Þjóðviljinn - 24.07.1981, Síða 10
10 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 24. júli 1981
S.Í.N.E.
Sumarþing SINE verður haldið i Félags-
stofnun stúdenta laugardaginn 25. júli kl.
14.00.
Fundarefni:
1. Skýrsla stjómar og
fulltrúa SINE i LÍN.
2. Stjórnarskipti
3. Fréttirúr deildum.
4. Kosning fulltrúa SINE i stjórn
LIN og sambandsstjórnÆSí.
5. Önnurmál.
Borgarspítalinn
LAUSSTAÐA
Staða læknafulltrúa á Háls- nef og eyrna-
deild spitalans er laus til umsóknar. Æski-
legt er að viðkomandi geti hafið störf nú
þegar.
Upplýsingar um starfið veitir Brynjólfur
Jónsson i sima 81200/368.
Umsóknir sendist sama aðila fyrir 30. júli
1981.
Reykjavik 23. júli 1981
Borgarspitalinn
Þjóðviljann vantar blaðbera^
Oss vantar blaðbera sem fyrst!
Grenimel — Reynimel (1. ágúst)
Granaskjól — Sörlaskjól (1. ágúst)
Efstasund — Skipasund (1. ágúst)
Unufell — Völvufell (1. ágúst)
UOBnUINN
SÍÐUMÚLA 6, SfMI 81333
PÓST- OG
SÍMAMÁLASTOFNUNiN
óskar að ráða Loftskeytamann/Simritara
til starfa i Neskaupsstað.
Nánari upplýsingar verða veittar hjá
starfsmannadeild og stöðvarstjóra i Nes-
kaupsstað.
ÚTBOÐ
Hafnarstjórn Eskifjarðar/Hafnamála-
stofnun rikisins, óska eftir tilboðum i að
steypa 1500 fm. þekju á Bæjarbryggjuna á
Eskifirði. Útboðsgögn eru til sýnis og af-
hendingar á bæjarskrifstofunni Eskifirði
frá og með 24. júli. útboðsgögn verða af-
hent gegn 500 kr. skilatryggingu. Tilboð-
um skal skilað á skrifstofu bæjarstjórans
á Eskifirði eigi siðar en 7. ágúst 1981 kl.
15.00. Verkinu skal ljúka fyrir 20. septem-
ber 1981.
23. júlí 1981
Hafnamálastofnun rikisins
Hafnarstjórn Eskifjarðar.
Nýjar bækur og tímarit
Búnaðar-
blaðið
Freyr
Tólfta tbl. Freys er nýkomið
út. Meðal efnis i blaðinu er:
„Hefðbundinn landbúnaður
og skógrækt”, ritstjórnargrein,
þar sem nefnt er að samband
hefðbundins landbúnaðar og
skógræktar hér á landi hafi ver-
ið of litið en að þessar greinar
landbúnaðar hafi ástæður til að
snúa bökum saman. ,,Við eigum
að auka afköst gróðurrikisins og
nýta þau”, viðtal við Sigurð
Blöndal, skógræktarstjóra og
Ólaf Dýrmundsson, landnýt-
ingarráðunaut, þar sem rætt er
um hversu hátta skuli eðlilegri
sambúð skógræktar og beitabú-
skapar. „Heynsla af rafmagns-
girðingum”, Jón Hólm Stefáns-
son, ráðunautur, ræðir við Ein-
ar Ólafsson á Lambeyrum og
Daða son hans um reynslu
þeirra af rafgirðingum. „Frá
fjárræktarbúinu á Hesti”, yfir-
litsgrein eftir dr. Halldór Páls-
son og Stefán Sch. Thorsteins-
son um rekstur búsins árið 1980.
„Öll ár eru ár trésins”, útdrátt-
ur úr skýrslu Snorra Sigurðs-
sonar, framkvæmdastj. Skóg-
ræktarfélags tslands um ár
trésins. „Brunavarnir i sveit-
um”, viðtal við Steingrim Sig-
urjónsson, eldvarnarráðunaut.
„Spár um grassprettu”, Páll
Bergþórsson, veðurfræðingur,
bendir á samhengi milli vetrar-
hita og grassprettu sumarið eft-
ir. „Góðar horfur i loðdýra-
rækt”, Július J. Danielsson ræð-
ir við Sigurjón J. Bláfeld, loð-
dýraræktarráðunaut. —mhg
Tvær frumraunir:
Enn bætist
við ljóða-
smiðatalið
Tveir höfundar hafa bæst við
óendanlegan skáldalista og
ljóðsmiða á íslandi. Það er.
Letur sem gefur út. Höfundarn-
ir heita Jón Páll og Sigurlaug
Guðmundsdóttir.
Þessar bækur tvær eru næsta
ólikar. Jón Pál nefnir bók sina
Glugginn. Hann skrifar i
„opnu” formi um fyrsta mái,
um sjálfsmorð góðborgarans,
um hjálparbeiðni kramins
hjarta, spyr um framfarir og
lifstilgang og þýðir The Hollow
Men eftir T.S. Eliot. Lokakvæði
Gluggans heitir A krossgötum,
þar segir m.a.:
ég stend á krossgötum
ungur maður
og þarf að velja.
að velja eina
er að útiloka
allar aðrar
hikandi tek ég mér
skóflu í hönd
og gref mig niður.
Bók Sigurlaugar heitir Jóla-
ljóð. Þar eru kvæði rammlega
bundin i hefð og i þeim endur-
ómur af þjóðskáldum og sálma-
skáldum. Sigurlaug yrkir trúar-
ljóð um páska og jól, ættjarðar-
kvæði, ártiðarkvæði um merka
menn, brýningarkvæöi til Is-
lendinga, ljóð um gengna
granna og um félög sem afmæli
eiga. Um islenskt mál segir svo
i samnefndu kvæði:
Það er hervörn vors lands
það er skylda hvers manns
að skýra og fága vorn
stálhreina hljóm
Gefum tslandi allt
þótt hér andi oft kalt
þá er unun að heyra
þess töfrandi róm.
MÍMIR ISI \i) 'M'III NI \
Þ 1 R 1 1)1 \l fip^fi?íi! 3
29
A að reka
málpólitík?
29. tbl. Mlmis
komið út
Út er komið 29. tölublaö
Mimis, blaðs stúdenta i islensk-
um fræðum við Háskóla Islands.
Að vanda er blaðið vettvangur
fyrir ritgerðir nemenda um
málfræði og bókmenntir.
Eirikur Rögnvaldsson kemst
að merkum niðurstöðum um
merkingu og hlutverk islenskra
aðaltenginga. Halldór Ármann
Sigurðsson skrifar grein þar
sem hann opnar nýjar leiðir i
rannsóknum á beygingarfræði
með þvi að beita á hana hugtök-
um sem hingað til hafa mest
verið notuð i hljóðfræði og hljóð-
kerfisfræði. Nokkrir valinkunn-
ir Islendingar svara spurning-
um Mimis um málvöndun og
sýnist sitt hverjum.
Atli V. Harðarson ber saman
hetjurnar Akkilles Peleifsson,
Bjólf og Sigurð Fáfnisbana og
dregur fram helstu sameigin-
legu einkenni þeirra og sér-
kenni. Gisli Sigurðsson nálgast
Flugur Jóns Thoroddsen á ný-
stárlegan hátt. Gisli Skúlason
athugar sannleiksgildi og bók-
menntagildi i Sögunni af Þuriði
formanni og Kambsránsmönn-
um eftir Brynjólf frá Minna-
Núpi. Sigurður S. Svavarsson
athugar Islendingaþætti sem
bókmenntagrein með hliðsjón af
sagnfestunni nýju. Siðan ber
hann niðurstöður sinar saman
við Auðunar þátt vestfirska.
Auk þessa er i blaðinu fróðlegt
viðtal við Snorra Hjartarson
skáld og ljóð og smásaga eftir
stúdenta. bar er einnig að finna
vandaðan ritdóm um bók Ey-
steins Þorvaldssonar um atóm-
skáldin.
Afgreiðsla Sögufélagsins,
Garðastræti 13b, hefur tekið
Mimi i umboðssölu. bar fást
einnig eldri tölublöð.
Æskan
Blaðinu hefur borist mai-júni
hefti Æskunnar. Meðal efnis I
blaðinu eru eftirtaldar greinar:
„Vatnaskógur — súmarbUöir
KFUM”. „Fwsetinn heimsækir
Danmörku”, eftir Friðbjörn
Agnarsson. Grein er um
tónskáldið Ludwig van Beet-
hoven. „Reykingar eöa heil-
brigði — þitt er valið”, ritgerð
úr ritgerðasamkeppni Krabba-
meinsfélagsins, eftir Oddnýju
Hildi S igu r þó r s d ó 11 u r.
„LeikhUsferð til New-York”,
eftir GuðrUnu G. Gunnarsdótt-
ur. „Æskuminning”, eftir Pál
Hallbjörnsson. „Vakað yfir
tUni”, eftir Margréti Jónsdótt-
ur. „Kennslustund I skák”.
„Rekstur Rauðakross íslands”,
eftir Björn borláksson. Auk
þess er í blaðinu aragrúi fróð-
leiks- og skemmtiþátta, sem
ætið áður.
— mhg
Eiðfaxi
Okkur hefur borist 6.-7. tbl.
Eiðfaxa, vel úr garði gert aí
vanda. Burðargreinarnar I rit-
inu eru að þessu sinni:
„Skyldur og réttindi” en þar
ræðir Árni bórðarson um sam-
starf sveitarfélaga, rikis og
hestamannafélaga, sem hann
telur að þurfi að „ræðast við af
lipurð og skilningi”. „Kveðja til
Rosmarie og framtiðarsýn”,
eftir Pétur Behrens. „Litil hug-
leiðing um Ættbók og sögu
Gunnars Bjarnasonar”, fyrri
hluti, eftir Guðmund Óla Ólafs-
son. „Sómafótur”, gæti verið
sönn dæmisaga, eftir Björn Sig-
urðsson. „Einn með sinnepi og
annar með tölti” segir Jón Sig-
urðsson i Skollagróf og fjallar
þar um hjálparmeðul þau „sem
notuð eru til að framkalla ýktan
fótaburð sýningarhrossa”. Sig-
urður O. Ragnarsson ritar
„Hugleiðing um gerð keppnis-
valla fyrir islensk hross”,
„Lastaranum likar ei neitt”,
Sturla bórðarson fjallar um bók
Sigurgeirs Magnússonar „Ég
berst á fáki fráum”. „Að finna
fjörtök stinn”, viðtal við Einar
Höskulssson, bónda á Mosfelli.
„Vinir islenska hestsins I
Kanada” nefnist viðtal Sigurðar
Ragnarssonar við Arnold Faber
og konu hans. Auk þess er i rit-
inu fjöldi frétta.
— mhg
Mjólkur-
mál
Fyrir skömmu kom Ot 2. tbl. 5.
árg. timaritsins „Mjólkurmál”,
sem gefið er út af Tæknifélagi
mjólkuriðnaðarins.
Efni ritsins er fjölbreytt að
vanda og er þar fjallað um
marga þættimjólkuriðnaðarins.
Grein er eftir norskan mann,
Jens Killengren um starfsdvöl á
tslandi árið 1935. bað ár hafði
Jens verið samlagsstjóri hjá
Mjólkursamlagi SkagfirSnga.
Birtist grein þessi i norsku
tlmariti árið 1936. bá skrifar
bórarinn E. Sveinsson, fram-
leiðslustjóri hjá Mjólkur-
samlagi KEA, um skipulag
framleiðslunnar. Eftir rit-
stórann, Sævar Magnússon, er
grein, sem hann nefnir „Vin-
andi Ur ostamysu”. Fjölda
margar styttri greinar eru i rit-
inu.
— mhf
Samvinnan
t þvi hefti Samvinnunnar,
sem okkur hefur síðast borist er
m.a. eftirtalið efni:
Forystugreinin „Hver er
munurinn á samvinnurekstri og
einkarekstri? „Staða sam-
vinnuhreyfingarinnar nú á dög-
um er sterk”, viðtal við Gunnar
Sveinsson, kaupf.stj. i Keflavik.
„Verður hann siðasta stórskáld-
ið, sem skrifar á jiddisku?” eft-
ir Hjört Pálsson. „Búálfurinn”,
frásögn eftir Isaac B. Singer i
þýðingu Hjartar Pálssonar.
„Umræða um stefnuskrá sam-
vinnuhreyfingarinnar” og taka
þátt i henni þau Matthias Pét-
ursson, Hvolsvelli, Finnbogi
Hermannsson, Núpi, Magnús
Finnbogason, Lágafelli, Bjarni
Helgason, Hvolsvelli, Hjörtur
E. bórarinsson, Tjörn, Jón
Kristjánsson, Egilsstöð-
um, Eysteinn Sigurðsson,
Reykjavik, og Ágústa borkels-
dóttir, Refstað. „Kaupfélag
Svalbarðseyrar framleiðir
franskar kartöflur”. „Litlu búð-
irnar mega ekki hverfa”, Sig-
riður Haraldsdóttir skrifar um
neytendamál. „Herbergi með
útsýni, smásaga eftir Hal
Dresner i þýðingu borleifs bórs
Jónssonar, myndskreytt af
Arna Elfar. „Alyktun stjórnar
Kaupfél. Rangæinga á svæða-
fundi Suðurlands”. „Fiskkassar
framleiddir hjá Plastiðjunni á
Akureyri”. „begar tölvutæknin
skapar vandamál hjá fyrirtækj-
um”, þýdd grein. „Landneminn
i Látravík”, frásögn eftir Jó-
hann Hjaltason. bá eru i ritinu
ljóð eftir Sigurð Anton Frið-
þjófsson og Gunnar Straum- .
land. —mhg