Þjóðviljinn - 13.06.1981, Síða 4

Þjóðviljinn - 13.06.1981, Síða 4
4 SIÐA — ÞJ6ÐVILJINN Helgin 13.-14. júni 1981 UOBVIUINN Málgagn sósíalisma, verkalýds hreyfingar og þjódfrelsis Auglýsingastjóri: Þorgeir Ólafsson. , llmsjónarmaöur sunnudagsblaös: Guðjón Friðriksson. Afgreiöslustjóri: Valþór Hlööversson Blaöamenn: Álfheiöur Ingadóttir, Ingibjörg Haraldsdóttir, Kristin Ástgeirsdóttir, Magnús H. Gislason, Sigurdór Sigurdórs- son. iþróttafréttamaöur: Ingólfur Hannesson. Auglýsingar: Svanhildur Bjarnadóttir. Skrifstofa: GuörUn Guövaröardóttir, Jóhannes Haröarson. Afgreiðsla: Kristin Pétursdóttir, Bára Siguröardóttir. Simavarsla: Ólöf Halldórsdóttir, Sigriöur Kristjánsdóttir. Bílstjóri: SigrUn Bárðardóttir. Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jóns- dóttir. Ótgefandi: Útgáfufélag Þjóöviljans. Útkcyrsla, afgreiösla og auglýsingar: Slöumúla 6, Framkvæmdastjóri: Eiöur Bergmann. útlit og hönnun: Guðjón Sveinbjörnsson, Sævar Guöbjörnsson. Reykjavik, slmi 8 13 33. Ritstjórar: Arni Bergmann, Einar Karl Haraldsson, Kjartan Ljósmyndir: Einar Karlsson, Gunnar Eiiasson. Ólafsson. llandrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elias Mar. Prentun: Blaöaprent hf.. rits4Jórnararcin__________________________ íslenskt forrœöi i orkunýtingarmálum • ísland býr yf ir miklum náttúruauðlindum. Þessar auðlindir felast m.a. í gróðurlendi og orkulindum landsins og fiskistofnunum í hafinu umhverfis það. Þegar á umfang þessara auðlinda er litið, verður ekki annað sagt en að i samanburði við f jölmargar aðrar þjóðir ráði Islendingar yfir náttúrugæðum í afar rík- um mæli. Að svo miklu leyti sem náttúruauðlindir eru undirstaða efnahagslegrar velmegunar ættu Islend- ingar að vera í tölu farsælustu þjóða. • Islenskt efnahagslíf hefur, frá upphafi, byggst á hagnýtingu náttúruauðlinda. Sú hagnýting hefur hins vegar, lengst af, f remur einkennst af kappi en forsjá. Auðlindir gróðurlendisins og sjávarins, sem atvinnu- lífið hefur, fram til þessa, einkum hvílt á, hafa því ekki orðið sá grundvöllur varanlegra efnahagsfram- fara, sem unnt hefði verið, ef nýting þeirra hefði farið fram með meiri fyrirhyggju. • Á Orkuþingi 1981, sem haldið var í þessari viku, var f jallað um orkulindir (slands og þau tækifæri til efnahagsframfara, sem þær skapa. • I kjölfar þeirra umskipta í orkumálum heimsins, sem átt hafa sér stað á undanförnum árum, hefur verðmæti islenskra orkulinda aukist stórkostlega. Jafnframt hefur samkeppnisstaða orkufreks iðnaðar hér á landi styrkst, og horf ur eru á því að sú breyting verði varanleg. Á það var þó lögð rík áhersla á orkuþinginu, að sú hagsbót, sem íslendingar gætu haft af því að nýta orkulindir sínar í auknum mæli á komandi áratugum, væri ákaflega háð því, hvernig að slikum fram- kvæmdum væri staðið. Ætti það ekki hvað síst við um þær hliðar orkunýtingarmála, sem snertu náttúru- vernd, ýmis félagsleg atriði og, síðast en ekki síst, hugsanlegt samstarf við erlenda aðila. • Það var ein helsta niðurstaða orkuþingsins, að forsenda þess, að nýting á íslenskum orkulindum gæti orðið undirstaða varanlegrar efnahagsþróunar hér á landi, væri sú, að islendingar hefðu sjálfir virkt for- ræði í stóriðjumálum. Um þetta viðhorf varð almennt samkomulag á orkuþinginu, enda var það tekið upp í yfirliti sem ein merkasta niðurstaða þess. • Undir forystu Iðnaðarráðuneytisins hafa nú verið tekin upp vandaðri vinnubrögð í orku- og orkunýting- armálum en áður hafa tíðkast. Framkvæmdar hafa verið ýtarlegar grundvallarrannsóknir á möguleikum til nýtingar innlendra orkulinda með þeim árangri, að Islendingar hafa nú betri yfirsýn yfir tækifæri sín á þessu sviði en nokkru sinni f yrr. Rannsóknir af þessu tagi eru bæði yf irgripsmiklar og tímaf rekar. Þær eru engu að síður forsenda þess, að unnt sé að forðast ákaf lega kostnaðarsöm mistök i orkuf ramkvæmdum. Afleiðingar bráðræðis í orkumálum blasa viða við. Eittátakanlegasta dæmið um þetta er samningur sá, sem gerður var við erlenda aðila um álbræðsluna í Straumsvík. • í greinargerð þeirri, sem þáverandi stjórnar- flokkar, Sjálfstæðisflokkurinn og Alþýðuflokkurinn, lögðu fram með frumvarpi til laga um staðfestingu á samningi Islands við Alusuisse, lýstu þessir stjórn- málaf lokkar þeirri trú sinni, að álsamningurinn yrði undirstaða íslenskrar iðnvæðingar. Tekjur af raf- orkusölu myndu greiða kostnað vegna Búrfellsvirkj- unar á skömmum tíma. Skatttekjur af starfsemi ál- versins myndu skapa fjárhagslegar forsendur fyrir isienska iðnvæðingu. Og hér á landi myndi spretta upp úrvinnsluiðnaður áls. • Þessar vonir hafa því miður ekki ræst. Raforku- verðþað, semálverið greiðir, er nú einungis um þriðj- ungur af framleiðslukostnaði raforku í nýjum vatns- orkuverum. Skatttekjur af álverinu hafa reynst . hverfandi. Og því fer f jarri, að hér á landi haf i haf ist vinnsla úr hrááli. • Orkuþing 1981 leggur á það höf uðáherslu, að (slend- ingarhafi sjálfir forræði um hagnýtingu íslenskra orkulinda. • Oþarftætti að vera að minna á það, að þetta hef ur einnig verið stefna Alþýðubandalagsins um árabil. úr aimanakinu Einkafyrirtækiö Securitas sf. hefur aö undanförnu vakiö nokkra athygli, einkum og sér i lagi vegna samninga sem þaö hefur gert viö rikiö um gæslu á opinberum byggingum og ýmsum verðmætum og dýrgripum I eigu þjóöarinnar. Er þar skemmst að minnast Þjóöm injasaf ns tslands, og þar meö Listasafns tslands, og Stofnunar Árna Magiuíssonar þar sem handritin eru geymd. Ekki eru allir á eitt sáttír um aö fela fyrirtæki, sem stjórnað er af ung- um athafnamanni út I bæ, slíka ábyrgð og einnig hafa menn velt fyrir sér þeirri spurningu hvort hér sé um stefnubreytingu aö ræöa þar sem sérstakri miö- stýrðri löggæsiusveit er falið aö koma í stað venjulegra hús- og næturvarða sem hingaö til hafa starfaö á ábyrgö hverrar stofnun- ar. Veröur nú reynt aö brjóta máliö nokkuö til mergjar. Gæslumál á vegum hins opin- berra hafa undanfarið verið I hálfgeröum ólestri og var auövit- að þörf á aö taka þau föstum tök- um. Er Þjóöminjasafniö besta dæmiö um þaö kæruleysi sem rikt hefur i þessum efnum. Triíi þvi hver viU,en þar hefur engin kvöld- og næturvarsla verið og þjófa- varnakerfiö mjög ófullkomiö. Aö visu hefur veriö ibúö i húsinu, þar sem þjóöminjavöröur bjó lengst af ,en núverandi þjóöminjavöröur hefur þó búiö annars staöar. Margsinnis hefur veriö fariö fram á fjárveitingu til þess að koma þessum málum i betra horf, en það er fyrst núna sem árangur hefur oröið af þessum málaleit- unum og þá meö þeim hætti aö felaSecuritas sf. gæsluna. Verður Varsla handritanna um nætur er nú á ábyrgö ungs athafnamanns úti i bæ. Að gæta fjöreggja aö teljast hrein mildi aö Valþjófs- staðahuröin, litla Þórslikneskið eða Grundarstóllinn svo aö dæmi séu tekin, skuli ekki löngu hafa horfið i greipar þjófa. Dæmi um aðra stofnun þar sem þessi mál hafa frá upphafi veriö i góöum höndum er Stofnun Arna Magnússonar, sennilega vegna þess aö oröstir okkar gagnvart Dönum var i hættu. Þar hafa lengi starfað tveir næturverðir viö góöan oröstir, báöir á besta aldri, velá sig komnir, heilsugóð- irog hafa fengið ákaflega lofsam- leg meömæli hjá yfirmanni sln- um. Engu aö siöur var þeim báö- um sagt upp tilþessað rýmafyrir fyrirtækinu Securitas sf. sem tók gæsluna yfir. Kusu þeir aö ganga til annarra starfa frekar en aö gangast undir þá skilmála sem fyrirtækiö setti ef þeir ætluðu aö ganga til liös viö þaö. Eftir þvi sem kemur fram i a-indisbréfi frá Securitas sf. virö- ist fyrirtækiö stefna markvisst aö þvi aö hrekja úr starfi þá nætur- veröi sem starfa hjá rikinu. Þar segir orörétt: „Þá er þaö veröugt umhugsun- arefni fyrir hiö opinbera sem og einkafyrirtæki, hvort til er ein- hver siðferöisleg réttlæting á að nota lasburöa fólk eða gamal- menni i þessi störf, einungis vegna þess hve ódýr sá vinnu- kraftur er. Þessir menn eru sjaldnast færir um aö bera hend- ur fyrir höfuð sér þó á þyrfti aö halda. Þeir eru „hefðbundnir vaktmenn” sem heyra fortiöinni til, enda enga þjálfun fengiö hvorki i sjálfsvörn eða öörum viðbrögöum sem nauðsynleg eru gagnvart starfinu. Nútiminn kall- ar á velþjálfaöa öryggisveröi og markvissar varnir gagnvart af- brotamönnum. Um þetta ætti ekki aö þurfa aö deila. Varla opna menn fjölmiöla svo ekki sé minnst á einhver myrkraverk. Glópalániö hefur kannski dugaö hingaö til, en hver veröur næst- ur?” Þetta er auövitaö heldur ósmekkleg yfirlýsing um van- hæfni þeirra manna sem hingað til hafa stundaö gæslustörf hjá rikinu, a.m.k. meðan engin rök fyrir fullyröingum sem þessum eru lögð fram. Aö sjálfsögöu er þaö skylda yfirmanna rikisstofn- ana sem hafa næturverði i sinni þjónustu aö fylgjast meö þvi aö þeir, eins og aörir starfsmenn, vinni sin störf af trúmennsku. Ekkert er í vegi fyrir þvi aö kom- iö veröi upp stimpilútbúnaöi, þeir látnir sækja námskeið i bruna- vörnum og komiö sé á simasam- bandi millinæturvaröa og lögregl- unnar. Reyndar munu nætur- veröir hjá nokkrum rikisstofnun- um — og bönkum — hafa slikt simasamband og tilkynninga- skyldu. Það er þvi ekkert sjálfgefiö mál aö rikiö stefni aö þvi aö kaupa jafn viökvæma og ábyrgöamikla þjónustu af fyrirtæki i einkaeign, sem rekiö er á ábyrgö eins manns Guðjón Friðriksson skrifar sem þar aö auki viröist ekki hafa aflað sérineinnar sérmenntunar á þessu sviði, enda þótt i sjálfu sér sé engin ástæöa til aö efast um að það sé rekiö á viðunandi hátt. Ýmsir aðrir kostir hljóta aö vera fyrir rikiö i þessum efnum. Annaðhvort t.d. að treysta gamla kerfiö með þvi að setja reglugerð um slika gæslu á vegum hins opinbera eöa setja á stofn sér- staka miöstyröa gæslu á vegum rikisins. Einkafyrirtæki eins og Securitas getur átt rétt á sér aö vissu markL en gera verður þá kröfu til opinberra aðila að þeir taki engar skyndiákvarðanir i þessum efnum heldur kanni þessi mál vandlega frá öllum hliðum. Hliöstæö fyrirtæki öryggisvaröa starfa viöa um heim t.d. i Skandinaviu og hafa mælst mis- jafnlega fyrir. I Danmörku er t.d. mjög viötækt net Securitas-fyrir- tækja enþar hefur stofnun eins og Kaupmannahafnarháskóli frekar kosiö aö sjá sjálfur um gæslu á eignum sinum. Hér er þessu öfugt fariö. Einnig má velta fyrir sér hvort sú mikla áhersla sem fyrirtækið Securitas leggur á einkennisbún- inga, aga, sjálfsvörn og að starfs- menn þess séu kallaöir öryggis- verðir en ekki bara hús- eöa næt- urverðir bjóöi hættunni heim. Þá má spyrja hvaö veröi um starfs- menn Securitas sf., sem nú eru orönir yfir 20 talsins, þegar þeir eldast og eru ekki lengur ungir og til I hvaö sem er. Hver veröur þá réttur þeirra? Erum viö kannski með samn- ingum viö þetta fyrirtæki aö fær- ast þrepi nær þvi ofbeldi sem er daglegt brauð viöa i nágranna- löndum — fremur en þrepi fjær? Ég held aö þaö væri holltað hugsa sigaðeins um við þessi timamót.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.