Þjóðviljinn - 12.03.1982, Qupperneq 9

Þjóðviljinn - 12.03.1982, Qupperneq 9
8 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 12. mars 1982 Föstudagur 12. mars 1982 þJöÐVILJINN — StÐA 9 Sameiginlegt prófkjör 1 Grindavík á sunnudag: Þessir gefa kost á sér á lista Al- þýðubandalagsins Sameiginlegt prófkjör stjórnmálaflokkanna fer fram i Grindavik á sunnudaginn kemur. Prófkjörið fer fram i samkomuhúsinu Festi og er kjörtlmifrá þvikl. lOum morguninn til kl. 22.00um kvöldiö. Þetta prófkjör er bindandi fyrir þá frambjóðendur Alþýðubandalags- ins sem hljóta yfir 25% kjörfylgis flokksins I siðustu kosningum. A lista Alþýðubandalagsins skal merkja við minnst 3 nöfn og skal kjósandi raða frambjóöendum i þá röð sem hann kýs að þeir verði á framboðslistanum. Þessir 10 félagar hafa gefið kost á sér á lista Alþýðubandalagsins: ' Guðrún Matthiasdóttir, kcnnari, | Húsatóftum. Helga Enoksdóttir, Hinrik Bergsson, húsmóðir, vélstjóri formaöur Verkal.f. Austurvegi 4 Grinda víkur, Heiðarhrauni 20. Hjálmar Haraldsson, stýrimaður Staðarvör 5 Jón Guðmundsson, pipulagningameistari, Leynisbraut 10 Kjartan Kristófersson, bæjarfulltrúi Heiöarhrauni 49. Már Valdimarsson, trésmiður Selsvölium 13 Ólöf ólafsdóttir, ráðskona Heiöarhrauni 54. Sigurlaug Tryggvadóttir, húsmóðir, Staöarhrauni 22. Þorvaldsson, stýrimaöur, Staöarvör 2. Á FERÐ í GRINDAVÍK — Spjallað við fólk um fisk Er blaðamann og Ijósmyndara Þjóðviljans bar að garði i Grindavík í fyrradag skein þar sól í heiði/ en andkalt var og vindur blés af hafi. Flestir bátar höfðu farið á sjó þennan dag og voru þeir smæstu að koma að landi. Ekki var tiltakanlega mik- íII sjór að sögn Grindvík- inga, en þó braut úti fyrir innsiglingunni. Við fylgd- umst með þvi hvernig bátarnir þræddu krókaieið upp að landinu, slóuðu meðan þeir biðu eftir lagi og skutust svo innfyrir brimgarðinn eins og þeir sem stjórnuðu bátunum væru að sýna Ægi konungi snilld sína í stilfögrum dansi. Þessa list hafa skipstjórnar- mennirnir I Grindavlk leikið svo ótal sinnum, að aðferðin festist i vitund þeirra og að lokum veröur hún vanabundin og hversdagsleg athöfn, sem enginn hefur orö á, þó landkrabbar fyllist undrun. Hér áður og fyrr, er skipin voru frum- stæðari og tækin færri, tókst þó hönd hafsins aö hrifsa til sin margan hraustan drenginn, en það er önnur saga. Vigtarmenn vita allt Viö komum náttúrlega við á hafnarvoginni á leið okkar niður að höfninni. Þar hittum við fyrir Bjarna Þórarinsson vigtarmann og spuröum hann um aflabrögö eftir að hafa kynnt okkur sem blaðamenn. Þegar hann hafði lýst þeirri reynslu sinni að blaðamenn heföu aldrei neitt rétt eftir sagði hann okkur, að komiö hefðu á land 788 tonn á þriðjudaginn og hefði þaö verið þriggja og fjögurra nátta fiskur. Þetta væri góöur fiskur, mest ufsi og þorsk- ur. Er hann var spuröur hvernig Grindvikingar önnuðu þvi aö vinna svo mikinn afla, sagði Bjarni að ekki væri allt unnið þar á staönum, heldur færi sumt burt, til dæmis til Keflavikur. Hann sagöi að Grindvikingum blöskraöi ekki þetta aflamagn, þvi hér áöur og fyrr hefði það ekki þótt neitt sérstakt þó kæmu á land 12—1300 tonn á dag I aprll. (Jti I brimgaröinum sjáum við hvar vélbáturinn Þorbjörn er kominn inn fyrir brotið. bátnum kom vænn þorskur, auli eins og stórþorskur var kallaður á heimaslóðum blaðamanns. 1 lestinni var einnig ufsi. Allir fá vinnu sem nenna því Síðan var förinni heitið til Guðna ölverssonar bæjarfulltrúa Alþýðubandalagsins I Grindavlk, en hann er kennari viö grunn- skólann. Hann sagði okkur að atvinna hefði veriö þokkaleg I Grindavik I vetur og allir sem vildu vinna fengju vinnu. Oft -væri unninn langur vinnudagur, en þrátt fyrir það v*ri félagslif I bænum nokkuö mikiö. Ungmennafélagið starfaði ötullega og einnig leikfé- lagiö sem nýlega hefði staöið fyrir leiksýningu á Grænu lyft- unni. Hann sagði helstu framkvæmd- ir bæjarins vera við vatnsveitúná, en þeim hefði seinkað og lyki ekki fyrr en meö vorinu. Grindvik- ingar tækju allt sitt vatn úr bor- holum og vantaði meira vatn, ekki sfst fyrir frystihúsin, sem eru þrjú auk margra minni fisk- verkunarstöðva. Guðni sagði að grunnskólinn byggi við mikil þrengsli og væru 460 nemendur I skólanum og væri hann þrisetinn aö hluta. Bygging nýs skóla væri þvi brennandi mál, en fjármagn sem hefði átt að fara til skólabyggingarinnar hefði verið tekiö i byggingu Iþrótta- húss, sem kratar lofuöu fyrir siðustu kosningar aö byggja á einu ári. íþróttahúsið væri hins vegar enn órisið. Eftir kaffið hjá Guðna og spjall um ótal aðra hluti héldum við á brott. Það var tekiö að dimma til hafsins og okkur varð hugsað til þeirra sjómanna sem enn væru að draga net sin úr sjó, er kolsvart éliö skall yfir. — Svkr. Þarna liggur iþróttahúsið, sem kratarnir ætluðu að reisa á einu ári. Húsið er úr einingum. Myndir -gel Texti -Svkr. Afla landað úr Ingólfi. Er Bjarni var spuröur að þvi hvernig vertlðin heföi gengið svona almennt, þá svaraði hann þvi til aö hún hefði veriö helvltis ræfill, tiðarfarið hefði verið illt, eilifar ógæftir. Ekki fannst hon- um mikill sjór; þó tefði hann kannski minnstu bátana. Hvar bátanir væru með net sln? Þeir væru með net sin frá fjöru- borði út I landgrunnskant. Þessu næst fórum viö félagar niður á bryggju. Þar var verið að landa úr vélbátnum Ingóifi, sem er i kringum fimmtán tonn að stærð aö okkur sýndist. Upp úr Verkamannabústaöir i Grindavik. Búið er að afhenda fbúðir I fyrsta áfanga, ibúðir I öðrum áfanga veröa afhentar I vor og sá þriðji verður byggður á næsta ári. Guðni ölversson. Bjarni Þórarinsson: Vertfðin hef- ur verið helvitis ræfill. Hver hefur komið með mestan aflann i gær? Aflatölur skoðaöar.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.