Þjóðviljinn - 23.03.1982, Qupperneq 12
12 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 23. mars 1982.
RÍKISSPÍTALARNIR
lausar stödur
LANDSPÍTALINN
SÉRFRÆÐINGUR i svæfingum óskast
við svæfinga- og gjörgæsludeild Land-
spitalans.
Umsóknir er greini frá menntun og fyrri
störfum sendist stjórnarnefnd rikisspital-
anna fyrir 7. mai n.k.
Upplýsingar veitir yfirlæknir deildarinnar
i sima 29000.
SKURÐSTOFUHJUKRUNARFRÆÐ-
INGUR óskast á göngudeild Land-
spitalans. Vinnutimi frá kl. 14.30 til 18.30
fjóra daga i viku. Einnig óskast
HJUKRUNARFRÆÐINGUR á lyf-
lækningadeild 4 nú þegar.
Hlutastarf kemur til greina.
Upplýsingar um ofangreind störf veitir
hjúkrunarforstjóri i sima 29000.
Reykjavik, 21. mars 1982
RÍKISSPÍTALARNIR
Sölumaður
Innflutningsdeild Sambandsins óskar eftir
að ráða sölumann sem fyrst.
Góð enskukunnátta svo og reynsla i sölu-
störfum æskileg.
Skriflegar umsóknir með upplýsingum
um menntun og fyrri störf sendist starfs-
mannastjóra fyrir 29. þ.m.
SAMBAND ISL.SAMVINNUFELAGA
STARFSMANNAHALD
Skrif stofust j óri
Innflutningsdeild Sambandsins óskar eftir
að ráða i starf skrifstofustjóra sem fyrst.
Nauðsynlegt er að umsækjandi hafi
reynslu á sviði skrifstofustjórnar og við-
skipta.
Skriflegar umsóknir með upplýsingum
um menntun og fyrri störf sendist starfs-
mannastjóra fyrir 29. þ. mán.
SAMBANDISL. SAMVINNUFELAGA
STARFSMANNAHALO
félag
bókageröar-
manna
&
Félagsfundur
verður haldinn miðvikudaginn 24. mars
1982 og hefst kl. 17.00
Fundarstaður: Hótel Borg.
Dagskrá: 1. Samningamálin.
2. önnur mál •
Félagsmenn mætið vel og takið þátt i
mótun kröfugerðarinnar.
Stjórn FBM
Byggöasiónarmið
raði ierðinm
Fyrir síðasta Búnaðar-
þingi lá erindi frá
Búnaðarsambandi Aust-
urlands „um svæðis-
bundna skipulagningu
landbúnaðarf ram-
leiðslu". Hér er hreyft at-
hyglisverðu máli og
kannski nokkuð nýstár-
legu, sem full ástæða er
fyrir bændur að gefa
gaum og ræða, þótt við-
kvæmt kunni að vera.
Viö náöum tali af Sigurjóni
Friörikssyni, bónda I Ytri-Hliö i
Vopnafiröi, sem er annar full-
trúi Austfiröinga á Búnaöar-
þingi, og inntum hann nánar
eftir þessu erindi þeirra Aust-
firöinganna. Fyrsta spurning
blaöamanns beindist þó ekki aö
þvi heldur Búnaöarþinginu
sjálfu.
Annasamt þing
— Mér skilst aö þetta sé jafn-
vel óvenjulega annasamt
búnaöarþing, Sigurjón.
— Já, þaö hefur nú verið það.
Til þingsins hefur aö þessu veriö
visaö 62 málum og vel má vera,
aö einhverra sé enn aö vænta.
Þetta er mun meiri málafjöldi
en áöur hefur legiö fyrir þing-
inu. Þar aö auki má segja, aö
jafnvel óvenju margt af þessum
málum veröi aö teljast mjög
þýðingarmikil, kref jast mikillar
vinnu og vandaörar afgreiöslu.
Þau eru af ýmsum toga og sýnir
þaö vel hvaö landbúnaöurinn er
fjölþætt og margslungin at-
vinnugrein.
Annir á þinginu hafa þvi veriö
óvenjumiklar, einn og tveir
þingfundir á dag og síöan þrot-
laus nefndastörf. Hér er unnið
alla daga og einnig um helgar.
Þó aö segja megi aö Búnaöar-
þing fjalli fyrst og fremst um
mál bændastéttarinnar þá
snerta mörg þeirra einnig aðrar
stéttir starfshópa þjóðfélagsins.
Þaö er mikill misskilningur,
sem jafnvel veröur vart hjá
blaöamönnum, aö hér séu menn
bara á „kjaftaþingi” milli þess
sem þeir sitji i veisluhöldum.
Nú er búiö aö samþykkja
breytingu á þingsköpum, sem
ætti aö auövelda þingstörfin.
Fjölgaö veröur um eina þing-
nefnd og kemur sú breyting til
framkvæmda á næsta Búnaöar-
þingi.
Skipulagning bú-
vöruframleiöslunnar
Nú liggur fyrir þinginu erindi
frá ykkur Austfirðingum um
athugun á þvi aö skipuleggja
búvöruframeliðsluna eftir
landshlutum.
— Já og i erindinu segir m.a.
svo:
„Stjórn Búnaöarsambands
Austurlands beinir þvf til
Búnaöarþings aö þaö fjalli um
hvort og á hvern hátt veröi
komiö á skipulagningu hefö-
bundinnar landbúnaöarfram-
leiöslu meö þau markmiö, aö
samdráttur i sauöfjárfram-
leiöslu og engin aukning á fram-
leiðslu mjólkur, kom ekki þaö
þungt niður á strjálbýlum, fá-
mennum byggöarlögum, aö
byggöinni þar veröi hætt viö aö
brotna alveg niður.”
Ég hygg aö þetta segi i megin-
atriöum hvaö fyrir okkur vakir.
Mál, svipaðs eðlis, kom svo frá
formannafundi búnaöarsam-
bandanna.
Ég er ekki frá þvi, aö telja
megi þessi mál ein hin viða-
mestu, sem fyrir þinginu liggja.
Við stöndum nú frammi fyrir
þvi, aö dilkakjöt veröur ekki
flutt út án stórfelldra útflutn-
ingsbóta. Leiö hefur engin fund-
ist til tausnar á þvi nema sú, aö
draga úr framleiöslunni.
Með fullri gát
En þaö er ekki sama hvernig
aö þvi er staöiö. 1 afskekktari
byggöum og um leið þeim, þar
sem flest býli hafa fariö i eyöi,
er aö lang mestu leyti stunduö
sauðfjárrækt. A flestum þessum
býlum er bústofninn tiltölulega
litill. Ef samdráttur i sauðfjár-
framleiðslu yrði látinn ná til
þessara byggöa án þess aö
annaö kæmi þar i staöinn, leiddi
þaö þar til landauönar og þar
meö verulegrar byggöarösk-
unar, nema þá að nýjar bú-
greinar kæmu til. Hér þarf þvi
að fara aö meö fulltri gát, stuðla
aö þvi aö sauðfjárafuröir séu
einkum framleiddar á þeim
svæöum þar sem þaö er hentug-
ast svo sem i uppsveitum og þar
sem afréttarlönd eru góö og i
góöu ástandi en mjólkurfram-
leiðslan fremur stunduö i lág-
sveitum.
Ég veit aö þaö er erfitt aö taka
á þessu máli og einhverjir vilja
kannski kalla þetta sósislisma.
En þaö skiptir i sjálfu sér engu
heldur hitt, aö skipulega og
skynsamlega sé á málinu tekiö
og af bændum sjálfum. Þeim er
best og raunar einum til þess
treystandi. En þessu verður
ekki breytt á einu ári. Þaö tekur
sinn tima og veröur aö gerast
smátt og smátt. Hér veltur öllu
öðru fremur á félagsþroska
bændanna sjálfra.
— Þú sagðir áöan aö e.t.v.
gætu aukabúgreinar eitthvaö
létt undir.
— Já, ef draga ætti úr sauð-
fjárrækt þar sem hún er svotil
eina búgreinin og búin jafn-
framt þaö smá aö þau mega
ekki minnka, þá hljóta menn aö
horfa til aukabúgreina, svo sem
loödýra- og fiskiræktar og aö
slikar stuðningsgreinar veröi
fjárvæddar svo, að þær geti
komiö aö gagni til viöhalds
byggðinni. Lána- og styrkja-
kerfi landbúnaöarins þyrfti og
aö beita til þess aö auðvelda
þessa breytingu.
Þáttur Búnaðarþings
— Hvernig tók Búnaöarþingið
á þessum erindum?
— Búnaðarþing lagöi áherslu
á þaö, aö stóraukin veröi
markaösleit fyrir búvöru, fjöl-
breytni aukin i vinnslu, sölu-
starfsemi efld og landbúnaðar-
ráöuneytiö hlutist til um að út-
flutningur búvara veröi tekinn
inn i viöskiptasamninga viö er-
lend riki.
Ef á hinn bóginn að þessar
aögerðir bera ekki árangur i
tæka tiö, virðist einsýnt aö
draga veröi úr sauðfjárfram-
leiöslunni og þá riði á öllu aö þaö
sé gert meö skipulegum hætti og
byggðasjónarmiö ráöi ferðinni.
Þvi er nauösynlegt aö lokiö
veröi sem fyrst könnun á stööu
landbúnaöarins i einstökum
mhg rœðir við
Sigurjón Frið-
riksson, bónda i
Ytri-Hlíð í
Vopnafirði um
framleiðslu- og
markaðsmál
landbúnaðarins,
skipulagningu bú-
vöruframleiðsl-
unnar, störf Bún-
aðarþings o.fl.
Sigurjón Friðriksson: „Þjóöin
öll þarf aö gera sér grein fyrir
þvi, aö ef bændum fækkar aö
einhverju marki frá þvi sem
orðið er og eðlileg endurnýjun
stéttarinnar á sér ekki staö, þá
stöndum viö frammi fyrir veru-
legri þjóölifsröskun er hefur i
för meö sér margháttaðan
vanda, sem fjarri fer aö snerti
bændur eina”.
byggöarlögum svo ljóst veröi
hvar má ganga nær en orðið er
og hvar ekki, eigi byggö aö
haldast, eöa eins og segir i á-
lyktun Búnaöarþings:
„Búnaðarþing telur aö þessi
könnun sé nauösynleg forsenda
þess, aö nýjar búgreinar og
önnur atvinnutækifæri veröi
staðsett þannig, aö þau komi aö
notum til þess aö draga úr
áhrifum af samdrætti i fram-
leiðslu afuröa af nautgripum og
sauöfé og styrkja byggöina þar,
sem hún er vikust fyrir”. Enn-
fremur: „I framhaldi af úttekt-
inni veröi unniö skipulega að
uppbyggingu nýrra atvinnu-
greina i sveitum og stefnan i
lána- og fjárfestingarmálum
landbúnaöarins viö þaö miöuö”.
Nýgreinanefnd
Rétt er og aö benda á þaö hér,
að Búnaðarþing samþykkti
ályktun þar sem þess er farið á
leit viö landbúnaðarráðherra að
hann gangist fyrir þvi aö skipuö
veröi fimm manna nefnd,
(nýgreinanefnd), sem hafi for-
göngu um skipulegt átak til upp-
byggingar og eflingar nýrra bú-
greina i sveitum, aukningu ann-
arra atvinnumöguleika þar,
samræmingu aögeröa er aö
þessu lúta og geri tillögur um
fjármagnsfyrirgreiöslu. Aöild
aö þessari nefnd eigi, auk land-
búnaöarráðuneytisins, Bún-
aðarfélag íslands, Stéttarsam-
band bænda, Framleiðsluráð
landbúnaðarins og Fram-
kvæmdastofnun rikisins.
Þýöingarmikiö er aö einhver
einn aöiii hafi á hendi heildar-
umsjón meö þessum málum,
geri tillögur um skipulag þeirra,
verkefnaval og ráöstöfun þess
fjár, sem fyrir hendi er á
hverjum tima. Var erindi um
þetta lagt fyrir Búnaðarþing af
stjórn Stéttarsambands bænda.
Bölvaldurinn mesti
Þjóðin öll þarf aö gera sér I
grein fyrir þvi, að ef bændum |
fækkar aö einhverju marki frá
þvi, sem oröi er og eölileg
endurnýjun stéttarinnar á sér
ekki stað, þá stöndum viö
frammi fyrir verulegri þjóölifs-
röskun, er hefur i för meö sér
margháttaöan vanda, sem
fjarri fer aö snerti bændur eina.
Þaö fólk, sem fer úr sveitunum,
veröur að leita sér staöfestu
annarsstaöar i þjóölifinu en viða
sýnist þröngt fyrir dyrum i þeim
efnum og flestir hafa nóg með
sig.
Höfuö bölvaldurinn i öllu
okkar efnahags- og atvinnulifi
er veröbólgan. Ef framleiöslu-
kostnaður hér væri meö eðli-
legum hætti væri engum vand-
kvæöum bundiö aö flytja út bú-
vörur meö góöum árangri. Og
hvaö vantar veröldina fremur
en matvæli?
Hér sló Búnaðarþingsfundur
botninn i samtaliö. —mhgj