Þjóðviljinn - 13.06.1981, Page 7
en þar er aðeins virkjað sem
nemur 70 GWh á ári. A Noröur-
landi er sama hlutfall 2000 GWh
og 180 GWh. Þetta misvægi i hag-
nytingu orkulinda okkar sker
vissulega í auga og verður ekki
réttlætt Ut frá núverandi búsetu-
skiptingu, hvað þá heldur skyn-
samlegri nýtingu auðlinda lands-
ins og eðlilegri þróun byggðar. A
þessu þarf að verða breyting sem
fyrst, einnig vegna öryggis not-
enda í öllum landshlutum og
nauðsynlegrar jöfnunar heild-
söluverðs samkvæmt gjaldskrá.
Stórvirkjanir í
þremur landshlutum
Á siðustu árum hefur veriö gert
verulegt átak i rannsóknum á
virkjunarkostum með það að
markmiði að nauðsynlegum
undirbUningi yrði lokið við fleiri
en eina virkjun, áður en taka
þyrfti ákvaröanir af Alþingi og
rxkisstjórn. Þetta hefur nú tekist,
þannig aö undirbúningi vegna
þriggja vatnsaflsvirkjana með
allt að 130-330 MW afli er langt á
veg komiöog hægt að gera skipu-
legar áætlanir vel fram i timann
um framkvæmdir og mannvirki,
sem þessum virkjunum þurfa aö
tengjast. Þær heimildir sem nú
hafa verið veittar af Alþingi
vegna þessara virkjana og ann-
arra aðgerða til raforkuvinnslu
hvila þannig á betri undirbúningi
en áður hefur tfökast, og með
þeimerm.a. tekinstefnaá bygg-
ingu stórvirkjana á Norður- og
Austurlandi á næstu 10 árum.
Hljóta allir aö sjá hver stakka-
skipti verða i raforkuiðnaði
landsmanna við slikar aðgerðir,
þvi að fyrir utan aukið afl og
dreifingu stórra virkjana á þrjá
landshluta i stað eins áöur, eykst
miðlunarstig að baki vatnsorku-
veranna um fullan þriðjung með
tilkomu Eyjabakkamiðlunar
einnar.
Fylkjum liði
um innlenda
orkunýtingu
Með því átaki i hagnýtingu
vatnsorku og jarðvarma sem
rikisstjórnin nú undirbýr og
heimilda er aflað fyrir i nýsettum
lögum verður lagður grunnur að
öryggi og viðunandi jafnræði i
landinu varöandi orku til al-
mennra nota og atvinnurekstrar.
Hlutur orkufreks iðnaðar mun
fara vaxandi og skilyröi skapast
til að reisa myndarleg fyrirtæki
viða um land, er byggi á innlendri
orku og innlendum hráefnum al-
fariö eða að nokkrum hluta. Hér
er verk að vinna undir islenskri
forystu og við eigum að lita á
þennan þátt atvinnuþróunar i
landinu sömu augum og aðra at-
vinnustarfsemihérlendisþar sem
tryggja ber islenskt forræði á öll-
um sviðum, þótt samvinna verði
við útlendinga um einstaka af-
markaöa þætti.
Viö höfum náð góðum tökum á
beislun orkulinda landsins, bygg-
ingu vatnsaflsvirkjana og hag-
nýtingu jarðvarma að vissu
marki og eigum herskara af fær-
ustu kunnáttumönnum á þessu
sviði. A sama hátt þurfum við að
fylkja liöi til að ná tökum á orku-
nýtingunni, uppbyggingu arðbærs
og fjölþætts iðnaðar í landinu er
hafi orkulindirnar að bakhjarli.
Þaö er engin ástæða til að ætla út-
lendingum forystu eða frumkvæöi
á þvi sviði. Þvi aöeins að gengið
sé að þessu verki út frá okkar
eigin forsendum með fjölþætta
hagnýtingu auðlinda landsins i
huga og samhengi og samfellu i
efnahagsþróuninni, munum við
uppskera þann arð, sem við vænt-
um og hafa þau tök á þróuninni,
sem er forsenda efnahagsleg sjálfc
stæðis. I þvi sambandi eru undir-
stööurannsóknir og þróunarstarf-
semi lykilatriöi, sem gefa þarf
meiri gaum að og verja meira
fjármagni til en verið hefur.
Enginn skilji orð min svo að ég
sé að hvetia til einangrunar frá
samskiptum viö grannþjóðir og
aðra sem viö okkur vilja eiga
samskipti á jafnræðisgrundvelli.
Þvert á móti er æskilegt aö gagn-
kvæm samskipti aukist, einnig á
sviði orku- og iönaðarmála. Þar
er það samstarf sem nú er hafið
innan Norðurlanda i heild og meö
tvihliða samningum milli landa
allrar athygli vert.
Helgin 13.-14. júnl 1981 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 7
tónbálhur
Gjörn-
ingar í
Norræna
húsinu
Það verða „nýlistarmenn” á
fjóröu tónleikum Skerplu Mus-
ica Nova, i Norræna húsinu
fimmtudaginn 18. júni, kl. 20.30.
Þar verða mættir Bandarikja-
mcnnirnir Philip Corner (pianó
ofl.) og Malcholm Goldstein
(fiðla o.s.frv.) og ætla að leika
frumsamdar tónsmiðar og
gjörninga (happenings) fyrir
viðstadda.
Corner er mjög vel þekktur i
hópi nýlistarmanna á tónlistar-
sviöinu i Bandarikjunum, en
hann var (og er) i tengslum við
framúrstefnumenn i Greenwich
Village (Dick Higgins, Le
Monty \oung ofl.) allt frá siðustu
árum sjötta áratugarins. Það
má þvi segja að hann sé löngu
orðinn „klassiskur” en tónleik-
ar af þessu tagi mega þó teljast
býsna gott nýnæmi hér á landi.
Umsjón
Leifur
Þórarinsson
Músíkhópurinn að
Kj arvalsstööum
A mánudaginn kemur, kl. niu
e.h. verða þriðju tónleikar á
„Skerpluhátið" Musica Nova.
Þeir verða á Kjarvalsstöðum og
er þaö Músikhópurinn, samtök
vngstu tónskálda okkar, sem
stendur fyrir þeim. Þar á að
frumflytja eða flytja i fyrsta
sinn á tónleikum hér á landi,
verk eftir Lárus Grimsson,
Þorstein Hauksson, Askel Más-
son, Iijálmar Ragnarsson,
Karólinu Eiriksdóttur og
Magnús Bl. Jóhannsson. Þrjú
verkanna eru elektrónisk, þ.e.
segulbandsverk og flytjast i
gegnum hátalarakerfi, þ.e. verk
þeirra Lárusar, Þorsteins og
Magnúsar Blöndal. Manúela
Wiesler mun leika Itys, sóló-
flautuverk eftir Askel Másson,
en það hefur að visu oft heyrst I
útvarpinu, enda til á plötu, en
hefur aldrei verið flutt i hljóm-
leikasal hér á landi.
Þarna verður lika einleiks-
verk fyrir fiölu, spánýtt af nál-
inni frá Karólinu Eiriksdóttur
og heitir „In vultu solis” eða”!
andliti sólar” og er samið fyrir
og frumflutt af Guðnýju
Guðmundsdóttur. Einar
Jóhannesson ætlar þá að leika
þrjú Klarinettst ykki eftir
Hjálmar Ragnarsson og leikur
Anna M. Sigurðardóttir með
honum á pianó. Fyrst og siðast
á tónleikunum verða útlend
verk: Miniatury f. fiðlu og
pianó eftir Pendercki, þann
pólska framúrstefnusnilling,
sem kannski er frægastur fyrir
harmljóð um Hiróshima og
Embryons Desséchés (skrælnuð
frjó) eftir Satie, þ.e. pianóverk
sem Jónas Tómasson hefur út-
sett fyrir nokkur hljóðfæri.
Auk Manúelu, önnu, Einars
og Guðnýjar koma Snorri S.
Birgisson (pianö) Laufey
Sigurðardóttir (fiðla) Carmel
Russill (selló) og Bernard
Wilkinson (flauta) fram á
þessum tónleikum.
Einar brillerar í
Það þarf auðvitað enga út-
lendinga til að segja okkur hvað
Einar Jdhannesson er magn-
aður músikant, hann er löngu
viðurkenndur sem einn okkar
snjallasti hljóðfæraleikari. En
vitaskuld hlýnar manni unt
hjartarætur þegar lesa má há-
stemmt hrds um landann I
heimsblöðum sbr. Daily Tele-
graph í London 3. júni s.l.:
...dásamlega ákveðin og þó
jafnframt eðlileg lina og bjartur
tónn”... við flutning Klarinett-
sdnötu Jdns Þórarinssonar og
„yndislega hlýr leikur”... á
sdnötu i Es dúr eftir Brahms.
Gagnrýnin i D.T. var sem
sagt með afbrigðum góð, en tón-
leikana sem um er að ræða
héldu þeir Einar og Philip Jenk-
ins i Wigmore Hall i London i
byrjun mánaöarins.
Einar Jóhannesson hefur
lengi verið búsettur i London, en
fyrir skömmu settist hann i sæti
fyrsta klarinettista i Sinfóniu-
hljómsveit Islands og þvi eftir
sem best verður séð fluttur
heim alfarið. Megum viö svo
London
sannarlega hrósa happi, aö
missa ekki þennan ágæta snill-
ing úr landi og hugsum gott til
glóöarinnar að heyra hann á
tónleikum i framtiðinni, bæöi á
sinfóniutónleikum og einleiks-
og kammertónleikum.
Það næsta sem við heyrum
frá Einari er f rumflutningur á
klarinettsty kk jum eftir
Hjálmar H. Ragnarsson, á
þriðju Skerplutónleikum
Musica Nova, sem Músikhópur-
inn stendur fyrir á Kjarvals-
stöðum n.k. mánudag.
111»
Kaupfélag Árnesinga
m
Nýjungamar fylgja
UAMIXA
Örugg og tæknilega fullkomin.
Ódýr, stílhrein og audstillanleg.
Glæsileg í nýja baöherbergiö og eldhúsiö
og auötengjanleg viö endurnýjun á gömlu.
Leitiö upplýsinga. Biöjiö um myndlista.