Þjóðviljinn - 16.09.1981, Blaðsíða 3
Fjölbrautaskólinn á Selfossi
Miövikudagur 16. september 1981 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3
270 nemendur
á 8 brautum
F jölbrautaskólinn á
Selfossi var settur í fyrsta
sinn sunnudaginn 13. sept. i
iþróttahúsinu á Selfossi aö
viðstöddu miklu f jölmenni,
stóru og smáu. Athöfnin
hófst með því að Hjörtur
Þórarinsson, formaður
skólanefndar fjölbrautar-
skólans bauð fulltrúa
menntamálaráðherra,
Arna Gunnarsson, deildar-
stjóra, og síðan aðra gesti
setningarathaf narinnar,
velkomna. Rakti Hjörtur í
örstuttu máli sögu mennta-
mála á Selfossi.
Næstur tók til máls Arni Gunn-
arsson, sem afsakaöi fjarveru
menntamálaráðherra, og bað
menn að minnast þess að fjöl-
brautarskólinn byggði á starfi
Iðnskólans á Selfossi, sem nú
hættir starfsemi sem sjálfstæð
stofnun. Fræðslustjóri Suður-
lands, Jón R. Hjálmarsson.rakti í
fáum oröum sögu biskupsstóla-
skólanna. Kristinn Kristmunds-
son, skólameistari á Laugar-
vatni, minnti á hve menntamála-
ráðuneytið hefði tafið stofnun
fjölbrautaskóla á Suðurlandi.
Jafnframt tók Kristinn fram að
F.S. mundi engin áhrif hafa á
áframhald starfsemi skólanna aö
Laugarvatni. Loks færði hann
kveðjur og árnaðaróskir skóla-
meistara hinna framhaldsskól-
anna, sem margir hverjir voru
viðstaddir þessa fyrstu setningu
F.S. Hafsteinn Þorvaldsson mælti
fyrir munn bæjarstjórnar Selfoss.
Rut Magnússon, Friðbjörn G.
Jónsson, Halldór Vilhelmsson og
Elin Sigurvinsdóttir sungu dúetta
og 'einsöngslög við undirleik
Jónasar Ingimundarsonar.
Loks mælti skólameistari,
Heimir Pálsson, nokkur orð.
Gat hann þess að húsnæði
skólans væri nokkuð dreift um
Selfoss og væri hlaupabrautar-
skóliþvi etv. fullt eins mikið rétt-
nefni á stofnuninni og fjölbraut-
arskóli. Þá minnti hann á aö ýms-
ir starfsmenn skólans heföu lagt
nótt við dag svo skólastarfið
mætti hefjast á sunnudegi
(reyndar þann 13.) fremur en
mánudegi. Þá gerði hann grein
fyrir mismuninum á áfangakerfi
og bekkjakerfi og taldi ekki ólik-
legt að safnfræðingar siðari tima
teldu þessa breytingu mestu bylt-
ingu i skólastarfi á 20. öld.
Um 270 nemendur stunda nám
á 8 brautum á þessari fyrstu
starfsönn skólans en yfir 80
manns eru að auki innritaðir i
öldungadeildina sem nú flyst úr
Hveragerði þar sem hún starfaði
sl. 11/2 ár. 30 kennarar verða viö
skólann, ef allir eru taldir.
I lok ræðu sinnar sagði Heimir:
„Skilyrði menntamálaráðuneyt-
isins fyrir lágmarksfjölda nem-
enda i hverjum námshópi i
öldungadeild veldur þvi að nær
ómögulegt er að halda uppi
kennslu i þeim nema i Rvik og
etv. á Akureyri. Kannski er þetta
rétt mat á menntunarþörf fullorö-
ins fólks....”. Þá brostu margir.
Að setningu lokinni voru nem-
endum afhentar stundaskrár og
bókalistar og jafnframt gert aö
greiða innritunargjöld. Kennsla
hófst svo mánud. 14. sept.
— ingis.
Margs konar breytingar í vændum
Fjalakötturinn
í vetrarham
F ja lakötturinn, kvik-
myndaklúbbur framhalds-
skólanna hefur starfsemi
sína um næstu helgi. Að
þessu sinni verður skipulag
sýninga og aðild félaga að
klúbbnum með nokkuð öðr-
um hætti en verið hefur og
er hér um tilraun að ræða
af hálfu þeirra sem sjá um
starfið.
Vetrinum veröur skipt niöur i
nokkur timabil þar sem boöið
verður upp á ákveðna dagskrá.
Fyrsta dagskráin hefst á sunnu-
daginn 20. sept. og lýkur 27. sept.
Þá viku verða sýndar fimm
myndir og er fyrsta fræga að telja
Tintrommuna eftir Þjóðverjann
Volker Schlöndorf, sem byggð er
á samnefndri sögu Gunter Grass.
(Það er óhætt aö ráðleggja öllum
að sjá þessa frábæru mynd). Sýnt
verður i Tjarnarbiói og veröur
gefin úr skrá fyrir hverja dag-
skrá, þannig að hægt er að fylgj-
ast með þvi hvaöa daga myndirn-
ar veröa sýndar.
jVoívoi
ilækkari
I* Gengi sænsku krónunnar J
var fellt um 10% fyrir nokkr- I
um dögum. Meðal afleiöinga I
sem gætir hér á landi er að I
Volvo bílar lækka um 7% i J
verði. Sem dæmi má nefna
að Volvo 244DL lækkar úr I
133.508 kr. i 124.569. I
Af þvi efni sem verður á dag-
skrá i vetur má nefna finnska
viku i janúar, þar sem á boðstóln-
um verða nýjar finnskar myndir.
Lesendum til fróðleiks má geta
þess að það er ekki aðeins i leik-
húsunum sem Finnar þykja skara
fram úr þessa stundina, þeir hafa
lagt kvikmyndirnar undir sig lika
og framleiöa nú hvert meistara-
stykkið á fætur öðru, þótt þess
sjáist ekki merki i kvikmynda-
húsum hér á landi.
Baráttudagskrá verður i októ-
ber, þar sem sýndar verða mynd-
ir frá Noröur-lrlandi, myndir
gegn kynþáttahatri, myndir um
kvennabaráttu, Suður-Afriku,
verkalýðsbaráttu o.fl.
Akveöinn leikstjóri verður
kynntur þegar liða tekur á vetur,
en ekki hefur verið gengið frá þvi
hver það veröur.
Þá telst til nýmæla að klúbbur-
inn mun starfa fram á sumariö,
allt til 11. júli.
Sala aögangskorta veröur með
þeim hætti að félagar geta valiö
um skirteini fyrir allt timabilið
sem kostar nú 250 kr. Einnig er
hægt að gerast félagi i klúbbnum
með þvi aö greiöa 50 kr. og kaupa
sér siðan miða á hverja dagskrá
fyrir sig. Þetta gerir þeim sem
ekki hafa áhuga á einhverjum
hluta dagskrárinnar kleift aö
sleppa úr og sjá það sem hugur-
inn girnist. Verð á fyrstu dag-
skrána er 30 kr. eða 6 kr á hverja
mynd!
Við innganginn er hægt að nálg-
ast dagskrána sem að þessu sinni
er i formi plakats, auk þess sem
hver dagskrá fyrir sig veröur
rækilega kynnt. Lesendum Þjóö-
viljans er bent á kvikmyndasið-
una á sunnudag, sem væntanlega
mun greina nánar frá myndun-
um, sem veröa á hvita tjaldinu i
næstu viku. __^á
Fjölmargir gestir voru viðstaddir setningu Fjölbrautaskólans. Ljósm. — ingis.
Stórsíld hjá
N orðmönnum
Veiðar á þvi takmarkaða
magni sem norska stjórnin leyfði
að veitt væri I ár úr norska vor-
gotssildarstofninum standa nú
yfir. Veiðar með snurpunót hófusl
þann 13. september sl., en nokkru
áður höfðu veiðar með lagnetum
og iandnót byrjað.
Taliö er að talsvert mikið magn
sé nú af vorgotssild við Norö-
mæri. Sfldin sem veiðst hefur er
talin sérstaklega gott hráefni með
23% fitu. Yfir 70% af sildinni er
það stór að ekki fara nema 3
sildar i hvert kiló.
Lágmarksverðhefur veri sett á
nýja vorgotssíld og er það eftir-
farandi samkvæmt frétt sem birt-
ist i Fiskaren þann 8. september
sl. Verðið er miðað við hektólitra,
sléttfult 100 litra mál. Fyrir
stærsta stæröarflokk ekki yfir 3
sildar i kg. n.kr. 300,- isl. kr. sam-
kvæmt kaupgengi 433.83. Fyrir
annan stærðarflokk n.kr. 240.00,
isl. kr. 347.06.
Fyrir 3. stærðarflokk n.kr.
200.00, isl. kr. 253.07. Fiskaren
segir, að kaupendur haldi sig við
lágmarksverðið og bjóði ekki
hærra. —J:J:E.Kúld.
á vellinum í kvöld!
„Nú fjölmennum við á völlinn í kvöld og hvetjum Fram til
sigurs gegn Dundalk. Og auðvitað erum við Goða-kokkarnir
ekki bara á búningunum hjá Fram í svona stórleikjum - við
mætum á völlinn og bjóðum áhorfendum að smakkgi á góm-
sætum Goða-vörum. Sjáumst í kvöld - áfram með okkar menn
í Evrópukeppninni!”
Ðl