Þjóðviljinn - 12.03.1982, Síða 15

Þjóðviljinn - 12.03.1982, Síða 15
Hringið í sima 81333 kl. 9-5 alla ~ virka daga, eða skrifið Þjóðviljanum Dýrir kjúklingar í Aski Margra barna faðir i Breiðholtinu hringdi á Þjóðviljann og greindi frá dálítilli prívatkönn- un á verði kjúklinga í Ask-borgaranum i Breiðholti annarsvegar og Laugaási hinsvegar. Sagði hann að sami kjúklingaskammtur hjá þessum tveim aðilum kostaði 130 kr. hjá Ask-borgaranum en 98 krónur á Laugaási. Taldi hann þetta talandi dæmi um hina svokölluðu frjálsu álagningu. Ask-borgarinn væri eini staðurinn i Breiðholti sinnar tegundar og hefði þvi örugga sölu á vöru sinni. Þá sagði viðmælandi Þjóðviljans að frönsku kartöflurnar og sósa með kjúklingum væri mun dýrari hjá Ask-borgaranum en á Laugaási. Lesanda finnst að Pétur Sveinbjarnarson mætti að ósekju lækka verðið á kjúklingaréttum sínum. Barnahornið Myndin er eftir Hrafnkel Frey Hlöðversson 6 ára. Föstudagur 12. mars 1982 ÞJODVILJINN SIDA 15. Kvöldvaka í hljóðvarpi Á dagskrá útvarpsins í kvöld kl. 20.40 er þáttur sem nefnist þvi hvers- dagslega nafni „Kvöld- vaka". Þátturinn tekur hálfa aðra klukkustund og koma ýmsir andans menn þar fram, allir íslenskir. Guðrún A. Símonar syngur við undirleik Guðrúnar Krist- insdóttur. Þá verður sagt frá Noregsferð frá heims- styrjaldarárunum fyrri. Helgi Kristjánsson segir frá, en viömælandi hans er Þórarinn Björnsson. Þá flytur Oskar Halldórsson ljóð eftir dr. Einar ólaf Sveinsson og Rósa Gisladóttir frá Krossageröi les seinni hluta úrdráttar sins um bræöurna Hjörleif og Jón Arnasyni. Að lokum syngur Meðaí þeirra sem koma fram á Kvöldvöku Otvarpsins er söngkonan kunna Guðrún A. Simonar. karlakór Isafjaröar nokkur islensk lög. • Útvarp kl. 20.40 Taugatrekktur kennari Föstudagsmynd Sjónvarps- ins veröur á dagskrá kl. 22. Myndin fjallar um háskóla- kennara i London og sam- skipti hans við umheiminn, ekki sist fjölskyldu sina. Sá ljóður er á ráöi háskólakenn- arans að hann er taugaspennt- !ur og uppstökkur með af- brigðum og slikt kann ekki góðri lukku að stýra. Konan tekur hafurtask sitt og barn þeirra hjóna og hefur sig á brott. ö Sjónvarp O kl. 22.00 Edda Andrésdóttir sér um Skonrokk Alan Bates i hlutverki háskólakennarans Bens Butley Föstudagsmyndin: ,,Nei, nei, nei, nei. Það eru cngar stórbreytingar i vænd- um. Við Þorgeir ætlum bara að skipta þessu með okkuar”, sagði fjölmiðlakonan kunna, Edda Andrésdóttir, er Þjóð- viljinn fór að forvitnast um auglýsta dagskrá Sjónvarps- ins, þar sem nýtt nafn var skyndilega tengt hinum sivinsæla þætti „Skonrokk”. Edda er semsé komin inn á gafl hjá poppdeild Sjónvarps og mun áreiðanlega heilla hlustendur og áhorfendur. Edda kvaðst hafa áður unniö að þáttum fyrir Sjónvarpið, m.a. „Það eru komnir gestir” og „Hjónaspil”, spurn- ingaþætti, sem var á skjánum fyrir nokkrum árum. i þættinum i kvöld kemur Edda viða við. Þekktustu gestir hennar eru sjálfsagt hljómsveitin „Rolling Edda Andrésdóttir, ekki sist kunn fyrir framgöngu slna i þættinum „I vikulokin”, mun sjá um „Skonrokk” ásamt Þorgeiri Ástvaidssyni næstu mánuðina. Stones”, en þess utan verða ýmsar breskar og bandarisk- ar hljómsveitir fengnar til aö troða upp. Sjónvarp kl. 20.50

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.