig aftur sem loftskeyta- mann á visindastöð á Suður- skautinu og að þessu sinni til 16 mánaða dvalar, sagði Dagur þegar ég hitti hann á dögunum og bað hann segja mér frá til- drögum þess að hann fór aftur suðureftir. — Varstu á sömu stöðinni og I fyrra sinmið? — Nei, ég var á annarri stöð, hiín heitir Mawson, og er stærri en sií sem ég var á i fyrra sinnið. Við vorum 31 sem störfuðum i þessari stöð, sem er alhliða visinda- og veðurathugunar- stöð. Þarna er rannsakaö veðurfar, háloftaathuganir, segulmagn i lofti, dýralif, jarð- vegsrannsoknir o.fl. Þá er og veriö að kortleggja svæðið, en nU eru liðin 40 ár siðan byrjað var að rannsaka þetta svæði á visindalegan hátt. Það er kannski engin furða þótt lögð sé áhersla á að rannsaka þetta Suðurskautsland, þvi það er- álika stórt og Evrópa og Astralía til samans. Þarna eru lika margar visindastöðvar, þær munu vera á milli 45 og 50. Þar á meðal eru Sovétmenn, Bandarikjamenn og Bretar með stöövar niðurfrá. Ein stöðin sem Bandarikjamenn eiga er á sjálfum suöurpólnum og er neðanjaröar. HUn er það vegna þess aö þar er mjög veörasamt og frost hefur mælst þar 87 gráður á celsius. Það er hins- vegar mjög langt á milli stöðva, svona um það bil eitt þUsund milur, þannig að ekkert sam- band er á milli manna, nema i gegnum talstöðvar, yfir veturinn. — Er ekkert erf itt að fá menn til starfa á svona einangruðum stöðum? Mér fannst ég veroa að fara aftur Rætt við Dag Vilhjálmsson loftskeytamann nýkominn heim frá Suðurskauts- landinu Dagur Vilhjálmsson Frumstæð aðferð við losun skipsins sem flytur nýja menn og vistir til vfsindastöðvanna á Suðurskautslandinu (Ljósm. D.V.) tshellir sem Dagur og félagar hans skoðuðu á nokkurra daga orlofsferð um ísauðnina (Ljósm. D.V.) — Nei, aldeildis ekki, árlega sækja um störf 2500 manns, en ekki nema 100 fá starf. Astæðan fyrir því, hve margir sækja i þessi störf, er að sjálfsögðu launin, sem eru mjög góð. Allt i allt hefur maður 35 þUsund ástr- alska dollara fyrir 12 mánuði. Auk þess er svo allt fritt eins og sagt er, matur, drykkur og fatn- aður allur. Þar að auki er ákaf- lega vel að mönnum bUið varð- andi tómstundir og raunar vinnu lika. Þess vegna er óþarfi aö láta sér leiðast. Hitt er annað að stöku sinnum sækir þung- lyndi að mönnum yfir hávet- urinn, en það er þó ekki alvar- legt. Enda er það svo, að áður en menn eru ráðnir verða þeir að ganga i gegnum mjög stranga læknisskoðun, bæði likamlega og ekki siður and- lega. Annars var ég heppinn i bæði skiptin sem ég vann þarna, þvi að vinnufélagarnir voru af- bragðsmenn allir saman og aldrei nein vandræði hjá okkur. Ég hef heyrt um að það ástand hafi komið upp i stöð sem þessari, að hópurinn skiptist niður i smá hópa, klikur, og það er afar slæmt. — Er engin hætta á þegar árið er liðið að menn komist ekki heim, siglingar teppist? — JU, það getur komið fyrir. Þegar nýr hópur fer niður eftir, eru alltaf sendar vistir til tveggja ára af þessum sökum. Ég veit ekki dæmi um að þetta hafi gerst, en þessi möguleiki er fyrir hendi. Ég hygg, að þetta væri það allra v'ersta sem fyrir gæti komið. Menn yrðu alveg æfir, jafnvel gæti þetta riöið sumum að fullu. Þeir eru bUnir að hlakka til að fara heim i margar vikur og ef það brygðist, — ég vildi alla vega ekki lenda i þvi. — Svo við snúum okkur aðeins að öðru, hver er ástæðan fyrir þessum mikla áhuga á Suðurskautslandinu? — Sennilega fyrst og fremst þau miklu auðæfi sem talið er, og raunar vitað að hluta, að eru þarna i jörðu. Þarna er olia og mikið af málmum, svo mikið að rannsóknarstarfið er talið borga sig. Stórveldin væru ekki að þessu ef það væri einskis virði. — Að lokum, Dagur, ætlar þú niður eftir i þriðja sinn? — Nei, alls ekki, ég er búinn aö fá nóg og fer aldrei aftur. Ekki svo að skilja að mér hafi ekki likað vel dvölin, heldur hitt að það er alveg nóg fyrir mann að fara tvisvar, þvi að þrátt fyrir allt er þetta lif gerólikt þvi sem við þekkjum i „mann- heimum”. Ég er lika buinn að vera á flakki um heiminn i nokkurár, nU ætla ég að setjast að hér heima. Það er komið nóg af flakkinu, — að minnsta kosti i bili. —S.dór á dagskrá Þegar erlendir lagamenn eru hér á ferð er það haft til skemmtunar að segja þeim að sami embættismaður byrji á að handtaka skálkinn, annist síðan lögreglurannsókn og fari loks með mál og dæmi. Lögrétta eða Steingrimur Gautur Kristjánsson: gestaréttur I Þjóðviljanum 29. april, 96. tbl. þessa árgangs er frétt um fram- lengingu frumvarps til lögrettu- laga á Alþingi. Frétt þessi er af ýmsum ástæðum fallin til að gefa villandi mynd af merku þingmáli, sem hefur verið gefinn allt of litill gaumur. Tvö dómstig Yfirskrift greinarinnar: „Dómstigin verði 3” er i fyrsta lagi mjög villandi, eins og raunar kemur fram i greininni sjálfri. Lina virðist hafa falliö niöur þannig að frásögnin veröur ill- skiljanleg þeim sem ekki eru hnUtum kunnugir. Hið rétta er að dómstig eru og verða almennt tvö hér á landi, en meginhugmynd frumvarpsins er sú að öll stærri mál komi fyrir nýjan dómstól, lögréttu, á fyrsta dómstigi, en gangi siðan til Hæstaréttar ef áfrýjað er. Minni mál munu sam- kvæmt frumvarpinu koma fyrir hina almennu héraðsdómstóla á fyrsta dómstigi eins og veriö hef- ur, en lögrétta veröur áfrýjunar- stig I þeim málum, og ganga þau almennt ekki til Hæstaréttar. Skipun lögréttu 1 fréttinni segir að meödóms- menn geti orðið allt að 15 aö tölu eftir ákvörðun forseta Islands. Hið rétta er að frumvarpið gerir ráð fyrir að skipaðir verði allt aö 15 dómendur i lögréttu, en að jafnaði fari einungis einn eða þrir með hvert mál. 1 sumum máium munu, eins og verið hefur, auk fastra dómenda, sitja tveir sérfróðir meðdómend- ur, t.d. þegar fjallað er um sjóréttarmál eöa verslunarmál. Aðskilnaður dómsvalds og framkvæmdavalds. Dómendur við löggjafarstörf t fréttinni segir réttilega að frumvarpið stefni aö aðskilnaði dómsvalds og framkvæmda- valds, en skýringar fréttamanns- ins á þessari staöhæfingu eru mjög villandi. Vikið er aö gagn- rýni, sem fram hefur komið á þátttöku dómara i samningu lagafrumvarpa og greinargeröa. Hér mun vera vikið aö árás þingmanns nokkurs á einn af dómendum Hæstaréttar, sem haföi verið falið að semja laga- frumvarp og umræðum, sem af þvi spruttu.1) Þess er fyrst að geta að samn- ing lagafrumvarpa er aö sjálf- sögðu löggjafarstarf, en ekki framkvæmdavalds. Menn geta að sjálfsögðu haft mismunandi skoðanir á þvi hvaða störf samrýmist dómarastarfi. Það viðhorf, sem fram kom hjá nefnd- um þingmanni er, að þvl er ég best veit, algerlega nýtt af nálinni. Þaö mun hvarvetna 1) Alkunna er að dómendur Hæstaréttar hafa, af góöum og gildum ástæðum, þá reglu aö svara ekki gagnrýni opinberlega. tiðkast, þar sem stjórnarfar og réttarfar er áþekkt þvi, sem hér er, að leitað sé til hinna fremstu lögfræðinga með verkefni af þessu tagi, hvort sem þeir eru dómarar eða ekki. Þess má t.d. geta að skv. 18. gr. 8. kafla sænsku stjórnarskrárinnar frá 1975 geta þingnefndir leitað álits lagaráðs, sem skipað er hæsta- réttar- og rikisréttardómurum, um lagafrumvörp. Min skoðun er sU að samvinna manna með reynslu á sviði löggjafar, dóm- starfa og stjórnsýslu við lagasmiö sé af hinu góða. Sú þekking sem fæst viö undirbúning löggjafar ætti fremur að auövelda túlkun og framkvæmd laganna siðar. Mér er ekki kunnugt um að þessi háttur fari gegn nokkurri viðurkenndri meginreglu. Leifar einveldis Hinsvegar tfðkast þaö nú vlst hvergi i rikjum sem byggja á þrígreiningu rikisvalds aö sömu embættismenn fari með fram- kvæmdavaldsstörf (umboðsstörf) og dómstörf i þeim mæli sem hér gerist á héraðsdómsstigi. Þegar erlendir lagamenn eru hér á ferð er það haft til skemmtunar aö segja þeim að sami embættis- maöur byrji á þvi að handtaka skálkinn, annist siðan lögreglu- rannsókn og fari loks meö mál og dæmi. Grikkir stynja ennþá undan þvi stjórnsýslukerfi sem þeir erfðu eftir Tyrki frá þeim tima þegar Grikkland laut Tyrkjasoldáni. Talið er að þetta sé einn versti dragbiturinn á framfarir i landinu. Islendingum er likt fariö gagnvart leifum hins danska ein- veldis, þótt Danir séu sjálfir búnir aö losa sig viö það fyrir löngu, bæöi á sviöi réttarfars og stjórn- sýslu. Þegarkonungsvald komst á hér á landi i lok 13. aldar fól konungur sérstökum umboðsmönnum sin- um, sem fljótt voru nefndir sýslu- menn, innheimtu tekna sinna og saksókn i þeim málum, sem hann átti sök á, auk fleiri umboðs- starfa. Fljótt komst á að sýslu- menn nefndu menn I dóma, sem þá voru jafnan fjölskipaðir og nefndir til meðferöar eintakra mála hverju sinni. Sýslumenn staðfestu siðandómana. A siðustu áratugum 17. aldar komst hér á konungseinveldi, eins og kunnugt er, og var megineinkenni þeirrar skipunar aö allir valdaþættir voru á einni hendi, löggjafarvald, framkvæmdavald og dómsvald. Þetta kom svo fram I þvi aö sýslumenn konungs fóru sjálfir aö dæma i málum er fram liðu stundir. Þaö voru stjórnarhættir af þessu tagi, sem menn fórnuðu lifi sinu til að fá afnumda á meginlandi álfunnar frá þvi á síöari hluta 18. aldar og fram á þessa öld. En hér hafa þeir haldist fram til þessa dags i ölllum héruðum landsins utan Reykjavikur, og það eru þessar leifar Ureltra stjórnarhátta og réttarfars sem lögréttufrum- varpiö stefnir gegn, stjórn- sýslunni, réttarfarinu og þar með öllum almenningi I iandinu til gagns. Nauðsyn dugandi st jórnsýsluumboðs - manna Það er raunar stórfurðulegt hvernig sýslumönnum landsins hefur tekist áfallalitið að sameina dómstörf og' umboðsstörf, svo ólik sem þau eru i eðli sinu, svo óliks hugarfars, afstöðu og starfs- aðferða sem krafist er á hvoru sviði fyrir sig. Auðvitaö hefur ekki farið hjá þvi að dómar hafi boriö þess merki að dómarinn hefur hvorki haft tima né næði til að sinna máli svo fljótt og vel sem skyldi, og oft hefur mátt sjá þess merki að vandasöm dómstörf voru ekki dagleg viöfangsefni þess sem dóminn kvað upp A hinn bóginn hefur þess gætt að aöstaða sem óhlutdrægs úrskurðaraðila hefur bundið hendur sýslumanna þegar þurfti traust og snör hand- tök við að framkvæma þaö sem fyrir þá var lagt af stjórnsýslu- legum yfirboðurum. Það þarf i raun og veru meira en meðal- mann til að setja sig sama daginn i stellingar sem dómari, sem eng- inn getur sagt fyrir verkum og eiga siðan að taka viö fyr- irmælum, t.d. ráðherra, f.h ráðuneytis, sem e.t.v. er aðili aö þvi dómsmáli, sem um er fjallaö. t ofanálag hafa sýslumenn á undanförnum árum þurft að þola það af löggjafanum, áhrifamönn- um i sveitarstjórnarmálum og öðrum að gengiö væri út frá að embætti þeirra væru úrelt þing, sem yrðu að vikja. Ég vil hins- vegar fullyröa að án hæfra umboðsmanna i héruðum lands- ins sé enginn vegur að halda uppi virkri stjórnsýslu hér á landi, en til þess að sýslumenn geti gegnt þvi hlutverki að færa út i lifiö þær ákvaröanir, sem teknar eru af Alþingi og rikisstjórn, þurfa þeir aö geta einbeitt sér aö stjórn- sýslustörfum. Aö þessu miðar frumvarpið meö þvi að leysa sýslumannsembættin að . mestu leyti undan dómstörfum og fela þau mönnum, sem hafa dómstörf aö aöalstarfi. Engin von er til að þau umboðsstörf, sem sýslumenn fara með fyrir rikisvaldið verði falin öðrum svo vel fari, t.d. sveitarstjórnum eða samtökum þeirra, en aftur er mikil von til aö dómstarfalausir sýslumenn geti tekið við ýmsum störfum, sem nú eru unnin I ráðuneytunum eöa öðrum miðstjórnarstofnunum og sparað með þvi mörgum mannin- um sporin suður. Álagið á Hæstarétti Annar megintilgangur frumvarpsins er aö létta af þvi geysilega álagi, sem lagst hefur i síauknum mæli á Hæstarétt á undanförnum árum, en samkvæmt frumvarpinu má gera ráö fyrir að þeim málum, sem til Hæstaréttar fara og þangað eiga litið eða ekkert erindi, muni stór- fækka við lögtöku frumvarpsins. Til upplýsinga má geta þess að I september 1976 lágu 74 mál fyrir Hæstarétti tilbúin til flutnings, en i ágúst 1980 117 mál. Samtals höfðu að meðaltali liðið 19,3 mán- uðir frá afrýjun til dóms i venju- legum einkamálum dæmdum á árinu 1976, en sambærilegur timi var 27.4 mánuðir árið 1980, eða 2 ár og 3 mánuðir. Ég tel orsakanna til þessa mikla álags sé, eins og til margs annars vanda, að verulegu leyti að leita i verðbólgunni. Menn sem stefnt er til skuldagreiðslu sjá sér, jafnvel þrátt fyri háa vexti, (sem þó alltaf eru i raun neikvæðir), hag i þvi að draga mál sem mest á langinn, oft með léttvægum vörnum. Þaö getur verið mikil freisting fyrir aöila i atvinnurekstri að veröa sér úti um þriggja til fimm ára gjald- frest á 35—46% vöxtum með þessum hætti. Þvi miður mur. ætlunin með framlag.ningu lögéttufrumvarps- ins ekki vera sú að koma þvi fram á þessu þingi, og ástæða er til að efast um að nokkur raunveru- legur áhugi sé af hálfu dóms- málayfirvalda á lögtöku þess. Hinsvegar mun nú vera i upp- siglingu áætlun um að setja til bráðabirgða dómendur i Hæsta- rétt til að vinna upp þann hala, sem þar hefur safnast fyrir, að finnskri fyrirmynd. 21 Þessi hugmynd fer þó algerlega gegn þeim grundvallarreglum, sem dómstólaskipun okkar byggist þrátt fyrir allt á. Þaö er ein af meginreglum réttarfars að almenningur og aöilar megi treysta þvi að þeir sem eiga að dæma um mál þeirra séu þannig settir að þeim verði ekki auðveldlega vikið úr starfi að geðþótta pólitiskra valdhafa. (Skipuðum dómurum verður ekki vikið Ur starfi til fullnaðar nema meö dómi.). Þaö er islensku réttarfari til vansæmdar að bjóða mönnum fyrst að látið sé viðgangast aö verkefni hlaðist á æðsta dómstól þjóöarinnar fram úr öllu hófi, án þess aö úr sé bætt með raunhæf- um og viðeigandi lausnum og að siðan, þegar neyöarástand hefur skapast, séu fengnir til menn, sem komnir eru upp á náð og miskunn ráðherra um öryggi sitt, til aö vinna þau verk, sem samkvæmt stjórnarskipun rikis- ins eiga að vera i höndum æsta handhafa sjálfstæös dómsvalds. 1 stað þessarar neyöarlausnar má, auk lögtöku Jögréttufrum- varpsins, benda á eftirtalin úrræöi: 1. Afrýjunarfjárhæö verði hækkuð veruiega og verðtryggð.31 2. Dómvextir verði ákveönir þannig að enginn sjái sér hag i að halda uppi málamyndavörn- um til að afla sér gjaldfrests. Einnig mætti verðtryggja dómkröfur með öðrum hætti. 3. Ráönir veröi löglæröir aðstoöarmenn að Hæstarétti til að auðvelda dómurum störf þeirra. Þannig veröi búiö að dómendum að þeir verði með öllu lausir viö „handavinnu”, sem almennt starfsfólk getur innt af hendi. 4. Leitt verði i lög aö t.d. 3 Hæsta- réttardómarar fari yfir hvert mál i upphafi og kveði á um hvort þaö skuli hljóta efnis- meöferð. Veröi niðurstaðan neikvæð, veröi máli visað sjálf- krafa frá dómi. Hér er haft I huga svonefnt „kjæremdlsut- valg” hæstaréttar Noregs. Astæða er til að skora á Alþingi aö bregðast nú vel við og samþykkja lögréttufrumvarpið á þessu vori,en hafna alfariö öllum hugmyndum um neyöarlausnir á vanda dómstólanna. En sjái menn sér ekki fært aö afgreiöa svo viöamikiö mál á svo skömm- um tima, er þó brýn nauðsyn að afgreiða sem lög frá Alþingi frumvarp til laga um meðferö einkamála i héraöi, sem siðast var lagt fram á öndveröu þvi þingi, sem nú situr, og mundi mikiö bæta, ef að lögum yröi. 2) Finnskt réttarfar er að ýmsu leyti enn forneskjulegra en hiö islenska. 3) Krafa, sem um er deilt, þarf aö ná tiltekinni fjárhæð til aö áfrýjun sé heimil, nú kr. 2.000,00 frá 1. ágúst 1979.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.