Þjóðviljinn - 28.11.1981, Qupperneq 12

Þjóðviljinn - 28.11.1981, Qupperneq 12
 sama Hvaö glingar lesa ekk er u og BuKOLLA 1 NÓ11 Hringur Jóhannesson myndskreytti Verðlaunabækur Gunillu Bergström EINAR ÁSKELL Nú eru komnar út þrjár nýjar bœkur í þýðingu Sigrúnar Ámadóttur um þennan skemmtilega strák sem býr einn með pabba sínum. Hver bjargar Einari Áskeli Einar Áskell er nýíluttur í nýtt hveríi. Hann er einmana. þekkir engan og leikur sér ekki við neinn. Nema Manga. leynilegan vin sinn. En þegar stóm strákarnir œtla að hrekkja mann er lítið gagn í vini sem enginn sér. Þessi saga segir írá því þegar EinarÁskell eignaðist raunverulegan vin. Einar Áskell og ófreskjan Það er laugardagskvöld og Einar Áskell getur ekki sotnað. Hann getur ekki hœtt að hugsa um að hann heíur barið strák sem er minni en hann sjáliur. Á morgun œtlar hann að íinna þennan smápolla og geía honum gula leikíanga- bílinn sinn. Nœsta dag leitar Einar að litla stráknum, en hann er horfinn! Hann íinnst hvergi nokkurs staðar. Ertu skræfa Einar Áskell Einar Áskell vill ekki fljúgast á. Þegar krakkarnir em að slást úti á götu íer hann bara burtu. Krakkarnir halda að hann sé hálígerð skrœfa. Þessi saga segir frá þvi þegar þrír nýir ólátabelgir byrjuðu í leikskólanum og réðust á EinarÁskel. Viktor Rydberg JÓLIN HANS VÖGGS LITLA Hið sígilda aavmtýri sœnska skáldsins Viktors Rydberg um Vögg litla. lítinn. fátœk- an munaðarleysingja sem gamli Jólaskröggur tók með sér í jólaferðina á sleðanum sínum á alla bœina í sveit- inni og um það sem þar bar fyrir augu. Með gullf allegum mynd- skreytingum Haralds Wiberg. Ágúst H. Bjarnason þýddi. Inger Brattström HANDAN VIÐ HRAÐBRAUTINA Jónas er sextán ára og hefur fengið vinnu á barnaheimili í stuttan tíma. Hann er að undirbúa helgarferð með íélögum sínum. Ai henni verður þó ekki, þvi enginn kemur til að sœkja Sólong litlu, fjögurra ára þeldökka stúlku. Hið fyrirhugaða ferðalag verður annars konar ferð, kynnisíerð út í heim sem byrjar í nœsta nágrenni en er þó undar- lega ólíkur öllu sem Jónas hefur áður kynnst. Fram- undan em þrír sólarhringar, fullir aí áhyggjum, spennu. kvíða og hrœðslu - og þegar þeir eru liðnir er Jónas ekki lengur sá sami. Þýðandi Þuríður Baxter. Þessi bók var lesin í Ríkis- útvarpi fyrir þremur árum undir nafninu Ferð út í veruleikann. Valdís Óskarsdóttir FÝLUPOKARNIR Hefur þú nokkuð komið í Séstvallagötu? Ekki það nei. Þetta er lika ósköp íyrirterðarlítil gata. Hún sést varla, og við erum of stór til að komast þangað inn. Altur á móti eiga fýlupokamir sem eiga heima við Sést- vallagötu mjög auðvelt með að koma sér fyrir hjá þér og mér og okkur öllum. Ertu ekki viss um það? Horfðu þá á fólklð í kringum þig. Ný og endurskoðuð útgáf a einnar vmsœlustu bama- bókar síðari ára. Myndir eftir höfundinn. Astrid Lindgren MADDITT OG BETA Þetta er sjálístœtt framhald sögunnar Madditt sem kom út í íyrra. Ný bók um stelpuna Madditt sem dettur svo margt skemmtilegt í hug og um litlu systur hennar Betu sem leikur allt eftir henni. „Þú ert alveg kiikkuð Madditt," segir Beta. Samt fylgir hún systur sinni gegnum þykkt og þunnt, það gildir einu hvaða fífldirfsku Madditt finnur uppá. Bœkurnar um Madditt eru á leiðinni að verða álíka vinsœlar og bœkurnar um Emil í Kattholti. Nýbúið er að gera eftir þeim skemmtilega framhalds- þœtti fyrir sjónvarp. Myndír eftir Ilon Wikland. Sígrún Árnadóttir þýddi. Astrid Lindgren RONJA RÆNINGJADÓTTIR Ævintýraleg og skemmtileg saga frá rœningjatímunum um Ronju. dóttur Matthíasar rœningjaíoringja og Birki, son erklóvinar hans sem strjúka að heiman út í skóginn. Þar liía þau ótrú- legu og viðburðaríku land- nemalífi þangað til þau geta snúið heim aftur og bundið endi á œvaíomar illdeilur þessara tveggja rœningjaœtta. En slflct gerist ekki átakalaust. Þessi bók er nýkomin út í heimalandi höfundar og hefur fengið frábœrar við- tökur. Myndir eftir Ilon Wikland. Þorleiíur Hauksson þýddi. Andrés Indriðason POLLI ER EKKERT BLÁVATN Hvert getur tíu ára strákur farið sem er ákveðinn að strjúka að heiman og koma aldrei aítur - að minnsta kosti ekki strax? Og hvað getur hann gert þegar hann kemur heim aftur og enginn hefur tekið eftir að hann vantaði því mamma hans og systir eru famar að heiman og pabbi situr einn eítir í öngum sínum? Polli getur ýmislegt gert þegar hann tekur til sinna ráða. Eftir það íer margt að breytast í kringum hann. Andrés Indriðason hlaut barnabókaverðlaun Máls og menningar fyrir bókina Lyklabarn sem kom út í hitteðfyrra, BUKOLLA Ævintýrið skemmtilega með nýjum og íallegum litmynd- um eftir Hring Jóhannesson. K.M. Peyton DAUÐIÁ JÓNSMESSUNÓTT Jónatan Meredith situr í dýra heimavistarskólanum sínum og þykir lítið til dýrðarinnarkoma. Ekki bœtir úr skák að í nafni jafnréttis er búið að taka stelpur inn í efstu bekkina, og þœr ekki smávegis skritnar sumar! Það eina sem er gaman er að œfa fjallgöngu með Hugo stœrð- íroeðikennara. en hann er með merkilegri mönnum í augum Jónatans. Svo deyr enskukennarinn voveiflega - og f jör fœrist í leikinn. Dauði á Jónsmessunótt er sjálístœtt íramhald bókar- innar Sýndu að þú sért hetja eítir höíund bókanna vin- sœlu um Pairick Pennington. Spenna bókarinnar. frábœr persónusköpun og mann- skilningur höíundar svflcur engan. Silja Aðalsteinsdóttir þýddi. Theódóra Thoroddsen ÞULUR Hinar f allegu og vinsœlu þulur Theódóru Thorodd- sen haf a lengið verið ófáanlegar. Þetta er 5. út- gáía þeirra og hér er að finna allar þulur sem Theódóra orti. Kjörgripur allra bama - og fullorðinna Myndir eftir Guðmund Thorsteinsson og Sigurð Thoroddsen. Geoffrey Trease Á FLÓTTA MEÐ FARANDLEIKURUM Þessi saga gerist í Englandi á síðustu áratugum 16. aldar. Þetta voru róstusamir tímar víða í Evrópu, en í Englandi haíði friður rflct óvenju lengi undir stjóm Elísabetar 1. drottningar. Ungur drengur, Pétur Brownrigg, lendir í úti- stöðum við lénsherra föður síns og verður að flýja átt- haga sína. Á flóttanum verður hann margs vísari, m.a. um samsœri gegn drottningu. og lendir í ýmsum háska. Meðal helstu persóna bókarinnar er leik- ritahöfundurinn William Shakespeare. Silja Aðal- steinsdóttir þýddi og las söguna í Rfldsútvarpi fyrr á þessu ári. Mál IMI og menning

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.