Þjóðviljinn - 23.03.1982, Page 11

Þjóðviljinn - 23.03.1982, Page 11
Þriðjudagur 23. mars 1982. ÞJóÐVILJINN — SÍDA 11,' íþróttir(2) iþróttir Í/H íþróttir Þrír í röð — Víkingar Hæðargarðsliðið Islandsmeistari í handknattleik þriðja árið í röð eftir sigur á FH í Hafnarfirði 16:15 Svona á íslandsmóti aö ljúka. trrslitin réðust á lokaminútunum, eða sekúndunum, i siðasta leik mótsins, leik FH og Vikings, i Hafnarfirði á laugardag. Viking- ur sigraði i hörkuspennandi leik með 16 mörkum gegn 15 og tryggöi sér islandsmeistaratitil- inn þriðja árið i röð. Hið unga lið FH veitti þeim þó harða keppni og i leiknum á laugardag munaði aldrei meiru en tveimur mörkum. Oft jafnt, en FH aðeins einu sinni yfir er liðið komst i 9:7 undir lok fyrri hálfleiks, en Vikingar minnkuðu muninn i 9:8 fyrir hlé. Vikingum dugði jafntefli i leiknum til að sigra i deildinni og þremur min. fyrir leikslok kom Þorbergur Aðalsteinsson þeim yfir, 15:14. Minútu siðar skoraði svo Guðmundur Guðmundsson glæsimark úr hægra horninu, 16:14. Rétt á eftir hljóp Bogdan þjálíari Vikings inn á völlinn og fékk rauða spjaldið fyrir vikið. FH fékk vitakast sem Kristján Arason skoraði úr, 16:15, og ein minúta og 20 sek. eftir. Vikingar misstu knöttinn hálfri min. fyrir leikslok og Finnur Arnason skor- aði fyrir FH. Markiö var dæmt af þar sem Gunnlaugur dómari var búinn aö flauta aukakast á Vik- ing. Sekúndurnar tifuðu áfram og FH var búið að missa af lestinni. „Þetta voru auövitaö mikil vonbrigði úr þvi sem komið var en ég er stoltur af strákunum”, sagði Geir Hallsteinsson þjálfari FH eftir leikinn. „Reynslan var Vikingum dýrmæt i lokin; okkur tókst ekki aö halda haus. Leikur- inn var mjög góður miðaö viö úr- slitaleik og mér fannst dómar- arnir sleppa þokkalega frá hon- um”, sagði Geir. „Þetta var erfiður leikur, mjög harður og mikil barátta”, sagöi Bogdan þjálfari Vikings. „Hand- knattleikurinn sem slikur var ekki fallegur en það er eðlilegt i hreinum úrslitaleik. Ég átti von á jöfnum leik og tel að betra liðið hafi sigrað”, sagði Bogdan og fram kom að hann veröur áfram með Vikingsliðið. „Lið FH kom mér á óvart”, sagði Ólafur Jónsson Vikingi. „Það lék mjög vel og stendur vel fyrir sinu i 2. sæti deildarinnar. Betra leikskipulag og meiri reynsla vógu þungt á metunum hjá okkur. Viö lékum þennan leik fyrst og fremst fyrir fyrrum fé- laga okkar, Jón Gunnlaug Sig- urðsson, sem lést i bflslysi á fimmtudaginn”, sagði Ólafur, sem að öörum ólöstuðum var besti maöur Vikings i leiknum. Lið Vikings var annars mjög jafnt. Góður varnarleikur lagði grunninn að sigrinum en sóknar- leiknum gekk oft erfiðlega gegn sterkri vörn FH-liðsins. Guð- mundur skoraði sennilega þýð- ingarmestu mörkin, þau siöustu i hvorum hálfleik. Reynsluleysiö varð FH að falli. Bráölætið i sókninni var einum of mikið, á köflum, skotiö of snemma I vonlitlum færum en vörnin með Kristján og Sæmund Stefánsson sem lykilmenn var geysisterk. Kristján og Hans Guðmundsson komust best frá leiknum. Ólafur 5, Siguröur 3, Páll 2, Steinar 2, Guömundur 2, Arni 1, og Þorbergur 1 skoruðu mörk Vikings, en Kristján 6, Hans 3, Guðmundur M. 2, Valgarð 2, Pálmi 1 og Sæmundur 1 mörk FH. Gunnlaugur Hjálmarsson og óli ólsen áttu ekki góðan dag i dómgæslunni. KR-KA 33:20 Alfreð Gislason setti nýtt markamet og varð markahæstur i l.deild er hann skoraöi 21 mark fyrir KR gegn KA á föstudags- kvöldið. Hann skoraöi alls 109 mörk i 1. deild I vetur, 12 mörkum meira en Kristján _Arason, FH.» sem varð annar. Haukur Ottesen kom næstur i markaskoruninni hjá KR meö 4 mörk. Friðjón Jónsson skoraöi flest mörk norö- anmanna, eöa 7. HK—Fram 13:18 Fram sigraði þarna HK I hrein- um úrslitaleik liðanna um falliö i 2. deild. HK og KA falla þvi, en Fram heldur sér uppi þó liðiö fengi aðeins 7 stig 11. deild. Egill 8, Björgvin 3 og Hermann 3 skor- uöu mest fyrir Fram en Guðni og Ragnar voru markahæstir hjá HK með 3 mörk hvor. Lokastaðan i 1. deild varð þessi: Vik..........14 12 0 2 315:239 24 FH...........14 10 1 3 338:311 21 Þróttur .... 14 10 0 4 314:290 20 KR ..........14 9 1 4 314:291 19 Valur........14 6 0 8 281:285 12 Fram.........14 3 1 10 276:326 7 HK ..........14 2 1 11 249:284 5 KA...........14 2 0 12 262:333 4 VS Evrópukeppni bikarhafa í handknattleik: Ekki erfitt — Þróttarar en í undanúrslitum verðið þið að leika betur en gegn ítölsku bikarmeisturunum Pallamano Tacca Þróttur er kominn i undanúr- ■ slit i Evrópukeppni bikarhafa Ieftir tvo sigra á ftaiska liðinu Pallamano Tacca: 32—19 i fyrrakvöld og 29—19 i gær- • kvöldi. Góður árangur Þróttara Isem nú taka þátt i Evrópu- keppni i fyrsta skipti en hætt er við að þeir verði aö sýna betri • leiki i undanúrslitunum en þeir Igerðu I þessum tveimur leikj- um. Fyrri hálfleikurinn i leik liö- • anna á sunnudagskvöldið var Iein allsherjar endaleysa. Italska liðiö, sem tæplega þætti boðlegt i 2. deildinni hér á landi, ■ hékk i Þrótturum allan timann, Iog það ekki fyrir eigin verðleika heldur vegna algers agaleysis og kæruleysis hjá Þrótti. Tvö ■ siðustu mörk hálfleiksins voru IÞróttara og þeir leiddu þvi i hléi, 12-10. Tacca skoraði ekki mark • fyrstu 11 mlnúturnar i siðari hálfleik og Þróttur komst I 16—10. Eftir það var spurningin aðeins sú hve munurinn yrði ■ mikill og eftir að 11 marka for- ■J ysta náðist á 22. min., 26—15, fóru Þróttarar að taka lifinu létt, sendu Einar inná og létu Jens taka vitakast á sinn ein- staka máta. Lokatöiurnar urðu siðan 32—19 og farseðillinn i undanúrslitin bókaður. Sigurður Sveinsson var iengi að stilla kanónuna, þurfti ein fimm skot til þess, en siöan urðu mörkin 10 hjá honum. Páll skor- aði 6, ólafur 4, Jens 3, Magnús 3, Gisli 2, Gunnar 2, Jón Viöar 1 og Lárus 1. Einar Sveinsson skor- aði ekki að þessu sinni. Júgó- slavinn Zarko Balic er eini frambærilegi leikmaðurinn hjá Tacca, raunar meira en fram- bærilegur, enda skoraði hann langmest, 11 mörk. VS Slðari leikurinn var i beinu framhaldi af þeim fyrri. Sama vitleysan. Þróttarar, sem áttu sinn lélegasta leik i vetur, sigr- uðu auðveldlega með 29 mörk- um gegn 19. Ekki var það til að bæta leik Italanna að þeirra besti maöur Zarko Balic gat ekki leikiö vegna meiðsla. Hann kom að visu einu sinni inn á til að taka viti, en hafði ekki erindi sem erfiði, þvi óli Ben. varði vita- kastið án teljandi erfiðleika. Það voru þó ttalirnir sem skoruðu fyrsta markið á 3. min en Þróttarar jöfnuðu fljótlega með marki Gunnars Gunnars- sonar. Tóku siöan Þróttarar örugga forystu og mestur varð munurinn 11—5 er halla tók á fyrri hálfleik. Staðan I hálfleik var 14—11 Þrótti i vil. Voru það einkum tveir Italir er héldu liði sinu á floti I hálfleiknum, þeir Moretti og Petazzi. Sá fyrr- nefndi hefur mikinn stökkkraft, en sá siðarnefndi verður að telj- ast nokkuð laginn hornamaður. Siðari hálfleikur veröur aö flokkast sem einhver sá léleg- asti og jafnframt sá leiðinleg- asti, sem undirritaður hefur orðið vitni aö hjá alvöru hand- boltamönnum f mjög langan tima. Var leikur Þróttara þá þeim til litils sóma og tæpast verjandi gagnvart áhorfendum sem komu til að styðja við bakið á þeim. Þó skal þeim fyrirgefiö i þetta sim\ en með þvi skilyröi þó, að þeir láti slikt ekki henda aftur. Leikur liðanna var á köfl- um skripaleikur og hver vit- leysan rak aöra. Sem dæmi um hve leiðinlegur leikurinn var, má nefna, að krakkarnir á áhorfendapöllunnum voru komnir i eltingaleik á pöllunum nokkru áður en leiknum lauk. Yfirburðir Þróttara jukust enn meir i siöari hálfleiknum, og þegar upp var staðið höfðu þeir tryggt sér 10 marka sigur 29—19. Erfiðari verkefni biöa nú Þróttara á næstunni. Þeir leika fljótlega við Vikling i bikar- keppninni, og i 4-liöa úrslitum Evrópukeppninnar eiga þeir eftir aö lenda gegn mjög sterku liöi. Svo mikiö er vist. Þegar sá gallinn er á þeim, eru Þróttarar örugglega eitt af þremur bestu liðum landsins, og á góðum degi geta þeir lagt Viking að velli, en þá verða þeir að sýna annað og betra en tvö undanfarin kvöld, en það vita þeir best sjálfir. Italir eru enn mörgum árum á eftir okkur I handboltanum, og þrátt fyrir ýmsa vel útfærða hluti, eiga þeir margt eftir ólært. Ég mæli með skotæfing- um einvörðungu næstu 6 mán- uöina, þvi fæstir þeirra hafa nægilegan skotkraft. Siggi Sveins skoraði mest fyrir Þróttara eða 8 mörk, en næstur kom Gunnar Gunnars- son með 7. Moretti skoraði 6 mörk fyrir Tacca. — B.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.