Þjóðviljinn - 24.07.1981, Side 6
6 StOA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 24. júll 1981
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii
Hin 7. árlega garðveisla verður haldin n.k.
laugardag 25. júli kl. 14.00 að Gislholti
eystra, ef veður leyfir.
Fastir liðir eins og venjulega.
Við sköffum súpu og limonaði en gestir
komi með vinföng með sér.
Sjálfboðaliðar um skemmtiatriði hafi
samband sem fyrst.
Allir velkomnir meðan garðpláss leyfir.
Jón Hólm
Lausar stöður hjá
Isafjarðarkaupstað
1. Staða slökkviliðsstjóra. Umsóknar-
frestur til 1. sept. n.k.
2. Eftirtaldar stöður við leikskólann i
Hnifsdal, sem áætlað er að hefji starf-
semi sina 1. sept. n.k.:
a. Forstöðumann. Fósturmenntun
áskilin
b. Starfsmenn deildir. Fósturmenntun
eða reynsla i uppeldisstörfum æskileg.
Umsækjendur þurfa að geta hafið störf
siðari hluta ágústmánaðar. Umsóknar-
frestur er til 6. ágúst n.k.
Nánari upplýsingar veitir undirritaður.
Bæjarstjórinn á ísafirði.
Útboð
Fjarhitun Vestmannaeyja óskar eftir til-
boðum i tengingu varmaskipta og frágang
pipulagna á hrauni. útboðsgögn eru af-
hent á bæjarskrifstofunni i Vestmanna-
eyjum og Verkfræðiskrifstofu Guðmundar
og Kristjáns, Laufásvegi 12, Reykjavik,
gegn 500 kr. skilatryggingu. Tilboð verða
opnuð i Ráðhúsinu i Vestmannaeyjum,
þriðjudaginn 4. ágúst n.k. kl. 16.
Stjórn Veitustofnana
Vestmannaeyjabæjar.
Utboð
Áburðarverksmiðja rikisins, Gufunesi
óskar eftir tilboðum i spenna. útboðsgögn
eru afhent á Verkfræðistofunni, Rafteikii-
inguh.f., Ármúla 11, Reykjavik.
ÁBURÐ ARVERKSMIÐJ A RÍKISINS
Útboð
Áburðarverksmiðja rikisins, Gufunesi,
óskar eftir tilboðum i jarðvinnu vegna
byggingar sýruverksmiðju i Gufunesi.
útboðsgögn eru afhent á skrifstofu fyr-
irtækisins i Gufunesi gegn 100.00 kr. skila-
trygingu.
ABURÐARVERKSMIÐJA RÍKISINS
Hafin upptaka kennsluþátta 1 dönsku:
Sagan um Hildi
Upptaka á tiu sjónvarps-
þáttum og 20 hljóðvarps-
þáttum/ sem eru liður í
samvinnu milli islendinga
og Dana um dönsku-
kennslu í útvarpi á islandi
er nú hafin í Danmörku.
Þetta er i fyrsta sinn sem
námsefni i tungumálum er samið
sérstaklega fyrir islenskt sjón-
varp og hljóðvarp, en frumkvæðið
var tekið af þáverandi utanrikis-
ráðherrum landanna, Einar
Agústssyni og K.B. Andersen 1978
og sett nefnd embættismanna til
að skoða möguleikana. Alit
nefndarinnar var jákvætt og var
þá ákveðið að leggja i verkið og
skipta kostnaðinum, sem áætl-
aður u.þ.b. 415 milj, kr danskar, á
milli landanna.
Starfsnefnd tslendinga og Dana
hefur unnið grunnáætlun og tima-
áætlun fyrir verkið ásamt starfs-
manni nefndarinnar sem út-
nefndur var frá Danska útvarp-
inu, en hann hefur yfirumsjón og
ber ábyrgð á verkinu. Efnið allt
er tiu 30 minútna sjónvarpsþættir
og tuttugu 20 minútna langir
hljóðvarpsþættir auk kennslu-
Dókar sem gert er ráð fyrir að
verði 200 bls. að stærð.
Til Hafnar með sjúkling
Sjónvarpsefnið er skrifað sem
framhaldsþættir, þar sem hver
þáttur er sjálfstæður en allir
þættirnir mynda eina heildar-
sögu. Söguþráðurinn snýst um is-
lenska stúlku Hrafnhildi Gunn-
laugsdóttur, sem er um tvitugt og
kemur til Kaupmannahafnar i
fylgd með sjúklingi sem á að
leggjast inn á Rikisspitalann.
Sjúklingurinn er tengdur Hildi og
hún er fengin til að fara með, þar
sem hún hefur unnið á sjúkrahúsi.
Sjúklingurinn deyr hins vegar
snögglega og Hildur tekur þá
ákvörðun að dveljaSt i Kaup-
mannahöfn um tima, þar sem hún
á fri og gæti ef til vill fengið sér
einhverja vinnu þennan stutta
tima. Þar að auki hefur hún aðra
ástæðu til að vera um tima i Dan-
mörku þar sem fyrrverandi kær-
asti hennar frá þvi i menntaskóla
Kjartan hefur verið við nám i
tækniskóla i Höfn i uþb. ár. Hann
hefur ekki látið frá sér hevra og
fólkið hans heima á tsla.. Ji veit
ekki hvar hann er niður kominn.
Hildur er viss um að hann er enn i
Danmörku og ákveður að finna
hann. Edvard sem er vingjarn
legur eldri maður kominn á eftir-
laun og leigir henni herbergi á
meðan dvölinni stendur, aðstoðar
hana við leitina. Við þessa leit
kemst hún i kynni við ótal Dani
við hinar ýmsu aðstæður, auk
þess sem hún hittir tslendinga i
Danmörku sem reyna eftir föng-
um að hjálpa henni.
Hildur er aðalpersónan i þátt-
unum; hún er sú sem kemur
áhorfandum og hlustandanum i
kynni við danska menningu,
hefðir og hugsanahátt, og eiga
þættirnir að sýna daglegt lif i
Danmörku.
Hildur er leikin af islensku leik-
konunni Lilju Þórisdóttur sem nú
býr i Danmörku ásamt fjölskyldu
sinni þá fjóra mánuði sem upp-
taka þáttanna tekur.
Hljóðvarps og kennslubók
Sjónvarpsþáttunum fylgja
siðan 20 hljóðvarpsþættir og i
þeim verður farið nánar i efni
sjónvarpsþáttanna. Þannig
verður mögulegt aö sýna aðrar og
nýjar hliðar á dönsku sem tungu-
máli og dönsku samfélagi. t bók-
inni munu birtast hvoru tveggja
kennsluefni og fjöldi greina og
efnis sem mun gefa enn betri lýs-
ingar og aukna möguleika á þvi
aö hvetja lesendur til sjálfsnáms.
Upptaka hljóðvarpsefnisins og
ljósmyndun fyrir bókina fer fram
jafnhliða sjónvarpsupptökunum.
Einn tslendingur starfar nú i
Danmörku að undirbúningi og
gerð hljóðvarpsþáttanna.
Haustið 1982
Upptaka á sjónvarpsþáttanna
mun taka um 4 mánuði og siðan
tekur klipping og hljóðsetning
jafnlangan tima, þannig að allir
þættirnir ættu að vera tilbúnir
vorið 1982. Hljóðvarpsþættirnir
og kennslubókin verða fullunnin
haustið 1982.
Höfðar til allra
Þættirnir i sjónvarpi og hljóð-
varpi eru ætlaðir öllu fullorðnu
fólki sem hefur nokkra færni i að
lesa dönsku, en á erfitt að skilja
talað mál og gera sig skiljanlegt á
dönsku i töluðu máli. Þess vegna
er ekki miðað við algjöra byrj-
endur i kennslunni heldur lögð
áhersla á að þættirnir séu spenn-
andi og skemmtilegir. Eftir að
þættirnir hafa verið sendir i sjón-
varpi og hljóðvarpi veröa þeir
fáanlegir á 15 mm filmum, videó-
böndum og hljómböndum eða
snældum, þannig að efnið megi
nýtast i kennslu fullorðinna i skól-
um landsins.
Þættirnir eru skrifaðir af rit-
höfundunum Hans Hansen, Erik
Thygesen og Poul-Henrik
Trampe. Þessir þrir rithöfundar
eu allir vel þekktir i sinu heima-
landi. Hans Hansen er td. höf-
undur matsölubókarinnar „Sjáðu
sæta naflann minn” og Poul-Hen-
rik Trampe er kunnur fyrir sjón-
varpshandrit. Leikstjóri sjón-
varpsþáttanna er Bent Christen-
sen, fyrrum leikari, en tónlistina
semur Magnús Eiriksson.
Aðalhlutverkin I sjónvarpsþátt-
unum eru leikin af Lilju Þóris-
dóttur, Hildi, Birni Puggárd -
Möller, sem leikur Edvard
Sonja Oppenhagen leikur
Dorte, vinkonu Hildar i Kaup
mannahöfn, Claus Strandberg
leikur vin Dorte, Sören Pilmark
leikur vin Hildar og Einar Kára-
son leikur Kjartan.
Starfsnefndin sem unni hefur
að gerð efnisins er skipuð Peter
Söby Kristensen, sem er for-
maöur nefndarinnar, Palle
Mogensen, starfsmaður Danska
útvarpsins, Friðriku Geirsdóttir,
sem ritstýrir kennslubókinni,
Ernu Indriðadóttur, sem annast
gerð hljóðvarpsþáttanna og Bent
Christensen, leikstjóra.
Með starfsnefndinni hafa enn-
fremur unnið kennslufræðilegir
ráðunautar Anne Marie Heltoft
og Karen Risager, auk Birnu
Bjarnadóttur, Þá hefur Heimir
Pálsson veitt nefndinni ráðgjöf
við sjónvarpshandritið og frum-
vinnu þáttanna.
Lilja Þórisdóttir leikur Hiidi, þá persónu sem á að koma okkur I kynni
við danska menningu og hugsunarhátt.
Sögusviðið er i Kaupmannahöfn.