Þjóðviljinn - 13.06.1981, Qupperneq 24
ÞJÚÐVIUINN
Helgin 13.-14. júní 1981
nafn
Yfkunnar
Ingi R. Helgason
Fá nöfn hefurborið hærra i
vikunni en nafn Inga R.
Heigasonar, hæstaréttarlög-
manns, sem skipaður hefur
verið forstjóri Brunabótaféi-
ags islands. Ingi er nafn vik-
unnar að þessu sinni og hann
var fyrst spurður að þvi
hvernig það væri að taka við
nýju starfi eftir alian þann
hávaða sem skipunin hefur
valdið.
,,Það hefur oft orðið mikið
fjaðrafok út af skipun i þetta
embætti eins og reyndar
önnur og þvi þarf enginn að
kippa sér upp við þann
hávaða sem nú hefur orðið.
Grundvallaratriðið er að
heimild ráöherra stendur
traustum fótum i lögum, um
það verður ekki deilt. Þessi
læti hafa minnst snúist um
mig sjálfan og ég kviði þvi
ekki að ganga inn i þetta
starf nú. Ég er vanur að
starfa i blönduðum pólitisk-
um nefndum og trúi ekki
öðru en ég nái góðu sam-
bandi við stjórn félagsins og
starfsfólk og ég geti bæst i
hóp þeirra sem vilja vinna
fyrirtækinu gagn og sinna
hagsmunum þess”.
— Nú virðast ýmsir telja
að verið sé að leiða heims-
kominúnismann til öndvegis
i Brunabót?
„Þessi leiðari Visis, sem
þú vitnar i, er nú bara brand-
ari, — að visu nokkuð
skemmtilegur en illa skrif-
aður. Skrif af þessu tagi eru
til þess eins fallin að ala á
þeim hugmyndum að menn
með sömu stjórnmálaskoð-
anir og ég, eigi helst að vera
atvinnulausir og þeim sé
ekki trúandi til nokkurra
verka. Ég hef hins vegar ald-
rei fundið til þess að stjórn-
málaskoðanir minar væru
mér fjötur um fót við fram-
kvæmd starfa semmérhafa
verið falin. Sumt fólk á hins
vegar erfitt með að losa sig
við fordóma af þessu tagi.”
— Nú hefur verið bent á að
meðal umsækjenda cru
ýmsir sem hafa reynslu af
tryggingamálum eða eru
tryggingafræðingar?
„Það er nú sitt hvað,
sérfræðistörf og stjórnunar-
störf i fyrirtæki af þessu tagi.
Þannig er t.d. ekki sjálfgefið
að læknir ætti aö sjá um
rekstur sjúkrahúss, þó ekki
sé ég með þessu að kasta
rýrð á sérfræöiþekkingu
manna. Þó þetta starf sé að
ýmsu leyti ólikt þvi sem ég
hef áður sinnt nýtist mennt-
un min og reynsla i þvi.
Þetta verða að sjálfsögðu
nokkur umskipti fyrir mig,
en ég tel mig vera á góðum
aldri til þess að hasla mér
völl á nýjum starfsveitvangi.
— Nú rekurðu lögfræði-
skrifstofu og gegnir ýmsum
trúnaðarstörfum fyrir
Alþýðubandalagið. Geturðu
bætt þessu ofaná það?
„Nei, þar er engu á bæt-
andi. Ég mun helga Bruna-
bótafélaginu mina starfs-
krafta og i þvi skyni ganga
úr störfum sem ekki sam-
rýmast forstjórastarfinu og
létta af mér öðrum starfs-
skyldum sem á mér hvila.
Þar er efst á blaði lögfræöi-
skrifstofa min, sem ég hætti
að reka 1. júli, n.k. eftir 28
ár.”. -þs.
Aðaisfmi Þjóðviljans er 81333 ki. 9-20 mánudag til föstudags.
Utan þess tima er hægt aö ná I blaðamenn og aðra starfsmenn
blaösins i þessum simum: Ritstjórn 81382, 81482 og 81527, umbrot
81285, ljósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9-12 er hægt aö ná i af-
greiöslu blaðsins i slma 81663. Blaðaprent hefur slma 81348 og
eru blaöamenn þar á vakt öll kvöld.
Aðalsími
81333
Kvöldsími
81348
Helgarsími
afgreiðslu
81663
Fríöar-
gangan
1981
Á
skrif-
stofu
Herstöðvaandstæðinga
Astráður Haraldsson hafði I ýmsu að snúast á skrifstofu Herstöðvaandstæðinga þegar blaðamenn litu
þar inn.en Ijósmyndarinn benti á að stellingin minnti óneitanlega á gamia Marx. Ljósm.: gei.
A skrifstofu Herstöðvaandstæð-
inga við Skólavörðustiginn er ys
og þys þessa dagana. Þaðan er
stjórnað skipulagningu Keflavfk-
urgöngunnar, núeraðeins vika til
stefnu. Siminn hringir, það er
rætt um fjársöfnun, rútur, ræðu-
menn, borða og plaköt og það
vantar sjálfboðaiiða til starfa.
Meðan blaðamaður og ljósmynd-
ari staldra við i bið eftir formanni
samtakanna Erling ólafssyni,
verður blaðamanni fyrir að tylla
sér, meðan ljósmyndarinn mund-
ar linsur og smellir af.
Upp í hugann koma minningar
um fyrri göngur ýmist sólríkar
eða svalar, en alltaf hressilegar.
Þegar fyrsta Keflavlkurgangan
var f arin árið 1960 var viðreisnar-
stjórnin nýtekin við, vonir þær
sem bundnar voru við „vinstri”
stjórn Hermanns Jónassonar
höfðu brostið, en á stefnuskrá
hennarvar brottför hersins. Eins
og geta má nærri var kippt ræki-
lega i spottana vestur i
Washington, svo sem oftar siðar.
Blaöamaður var að visu barn
að aldri og fjarri góðu gamni
þegar þetta var, en gamlir sam-
herjar tjá okkur með eld i augum
að i þá tið hafi baráttan gegn
hernum átt mikinn hljómgrunn,
þá voru rökin einkum sótt til
þeirrar hættu sem menningu og
tungu stöfuðu frá hernáminu. Nú
er öldin önnur, sprengjur, eld-
flaugar, kjarnorkuvopn, vigbún-
aðarkapphlaup, nýr ótti um
ragnarök gagntekur okkur á
vinstri vængnum, meðan aðrir
láta sér fátt um finnast og bera
okkur enn þeim sökum að við sé-
um að undirbúa jarðveginn fyrir
Rússa.
En það voru Keflavikurgöngur
sem leituðu á hugann. Þegar
undirrituðþrammaði I fyrsta sinn
frá Keflavik til Reykjavikur var
vor i lofti. Það var árið 1968.
Næsta dag átti að hefjast NATO-
fundur I Reykjavik, þar sem
mættir voru meðal annarra
fasistinn Pippinelli utanrikisráð-
herra Grikkja. Nokkru áður
höfðu herskip NATO—flotans
komið i kurteisisheimsókn og
fengið herlegar móttökur með
kveðjum frá Che Guevara i formi
málningar. Já, það var þrammað '
alla þessa 50 kilómetra eða hvað
þeir nú eru margir. Þarna var
Jónas Arnason sem hvatti til að
láta gönguna ekki slitna i sundur,
þvi Moggamenn sem öðru hvoru
svifu yfir i flugvélum, lágu á þvi
lúalagi að taka myndir hátt úr
lofti, sem aðeins sýndu hluta
göngunnar. Úthugsuð tækni það.
Við Garðabæinn gripu litlu börnin
til gamals leiks, að kasta mold og
skit i kommana, þeim þó að
meinalausu. Næsta morgun reif
maður sig upp þrátt fyrir bólgna
fætur og stirðan gang til að mót-
mæla NATO—fundinum, og tókst
með naumindum að forðast hand-
tökur og barsmiðar. Þaðvariþá
tið.
önnur ganga sem ekki er siður
minnisstæð var árið 1976, þegar
landhelgisdeilan stóö sem hæst.
Þann dag skein sólin glatt og hiti
varilofti. Stemmningin var stór-
kostleg, söngur, harmonikuleik-
ur, hróp og vigorð glumdu allan
siðasta spölinn. Enn var vor i
lofti.
NU þýðirekki lengur að sitja og
rifja upp gamlar endurminning-
ar. Lesendur Þjóðviljans eiga
heimtingu á að vita hvernig
undirbúningurinn gengur. Það
kemur i ljósað formaðurinn hefur
tafist svo það eina ráð er eftir að
snúa sér til óbreyttra liðsmanna
(sem auðvitað vita allt um gang
mála, það er þetta venjulega
snobb sem fær okkur til að tala
alltaf viðæðstu menn). Strákarn-
ir sem eru á skrifstofunni láta
nokkuð vel yfir sér, þeir segja
skort á sjálfboðaliðum, þvi það er
gifurlega margt sem þarf að
gera. Lokasóknin er eftir, dreif-
ing áróðurs og öflun fjár, þvi
Keflavlkurgangan kostar svo
sannarlega sitt. Ekki slst þarf að
blása i glæður baráttuandans.
Það ætti að vera okkur hvatning
að við erum ekki ein á báti.
Félagar okkar og samherjar Ut I
Evrópu ætla að þramma lika eftir
malbikuðum vegum Evrópu.
Gangan hér verður fyrsti liðurinn
I miklum friðaraðgerðum, þó að
svo virðist sem sumum þarna Uti i
löndum finnist rétt mátulegt á
okkur að sitja uppi með kjarn-
orkuvopnin, ef þeim tekst að losa
sig við draslið. Við sættum okkur
auðvitað alls ekki við slikar
„lausnir”, en leggjum enn einu
sinni af stað í okkar kröfugöngu
undir kjörorðunum: Island Ur
NATO — herinn burt.
Framhaldsaðalfundur AB
Mánudaginn 15. júní verður framhaldsaðalfund-
ur Alþýðubandalagsins í Reykjavík að Hótel Esju
og hefst hann kl. 20.30. Nánar er f jallað um fundinn
og dagskrá hans á fréttasíðu inni i blaðinu.
,