Þjóðviljinn - 23.03.1982, Page 6
6 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 23. mars 1982.
íslendingar taki þátt í alþjóðlegum aðgerðum
Refsiaðgerðlr gegn
stjórn Suður-Afríku
Gegn kynþáttahatursstefnunni í Suður-Afríku
„Alþingi ályktar aö fela rikis-
stjórninni aö hafa frumkvæöi aö
þvi, aö komiö veröi á fót lands-
nefnd til stuönings jafnrétti og
frelsi i Suöur-Afriku. t nefndinni
eigi sæti fulltrúar helstu fjölda-
samtaka i landinu. Nefndin skal
einnig gera tillögur um það,
hvernig tslendingar geti be„t orö-
iö viö tilmælum Ailsherjarþings
Sameinuöu þjóöanna um refsiað-
geröir gegn Suöur-Afriku. Nefnd-
in hafi enn fremur þaö hlutverk
aö kynna islensku þjóöinni ástand
og þróun mála i Suður-Afrlku og
þær hörmungar, sem kynþáttaað-
skilnaöarstefna (Apartheid)
stjórnvalda þar hefur leitt yfir
þorra suöur-afrisku þjóöarinnar,
svo og aö kynna og fræöa um
stööu Nam ibiu og þá sjálfstæðis-
baráttu, sem þar er nú háö gegn
óloglegum yfirráöum Suöur -
Afriku yfir landinú.”
(ringsjá
Svona hljóöar þingsályktunar-
tillaga sem Eiöur Guönason og
fleiri flytja og lögö var fram á
þingi i gær.
Meö tillögunni fylgir svohljóö-
andi greinargerö:
„Allsherjarþing Sameinuöu
þjóöanna hefur helgaö áriö 1982
eflingu refsiaögeröa gegn kyn-
þáttahatursstjórn Suöur-Afriku.
Meginástæöur fyrir þessari sam-
þykkt Allsherjarþingsins eru
einkum:
I fyrsta lagi aö reyna aö hafa
áhrif i þá átt aö uppræta kyn-
þáttahatursstefnu rikisstjórnar
Suöur-Afriku og i ööru lagi aö
þvinga Suöur-Afriku til aö sleppa
þeim tökum sem landiö hefur á
nágrannarikinu Namibiu. Meöal
þeirra rikja, sem atkvæöi greiddu
gegn þessu á allsherjarþinginu
voru Kanada, Frakkland, Bret-
land, V.-Þýskaland og Bandarik-
in.
Beiðni um skýrslu fjármálaráðherra
infónían til neðri-deildar
|a
j Engar breytingar
j við frumvarpið
1 gær fór fram i efri deild
þriöja umræöa um Sinfóniu-
hljómsveit Islands en frumvarp
um málefni hljómsveitarinnar
hefur veriö lengi til umfjöllun-
ar. Þorvaldur Garðar mælti fyr-
ir breytingartillögum sem hann
flutti ásamt Salome Þorkels-
dóttur. Geir Gunnarsson tók
einnig til máls og þakkaði fyrir
þær upplýsingar sem hann var
búinn aö biöja um þegar viö
fyrstu umræöu i haust um
kostnaöarauka fyrir rikissjóö
vegna þessa frumvarps. Sagöi
Geir aö kostnaöaraukinn væri
talinn nema 1.2 miljónum króna
á ári. Breytingartillögur Þor-
valds Garöars og Salóme voru
allar felldar og frumvarpiö
samþykkt til neöri deildar.
Loksins. — óg
Geir Gunnarsson. Kostnaöar-
aukinn vegna frumvarpsins
veröur 1,2 miljónir króna.
/v
/
%
H
/
Eignamat Iscargos og
greiðsluþol Amarflugs
Hvert er raunverulegt verðmæti?
Þingflokkur Alþýöuflokksins
hefur lagt fram beiöni um skýrslu
til fjármálaráöherra um mat á
eignum tscargo hf„ sem Arnar-
flug hf. hefur fest kaup á. t grein-
argerö meö beiöninni segja flutn-
ingsmenn m.a. „Einsog staöiö
hefur veriö aö kaupum Arnar-
flugs hf. á eignum tscargo hf. eru
þaö greinilegir hagsmunir rikis-
ins, aö I ljós komi raunverulegt
verömæti þeirra eigna, sem
keyptar hafa veriö. Þess vegna er
þess beiðst, aö fjármálaráöherra
flytji alþingi skýrslu hiö allra
fyrst um mat á eignum þeim, er
Arnarflug hf. keypti af tscargo hf.
Einnig er óskaö eftir þvi viö fjár-
málaráöherra aö í skýrslunni
komi fram greiösluþol Arnarflugs
hf.”
I greinargeröinni segir enn
fremur:
„Hinn 11. mars 1982 var gengiö
frá kaupum Arnarflugs hf. á hluta
af eignum Iscargo hf„ fyrir 29
miljónir króna. t kaupsamningi,
sem undirritaöur var meö fyrir-
vara hinn 3. mars 1982, segir svo i
1. gr.: „Seljandi skuldbindur sig
aö selja og kaupandi aö kaupa
eftirtaldar eignir seljenda: El-
ectra flugvél, auökennd TF ISC,
nr. 340, ásamt varahlutum skv.
sérstökum lista, merkt fylgiskjal
1; 6 húseignir á Reykjavikurflug-
velli, sbr. upptalningu á fskj. 2,
lyftara, bíl, verkfæri, áhöld,
skrifstofuvélar og áhöld og bún-
að, sbr. upptalningu á fskj. 3.”
12. gr. kaupsamningsins kemur
fram, aö umsamiö kaupverö skuli
greitt á þann hátt, aö kaupandinn
(Arnarflug hf.) yfirtaki skuldir
íscargo hf. viö trtvegsbanka ís-
lands aö fjárhæö 24.2 miljónir
króna, meö peningum 3.8 miljónir
króna og meö 1 miljón króna i
vixlum. t þessum kaupsamningi
er ekki sundurgreint hvaö skuli
greiöa fyrir hvern hluta eign-
anna.
Þaö hefur komiö fram, aö is-
lenska rikiö á beinna hagsmuna
aö gæta vegna þessara kaupa. ts-
lenska rikiö á 20% i Flugleiöum
hf., sem aftur eiga 40% i Arnar-
flugi hf., sem er kaupandi eign-
anna.
Þá hefur komiö fram aö ástæöa
er til aö ætla, aö kaupverö eign-
anna sé hærra en eiginlegt verö-
mæti þeirra, og að nauösynlegt sé
aö fram fari mat óvilhallra
manna á þeim. Þetta kemur m.a.
fram i þvi, aö fulltrúi fjármála-
ráöherra i stjórn Flugleiöa hf.
samþykkti á stjórnarfundi félags-
ins, eftir aö kaupin höföu veriö
ákveöin, aö fela fulltrúum Flug-
leiöa hf. I stjórn Arnarflugs hf. aö
óska eftir þvi aö fram færi mat
óvilhallra manna á þeim eignum,
er meiri hluti stjórnar Arnarflugs
hf. samþykkti aö kaupa af ts-
cargo hf. Þetta mat hefur ekki
fariö fram.”
Eiður Guðnason, fyrsti flutnings-
maður þingsályktunartillögu um
refsiaðgerðir gegn stjórninni i
Suður-Afriku.
A vegum Sameinuöu þjóöanna
starfar sérstök nefnd sem fjallar
um mál er varöa Apart-
heid-stefnu stjórnar Suö-
ur-Afrlku. Þessi nefnd er venju-
lega kölluö sérstaka Apart-
heid-nefndin. A hennar vegum
hefur verið samin sérstök starfs-
áætlun vegna ársins i ár og hefur
Allsherjarþingið samþykkt hana.
Afnám
kynþáttamisréttis
Þar eru aöildarriki Sameinuöu
þjóöanna hvött til aö beita refsi-
aðgeröum og helst aö leggja niöur
alla samvinnu viö Suöur-Afrlku,
hverju nafni sem nefnist. Minnt
er á að sveitarstjórnir, félaga-
samtök og einkaaðilar geti gert
eitt og annað til aö láta i ljós
andúðsina á Apartheid-stefnunni.
M.a. er á það minnst, að fólk
kaupi ekki vörur frá Auður-
Afrlku og afneiti öllum samskipt-
um við Suður-Afriku á sviði
menningarmála, visinda og
iþrótta.
I þessari starfsáætlun sem
Apartheid-nefndin hefur samiö,
eru löggjafarþing allra aöildar-
rlkja Sameinuöu þjóöanna hvött
til þess aö helga sérstaka fundi
tilefni þessa árs, og er þar bent
sérstaklega á 21. mars, sem er
alþjóöadagur helgaöur afnámi
kynþáttamisréttis.
Aö mati flm. þessarar tillögu
væri I senn sjálfsagt og eölilegt aö
Alþingi íslendinga héldi slikan
fund fyrir þinglok 1 vetur.
Ennfremur er þess óskað I þess-
ari starfsáætlun aö yfirvöld beiti
sér fyrir þvi, aö komiö veröi á fót
landsnefndum til aö auka skilning
á hörmungum þeim sem Apart-
heid-stefnan hefur haft I för meö
sér.
Þessi þingsályktunartillaga er
flutt til aö freista þess aö hrinda
þvi I framkvæmd.aö hér á tslandi
veröi sett á stofn landsnefnd til
þess aö kynna ástandiö I Suö-
ur-Afríku og fylgjast meö þvl,
sem þar er að gerast og sam-
ræma og efla starf einstaklinga
og félagasamtaka er veröa mætti
til þess aö draga úr eöa lina þær
þjáningar sem almenningur I
Suöur-Afrlku veröur aö þola
vegna stefnu núverandi stjórn-
ar.”
Örlofslögin
í gær mælti Vilmundur Gylfa-
son fyrir frumvarpi til laga um
orlof, þarsem gert er ráö fyrir aö
atvinnurekendum sé ekki i sjálfs
vald sett, hvenær launþegar taki
út sitt sumarleyfi. Vilmundur
sagöi aö fulltrúar sem hann heföi
rætt viö úr launþegahreyfingunni
segöu þetta mál hiö þarfasta.
Samkv. núverandi lögum er at-
vinnurekendum heimilt aö láta
launþega taka út sumarfri I mai
eöa september. Frumvarpiö var
samþykkt til annarrar umræöu.
— óg
■ Erlendar
I lántökur
■
■ t svari Ragnars Arnalds
I fjármálaráðherra viö fyrir-
I spurn Matthiasar A. Mathie-
, sen um lántökur rikissjóös á
■ siöasta ári kom m.a. fram aö
I rikissjóður hefur tekiö tvö
I erlend lán á timabilinu frá
, ársbyrjun til 1. nóvember.
■ Annaö þeirra er að upphæö
I 15 milljónir sterlingspunda
| en hitt 30 miljónir dollara.
1 svari Ragnars kom enn
• fremur fram að Fram-
I kvæmdasjóður tók á árinu
I 1981 lán að upphæð kr.
, 212.490.918 reiknað á gengi
■ lántökudags. Lániö er
I sundurliðaö I Yenum og doll-
I urum i svari ráöherra. Þar
, kemur einnig fram að
■ Áburöarverksmiðja rikisins
I tók lán vegna byggingar
| Saltpéturssýruverksmiðju
, aö upphæð 550.000 dollara af
■ 2.200.000 dollara lánsloforöi
I og 3.305.100 franskra franka
I af ööru lánsloforði upp á
, 17.276.675 franskra franka.
• Þá tók Sementsverksmiöja
J rikisins erlent lán, 1.272.500
I dollara til 7 ára.
Þá kom fram að tJtgeröar-
■ félag Norður-Þingeyinga tók
' erlent lán með rikisábyrgð
I sem jafngilti 27.2 miljónum
I króna og Búlandstindur hf.
• lán sem jafngilti 23
' miljónum.
-óg
Kolbeinsey
haldist
á floti
> Einsog áöur hefur veriö
sagt frá hér á þingsiöu mælti
Stefán Guömundsson fyrir
þingsályktunartillögu um aö
geröar veröi ráöstafanir til
aö Kolbeinsey haldist ofan-
sjávar og komið verði fyrir
merkjum fyrir sjófarendur. 1
greinargerö meö þessari
ágætu tillögu var þess getiö
aö nauösynlegt væri aö Kol-
beinsey veröi vernduö fyrir
ágangi veöurs og vinda
þannig aö hún haldist ofan-
sjávar. Af þessu tilefni barst
þingsiöunni þessi vfsa i
heiöursskyni viö Kolbeinsey:
Þingheimur álykti þegar
istaö
aö þrumuveörunum sioti
svo komist til framkvæmda
krafan um þaö
aö Kolbeinsey haldist á
fioti.
Móðurmáls-
kennsla
Lögö hefur verið fram
fyrirspurn frá Sverri
Hermannssyni til mennta-
málaráöherra um móöur-
málskennslui skólum. Þing-
maöurinn spyr ráöherra
hvernig hafi til tekist um
framkvæmd þingsályktun-
artillögu um eflingu kennslu
og fræöslu i Rikisútvarpinu i
öllum greinum móðurmáls-
ins. Tillaga þessi var sam-
þykkt á þinginu áriö 1978.