Þjóðviljinn - 13.05.1981, Page 14

Þjóðviljinn - 13.05.1981, Page 14
14 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 13. mai 1981 Hinum heilögu er heldur ekki hllft I „Stjórnleysingjanum”. St| órnley singinn kveður nú senn Leikari Alþýðuleikhússins lýk- ur senn og fer nú hver að verða siðastur að sjá leikrit Dario Fo: Stjórnleysingi ferst af slysförum. Leikurinn dregur nafn af atburði sem varð i Milano fyrir allmörgum árum er maður ,,datt” út um glugga lögreglu- stöðvarinnar. Þá sem nú var pólitiskt ástand mjög lævi bland- ið, vinstri menn voru sakaðir um ódæði sem nýfastistar höfðu framið, enda ekki laust við að fasistar ættu stuðningsmenn i lögreglunni. út frá þessum at- burði samdi Dario Fo leikrit sitt, þar sem hann dregur lögregluna sundur og saman i háði og grini. Atburðarásin byggir á þvi að dári nokkur sem margoft hefur leikið á samborgarana i ýmsum hlutverkum er dreginn til yfir- Minnkandi atvinnuleysi Atvinnuleysisdagar i april voru 2.856 á höfuðborgarsvæðinu. A Vesturlandi voru þeir 227, engir á Vestfjörðum, 1.013 á Norðurlandi vestra 3.071 á Norðurlandi eystra, 394 á Austurlandi, 197 á Suður- landi, 25 i Vestmannaeyjum og 94 á Suðurnesjum. Atvinnuleysis- dagar voru alis 7.877 áöllu land- inu, en voru 12.239 I mars. Á höfuðborgarsvæðinu voru 132 atvinnulausir, en voru 203 i mars. A Norðurlandi vestra voru 49 án vinnu, 142 á Norðurlandi eystra og 16 á Austurlandi. 1 öðrum hlutum landsins voru atvinnu- lausir á bilinu 1-10. Alls voru 363 atvinnulausir á landinu en i mars voru 565 án vinnu. Samtök um frjálsan útvarpsrekstur Stofnfundur á mánudag Samtök um frjálsan útvarps- rekstur verða stofnuð að Hótel Sögu mánudaginn 18. maí kl. 20.30. Gestur . fundarins verður breskur dagskrárgeröarmaður frá óháða útvarpinu IBA. Hann heitir Edwin Riddell og mun hann fjalla um þróun útvarps i Bret- landi. A stofnfundinum veröa lögö fram drög að lögum og kosiö i stjórn, skráning félagsmanna fer fram og geta þeir greitt árgjald lágmark 50 kr. Stutt framsöguerindi verða flutt; Ólafur Hauksson ræöir um aðdraganda aö stofnun samtak- anna, Magnús Axelsson ræöir um verkefnin og Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson leggur fram stofn- samþykkt og stýrir stjórnarkjöri. Fundarstjóri veröur Jón Ólafsson. heyrslu inn á lögreglustöðina. Þarkemsthann yfir skjöl um mál stjórnleysingjans sem ,,datt” út um gluggann og sér strax að þarna getur hann brugðið sér i hlutverk rannsóknardómara sem kemur til að kanna málin. Það er skemmst frá að segja að hann hrellir lögregluna ógurlega, meðan áhorfendur engjast i sæt- um sinum af hlátri. Það er Þráinn Karlsson sem leikur dárann, en þeir Viðar Eggertsson, Arnar Jónsson, Bjarni Ingvarsson og Björn Karlsson leika fulltrúa lögregl- unnar. Elisabet Þórisdóttir er blaðakona sem einnig er að kanna málið. Leikstjóri er Lárus Ýmir Óskarsson en leikmyndin er eftir Þórunni Sigriði Þorgrimsdóttur. — ká íþróttir Framhald af bls. 11. knattspyrnu i Reykjavikurmót- inu, knattspyrnu sem ekki er vænleg til árangurs á malar- velli. Þegar á grasið verður komið er vist að árangurinn lætur ekki á sér standa. Reikna má með Val i námunda við toppliðin i sumar, en ekki er liklegt að þeir haldi dampi undanfarinna ára. FH Sömu sögu er að segja um FH og IBV. Liðið hefur allmarga góða knattspyrnumenn innan sinna vébanda, en illa hefur gengið að skapa liðsheild. Þá kann varnarleikurinn að verða FH til trafala i sumar, hann hefur alla vega ekki verið ýkja traustvekjandi það sem af er. Með komu þjálfarans, Inga Björns og Ólafs Danivalssonar, i liðið mun örugglega lifna yfir þvi, en hvort sá lifsneisti nægi til að koma Hafnarf jarðarliöinu frá fallbaráttunni skal ósagt lát- ið. IA Skagamennirnir eiga eftir að seiglast i sumar. Þeir eru ekki vanir þvi að láta bola sér frá Evrópukeppnunum (eins og gerðist sl. sumar) og eru stað- ráðnir i þvi að verða i fyrsta sæti. Það eru allar likur á þvi að þeim takist það. Akranesliðiö hefur styrkst nokkuð frá þvi i fyrrasumar og munar þar mestu um að Jón Alfreðsson erkominn i slaginn á ný og eins hefur Borgnesingur- inn Gunnar Jónsson sýnt góð til- þrif. 1 stuttu máli: 1A, Fram, Vikingur og Valur verða i toppslagnum, KR, ÍBV og UBK sigla lygnan sjó um miðbik deildarinnar og KA, Þór og FH berjast á botninum. I lokin skal það tekið fram, að undirritaður hefur aldrei þótt „spámannlega vaxinn”, en hann þykist geta lofað jafnri, skemmtilegri og spennandi keppni á ísandsmótinu i ár... - IngH Skreiðar- viðræður Viðræður um skreiðarviðskipti við Nlgerlu fór fram i Lagos dag- ana 5. til 7. mal s.l. I framhaldi af heimsókn sendinefndar frá við- skiptaráðuneyti Nigerlu til Reykjavlkur i janúar s.L. Þessar viðræður snerust aðal- lega um sölufyrirkomulag og söluverð. Málið fer nú til endan- legrar umfjöllunar riksisstjórnar Nigeriu og standa vonir til, að niöurstaðan verði viðunandi fyrir íslendinga. Sendinefnd tslendinga var skipuð eftirtöldum mönnum: Stefáni Gunnlaugssyni, deildar- stjóra i viðskiptaráðuneytinu, sem var formaður nefndarinnar, Braga Eirikssyni, framkvæmda- stjóra Samlags skreiðarframleið- enda, Magnúsi Friðgeirssyni, sölustjóra sjávarafurðadeildar SIS, Bjarna Magnússyni, fram- kvæmdastjóra Sameinaðra fram- leiðenda,og Jóni Ármanni Héðins- syni, sölustjóra Lýsi h.f.. Ráðningu vísað til borgarstjómar Borgarráð visaði 1 gær ráðningu forstöðumanns við félagsmiðstööina Arsel til af- greiðslu borgarstjórnar. Eins og skýrt var frá i Þjóðviljanum i gær sóttu 11 um starfið og hlutu tveir umsækjenda atkvæði I æskulýðs- ráði, Valgeir Guðjónsson fékk fimm atkvæði og Guðmundur Elis Pálsson tvö atkvæði. Þingsjá Framhald af 6. siðu. landsins, einkamálgangs Geirs Hallgrimssonar, vegna oliuvið- skipta íslands við Sovétrikin. Þessi viðskipti hafa staðið um áratugaskeið og þau hafa verið mjög hagstæð. Þau hafa skilað okkur góðum oliuvörum, það hef- ur verið örugg afhending á vörun- um og verðið hefur ekki verið slæmt. Þegar oliuverð fór stór- hækkandi á árinu 1979 var þess krafist að íslendingar rifu niður þessi gömlu og traustu viðskipta- sambönd sin við Sovétrikin. Þvi var að sjálfsögðu hafnað af mér sem þáverandi viðskiptaráð- herra og núverandi viðskiptaráð- herra hefur að sjálfsögðu hafnað sliku lika, þvi enginn viðskipta- ráðherra myndi nokkurn tima, ef hann ætlar að gæta skyldu sinnar, fallast á önnur eins úrræði og þar voru lögð til af Mbl. sumarið 1979 i oliumálum. Engu að siður fór það svo að menn töldu skynsam- legast að miða við að Islendingar hefðu möguleika á oliuinnkaup- um frá fleiri rikjum en Sovétrikj- unum einum og þess vegna voru gerðirsamningar við breska oliu- félagið BNOC. Staðan i þeim efn- um er hins vegar sú að eftir að þeir samningar voru gerðir, en þeirvirtust i fyrstu, miðað við hið háa Rotterdamverð,vera tiltölu- lega hagstæðir, en i þessum BNOC-samningum er miðað við svokallað „mainstream-verð”; þá kemur þaði ljós núna, að þetta „mainstream-yerð” er mun hærra en verðið á rússnesku oli- unni á Rotterdammarkaðnum. Það er ekki allt sem sýnist og þetta er alveg sérstakt tilefni til að staldra við og vara stjórnvöld, hér sem þau eru, við þvi að láta undan ofstækisbylgjum sem skella hér yfir af og til i málum eins og þessum. Ég er þó sann- færður um að þessi skrif Mbl. á sinum tima um oliumálin gerðu mjög verulegt ógagn og sköpuðu hér mjög erfitt ástand fyrir þá stjórn sem þá sat og ennþá erfið- ara var ástandið fyrir þær sakir að innan þáverandi stjórnar- flokka var ekki mjög sterk sam- staða um þessi mál frekar en önn- ur, svo ekki sé fastara aö orði kveðið. Ég tel að i oliumálum þá þurf- um við að haga okkur þannig að höfuðatriðið sé öryggið, annað at- riði er verðið og i þriðja lagi þurf- um viö að tryggja það að við höf- um aögang að fleirum en einum aðilai þessum efnum, en umfram allt eigum við ekki að láta hræða okkur til flýtisverka á þessu sviði frekar en öðrum. —Þig Ásmundur ALÞÝÐUBANDALAGIÐ Svavar Guftm. J. Aðalfundur Verkalýðsmálaráðs Alþýðubandalagsins verður haldinn laugardaginn 16. mai n.k. i Hreyfilshúsinu kl 10 00 árdegis. Dagskrá: Kjaramálin. Framsögumenn:Svavar Gestsson, Asmundur Stefánsson, Guðmundur J. Guðmundsson og Olafur Ragnar Grimsson Tii fundarins eru sérstaklega boðaðir fulltrúar Alþýðubandalagsins um land allt, en ollum Alþýðubandalagsmönnum er frjálst aö koma á lundinn. Alþýðubandalagið i Kópavogi. — Bæjarmálaráð. Fundur verður haldinn miðvikudaginn 13. mai kl. 20.30 Dagskrá: Húsnæðismál skólanna i Kópavogi.— Gatnagerðar gjald- skrá. — Nýjarhugmyndir um úthlutunarreglur fyrir sérbýli. — önnur mál. Allir félagar i ABK eru velkomnir. Stjórn bæjarmálaráðs ABK. Herstödvaandstædingar Arni. Þróunarlöndin Herstöðvaandstæðingar Skólavörðustig 1 A halda fund um þróunarlöndin, miðvikudag- inn 13. mai kl. 20.30. Arni Björnsson ræðir um baráttu nýlendu- stúdenta. Húsið opnað kl. 20. — Félagar fjölmennið Heilsugæslustöð á Seltjarnarnesi Heildartilboö óskast í innannhússfrágang á heilsugæslustöð á Seitjarnarnesi. Er þar um að ræða múrverk á 1. hæð/ sem er um 1060 ferm og fullnaðarfrágang um 700 ferm af hæðinni. Inni- falið er m.a. hreinlætis-, hita-, vatns- og loft- ræstilagnir, auk raflagna, svo og léttir veggir, málning.dúkalögn og innréttingasmíði. Verkinu skal að fullu lokið 1. júlí 1982, en hluti þess skal vera tilbúinn til notkunar 1. des. 1981. útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri Borgartúni 7 Rvk gegn 1.000- kr. skilatrygg- ingu. Tilboð verða opnuðá sama stað þriðjudaginn 2. júní 1981 kl. 11.00 f.h. INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006 RÍKISSPÍTALARNIR lausar stöður LANDSPÍTALINN AÐSTOÐARLÆKNIR óskast á tauga lækningadeild til 6 mánaða frá 1. júni n.k. Umsóknir er greini menntun og fyrri störf sendist Skrifstofu rikisspitalanna fyrir 26. mai. Upplýsingar veitir yfirlæknir deildarinnar i sima 29000. Reykjavík, 13, mai 1981 Skrifstofa rikisspitalanna Eiriksgötu 5, simi 29000.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.