Þjóðviljinn - 12.03.1982, Side 7
Föstudagur 12. mars 1982 ÞJóÐViLJINN — SIÐA 7
Olíueyðslumælir í skip og báta:
Undratæki 1
olíukreppu
Rabbað við Heimi Sigurðsson
hjá Örtölvutækni s.f.
OUueyöslumælirinn, sem kominn er i yfir 100 islensk skip og báta. Aö baki honum standa eigendur ör-
tölvutækni s.f. fv. Björgvin Guömundsson, Arnlaugur Guömundsson og Heimir Sigurösson.
Aliir viöurkenna aö örtölvu-
bylting stendur yfir i heiminum.
Þetta undratæki, sem menn bæöi
óttast og bera viröingu fyrir yfir-
tekur æ fleiri sviö þjónustu og at-
vinnugreina. Vissulega hefur ör-
tölvutæknin valdiö atvinnuleysi
víöa um heim og fyrir bragöiö er
hún hötuö af mörgum og ýmsir
óttast aö hún eigi eftir að breyta
heiminum enn meira en oröiö er,
á þvi er varla vafi og aö afleiðing-
arnar verði mjög alvarlegar.
Þrátt fyrir það aö tölvan sé um-
deiid, er þaö staðreynd aö hún
hefur fjölmargar jákvæöar hliö-
ar, sem eru öllum til góös. Sem
dæmi um þaö, er oliueyösluimæl-
ir sá sem örtölvutækni s.f. hefur
um nokkurt skeiö framleitt og selt
i skip og báta meö þeim ánægju-
legu afieiöingum aö skipin geta
sparaö allt aö 30% af oliueyðsl-
unni, sem er ekkert smáræöi i
þeirri oliudýrtiö, sem nú rikir.
Heimir Sigurðsson er einn af
þremur eigendum fyrirtækisins
örtölvutækni s.f. og viö fórum á
fund hans til að fræðast nánar um
þetta undratæki og ýmislegt ann-
að sem fyrirtækið er meö á sinum
snærum og tengist örtölvutækn-
inni.
Heimir sagöi að þeir heföu
byrjað með þetta fyrirtæki I sept-
ember 1978 og það fyrsta sem
framleitt var, voru hitamælar
fyrir skip, til að mæla sjávarhita,
en hitaskil geta veriö afar skörp i
hafinu umhverfis tsland og það
getur skipt miklu um fiskveiðar.
En á árinu 1980 hófst fyrirtækið
með stuðningi LIÚ handa um
framleiöslu á oliueyöslumæli
fyrir skip og báta og nú eru á ann-
að hundrað skip með slika mæla
innanborðs.
Þessir mælar sýna skipstjórn-
armönnum heildaroliunotkun,
oliueyðslu pr. klst. miðað við
hraða skipsins og eins oliueyöslu
pr. sjómilu. Má nefna sem dæmi
um hve gagnlegir mælarnir eru,
að nótaskipið Grindvikingur GK
eyðir 180 litrum af oliu á klst. ef
hann gengur 10,5 sjómilur. Sé
hraðinn aukinn um 1,5 sjómílu,
uppi 12.0 þá er eyðslan orðin 380
litrar á klst. og sé hann keyröur á
14.0 sjómilna hraða er eyöslan
orðin 500 litrar. Þannig að það er
dýr hver milan umfram heppileg-
asta hraða miðaö við eyðslu. Einn
útgerðarmaður, sem fengiö hefur
sér svona oHunotkunarmæli hefur
látiö hafa eftir sér, að fyrir þá fé
sem hann sparaði i oliueyðslu á
einni vertið hefði hann getað
keypt þær netaslöngur sem hann
þurfti.
Annað tæki frá örtölvutækni
s.f. hefur vakið mikla athygli, en
það er svonefndur afgasmæiir, en
hann er tengdur við alla silendra
skipsvélar og sýnir um leið ef ein-
hver þeirra hitnar óeðlilega mik-
ið. Með þessu móti má koma i veg
fyrir alvarlegar vélaskemmdir.
Þessir mælar eru nú þegar komn-
ir i nokkur skip og hafa sannaö
þar gildi sitt.
Loks má geta þess að örtölvu-
tækni s.f. er i samvinnu við Verk-
og kerfisfræðistofnunina aö vinna
að stóru verkefni fyrir Hitaveitu
Suðurnesja. Eru það örtölvutæki
til að fylgjast meö ýmsum rekstr-
arþáttum eins og hita, rennsli,
þrýstingi o.fl. Tæki þetta flytur
upplýsingar um þessa þætti til
tölvu sem þegar vinnur úr upp-
lýsingunum og sýnir þær á skjá
eða prentar þær út.
Sagði Heimir aö fyrirtækiö
heföi tekiö að sér ýmis önnur
verkefni fyrir fyrirtæki og stofn-
anir, en sifellt væru fleiri og fleiri
þættir atvinnulifsins að færast yf-
ir i örtölvutæknina, en möguleik-
arnir sem hún býöur uppá mjög
margir.
— S.dór
Flensborgarskóli sýnir
VOJTSEK
eftir Georg Biichner
Leikgerö og leikstjóri:
Inga Bjarnason
Þýðing: Þorsteinn Þorsteinsson
Tóniistarstjóri: Hákon Leifsson
Upþsetning Ingu Bjarnason á
hinu sigilda og siunga verki
Biichners er óvenjulega metnað-
ar- og dirfskufull af skólasýningu
að vera. Inga hefur stytt verkið
nokkuð og þjappað þvi saman,
þannig að Utkoman verður sam-
felld klukkustundar sýning, og
virðist mér hún koma öllu sem
máliskiptir veltil skila.Verkið er
brotakennt (og reyndar ófullgert)
frá hendi höfundar, en Ingu hefur
tekist mjög vel að skapa úr þvi
samhangandi heild, sýningu sem
rennur áfram viðstööulaust og
skilur eftir geysisterk heildar-
áhrif.
Leikrit Biichners, sem er samið
1836, er merkilegt fyrir margra
hluta sakir og á undan sinni sam-
tið hvað snertir efni og stil. Skyldi
Vojtsek ekki vera fyrsta andhetj-
an í leikbókmenntunum, fyrsta
dæmiðum að aðalpersónan sé al-
gert fórnarlamb utanaðkomandi
afla. t Vojtsek s jáum við manninn
meðhöndlaðan sem vél, sviptan
mannlegri reisn, troðinn kerfis-
bundið niður i svaöið, þar til
hann fremur ódæði i örvæntingu
sinni, drepur barnsmóður sina,
sem reyndar hefur átt drjúgan
þátt f niðurlægingu hans.
Frásagnaraðferð Biíchners er
einnig óvenjuleg og i andstöðu við
rikjandi hefðir. t stað heillegrar
frásagnar sýnir hann okkur heim
Vojtseks i sundurlausum brotum,
— stillinn verður spegilmynd af
þeim brotakennda heimi sem
Vojtsek lifir f. Það er hins vegar
nokkur vandi að koma þessum
brotum saman i heillega sýningu
og hefur oftmistekist hrapallega,
sbr. uppsetningu H'ádrichs á
verkinu i Þjóðleikhúsinu á sinum
tima sem margir minnast með
skelfingu. Með samþjappaðri
leikgerð sinni og með þvf að láta
leikinn berast viðstöðulaust milli
fimm leiksvæða tekst Ingu að ná
fram hraða og hrynjandi sem
skilar verkinu i heilu lagi.
Gunnar Richardsson I hiutverki Vojtsek.
Hinn hrjáði lítilmagni
Um leið tekst að gera áhorfend-
ur virka i sýningunni. Margt hef
ég reynt misjafnt og misheppnað
i þeim efnum, en hér tekst þetta á
eðlilegan og áreynslulausan hátt.
Við eltum hersveitina inn i sýn-
ingartjaldið og horfum með henni
áskripalætin sem fram fara, sið-
anerum við skyndilega komin inn
ákráog þar tekstað skapa raun-
verulega kráarstemmningu sem
áhorfendur verða ósjálfrátt hluti
af, og að lokum erum við gerð að
áhorfendum að aftöku Vojtseks.
Einkum varð stemmningin
sterk i atriðinu á kránni sem um
leið er hápunktur verksins. Þar
varð lika ofbeldið sem Vojtsek er
beittur andstyggilegast og
áþreifanlegast, bæði vegna lik-
amlegrar nándar og eðliiegs um-
hverfis og svo vegna frábærs
leiks þeirra Lárusar Vilhjálms-
sonar i hlutverki Tambúrmajórs-
ins og Gunnars Richardssonar i
hlutverki Vojtseks. Lárus túlkar
hinn ruddafengna og dýrlega
majór m jög kröftuglega og Gunn-
ari tekst að sýna okkur angist og
örvæntingu Vojtseks og siðan
sturlun hans þannig að tekur til
hjartans. Aðrir leikarar standa
sig eftir bestu getu og ber sér-
staklega að hrósa þeim öllum fyr-
ir frábæra nákvæmni og einbeit-
ingu.og hefur Inga hér uppskorið
rikulega sitt erfiði.
Oll umgerð sýningarinnar er til
fyrirmyndar, leikmynd, búning-
ar, ljósanotkun — allt á atvinnu-
mennskustigi. Og tónlistin undir
stjóm HákonarLeifssonarer flutt
af öryggi og glæsibrag, einkum
var tónflutningur i kránni sérlega
áhrifamikill.
Þetta er sýning sem aðstand-
endur geta veriö stoltir af.
Sverrir Hólmarsson
erlendar
bækur
Nicos Fouiantzas:
Classes in Contemporary Capi-
talism.
Translated from the French
by David Fernbach.
Verso Edition 1979.
Höfundurinn er kunnur fyrir rit
sin um marxisk fræði. I þessu riti
ræöir höfundur um stéttagerð nú-
tima kapítalskra rikja og ný við-
horf sem mótast hafa af
viöskiptum „þjóðrikja” og al-
þjóölegs auðmagns i gervi fjöl-
þjóðahringa. Hér fjallar hann
ýtarlega um hugtakið „smáborg-
aranp” og sýnir fram á hvernig
inntak hugtaksins hefur breyst,
frá þvi aö merkja smákaupmenn
og iðnaöarmenn, yfir i þá merk-
ingu, sem þaö hlýtur aö hafa nú á
dögum, sem sé, skrifara eöa
kóntórista og yfirkontórista og
launaða starfskrafta og sérhæfða
starfskrafta og sérfræðinga i
iðnaðarsamsteypum og verslun.
Þessi mikli skari skrifara, „sér-
fræöinga” i öllum mögulegum
greinum og fjöldinn i þjónustu-
greinunum eru „smáborgarar”
nútimans. Poulantzas telur að
væntanleg umbylting samfélag-
anna til sósialisma geti ekki
átt sér stað, án stuönings þessa
fjölda. Hann tekur dæmi frá
Chile, þar sem erlendum öflum
tókst að gera þennan fjölda frá-
hverfan Allende-stjórninni á
fölsuöum forsendum,
Höfundurinn gerir stéttagerð
nútimans ágæt skil og einnig nú-
tima framleiðsluháttum og aö-
ferðum ný-kapítalismans I sam-
skiptum við starfskraftana. Þetta
er athyglisverö bók og er full þörf
á þvi aö kenningar og skoðanir
höfundar eigi aðgang að þeim öfl-
um hérlendis, sem vilja forða
landsmönnum frá frekari
ágengni fjölþjóðahringa og
keyptra umboðsmanna þeirra
hérlendis.