Þjóðviljinn - 24.07.1981, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 24.07.1981, Blaðsíða 4
4 SIDA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 24. júH 1981 MOBVIUINN Málgagn sósíalisma, verkalýds- hreyfingar og þjódfrelsis (Jtgefandi: Útgáfufélag ÞjóBviljans. Framkvæmdastjóri: Eiður Bergmann. Ritstjórar: Arni Bergmann, Einar Karl Haraldsson, Kjartan Ólafssor.. Augiýsingastjóri: Svanhildur Bjarnadóttir Umsjónarmaóur sunnudagsblaós: Þórunn Sigurðardóttir Afgreiöslustjóri: Valþór Hlöðversson Blaöamenn: Alfheiöur Ingadóttir, Ingibjörg Haraldsdóttir, Kristin Astgeirsdóttir, Magnús H. Gislason, Sigurdór Sigurdórs- son.Jón Guöni Kristjánsson. íþróttafréttamaöur: Ingólfur Hannesson. Útlit og hönnun: Guðjón Sveinbjörnsson, Björn Br. Björnsson . Ljósmyndir: Einar Karlsson, Gunnar Eliasson. Handrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elias Mar. Auglýsingar: Unnur Kristjánsdóttir Skrifstofa: Guðrún Guövaröardóttir, Jóhannes Harðarson. Afgreiðsla: Kristin Pétursdóttir, Bára Sigurðardóttir. Simavarsla: Ólöf Halldórsdóttir, Sigriður Kristjánsdóttir. Bílstjóri: Sigrún Bárðardóttir. Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jóns- dóttir. Útkeyrsla, afgreiösla og auglýsingar: Síöumúla 6, Iteykjavik, simi 8 13 33. Prentun: Blaöaprent hf.. Evrópsk stefna í mótun # Vaxandi andóf gegn kjarnorkuvígbúnaði hefur með merkilegum hætti sett efst á dagskrá spurninguna um möguleika Vestur-Evrópu á að skapa sér sjálfstæða stefnu í öryggismálum, stefnu, sem í veigamiklum greinum kynni að vera önnur en sú sem bandarískir ráðamenn telja sér æskilega. # Foringjar sósíaldemókrata hafa fyrir skömmu þingað um þessi mál í Bonn, og oddvitar sósíaldemó- krata í Danmörku og Noregi hafa ítrekað áhuga sinn á samningi um kjarnorkuvopnalaus svæði á Norðurlönd- um. Þrír f lokkar í Hollandi sem hafa meirihluta á þingi eftir nýlegar kosningar, eru að velta f yrir sér drögum að stjórnarsáttmála, sem gerir ráð fyrir því, að Holland taki ekki við nýjum kjarnorkueldflaugum og krefji Natóríki um f rumkvæði í afvopnunarmálum. Norðmenn voru að lýsa því yf ir, að þeir vildu ekki taka þátt í f lota- æfingum Nató, sem fram færu sunnan við hefðbundinn vettvang bandalagsins. # Allt er þetta Bandaríkjamönnum mjög á móti skapi. Þeir hafa lagt ofurkapp á að þétta eldflaugaskóginn í Evrópu. Þeir hafa viljað fá Natóríki með í ýmislega hernaðarlegaábyrgðog umsvif utan Evrópu. Og jafnvel þótt sósíaldemókratískir forsætisráðherrar á Norður- löndum orði áhuga sinn á kjarnorkuvopnalausu svæði mjög varlega og láti það fylgja, að kjarnorkueldf laugar Sovétmanna í norðri eigi að koma inn í þá mynd — þá er Haig utanríkisráðherra Reagans samt sem áður mjög andvígur slíku frumkvæði. # Það dæmi sem síðast var nefnt er lærdómsríkt ýmissa hluta vegna. Haig segir, að frumkvæði norrænna Natórríkja í þessum málum gæti haft erfiðleika í för með sér bæði fyrir samninga við Sovétríkin um eld- flaugar i Evrópu og fyrir varnarsamstarf í Nató yfir- leitt. Um þetta segir danska blaðið Inf ormation, að ekki þurfi sérfræðikunnáttu til að skilja, að þessir ,,erfið- leikar" snúist um það, í hvaða mæli Bandarikin geti ákveðið með hvaða hætti Noregur og Danmörk tengist inn i herstjórnarlist Nató. Bandaríkin óttast, segir blaðið, að ef Noregur og Danmörk ganga inn í kjarn- orkuvopnalaust svæði, þá muni úr sögunni sá möguleiki á að hóta því að löndin fái kjarnorkuvopn, sem bæði norskra og danska stjórn hafa hingað til haldið opnum, hvaðsem líður yfirlýsingum beggja um að þau séu „án kjarnorkuvopna." # Hér er komið að einum kjarna málsins. Evrópskir stjórnmálamenn sætta sig ekki við forræði Bandaríkj- anna í vígbúnaðarmálum. Allra síst sósíaldemókrata- foringjar eins og Willy Brandt, sem brýnir óhikað fyrir mönnum að þeir eigi að taka hugmynd Brésjnéfs Sovét- forseta um „frystingu" vígbúnaðar alvarlega, eða þá Gro Harlem Brundtland, forsætisráðherra Noregs, sem veit að meirihluti kjósenda allra norskra flokka vill að Norðmenn hafi visst frumkvæði í afvopnunarmálum. Ástæðan er sú, að þegar Natóríki samþykktu aukinn kjarnorkuvígbúnað í Vestur-Evrópu sem svar við sovéskum SS-20 eldflaugum og fleiru af því tagi, þá fylgdi það með, að um leiðættieinskisað láta ófreistað til að semja við austurblökkina um einhver raunhæf skref til takmörkunar eða niðurskurðar á vígbúnaði. Hin nýja stjórn Regans og Haigs hefur svo gert það strik í reikn- inga með stórauknum útgjöldum til vígbúnaðar, að í Evrópu hafa menn ört minnkandi trú á að Bandaríkin hafi nokkurn raunverulegan áhuga á slíkri viðleitni. # Þar með verður þörfin fyrir evrópska stefnu brýnni en nokkru sinni fyrr—því, einsog Willy Brandt komst að orði fyrir skemmstu: ef eitthvað fer úrskeiðis, þá vita Þjóðverjar i báðum rikjum það ofurvel, að þeir eru úr sögunni sem þjóð. Þessi vitneskja — að þróunin dæmir Evrópu til að verða fyrsti vettvangur gjöreyðingar- stríðs, hefur skapað þann þrýsting neðanfrá, frá al- menningi sem smám saman hefur verið að þoka einnig þeim stjórnmálamönnum, sem áður voru fremur leiði- tamir, til skarpari og gagnrýnari afstöðu og til sjálfstæðs frumkvæðis. A þeim brautum er mörgum spurningum ósvarað. En hitt er svo undarlegt, að meðan þessi mál eru öðrum stærri í umræðu í grannlöndum, láta íslenskir f jölmiðlar vel flestir sér fátt um finnast, nema þá til að klifa á einhverri gamalli visku úr höfuð- stöðvum Nató. —áb T»inKÍIokkur sjálfsteAismanna kom naman til fundar i gær til að fjaila um ýmis dagskrármál, m.a. Hvokailaö HÚrálwmál, aem verið hefur i brennidepli fjólmiðla undanfarið. Fundinn sátu m.a. Gunnar Thoroddsen, forsctisráðherra, Friðjón Þórðarson, dómsmálaráð- herra og Pálmi Jónsson, landbúnaðarráðhcrra. en nýiunda er i seinni tið að þeir HÍtji aliir þinKfiokkafund. Aliir aðrir þingmenn flokkains sátu og íundinn, ef þrír eru undanteknir: Albert Guðmundsson, Matthiaa Bjarnaaon og Sverrir Hermannaaon, er boðuðu forföll. Hér fer á eftir i heiid samhljóða ályktun þingflokkaina. Ráðherrarnir þrir tóku þátt i umrsðu um | málið, en kváðuat rfitja hjá við atkvæðagreiðalu um tillöguna — og voru raunar viknir af fundi er hún fór fram: Gtrter Innaraon. hmgtnMmgmr SoAUbaaka. Siivitlr Jóruwon. b*nkMt>6H. Þorvaldur Giriar KrijitJ4n»"on. I alþlnrUBadnr. Grir BillirlMaon. (ormndur Sfál(ntjrAÍ8(lokkj*lnji. ÓU(ur G. Elnnrwton. (ormaAur þlng(lokkji I SJál(jrtK«faimaaM og HnlMór Rlðndal. alþinctsmaAur. klippt I Stórmál Vimma Vilmundur sumarritstjóri er i stórmálunum með Alþýðublaðiö þessa dagana. Það er ágóði Guðrúnu Helgadóttur og Rolfs Johansen, hallærislegasti blaðamannaf undur norðan Alpafjalla, pólsk undanrenna og árásir á Jóhönnu Sigurðar- dóttur alþingismann fyrir lýðræðisleysi i' Verslunar- mannafélagi Reykjavikur, og yfirlýsingar i löngum leiðurum um það hverjirséu á nógugáfu legu plani til þess að Vilmundur Gylfason geti verið þekktur fyrir að eiga við þá orðastað. Hjálparkokkar Vilmundar á Alþýðublaðinu eru i smá.- málunum eins og Alusuisse- svikunum. NU þarf ekki að kvarta yfir þvi að Alþýðuflokkurinn hafi brugðist linkulega við niður- stöðum sdrálsmálsins. Hins- vegar verður hann að hafa eitt- hvað til þess að jagast Ut af, og þvi er tönnlast á staðhæfingum um að iðnaðarráðherra hafi ekki lagt öll spil á borðið. Helgi Már Arthursson segir m.a. Alþýðuflokkurinn hefur lagt höfuðáherslu á það að öll gögn málsins verði gerð opinber og að umræður fari fram um málið f heild sinni.... Það er vafasamt að tala um þjóðarsamstöðu þegar forsendurnar sem menn eiga að mynda sér skoðun eftir, fara eftir þvi hvort iðnaðarráð- herra og rikisstjórn þóknast að upplýsa almenning og stjörn- málamenn um málið í smá- atriðum. Leyndin er hjá Alusuisse Þar hljóp sendingin i kú prestsins. Kjartan Jóhannsson hefur lýst yfir þvi að skýrsla Coopers og Lybrand sé höfuð- gagnið í súrálsmálinu. Úr henni hafa aðeins verið gerðar opin- berar meginn iðurstöður: Hversvegna? Astæðan er ein- faldlega sU að á sinum tima gerði aðalstjórn Alusuisse það að skilyrði fyrir upplýsingagjöf til Coopers og Lybrand, að þær yrðu ekki birtar opinberlega. Iðnaðarráðuneytið féllst á það en lýsti þvi yfir, að meginniður- stöður yrðu að sjálfsögðu birtar, > en það sem flokka mætti undir Iviðskiptaleyndarmál Alusuisse skyldi fara með að tilmælum auöhringsins. • NU hefur iðnaðarráöuneytið i Itvdgang spurt Alusuisse að þvi hvað það sé í skýrslu Coopers og Lybrand sem Svisslend- • ingarnir flokki til viðskipta- Ileyndarmála. Þetta er gert i þeim tilgangi að hægt sé að birta meginmál skýrslunnar. j Spyrjiö Alusuisse Að sjálfsögðu dettur iðnaðar- • ráðherra ekki i hug að brjóta Isamkomulag sitt við Alusuisse. Það væri að taka upp sömu ab- ferðir og Svisslendingarnir • nota. Þess í stað er kappkostað Iað koma kórrétt fram við þá. Helgi Már Arthursson og Alþýðuflokkurinn ættu þvi að ■ snUa sér til Alusuisse með Iumkvartanir sfnar um leynd. Stjórnarandstaðan þarf hins- vegar ekkert að kvarta þvi hUn i hefur öll þau sömu gögn i Ihöndum og Alusuisse, og rfkis- stjórnin, enda þótt leyndarkvöð frá svissneska auöhringnum sé ■ á sumum þeim plöggum. HUn er Iekki til komin af völdum is- lenskra stjórnvalda. Það er mergurinn málsins. Þrír ráðgjafar Nærvera þriggja manna vakti sérstaka athygli á þingflokks- fundi Sjálfstæðismanna sl. mánudag, þar sem samin var hin makalausa samþykkt um gæsku Alusuisse. Hún var enda rækilega tiunduð með mynd- birtingum i Morgunblaðinu, lík- lega til þess að gefa hinum vængbrotna þingflokki Geirs- brotsins meira vægi en hann stendur einn og óstuddur undir i alm enningsál itinu. Leiftursóknar- stjórí Fyrstan skal telja sjálfan Seðlabankastjórann (aðstoðar). Sigurgeir Jónsson var i vinnu- tima sinum að búa til málsvörn fyrir Alusuisse. I ljós hefur komið að hann er formaður þeirrar efnahagsmálanefndar Sjálfstæðisflokksins sem gjarn- an undirbýr leiftursóknir I járn- frúarstíl., þegar vel liggur á henni. Þar með var komin skýr- ing á nærveru hans, og ekki til- tökumál þótt háttsettir embættismenn rikisins séu annarsstaðar en i vinnu sinni. Sli'kt er alsiða. Stjórnarformaöur Járnblendi- félagsins Næstan skal telja Hjiýt Torfa- son hrl., stjómarformann Járn- blendifélagsins. Það vakti nokkra athygli að Hjörleifur Guttormssoniðnaöarráðherra fól Hirti að gegna áfram stjórnar- formennsku í Járnblendifélag- inu og kaus ekki að setja i embættið rikisstjórnarmann. Væntanlega mátti túlka það sem traustyfirlýsingu á hæstar- réttarlögmanninn. En hvaöa erindi á stjómarformaður Járn- blendifélagsins inn á þing- flokksfund Sjálfstæðisflokksins til þess að sitja við hægri hönd Geirs Hallgrimssonar og búa til málsvörn fyrir Alusuisse og árás á iðnaðarráðherra? Á Járnblendifélagið — sem er i meirihluta eign islenska rikisins — einhverra hagsmuna að gæta iISALeðai' þjónustu fyrir Alu- suisse? Varla. Skýringin gæti verið sú að hæstaréttarlögmaðurinn var á sínum tima einn af aðalráð- gjöfum Sjálfstæðisflokksins við álsamningagerðina, og sat i fyrstu stjórn ÍSAL. Gömul kynni gleymast ei Siðastur er tilnefndur Garðar Ingvarsson, sem i Morgun- blaðinu er kynntur sem hag- fræðingur Seðlabankans. Ekki er frá þvi skýrt hvaða embætt- um hann gegni á vegum Sjálf- stæðisflokksins. Hitt vitum við að Garðar Ingvarsson var á þeimárum sem Alusuisse fór að renna hýru auga til íslands i þjónustu svissneska auðhrings- ins. Aöur en þeir Alusuisse menn gengu til samninga við tslendinga um álverið hafði Garöar Ingvarsson setið út i Þýskalandi og þýtt alla íslenska verkalýös-félaga- og atvinnu- starfsemis-löggjöf fyrir auð- hringinn. Ekki vitum við hvort fylgt hafa góð ráð um að plata landann, en ,af þessu dæmisést að ekki er áttvið neina Bakka- bræður þar sem þeir Svisslend- ingar eru. A ráðgjöfunum skuluð þér þekkja þá.mætti hér segja með útúrsnúningiúr gömlu máltæki. Þessvegna voru myndbirtingar Morgunblaðsins sl. þriðjudag afar fróðlegar. —eng l----------og skorrið

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.