Þjóðviljinn - 23.06.1981, Blaðsíða 3
Þriöjudagur 23. júní 1981 ÞJÓÖVILJÍNN — SIÐA 3
Aðalfundur Sambands íslenskra rafveitna:
Sóknarskeið í hag-
nýtingu orkulindanna
sagði Hjörleifur Guttormsson í ávarpi
„Framundan blasir viö sóknar-
skeið í hagnýtingu orkulindanna.
Undir það tóku menn á nýaf-
stöönu Orkuþingi, og þar var lögö
áhersla á innlent frumkvæöi og
forræði á sem flestum sviöum.
Við þurfum aö hagnýta hugvit,
mannafla og fjármagn þjóöarinn-
ar á næstu árum til nauðsynlegra
og arðbærra framkvæmda i orku-
öflun og orkunýtingu. Ég þykist
vita aö sami sóknarhugur riki á
þessum vettvangi. Hér þarf aö
fylgjast aö kapp og forsjá meö
langtfmahag og öryggi þjóðarinn-
ar að leiöarljósi”, sagði Hjörleif-
ur Guttormsson, iðnaðarráðherra
er hann ávarpaði aðalfund Sam-
bands islcnskra rafveitna á
Egilsstöðum I gær.
Aðalfundurinn stendur i þrjá
daga og lýkur þvi á morgun. A
fundinum eru um 80 þátttakend-
ur, og hlýöa þeir á nokkur erindi
um orkumál, auk þess sem venju-
leg aðalfundarstörf fara fram.
I gær hlýddu fundarmenn á
ávörp þeirra Aðalsteins Guöjohn-
sen, formanns Sambands is-
lenskra rafveitna, og Hjörleifs
Guttormssonar, iðnaðarráð-
herra. Einnig flutti Jóhannes
Nordal, Seðlabankastjóri erindi
um ákvarðanatöku i orkumálum.
1 dag mun Guðmundur
Magniísson, Háskólarektor flytja
erindi um fjármögnun og verð-
lagningu i raforkuiðnaði, og
Steinar Friðgeirsson, verkfræð-
ingur talar um töp i orkuverum.
A morgun verður fariö meö
aðalfundargesti um væntanlegt
virkjunarsvæði Fljótsdalsvirkj-
unar, eftir þvi sem færð leyfir.
✓
Islenskt
frumkvæði
í ávarpi sinu fjallaði iðnaðar-
ráðherra nokkuð um Orkuþing,
og þærumræður er þar fóru fram
um orkunýtingu. Hann sagði
m.a.: ,,Ekki var siður athyglis-
vert það sem kom fram varðandi
orkunýtinguna. Þar kom fram
yfirgnæfandi stuðningur við virkt
islenskt forræði varðandi undir-
búning, uppbyggingu og rekstur
þess orkuiðnaðar, sem að yrði
stefnt i landinu, og að sú upp-
bygging yrði hagnýtt öðrum iðn-
aöi til hagsbóta, svo sem verða
má, og jafnframt stefnt að úr-
vinnslu úr afurðum orkufreks
iðnaðar hér innanalnds.
Islenskt frumkvæði og forræði á
sviði orkunýtingar gerir auknar
kröfur til okkar sjálfra á mörgum
sviðum. Til að það leiði til árang-
urs þarf að leggja mun rikari
áherslu en verið hefur á rann-
sóknir á sviði orkunýtingar-
tækni..”
Útfærsla
■
Landsvirkjunar
Um skipulag raforkumála I
sagði Hjörleifur m.a.: •
„Skipulag raforkumála verður I
áfram til úrlausnar, og i þvi sam- I
bandi veröur leitast viö að ná I
frekara samkomulagi um út- 1
færslu Landsvirkjunar, m.a. i I
tengslum við byggingu vatnsafls- I
virkjana á Austurlandi og Norð- I
urlandi.
Ríkisolíufélag j
Ég tel æskilegt að stofnað verði I
oliufélag á vegum rikisins til að I
annast um innkaup á oliuvörum |
til landsins og dreifingu þeirra, i ■
samvinnu við oliufélögin sem fyr- I
ir eru”, sagði iðnaðarráðherra I
um eldsneytismál i ávarpi sinu. I
eng. •
-----------------------1
Rommí í
leikför um
Norðurland
Leikfélag Reykjavikur er að
leggja upp I leikför með Rommi
sem sýnt hefur verið við mjög
góðar undirtcktir I vetur. Það eru
þau Sigríður Hagalln og Gisli
Halldórsson sem leika tvo ein-
staklinga scm hittast á clliheimili
ogtaka þar tal saman um lifið og
tilveruna, um lcið og þau stytta
sér stundir við spilamennsku.
Leikritið er bandariskt eftir
D.L. Coburn. Þaö var frumsýnt
árið 1976 og hlaut tveimur árum
siðar Pulitzerverðlaunin sem
besta leikrit ársins. Það hefur
verið sýnt 70 sinnum i Iðnó, auk 6
sýninga í nágrenni bæjarins, en
nú er ætlunin aö halda norður i
land. Fyrsta sýningin verður á
fimmtudagskvöld á Akureyri, en
siðan liggur leiðin i Mý-
vatnssveitina, til Húsavikur, Dal-
víkur, Ólafsfjarðar, Siglufjarðar.
Hofsóss, Sauðárkróks og nálægra
staða.
Leikferöirút á land hafa verið
nær árviss þáttur i starfi Leik-
félagsins enda móttökur með
miklum ágætum.
Þeim Leikfélagsmönnum bar
saman um að aðstæður úti á landi
hefðu viða breyst mjög til hins
betra á undanförnum árum, þó
verður að miða útbúnað við nán-
ast h vað sem er og þvi var smíöuð
sérstök leikmynd fyrir ferðina.
Þaö verður sex m anna hópur sem
leggur upp i norðurförina sem
lýkur nálægt miöjum júli.
— ká
Létust í
umferðar-
slysi
Piltarnir tveir sem létust i um-
ferðarslysi á Reykjanesbrautinni
s.l. föstudag voru Guðmundur St.
Ingason, til heimilis aö Hliðar-
götu 23, Fáskrúðsfirði, hann var
22 ára. Hinn hét ólafur Geir
Hauksson, 17 ára, til heimilis að
Alfaskeiði 82, Hafnarfirði.
' ■ i
f- ,
I
fc
m
I" < * „ d
|gggg#Ú gSgÉjgl
*
Leikfélagsmenn kynntu i gær leikför um Norðurland. F.v.: Þorsteinn Gunnarsson leikhússtjóri, leik-
ararnir Sigrföur Hagalin, Guömundur Pálsson og GIsli Halldórsson, ásamt Stefáni Baldurssyni leikhús-
stjóra. Ljósm. eik.
Kamival listamanm
Bandalag fslenskra lista-
inanna efnir til mikillar uppá-
komu í Laugardalshöllinni
næstkomandi laugardag. Þang-
að er boðið öllum félags-
mönnum BÍL ásamt vinum og
velunnurum.
Inni f höllinni verður komiö
fyrir innimarkaði, með mark-
aðstjöldum, listamenn troða
upp með tónlist, leikatriði, söng,
nýja og gamla dansmúsik og á
boðstólnum verða blóm i
hnappagatið. Þá má búast við
uppboðiá listmunum, veitingar,
verða rauð, hvit og freyðandi vin
ásamt pizzuúrvali, en undir
lokin verður stiginn dans fram á
nótt.
Þetta mikla karnival lista-
manna hefst kl. 21 og stendur til
kl. 3 um nóttina. Mikið verður
lagt upp úr léttri og skemmti-
legri stemmningu i höllinni og
listamennirnir lofa þvi að
kveikja ekki i, en vegna bruna-
hættu varþeim meinað að halda
hátiöina að Korpúlfsstööum,
eins og fyrirhugað var. Það
verður sem sagt kátt i höllinni á
laugardagskvöld.
Þau undirbúa hátiöina I
Höllinni: F.v.: Gestur Þor-
grlmsson, Þorbjörg Höskulds-
dóttir, Herdís Þorvaldsdóttir og
Kristinn Ragnarsson. Ljósm:
eik
Norrænir fjármála-
ráðherrar á Höfn:
Ræða
efna-
hagsmálin
Fundur fjármál aráöherra
Noröurlanda veröur haldinn á
Höfn I Hornafiröi dagana 25.—26.
þ.m. Er hér um aö ræöa reglu-
bundna samkomu fjármálaráö-
herranna, en sllkir fundir eru
haldnir tvisvar á ári til að ræöa
sameiginlega þætti rlkisfjármála
landanna og efnahagsmálin I vlö-
ari skilningi.
Auk ráðherra allra landanna
munu allmargir embættismenn
fjármálaráðuneytanna sitja
fundinn, og verða þátttakendur
alls um 40 þar af rösklega 30 út-
lendingar. Fundinum lýkur um
hádegi föstudaginn 26. júni, og
mun þátttakendum þá gefast
kostur á kynnisferð til Vest-
mannaeyja.
Tölur
lögreglu
út í hött
Ihaldspressunni sárnar greini-
lega mjög hve friðarganga her-
stöövaandstæöinga sl. laugardag
var glæsileg. Ljósmyndari Visis
lagöi á sig mikiö erfiöi og beitti
aödráttarlinsunum til aö gera
gönguna sem allra minnsta á
mynd. Biaöiö skammast einnig
mjög yfir fréttaflutningi útvarps-
ins og hefur eftir lögreglunni aö
um 1000 manns hafi veriö i göng-
unni.
Herstöðvaandstæðingur sem
býr i Garðabæ, þar sem mynd
Visis var tekin, brá sér I hlutverk
rannsóknarblaðamanns og kann-
aði aðstæður. Niðurstaðan varð
sú að á mynd Visis má sjá milli 9
og 10 ljósastaura. Milli hins fyrsta
og siðasta eru um 600 metrar. Við
Garöabæinn var gangan nokkuð
þétt eins og sjá má á myndinni.
Ef reiknað er með sex manns i
röö og tveimur röðum á hvern
metra sem er gróft reiknaö, kem-
ur út úr dæminu 12x600 eða um
1200 manns. Eftir að farið var
fram hjá Garöabæ bættust mjög
margir i hópinn, svo að sjá má aö
tala lögreglunnar er út i hött,
enda sýndi lengd göngunnar þeg-
ar komið var til Reykjavlkur að
þar voru ekki á ferðinni nokkur
hundruö, heldur nokkur þúsund.
— ká
Stjórn
Starfsmannafélags
Þjóðleikhússins:
Höfum ekki
farið framá
rannsókn
Stjórn Starfsmannafélags
Þjóðleikhússins hefur sent frá sér
eftirfarandi yfirlýsingu „aö gefnu
tilefni”:
„Stjórnin hefur aldrei farið
fram á rannsókn, né krafiö þjóð-
leikhússtjóra um skýrslu vegna
iqiptökutækja á skrifstofu hans,
enda sér hún ekki annaö en farið
hafi verið að lögum aö öllu leyti.
Ennfremur harmar stjórnin þá
umfjöllun sem mál þetta hefur
fengið í fjölmiölum og þann úlfa-
þyt sem það hefur vakið.”