Þjóðviljinn - 28.11.1981, Blaðsíða 2
SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 28.— 29. nóvember 1981.
Eitt land
á siöustu árum, án þess þó aö
greina á milli matvæla og inn-
anlandsneyslu og til útflutnings.
Siöasta ár var landsmönnum
hagstætt og þá náöist metuþþ-
skera, 23 milljónir tonna, þar af
12.4 milljónir tonna af mais. En
þrátt fyrir metuppskeru þurfti
Mexikó aö flytja inn 10 milljónir
tonna af kornvöru.
Matvælaframleiðslan
og
næringarskorturinn
Forsetinn sleppti alveg aö vitna
i opinberar skýrslur nýjar sem
áætla aö 45% af matvælafram-
leiöslu þjóöarinnar til innan-
landsneyslu eyöileggist i geymslu
eöa flutningi og komist ekki til
neytenda. Valda þessu léleg
geymsl.uskilyröi uti i sveitum og
i borgunum, ófuilnægjandi flutn-
ingaþjónusta svo og einokunaraö-
staöa stórframleiöenda, sem ger-
ir mörgum smábóndanum ókleift
aö selja sina vöru. Forsetinn gat
þess heldur ekki aö þrátt fyrir
góöæri og snjalla stjórn þjást
35—40 milljónir landsmanna af
einhvers konar næringarskorti og
er það riflega helmingur þjóöar-
innar.
t ræöu sinni geröist López
Portillo svo djarfur aö hæla sér af
þvi aö lágmarkslaun heföu hækk-
aö um 30.9% á síöasta ári. A sama
tima birtast opinberar skýrslur
semsegja aö kaupmáttur launa sé
vföast minni nú en áriö 1976. A rff-
lega 40 launasvæöum landsins
hafi kaupmáttarrýrnun numiö
10—20% frá 1976 og aöeins á 15
svæöum hafi tekist aö viöhalda
almennum kaupmætti ellegar
bæta hann ofurlitið. Aörar heim-
ildir geta þess aö kaupmáttur
verkamannalauna hafi minnkað
um 22% á árunum 1977—81.
Þriöja heimildin getur þess vegna
meöan visitala lágmarkslauna
hafi hækkaö úr 100 áriö 1977 i 193 i
ár þá hafi visitala verölags hækk-
aö á sama tima úr 100 i 284. t
þessari heimild er áætlaö aö
kaupmáttur lágmarkslauna nú sé
viöa einungis 50% af kaupmætti i
ársbyrjun 1977.
Undir
lágmarkslaunum
Ekki minntist forsetinn heidur
á aö viöa i landinu m.a. hér i
borginni, eru stórir hópar verka-
lýös sem hafa laun langt undir
lögákveönum lágmarkslaunum.
Lágmarkslaun eru ákveöin á
hverju launasvæöi fyrir sig, og
ska'. þar tekiö miö af framfærslu-
kostnaöi. Lágmarkslaun eru þvi
hærri i stórborgum en i dreifbýli.
Hér i Mexikóborg eru lágmarks-
laun 1400 pesos á viku, eöa 5600 á
mánuöi. Þetta jafngildir um 170
þús. krónum gömlum á mánuöi.
Bandariskur verkfræöingur sem
hér starfar viö aö byggja ibúöa-
blokkir tjáöi okkur fyrir all-
nokkru aö verkamenn hjá honum
væru ráönir fyrir 1100 pesos á
viku (ca. 33. þús. gkr.), og væri
vinnudagurinn 10-11 stundir á dag
og 6—8 á laugardögum, eöa um
56—63 stundir á viku. Taldi hann
þetta algeng laun i byggingar-
vinnu hér I borg. Af launum þess-
um er siðan klipiö i félagsgjöld til
verkalýössambandsins, sem er
einn hluti PRI-flokksins og styöur
forsetann i einu og öllu. Mótmæli
verkamaðurinn og heimti lág-
markslaun er honum sparkaö á
svipstundu og nýr maöur ráöinn
fimm minútum siöar.
Launakjör sem þessi fylla
mann hryllingi, ekki sist aö sjá
verkamenn rogast meö þungar
steypufötur á öxlunum eftir mjó-
um plönkum upp 3—4 hæöir og fá I
laun 33 þús. krónur fyrir 60 tima
af sllkri vinnu. Eins og viö má bú-
ast er slysatiöni mjög há i bygg-
ingarvinnu en tryggingar hins
vegar litlar eöa engar fyrir
verkamanninn.
Kaupmáttur launa
Til aö skýra ögn kaupmátt
Efnahagsstjórn López Portillo. Hvernig veröur 6. áriö?
Miguel de la Madrid Hurtado,
frambjóðandi PRI og næsti for-
seti Mexikó.
Kjöt (nauta-og svinakjöt). ..100-250 pesos kg. Kóka kóla . 6 pesos lt.
Kjúklingar .70-120 pesos kg. Mjólk . 12-14 pesos lt.
Fiskur .80-300 pesós kg. Sígarettur . 4-18 pesos pk.
Egg .29.50 pesos kg. Bjór . 25 pesos lt.
Heilhveitibrauð (650 gr.) .. . 18.60 pesús st. Pulque . 7 pesos lt.
Matarolia .34 pesos lt. Tequila . 90-400 pesos it.
Borösmjörliki .78 pesos kg. Bensin (meöblýi) . 2.80 pesos lt.
Hveiti .7 pesos kg. Bensin (ánblýs) ••• . 7 pesos lt.
Sykur . 13 pesos kg. Skór . 400-1500 pesos par
Kartöfiur .40-60 pesos kg. Skýrta . 150-400 pesos st.
Kaffi .90-120 pesos kg. Buxur . 200-800 pesos st.
Tortilias .5.50 pesos kg. Bfll (mexikanskur Volkswagen). . 250 þús. pesos st.
launa mætti tina til verölag á
ýmsum vörum eins og þaö er nú
hér I borg:
Samgöngur innanborgar og I
rútum eru frekar ódýranmeö raf-
magnsstrætó kostar fariö 0.6 pes-
os, meö neöanjaröarlest 1 peso,
meö strætó 3 pesos. Opinber
rekstur er á þeim fyrrnefndu en
einkarekstur á strætó.
Veröá grænmeti og ávöxtum er
afar breytilegt og fer eftir árstlö-
um og framboöi. Verölag á flestri
vöru breytist reyndar dag frá
degi, oft er um tilboösverö aö
ræða og þá er unnt aö gera betri
kaup. Rafmagn og simi eru dýr,
en gas tiltölulega ódýrt. Húsa-
leiga er afar breytileg eftir staö
og gæöum.
Af lista þessum má sjá aö
margt af þeirri vöru sem viö telj-
um sjálfsagöa neysluvöru er ekki
á færi fátækrar alþýöu hér I
landi. Fóöur lágstéttanna veröur
þvi tortillas, baunir og chile svo
sem veriö hefur um langa tlö.
Einhæft fæöi af þessu tagi leiöir
siöan til næringarskorts þar sem
á vantar hitaeiningar, eggja-
hvituefni, málmsölt og vitamin.
Ástandið verst
í sveitunum
I nýrri skýrslu frá opinberri
Frambjóöandinn opinberaöur
þjóöinni.
rannsóknarstofnun hér á landi
(INN) segir aö a.m.k. 35 milljónir
landsmanna fái ekki fullnægjandi
næringu. Astandiö sé verst I
sveitunum, þar sem fólk neyti
fæöu úr dýrarikinu (kjöts, fisks,
eggja og mjólkur) einungis 10—20
sinnum á ári. Alitiö sé aö 30%
þjóöarinnar neyti nánast ein-
göngu mais (tortilla), bauna, og
litilsháttar af heimaframleiddu
grænmeti svo og áVaxta I litlum
mæli. Sveitaalþýöan fái jafnvel
minna en helming hitaeininga-
þarfar á hverjum degi. 1 skýrsl-
unni segir aö öreigalýöurinn i
þéttbýli hafi aö visu örlitiö fjöl-
breyttara fæöi, sem einkum komi
þó fram i fleiri hitaeiningum
frekar en aukinni neyslu eggja-
hvituefna og vitamina. Ein afleiö-
ing þessa er svo heilsuleysi og
kviilar af þeirri gerö er viö
þekkjum vart heima. Dánartiöni
smábarna er hærri hér I Mexikó
en flestum rikjum álfunnar.
Kjör alþýöunnar I landinu
koma fram I fleiru en vannær-
ingu. Börn eru tekin úr skóla til aö
hjálpa til viö matar- eöa tekjuöfl-
un heimilanna. I margnefndri
skýrslu sinni gat forsetinn þess aö
einungis 43% barna lykju skyldu-
námi á 6 árum. Er algengt aö
börn hætti námi eftir eitt til þrjú
ár i skóla; sum setjast aftur á
skólabekk siöar, önnur aldrei.
Fjöldi barna sest aldrei i skóla, og
þau lágstéttarbörn sem öölast
lengri skólagöngu en 6 ára barna-
fræöslu eru vissulega afar fá.
Hlutskipti alþýöu er nokkuö
misjafnt eftir landshlutum og
fylkjum og sennilega verst i
Oaxaca og Guerrero. Væri ekki úr'
vegi aö bregöa upp mynd af lifi
fólks óg kjörum i þessum tveimur
fylkjum. t nýlegri bók eru tindar
saman tölur úr opinberum skýrsl-
um um hlut sveitafólks i Oaxaca.
Þar segir m.a. aö 2% ibúanna eigi
70% landsins;70 ibúanna hafi árs-
tekjur innan viö 1800 pesos (54
þús. krónur gamlar). (Þess má
geta til samanburöar aö frétta-
stjóri einn hjá rikissjónvarpinu,
„Canal 13”, haföi I laun 279 þús.
pesos á mánuöi áöur en hann var
rekinn úr starfi á dögunum, Laun
þessa manns jafngiltu þannig
launum 1860 landbúnaðarverka-
manna i Oaxaca). Siöan segir i
bókinni fyrrgreindu að 30%
vinnufærs fólks i Oaxaca sé at-
vinnulaust, meöaldaglaun land-
búnaöarverkamanns séu 6 pesos-
ar fyrir 10—12 stunda vinnu eöa
um 50—60 centavos á timann
(15—18 krónur). 75% kvenna er
afla tekna starfa sem vinnukonur
i borgum og bæjum og hafa auk
fæöis og húsnæöis innan viö 600
pesos á ári (18 þús. krónur gaml-
ar) fyrir 12 stunda vinnu á
dag.80% hinnar indidnsku alþýöu
i Oaxaca fara algerlega á mis
viö hvers kyns opinbera
þjónustu. Fjórir af hverjum
fimm eru ólæsir og aðeins 5.
hver nemandi lýkur barnafræösl-
unni. Tiöni barnadauöa er hæst I
Oaxaca og Guerrero og tiöni
„glæpa” einnig. Allur þorri lækna
er i borgum og bæjum, og i sveit-
um þessara fylkja er einn læknir
fyrir hverja 8-9000 ibúa. Flestir
Ibúanna þjást af alvarlegum nær-
ingarskorti. Fólkiö skrimtir á þvi
einu aö nytja smábletti og rækta
ofurlitiö upp i sig.
Arðrán og
kúgun
1 siöasta mánuöi var blaöamaö-
ur einn á ferö i Oaxaca og kom þá
I 5000 manna fjallaþorp. Stórat-
buröur haföi þá oröiö i þorpinu.
Ein af 15 kúm þorpsbúa hafði
horfiö. Kýrin fannst sjálfdauö
þremur dögum seinna. Þótt fariö
væri aö slá i kúna var hún engu aö
siður skorin, sumt af kjötinu þeg-
ar étiö en stærstur hlutinn skorinn
i þunnar fleður, sem voru saltaö-
ar og hengdar upp til þurrkunar.
Kjötiö átti að geyma til næstu há-
tiöar.
Annars er kjöt aldrei étið i þorp-
inu, skepnurnar eru eini tekju-
stofninn til aö afla nauösynja úti-
frá, hvort heldur eru föt, sigarett-
ur, brennivin eöa korn. 1 þessu
þorpi er matseöill dagsins tortill-
ur og salt, en baunir aö auki
tvisvar i viku. 70 ibuanna þjást af
vöidum húömaura og nálega allir
eru lúsugir.
Allt þetta alþýöufólk býr viö
stööuga kúgun og arörán, kúgun
sem allir vita um og sifellt er
rædd, en ekkert er gert til til aö
laga. Fyrir hálfum mánuöi var i
blööum fjallaö um dómsmál, og
framkvæmd refsingar i þorpi
einu syöst i Guerrero-fylki. Þar
fengu tveir bræöur nýlega 6 mán-
aöa dóm, ákæröir fyrir aö stela
tveimur hænum til aö f jölskyldan
fengi eitthvaö að éta þann daginn.
Bræöurnir sögðust reyndar efast
um aö þeim yröi sleppt aö dómi
fullnægöum. Þvi má svo bæta viö
aö fjölskylda þeirra veröur aö
færa þeim mat i fangelsiö; aö öör-
um kosti fá þeir ekkert.
I sama tugthúsi sátu niu bænd-
ur, ákæröir fyrir aö stela naut-
peningi. Þeir vissu ekki hvenær
þeir yröu dæmdir eða hversu
langan tima dóm þeir fengju, en
þeir bjuggust viö hinu versta.
Dæmi sem þessi af lifi fólks og
kjörum, kúgun og aröráni, væri
hægtaö tina endalaust. Engin eru
þau leyndarmál, ástandiö blasir
viö hverjum sem sjá vill. Vissu-
lega eru vandamál sem þessi ekki
auöleysanleg, þó ekki svo torveld,
aö eigi megi þau milda eöa leysa
meö mikilli vinnu á löngum tima.
Þaö skortir ekki fé I þessu landi.
En þaö skortir viljann og þvi er
ekkert gert. Úrbætur i málefnum
alþýöunnar, — þó ekki væri nema
aö skera brott ljótasta viðbjóöinn
— mundu vafalaust þýöa röskun I
samfélaginu. Slikt mundi raska
þvi valdkerfi sem hér rikir i
hverju þorpi, i hverju héraöi,
hverju fylki. Alþýöan kynni aö
vakna til vitundar um orsakir og
eöli eigin vesaldóms, og eins og
allir vita er vakandi alþýöa stór-
hættuleg. Orö um umbætur eru
þvi látin nægja, fögur orö, há-
stemmdar ræöur, koma þvi i staö
hættulegra aögeröa.
Forsetinn
valinn
Og veröur nú staöar numiö meö
stærstu frétt siöustu vikna. Þaö
gerist sjötta hvert ár hér, 7—9
mánuðum fyrir forsetakosningar,
aö PRI-flokkurinn velur sér
frambjóöanda til forseta og þá aö
sjálfsögöu næsta rikjandi forséta.
Atburöur þessi gengur undir
nafninu „destape” (aftöppun, af-
hjúpun) og kandidatinn er
„aftappaöur” (destapado), þaö
er aö segja tappinn er tekinn úr
flöskunni (og púkanum hleypt
út'.m.
Enginn viröist vita hvernig
„destape” gengur fyrir sig og er
þaö mikiö rætt vikurnar á undan
og eftir hver eöa hverjir þaö eru
sem ákvöröun taka. Vist má þó
telja aö rikjandi forseti ráði hér
miklu, en endanlega er þaö
flokkurinn sjálfur sem birtir
ákvöröunina.
Eftir valiö á frambjóöandanum
feilur forsetaskinnið nokkuö I
skuggann, en væntanlegur forseti
kemst þvi meir I sviösljósiö, fær
sterkan lifvörö og stööugar heim-
sóknir þeirra er áframhaldandi
náöar þurfa að njóta. Er afar
broslegt að lesa um alla þá er
heimsækja forsetaefniö og ausa
þaö lofi I von um væna bitlinga og
hliöhollt rikisvald næstu 6 árin.
Eru þar fylkisstjóranir fremstir i
flokki i von um annaö fylki á
næsta kjörtimabili. Forvigis-
menn atvinnurekenda fylgja fast
á eftir. Kosningarnar sjálfar eru
siöan skripaleikur einber, öllum
er ljóst að frambjóðandi PRI fær
þorra atkvæöa.
Fyrir valinu aö þess sinni varö
Miguel de la Madrid Hurtado,
ráöherra fjárlaga og hagsýslu.
Þetta er myndarlegur maður af
góöri ætt, tæplega fimmtugur aö
aldri, lögfræöingur aö mennt meö
viöbótarmenntum I stjórnsýslu
frá Bandarikjunum. Frami de la
Madrid héfur verið einkar skjótur
þvi eigi hefur hann veriö ráöherra
nema riflega tvö ár. De la Madrid
þykir skarpur og duglegur. Hann
á konu og fimm myndarleg
börn.
De la Madrid er sagöur til hægri
viö miöju i flokknum og boöar þaö
gott fyrir þá sem þegar hafa þaö
gott en illt fyrir hina. Hann hefur
lengi verið helsti efnahagsráð-
gjafi forsetans og er höfundur
Þróunaráætlunar þeirrar („Plan
Global de Desarrollo”) frá fyrra
ári sem öllu á að „redda” i land-
inu.
Ljóst er aö de la Madrids biöur
mikili vandi. Veröbólga er mikil
og efnahagshorfur ekki vænlegar.
Kæmi þvi eigi á óvart þótt jafn-
vægi það sem haldist hefur þrátt
fyrir allt kynni að bresta illilega,
ekki sist ef fram verður haldiö á
svipaöri braut og siöustu fimm
árin.
1 fyrsta blaöaviðtalinu eftir
„aftöppunina” geröi forsetaefniö
aö sinum þau orö núverandi for-
seta fyrir sex árum aö hann stæði
alfariö meö öreigalýð landsins i
baráttunni fyrir bættu samfél-
agi!! Sjálfsagt kosningabragö i
þessu landi lýöskrums og orö-
mergðar, en efndanna veröur aö
biöa enn um sinn.
6. okt. 81
Jóna og Siguröur