Þjóðviljinn - 24.07.1981, Qupperneq 7

Þjóðviljinn - 24.07.1981, Qupperneq 7
Föstudagur 24. júli 1981 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 7 Frásögn Inga R. Helgasonar af ferð til Englands og Ástralíu dagana 11. - 20. nóv. 1980 VII. Samtal við hæstaréttardómarann Justice Murphy 49. Ég átti þess kost að hitta að máli hæstaréttardómarann Justice Murphy og heimsótti ég hann i skrifstofu hans i nýrri og glæsilegri byggingu Hæstaréttar Ástraliu i Canberra. Justice Murphy var áður einn af helstu leiðtogum Verkamannaflokksins og var dómsmáiaráðherra og atvinnumálaráðherra fyrir flokkinn. Það var i hans ráðherratið, að lög voru sett, sem bönnuðu útflutning á súráli nema með leyfi stjórn- valda. Hann tók mér mjög vel og þekkti umsvif Alusuisse i Ástraliu og vissi að Alusuisse ætti ál- bræðslu á Islandi og var býsna kunnugur málefnum og starfs- háttum Alusuisse. Hann fékk mér mikið af gögnum. 50. Ég skýrði honum frá ástæðum þess, að ég væri kominn til Ástraliu. Ég sýndihonum að ég hefði innflutningsverðið á súrál- inu á hverjum einasta farmi frá Ástraliu til íslands og nú vantaði mig aðeins útflutningsverðið, eins mörgum samningum og þið getið um súrál milli óskyldra aðila, sem gerðir hafa verið á þessu timabili og berið Isalverðin saman við þá. Alcoa i Ástraliu framleiðir súrál og selur i miklu magni á frjálsum markaði. Þar ættuð þið að fá visbendingar. 53. Ég sé að vandi ykkar er mikill vegna sönnunarskorts, sagði Justice Murphy. Þið gætuð fengið góðan iðnaðarráðgjafa, sem gæti tint til marga súráls- samninga, sem gæfu til kynna, að Isalverðin væru hærri en arm’s length prices, en Álusuisse mundi alltaf neita og finna eitthvað að öllum samningunum. Þar sem þið hafið afsalað ykkur skattmats- valdinu i áðalsamningnum er það min ráðlegging, að þið reynið að fá skattlagningarformúlunni breytt og þá i þá veru, að skattur- inn verði minna háður hagnaði. Þið getið hvort sem er aldrei reiknað hann út. 54. Að lokum ræddum við lög- fræðilegar hliðar málsins, eink- um milliliðastarfsemi Alusuisse án skattlagningar i Astraliu eða fslandi. Hann rakti fyrir mér ný- genginn hæstaréttardóm um báxitsölu frá Astraliu til Japan, við staðið lagalega á þvi, að verð Gove Alumina Ltd. til Alusuisse að viðbættum flutningskostnaði ætti að vera viðmiðunarverðið i reikningum Isals. Hann taldi að þegar þetta tvennt lægi fyrir, væri það óheimil lögskýring af hálfu Alusuisse, að þeir gætu komið inn sem milliliður og hækkað verðið til lsals i þvi skyni að komast undan skatti á fslandi með skirskotun til hærra verðs annars staðar. Gutman beðinn um skýrslu 56. Þar sem dvöl min i Astraliu var svo stutt, að ég gat með engu móti aflað aílra þeirra viðbótar- upplýsinga sjálfur, sem hægt var að fá þar, var ákveðið i samráði við iðnaðarráðuneytið, að ég reyndi að ráða okkur iðnaðarráð- gjafa i Ástraliu. Eftir ráðlegg- ingum Kerry McHugh ræddi ég við Jerry Gutman, sem stundar sjálfstæða iðnaðarráðgjöf i Astraliu og viðar. Hann hafði unnið fyrir áströlsku rikisstjórn- ina, þegar Nabalco-samningarnir voru gerðir. Hann tók verkið að sér. Skýrar og réttar kemur þetta fram i seinni skýrslu þeirra frá 29. ágúst 1975, þar sem segir i tölulið 41: „Súrálið, sem framleitt er i Goveer selt til Alusuisse, sem aftur seiur það til tsals’M þessum tilvitnunum kristallast milliliða- starfsemi Alusuisse. Samkvæmt aðstoðarsamningnum á Alusuisse að útvega súrálið gegn umboðs- launum. Þaðgerir Alusuisse ekki, heldur kaupir súrálið og selur tsal það með álagningu teftir 1973) og tekur einnig umboðslaunin. 59. Með samningi, dagsettum 30. mai 1969, milli Isals og Alu- suisse, lofar og skuldbindur Alu- suisse sig til að selja Isal súrál til starfsemi sinnar. I þessum samn- ingi er samið um verð og við það miðað, að Alusuisse selji á cif/- Straumsvik-grundvelli og er upp- hafsverðið ákveðið 76 banda- rikjadollarar á tonn. Þetta verð á aðbreytast, hækka oglækka, eftir verðþróun áls. Verðið er miðað við að verð á áli sé 26.5 banda- rikjasent: pr. lbs. Ef álverð breyt- ist, upp eða niður, skal súráls- verðið hækka eða lækka um 2.50 bandarikjasent pr. tonn á móti eins bandarikjasents hækkun/- lækkun pr. lbs. á áli. Þessi samn- 61. Gera má ráð fyrir, að súr- álsverðið frá Alusuisse hafi á hverjum farmi verið i samræmi við ákvæði gildandi samninga á hverjum tima. Mér reiknast til að heildarinnflutningur súráls til lsals skiptist á þennan hátt milli upprunalanda: Ástralia 79,57% Surinam 15.57% Jamaica 4.12% Guinea 0.80% Ekki verður annaö séð en að fob-verðið skiii sér óbreytt til Is- lands i þessum viðskiptum þar til hækkun i hafi byrjar eftir 1973 á súrálinu frá Ástraliu. Talið hagstætt að sýna hagnað af ÍSAL 73 62. Samkvæmt súrálssamn- ingnum milli Alusuisse og Isals er söluverðið að sjálfsögðu ákveðið. Sú verðákvörðun gildir i mati á, hagkvæmni samninganna fyrir lsal, þvi að það verð á Isal að greiða. Hitt er svo allt annað mál, að Alusuisse hefur gefið Isal af- slátt án skyldu eða samninga gegnum tiðina á vörureiknmg - Óáþreifanleg uppáhaldsformúla „Hitt er svo allt annað mál, að Alusuisse hefur gefiö ISAL afslátt án skyldu eða samninga gegnum tiðina á vörureikningunum sjálfum en þó aðallega I lok ársins, þegar hráefnisverðið veldur svo miklu tapi, að jafnvel Alusuisse oflbýður að sýna það islenskum stjórnvöldum og bankastofnunum, sem ISAL er I viðskiptum viö”. og það væri, svo hægt væri að reikna út mismun, sem verðið hækkaöi um i hafi. Justice Murphy sagði, að af lagaástæðum væri opinberum aðilum óheimilt að gefa upplýsingar um viðskipti einstakra fyrirtækja i Ástraliu. Hins vegar sýndist honum við vera i þeirri aðstöðu að geta kraf- ist þess af Alusuisse að leggja þessi verð á borðið af skatta- ástæðum. U ppáhaldsf ormúla fjölþjóðahringa 51. Justice Murphy sagöi, að það væri uppáhaldsformúla fjöl- þjóðafyrirtækjanna að nota svo- kallað arm’s length price, þvi að sú verðviðmiðun væri svo óá- þreifanleg. Þau sjálf héldu mikilli leynd yfir samningum milli aðila innan sjálfra fyrirtækjanna og milli fjölþjóðafyrirtækjanna inn- byrðis og hvergi væri til áreiðan- leg skráning i heiminum yfir það sem telja mætti arm’s length price á súráli. Slik verðlagn- ingarregla væri þvi geysilegt matsatriði hverju sinni og mjög erfitt að slá föstu, hvað arm’s length price er, en þannig vildu fjölþjóðafyrirtækin hafa hlutina. Justice Murphy sagði að arm’s length price væri ekki kostnaðar- verðlagning, heldur markaðs- verðlagning á frjálsum markaði (milli óskyldra aðila). Gallinn væri bara sá, að þessi frjálsi markaður á súráli væri mjög tak- markaður, liklega 15—20% af heimsversluninni með súrál. Hægt að finna viðmiðun 52. Þrátt fyrir þetta, sagði Justice Murphy, er hægt að finna arm’s length price með þvi að hafa upp á súrálssamningum milli óskyldra aðila. En þið finnið ekki eitt verð heldur mörg. Þið getið haft upp á 2 langtimasamn- ingum um súrál sem gerðir eru á svipuðum tima milli óskyldra aðila. Grundvallarverðið er ekki það sama. og verðhækkunarfor- múlan er ekki eins, en þó eru þetta hvort tveggja arm’s length- samningar. Ekki stoðar að reikna út meðaltalsverð þessara samn- inga og segja að það sé arm’s length. Min ráðlegging er sú, að þið reynið að hafa upp á eins þar sem vörureikningurinn kom við hjá pappirsfyrirtæki i Hong Kong með þeim afleiðingum að báxitið hækkaði alliskyggilega i verði. Hann gaf mér dómsorðið og vitnaleiðslurnar og læt ég það fylgja hér með. Um milliliða- starfsemi Alusuisse hafði hann þetta að segja: Oheimil lögskýring Alusuisse 55. Justice Murphy taldi, að sala Gove Alumina Ltd. á súráli til Alusuisse væri sala milli óskyldra aðila i þeim skiiningi, að eignaraðilar fyrirtækjanna væru óskyldir. Þaðskipti ekki máli hér, þótt þeir séu i samvinnu við Austraswiss i Gove Joint Venture um rekstur báxitnámu og súráls- verksmiðju, þvi aö þessi tvö fyrirtæki eru rcikningslega og eignarréttarlega alveg óskyld. Gove Alumina Ltd. er alástralskt fyrirtæki, þar sem söluverð fram- leiðslu þess stendur undir reksturs- og fjármagnskostnaði og umtalsverður hagnaður er hér skattlagður skv. lögum. Honum fannst, að með þeim rökstuðn- ingi, að súrálið til lslands kemur allt frá Gove og Alusuisse hefur með aðalsamningnum lofað að borga skatta á Islandi þá gætum 57. Tvisvar ræddum við ýtar- lega saman um þær upplýsingar, sem ég bað hann að afla, og i þeim viðræðum kom greinrlega i ljós þekking hans á áliðnaði. Auk þess fann ég, að hann myndi eiga greiðan aðgang að stjórnvöldum og fyrirtækjum. Verkefnin, sem hann tók að sér voru tviþætt: a) Að fá uppgefin raunveruleg útflutningsverð frá Gove, ef kostur væri, fá reikninga Austra- swiss og Gove Alumina Ltd. og allar aðrar fáanlegar upplýs- ingar, er lúta að starfseminni i Gove og umsvifum Alusuisse i Astralíu. b) Að gefa okkur sitt álit á arm’s length prices á umræddu timabili, bæöi samkvæmt samn- ingum, sem hann kæmist yfir og samkvæmt hans eigin mati. Hann lofaði að senda okkur skýrslu i desember 1980. VIII. Súrálsvið- skipti ÍSALS 58. Nokkurrar ónákvæmni gætir i orðalagi hjá Coopers & Ly- brand, þegar þeir segja i skýrslu sinni 13. ágúst 1974 i tölúlið 33: „Svo sem fram kemur i grein 8 er súrálið keypt frá dótturfyrirtæki Alusuisse I Astraliu, en þaðan er það flutt til Straumsvikur”. ingur var gerður áður en súráls- framleiðslan hófst i Gove, enda fékk Isal súrálið frá Surinam, Jamaica og Guinea, þar til fram- leiðslan hófst i Gove og kom fyrsti farmurinn þaðan i jan. 1973 og hefur súrálið siðan að mestu leyti komið frá Gove. Hækkun í hafi byrjar 73 60. Samningurinn um súráls- kaupin frá 1969 gilti til 30. júni 1974 og tók þá viö annar samn- ingur milli Alusuisse og Isals um súrálskaup, en hann var undirrit- aður 30. sept. 1974. A lokadegi fyrri samningsins var söluverðið á súráli komið upp i 468.98 sviss- neska franka pr. tonn, en með nýja samningnum var verðið sett i 450 svissneska franka, samsvar- andi 177 bandarikjadollurum pr tonn og var þar um lækkun að ræða milli samninga. Verðið i nýja samningnum var lika breytilegt eftir verðþróun áls, en ný viðmiðun var tekin upp og svaraði verðið, 450 svissneskir frankar pr, tonn á súráli, til 2.67 svissneskra franka á kg af áli, og átti súrálsverðið að breytast i sama hlutfalli og álverðið. Ég veit ekki, hvort þessi samningur frá 1974 er enn i gildi. unum sjálfum en þó aðallega i lok ársins, þegar hráefnisverðið veldur svo miklu tapi, að jafnvel Alusuisse ofbýður að sýna þaö is- lenskum stjórnvöldum og banka- stofnunum, sem Isal er i við- skiptum. Þar sem þessar af- sláttartölur koma ekki beint fram i reikningum Isals þekki ég þær ekki á öllu þessu timabili, en þær þarf að sjálfsögðu að rannsaka. 63. Afslættir á súrálsverði, sem gefnir eru i árslok til að hagræöa endanlegum niðurstöðum fóru ekki fram hjá Coopers & Lybrand i skýrslu þeirra i mai 1974 vegna ársins 1973, en þar segja þeir i grein 44: ,,A árinu 1973, eins og 1972, gaf Alusuisse isal afslátt á verði súr- áls og forskauta. Upphæð af- sláttarins var ákveðin eftir árs- lok, þegar séð var, að án afsláttar inyndu reikningar isals sýna verulegan (substantial) reksturs- halla. Það var álitið eftirsóknar- vert (desirable) að sýna hagnað i reikningunum fyrir 1973, þvi að annars yrði það erfiðleikum bundiö fyrir isal að fá banka- fyrirgreiðslu og lán á eigin spýtur”. (Niðurstöður Inga R. 'Helga- sonar úr ferð sinni til Canberra og Lundúna veröa birtar I Sunnu- dagsblaði)

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.