Þjóðviljinn - 12.03.1982, Qupperneq 5
Föstudagur 12. mars 1982 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 5
'0 S fl cd) 1
Ég hef fundiðorsök bilunarinnar — fullkomlega úreltur partur I samstæðunni. (úr Spiegel).
Hjörleifur Guttormsson:
Náum tökum á
örtölvutækninni
1 ræðu Hjörleifs Guttorms-
sonar iðnaðarráðherra á ársþingi
Félags islenskra iðnrekenda vék
hann m.a. að þeirri spurningu
sem á mörgum brcnnur nú: er
örtölvubyltingin fagnaðarerindi
eða martröð? Hjörleifur komst
s vo að orði:
Eg vil að lokum minna á þann
þátt iðn- og tækniþróunar, sem án
efa á eftir að setja mest mark á
iðnað og mannlif i iðnvæddum
rikjum þar sem eftir er af öldinni,
einnig hérlendis. Þar á ég við ör-
tölvuna og þær gifurlegu breyt-
ingar á framleiðsluháttum og
miðlun upplýsinga, sem henni
tengjast. Menn greinir vissulega
á um, hvort þær breytingar verði
til góðs eða ills fyrir mannlegt
samfélag, en fáir telja að undan
þeim verði vikist, hvort sem okk-
ur likar betur eða verr.
Með þetta i huga er mikilsvert
að reyna i tæka tið að hafa áhrif á
hagnýtingu þessarar ótrúlegu
tækni til heilla, og þvi geri ég
þetta hér að umtalsefni. Flest
ykkar hafið séð tilgátur um áhrif
örtölvunnar i iðnaði og þjónustu-
störfum til viðbótar þeim breyt-
ingum.sem þegar eru komnar til
framkvæmda. Fyrir fáum árum
hefðu þær margar hverjar þótt
minna á ævintýri. Þó stöndum við
aðeins á þröskuldi þessarar
þróunar að mati sérfróðra og má
likjaþvi við bilaiðnaðinn við upp-
• haf aldarinnar.
örtölvan opnar leið til sjálf-
virkni á flestum sviðum, þar sem
hún leysirmannshöndina og flók-
in og fyrirferðamikil tæki af
hólmi. Með tilkomu hennar mun
vinnutimi og fjöldi starfa sem i
boði eru dragast hraðfara saman
á sviðum sem einkum hafa tekið
við vinnuafli á undanförnum
áratugum, einkum i iðnaði og
þjönustustörfum, svo sem á skrif-
stofum, í bönkum og i opinberri
þjónustu. Slik framtiðarsýn þykir
að vonum ekki fagnaöarerindi
með yfir 25 milljónir atvinnuleys-
ingja í OECD-löndum þessa
stundina. Vonir um að hin nýja
tækni fylli sjálf i eyðurnar með
nýjum verkefnum i stað þeirra
sem hverfa þykja ekki liklegar til
að rætast, enda eru teiknin i aðra
átt þegar ótvfræð. Vissulega mun
örtölvuiðnaðurinn bæta við sig
mörgum til verka á næstunni, en
einnigsá iðnaður stefnir hraðfara
yfir f sjálfvirkni. Það sem helst
heldur aftur af þróuninni á þessu
sviði er skortur á fólki til starfa
við hugbúnað og forritun.
Afleiðingar örtölvunnar á
framleiðni eru þegar næsta
ótrúlegar á ýmsum sviðum og
áhrifin á vinnumarkaðinn hljóta
að kalla á grundvallarbreytingar
varðandi vinnutima og vinnu-
skipulag, ef ekki eiga að skapast
óviðráðanleg félagsleg vandamál
með fjöldaatvinnuleysi langt
umfram það sem áður hefur
þekkst. Stytting vinnutima, vald-
dreifing og aukin áhrif starfs-
manna á framleiðsluferli og
vinnuskipulag virðast eina vit-
ræna svarið til að forða sam-
félagslegri upplausn eða mið-
stýrðri harðstjórn af völdum ör-
tölv uby ltingarinnar.
Jafnt stjórnvöld sem aðilar
vinnum arkaðarins hér sem
annars staðar þurfa að búa sig
undir að svara þessari þróun á
skipulegan hátt til að örtalvan
verði þjónn mannsins, en
maðurinn ekki þræll hennar, eins
og verkamaðurinn við færibandið
i Núh'ma Chaplins. örtölvan og
vélmenni eða „róbótar” eru
óöum að leysa verkamanninn af
hólmi og senda hann út í skugga
og niðurlægingu atvinnuleysisins.
Innlendir aðilar hafa um árabil
hagnýtt sér þessa nýju töfra-
tækni, sem byggir á smásæjum
tengslum, sem um margtminna á
mannshugann. Þjónustu við
þessa innlendu aðila og samstarf
þeirra þarf að efla á skipulegan
hátt. Aðeins með þvi að bregðast
þannig við nýjungum mun þjóð
okkar halda velli i óbliðri sam-
keppni tæknisamfélagsins. Ykkur
sem hér eruð stödd eru þessi efni
eflaust hugleikin, og þið iðnrek-
endur hafið uppi kröfur um að
islensk iðnfyrirtæki fái búnað af
þessu tagi án aðflutningsgjalda.
Undir þá kröfur tek ég um leið og
ég hvet til innlendrar framleiðslu
á þessu sviði og að við reynum að
ná sem bestum tökum á þessum
vaxtarbroddi inn i hið ókunna.
Almennur
st j órnmálafundur
á Siglufirði
Svavar
Almennur stjórnmálafund-
ur verður haldinn á vegum
Alþýðubandaiagsins i Al-
þýðuhúsinu á Siglufirði
laugardaginn lJ3. mars kl.
17.
Svavar Gestsson félags- og
heilbrigðisráðherra og
Ragnar Arnalds fjármála-
ráðherra ræða um stjórn-
málaviðhorfið og kosning-
arnar i vor. Að loknum
framsögum verða almennar
umræður og fyrirspurnum
svarað.
Fundurinn er öllum opinn.
Ragnar
Alþýðubandalagið
Arkitekt eða
verkfræðingur
með sérmenntun eða starfsþjálfun á sviði
skipulagsmála óskast til starfa hjá Skipu-
lagi rikisins frá og með 1. april n.k.
Laun skv. launakerfi opinberra starfs-
manna.
Umsóknir er greini frá menntun og starfs-
reynslu, skulu sendast skipulagsstjóra
rikisins fyrir 27. mars n.k.
Skipulag rikisins
Borgartúni7,105 R.
Blaðberabíó
í Regnboganum 13. mars kl. 1.00
Sverðfimi kvennabúrsins
Gamanmynd í litum.
Isl. texti.
Ath. miðinn gildir fyrir tvo.
DJÚÐVIUINN
FRAMLEIÐUM BRAUÐKÆLA
ÖL- OG GOSDRYKKJAKÆLA
og önnur frysti- og kælitæki
sími 50473
&rB5fimrk
Reykjavíkurvegi 25 Hafnarfirði
STORMARKAÐSVERÐ
leyft okkar
verð verð
Bragakaffi 1 kg 51.60 47.00
Robin Hood hveiti 10 lbs 41.10 28.80
Strásykur 2 kg 16.20 12.00
Rauðkál 16.50 14.95
Cheerios 198 gr 15.60 14.25
Coco puffs 340 gr - 30.65 27.50
Libbys tómatsósa 567 gr 14.35 12.95
Coop gr. baunir 1 /1 d 15.60 10.95
Gunnars majones 11 32.00 28.95
Kokteil ávextir 1/1 d 25.45 21.95
Perurl/ld 21.80 18.50
Ferskjur 1/1 d 22.30 18.80
Corn flakes 227 gr 14.50 9.30 '
Kjötskrokkar 1/1 og 1/2, gamla verðið 44.95 40.80 -
Smjör 1/2 kg garnla verðið 32.45 28.25
Opið til kl. 22 föstudaga og
hádegis laugardaga
STÓRMARKAÐURINN
.SKEMMUVEGI 4A KÓPAVOGI