Þjóðviljinn - 24.03.1982, Side 3
Miövikudagur 24. mars 1982 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 3
Borgarráð krefst
staðfestingar á
gjaldskrárhœkkunum
Áskilur
sér
bótarétt
Á fundi borgarráðs Reykjavik-
ur var samþykkt einróma að
beina þvi til iðnaðarráðherra að
hann staðfesti nú þegar 13.5%
hækkun á gjaldskrá Hitaveitu
Reykjavikur og 22% hækkun á
gjaldskrá Rafmagnsveitu
Reykjavikur, sem borgarráð
hefur fyrir nokkru samþykkt
fyrir sitt leyti i samræmi við það
álit þess að verðstöðvun sé úr
gildi fallin á gjaldskrám opin-
berra fyrirtækja. Borgarráð telur
það einungis formsatriði að fá
staðfestingu ráðherra á hækkun-
inni.
Borgarráð krefst bóta fyrir
tekjutap veitustofnana hafi gjald-
skrár ekki verið staðfestar fyrir
1. april næstkomandi og vekur at-
hygli á þvi að ráðherra geti
skapað rikissjóði bótaskyldu með
þvi að draga ákvörðunatöku
óeðlilega. Hjörleifur Guttorms-
son iðnaðarráðherra sagði i gær
að sér hefði ekki borist sam-
þykkt borgarráðs og hefði hann
ekkert um málið að segja aö svo
stöddu.
—ekh
Norræna húsið:
Den allvar-
samma
leken
Nýleg sænsk kvikmynd frá ár-
unum 1976-77 verður sýnd i Nor-
ræna húsinu i kvöld kl. 20.30
Den allvarsamma leken gerist
fyrir og um aldamótin siðustu og
fjallar um ástarsamband ungs
blaðamanns og dóttur listmálara
i sænska skerjagarðinum. Sam-
timaatburðir eins og Dreyfus-
málið tengjast sögunni sem er
byggð á skáldsögu Hjalmars
Söderberg frá 1912. Leikstjóri
myndarinnar er Anja Breien.
Myndin er gerð i samvinnu
sænskra og norskra fram-
leiðenda. Myndin er sýnd á veg-
um sænska sendikennarans við
Háskólann. Aðgangur er ókeypis.
15 nýir vagnar hafa bæst i flota SVR undanfariö. Nýtt leiðakerfi I borginni innan tlöar. Ljósm. gel.
Leiðakerfi Strætisvagna Reykjavíkur:
Nýtt leiðakerfi
1 burðarliðnum
Stórfelldar breytingar eru
fyrirhugaöar á leiöakerfi Stræt-
isvagna Reykjavikur og mun
lögö megináhersla á aö bæta
verulega þjónustu viö Ibúa út-
hverfa borgarinnar. Þetta kom
fram i máli Guörúnar Agústs-
dóttur, stjórnarformanns SVR
og varaborgarfulltrúa Alþýöu-
bandalagsins viö umræöur I
borgarstjörn.
Lagt er til aö úthverfunum
verði þjónað með 5 hraðleiðum
og fimm hægleiðum sem allar
kæmu á sama tima á nýja
skiptistöð i Mjódd i Breiðholti.
Við þessa ráðstöfun skapast
einnig góð tengsl við austur-
hluta Kópavogs, en talsverður
samgangurer þar á milli leiðar-
kerfa.
Guðrún Agústsdóttir kvaðst
vonast til að hið nýja leiðakerfi,
sem verið hefur i athugun frá
þvl I ársbyrjun 1981, liti brátt
dagsins ljós. Ibúum Breiðholts,
Árbæjarhverfis og Eiðsgranda
væri mjög að fjölga og þvi yrði
Guörún Ágústsdóttir stjórnar-
formaður SVR: miklar breyt-
ingar framundan á leiöakerfi
strætisvagnanna.
kappkostað að haga nýju leiöa- I
kerfi I samræmi við þaö. Sam ■
kvæmt lauslegum útreikningum I
yröi aö fjölga vögnum um ca. I
20%. Við þetta kemur reksturs- I
kostnaðurinn til meö að aukast *
um 15%, en verði ekki keyptir I
fleiri vagnar er ljóst að kostnað- I
ur við rekstur þeirra sem nú eru I
i notkun, mundi aukast veru- ■
lega. Þess má geta að á núver- I
andi fjárhagsáætlun Reykjavik- I
urborgarer gert ráð fyrir tæp- I
lega 13 milljónum króna til ■
kaupa á nýjum vögnum, en 15 I
vagnar hafa bæst i flota SVR á I
siðustu misserum.
Fram kom i máli Guðrúnar 1
við umræöumar i borgarstjórn
að farþegum SVR hefur fækkað
úr 17 miljónum 1962 i aðeins 11
miljónir 1980. Hins vegar hefur
á siðustu tveim árum tekist aö ,
snúa þessari óheillaþróun við og ■
er aukning farþeganna frá 1980 I
um 13%. Aftur á móti hafa leiðir I
lengst og hlutfall reksturskostn- ,
aðar stórhækkað undanfarin ár. ■
Skákkeppni
stofnana:
Sveit ríkis-
spítalanna
sigraði
— Þjóðviljinn
varð í 7. sæti
A sveit Rikisspitala sigraöi i
skákkeppni stofnana sem lauk
siöastliöiö mánudagskvöld. Sveit-
in haföi talsveröa yfirburöi i
keppninni og fékk 2 1/2 vinning
fram yfir næstu sveit, sem var A-
sveit Búnaðarbankans. Búnaðar-
bankinn hefur unniö keppni þessa
tvö undanfarin ár og reyndar má
segja aö meö sigri Rikisspital-
anna hafi margra ára einokun
bankaveldisins veriC aflétt. Sveit
Rikisspitalanna var skipuö þeim
Sævari Bjarnasyni, Dan Hansson,
Róbert Haröarsyni og Lárusi
Johnsen. Röö 10 efstu sveitanna
varö annars sem hér segir:
1. A-sveit Rikisspitalanna 23v.
2. Búnaðarb. A-sveit 20 l/2v.
3. Verkamannabúst. 20v.
4. Grunnskólar Rvk. 17v.
5. Landsbankinn A-sveit 16 l/2v
6. Útvegsbankinn 16v
7. Þjóöviljinn 15v
8. Morgunbl. 14 l/2v
9. Flugleiðir 14v
10. C-sveit Rikisspitala 13v
Sveitirnar i A-riðli stofnana-
keppninnar voru 22 talsins en i B-
riðli þar sem keppni er ekki lokið
eru sveitirnar 24. Hraðskák-
keppni stofnana fer fram næsta
mánudagskvöld.
— hól.
Deila starfsfólks
ríkisverksmiðjanna
Hægt mlðar
Hægt miðar i samkomulagsátt i
deilu starfsfólks rikisverksmiðj-
anna og vinnumálanefndar. Deilu
þessara aðila var visað til rikis-
sáttasemjara fyrir u.þ.b. hálfum
mánuði siðan en fyrir hönd em-
bættisins fer Guðmundur Vignir
Jósepsson vararikissáttasemjari
með málið. Guðlaugur Þorvalds-
son rikissáttasemjari er i leyfi
um þessar mundir. Samkvæmt
þeim upplýsingum sem Þjóðvilj-
inn hefur aflað sér er verið að
fara yfir kröfur starfsfólks rikis-
verksmiðjanna og stóð l'undur
nær samfellt frá kl. 10 i gær-
morgun og langt fram á dag.
—hól
Böðvar Guömundsson Raul Flores Ayala
E1 Salvador
Almennur fundur í Félagsstofnun stúdenta
Komið og kynnið ykkur hvað er að gerast í El Salvador
frá fyrstu hendi í Félagsstofnun Stúdenta kl. 20.30 á
f immtudagskvöldið.
Aðalræðumaður kvöldsins eru fulltrúi andstöðuafl-
anna FDR-FMLN í El Salvador, Raul Flores Ayala.
Fundarstjóri er Böðvar Guðmundsson.
Sýnd verður ný kvikmynd um ástand mála í El Salva-
dor og fyrirspurnum svarað.
Að fundinum standa Alþýðubandalagið, Framsóknar-
flokkurinn, Kommúnistasamtökin, Fylkingin og El-
-Salvadornefndin á Islandi.
El Salvador-nefndiná Islandi
Aðalfundur Félags járniðnaðarmanna
Byrjað verði á skipa-
verkstöð sem fyrst
Félag járniðnaðar-
manna hefur á aðalfundi
beint þvi til borgarfull-
trúa og alþingismanna
Reykjavikur að þeir
beiti sér sérstaklega
fyrir þvi að útvegað
verði fjármagn til upp-
byggingar skipaverk-
stöðvar i Reykjavik og
hafist verði handa hið
fyrsta við framkvæmdir
á uppbyggingu skipa-
verkstöðvarinnar.
I samþykkt aöalfundarins er
aödragandi og staöa þessa máls
rakin nokkuö. Þar segir:
„Félagsmenn Félags járniön-
aöarmanna fögnuðu þvl er núver-
andi rikisstjórn var mynduð, aö i
stjórnarsáttmála hennar er
ákvæði um aö stuölað veröi aö
byggingu skipaverkstöövar i
Reykjavik. Einnig hafa félags-
menn Félags járniðnaöarmanna
fagnað samþykktum hafnar-
stjórnarinnar i Reykjavik frá 5.
april 1979 og 28 ágúst 1981, um aö
hefja undirbúning aö uppbygg-
ingu frambúöaraðstööu fyrir
skipaverkstöð I Kleppsvik. Þær
samþykktir voru siöar staöfestar
samhljóöa af Borgarstjórn
Reykjavikur.
Meginhluti Islenskra kaup-
skipa, um fjóröungur fiskiskipa-
stóls landsmanna, eiga heima-
höfn á höfuöborgarsvæðinu, auk
allra hafrannsókna- og varö-
skipa. Eölilegt og sjálfsagt er bvi
aö aöstaöa til viögeröa- og viö-
haldsþjónustu fyrir þessi skip og
önnur, sé fyrir hendi I Reykjavik.
en mikið vantar á aö svo sé, enda
hefur aðstaða til skipaviögerða-
þjónustu I Reykavik verið i aftur-
för mörg hin siöari ár. Vegna
ófullnægjandi skipaupptöku og
annarrar aöstööu til skipaviö-
geröaþjónustu, hefur atvinna viö
slík verkefni minnkaö verulega i
Reykjavik.
Vér teljum aö borgarfulltrúum
i Reykjavik svo og öllum al-
þingismönnum kjörnum á höfuö-
borgarsvæðinu beri skylda til aö
sinna alvarlega atvinnuuppbygg-
ingu þar og koma I veg fyrir aö
atvinnutækifærum fækki i
Reykjavik. 1 þvi efni er rétt aö
benda á aö höfuöborgarsvæöiö er
eitt sameiginlegt atvinnusvæði,
t.d. vinna fjölmargir sem búsettir
eru I nágrannabyggöarlögum i
Reykjavi'k og Reykvikingar
starfa hjá fyrirtækjum sem staö-
sett eru I nágrenni Reykja-
vikur.”.
— ekh