Þjóðviljinn - 24.03.1982, Qupperneq 8
Miövikudagur 24. mars 1982 1>JÓÐVILJINN — SÍÐA 9
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 24. mars 1982
Bandariski herinn hefur nú hafið framleiðslu á
nýrri gerð eiturvopna i stórum stil. Hluti af eitur-
efnaforðabúri bandariska hersins er í Vestur-
Þýskalandi og ótti hefur nú gripið um sig meðal al-
mennings í Vestur-Þýskalandi vegna þessa. Hér
birtum við útdrátt úr greinargerð um málið, sem
birtist i Der Spiegei i febrúar s.l.
NATO-hcrmaöur útbúinn til eiturhernaöar.
„EITURSKÝ
yfir
Evrópu"
Mynd þessi sýnir með
einfölduöum hætti
hvernig hinar nýju tvö-
földu eiturbombur
bandaríska hersins eru
gerðar. Sprengjan hefur
tvö hólf sem innihalda
annars vegar isopropyl-
alkóhól og efnahvata (A)
og methylphosphonyldi-
fluorid (B) hins vegar.
Þegar flytja á sprengj-
una á vígvöllinn er hylkj-
um með þessum efnum
komið fyrir i sprengju-
hólknum (C). Þegar
sprengju þessari er skotið
rifnar málmhimnan, sem
Banvæn
blanda
A
aðskilur hylkin tvö, og 3 á mynd. i oddi sprengj-
vökvar þeir, sem þau unnar er tundur sem
hafa að geyma blandast springur þegar hún lendir
fyrir tilverknað snúnings og við það opnast
sprengjunnar (15 þús. sprengjan (4) og banvænt
snún. á mínútu). Sjá 2 og ský myndast (5).
Næst á eftir nifteindasprengjunni og midlungsdrægu eldflaugunum: eiturgas fyrir Evrópu
Stjórn Reagans
Bandaríkjaforseta hefur
áformað að verja um
það bil 6 miljörðum doll-
ara til framleiðslu eitur-
gass og eiturefna fyrir
Bandarikjaher á næstu
fimm árum. Bygging
eiturgasbombuverk-
smiðju i Pine Bluff i
Arkansas er þegar haf-
in, þar sem framleiða á
hinar svokölluðu tvö-
földu eiturgasbombur og
tilheyrandi skotbúnað
fyrir fær.
Þetta kemur fram i greinar-
gerð um vigbúnaðarkapphlaupið
á sviði eiturefnahernaðar, sem er
meginefni vesturþýska timarits-
ins Der Spiegel frá 22. febr. s.l.
Verður hér reynt að stikla á
nokkrum athyglisverðum upplýs-
ingum sem fram koma i þessari
greinargerð.
Þegar eru fyrir hendi i banda-
riskum vopnabúrum sprengjur og
bombur, sem hafa að geyma
taugagas. Samanlagt munu þess-
ar birgðir nema 150.000 tonnum,
og þar af munu um 4000 tonn vera
geymd i Vestur-Þýskalandi.
„150.000 tonn eiturefnavopna
nægja 50 herdeildum til 100 daga
hernaðar, og færi sá hernaður
fram i Evrópu mundi að þeim
tima liðnum vart vera sá maður
uppistandandi i álfunni, sem vert
væri að eyða vopnum á ” — er haft
eftir bandariska þingmanningum
Clement Zablocki.
„Vigbúumst
til að afvopnast”
I Caspar Weinberger hefur lýst
þviyfir, að þrátt fyrir þann mikla
forða, sem Bandarikjamenn hafi
þegar komið sér upp af tauga-
gasi, þá séu Sovétrikin mun betur
li stakk búin til sliks hernaðar, og
‘þvi þurfi Bandarikin að bæta hér
úr, svo um muni. Slagorð það sem
lýsir best rikjandi stefnu i Banda-
rikjunum nú, var formað af
NATO-hershöfðingjanum Bern-
ard Rogers fyrir skömmu: „Viö
veröum að vigbúast nú, til þess aö
geta afvopnast siöar.”
Endurnýjun og tæknileg full-
komnun eiturefnavigbúnaðarins
er að sögn vestur-þýsks þing-
manns „þriðja stigiði fullkomnun
gjöreyðingarvopnabúrs Vestur-
landa” á eftir smiði nifteinda-
sprengjunnar og hinna miðlungs-
langdrægu kjarnorkueldflauga.
Reagan Bandarikjaforseti hef-
ur látið i ljós þá skoðun, að her-
væðing með eiturvopnum sé
nauðsynleg „ekkibara til þess að
hræða hugsanlegan andstæðing,
heldur sé slik hervæðing mikil-
vægtskref i áttina að þvi að koma
á algjöru banni við eiturefna-
vopnum”. Þetta er kjarni hinnar
svokölluðu „tvöföldu ákvörð-
unar”, sem mótað hefur stefnu
NATO eftir að Reagan komst til
valda, en stefna þessi hefur verið
mjög umdeild innan NATO, ekki
sist meðal jafnaðarmanna i
Vestur-Þýskalandi, Hollandi og
Danmörku.
Eiturgas handa
Evrópubúum
Astæðan er nokkuð augljós:
Yfirlýsingar bandariskra ráða-
manna og öll rök benda til þess,
að þessi gjöreyðingarvigbúnaður
sé fyrst og fremst ætlaður fyrir
Evrópu, og staðsetning hluta af
eiturvopnaforða NATO i V-
Þýskalandi er augljóst visbend-
ing um að þessi eiturvopn eru
fyrst og fremst framleidd til notk-
unar i Mið-Evrópu.
Sem von er hefur almennings-
álitið i Evrópu tekið með tak-
mörkuðum fögnuði yfirlýsingum
Reagans um möguleika á tak-
mörkuðu kjarnorkustriði i
Evrópu, en til þess mun nift-
eindasprengjan fyrst og fremst
hafa verið smiðuð. En sérfræð-
ingar benda á, að eiturgashern-
aður komi enn ver niður á
óbreyttum borgurum en nokkurn
timann nifteindasprengjan. Einn
af starfsmönnum Pentagon hefur
sagt i tilefni ákvörðunar Reagans
um aukana eiturvopnafram-
leiðslu að „viðurkenna verði, að
eiturgasframleiðslan veki ótta
meðal almennings, en hins vegar
verði að taka það með i reikning-
inn, að eiturgasvopnin séu mun
ódýrari og valdi mun minna tjóni
utan vigvallarins en kjarnorku-
sprengjurnar”.
Það kom hins vegar iljós i til-
raun, sem gerð var i mars 1968
með eiturgasið VX i Utah i
Bandarikjunum, að þessi stað-
hæfing er röng. Þá gerðist það að
6400 sauðkindur dóu úr krampa
langt frá þeim stað, þar sem til-
raunir með efni þetta fóru fram.
Eftir að herinn hafði i 14 mánuði
neitað að eiga nokkurn þátt i f jár-
dauða þessum, var það loksins
viðurkennt, að 80 litrum af eitur-
gasi hafði verið úðað úr flugvél i
of mikillihæð vegna bilunar, sem
kom fram i tankútbúnaði vélar-
innar. 1 úrskurði rannsóknar-
nefndar Bandarikjaþings um mál
þetta sagði, að „vindur hefði bor-
ið taugagasið margra milna
vegalengd, en hins vegar hefði
mátt þakka það vindáttinni, að
gasið barst ekki yfir byggð
svæði.” Sauðféð, sem varð fyrir
gaseitruninni, var á beit á 500 fer-
kílómetra svæði, en á jafn stóru
svæði i Vestur-Þýskalandi búa að
meðaltali 128.394 manns, eins og
bandariska timaritið Harper’s
Magazine benti á.
Krampa-
og köfnunardauði
fyrir miljónir
Von er að Vestur-Þjóðverjum
stafi stuggur af þeim birgðum
eiturgass, sem nú eru geymdar i
Vestur-Þýskalandi. Gastegundin
VX, sem Reagan er nú að hefja
framleiðslu á i stórum stil, er
áhrifarikari en nokkur önnur gas-
tegund, sem áður hefur verið not-
uð i hernaði. Gas þetta gerir lifs-
nauðsynlegan efnahvata sem sér
um taugaboð i likamanum óvirk-
an, þannig að eitrunin kemur
fram i vöðvakrampa sem endar
með köfnun. Einn litri af þessu
efni mun nægja til þess að drepa
milljón manns og eitra fyrir ann-
arri milljón. Samkvæmt upplýs-
ingum Der Spiegel eru nú geymd-
ar 4 milljónir af gastegundinni
VX (og GB, sem hefur svipuö
áhrif) I vopnabúrum Bandarikja-
hers i Hessen, Rheinland-Pfalz og
Baden-Wörttemberg.
Eiturgas var fyrst notað i hern-
aði i fyrri heimsstyrjöldinni, en
þá urðu 1,3 milljónir hermanna
fyrir gaseitrun og af þeim dóu
91.000. Þessi eiturgashernaður
átti sér fyrst og fremst stað i Mið-
Evrópu. Arið 1925 var gerður al-
þjóðlegur samningur er stefndi að
útrýmingu eiturefna i hernaði.
Þessisamningur, sem kallaður er
Genfarsamningurinn, var undir-
ritaður af 42 rikjum, en Banda-
rikin undirrituðu hann ekki fyrr
en árið 1975, þegar þau höfðu
sprautað 40.000 tonnum af
gróðureyðingarlyf jum yfir
Vietnam.
„Orðrómur”um sov-
éskan eiturhernað
Eftir það mikla hernaðarlega
og siðferðilega skipbrot, sem
Bandarikin biðu i Vietnam var
öllum beiðnum um fjárveitingar
til eiturgasframleiðslu hafnað á
Bandarikjaþingi. Það var fyrst
eftir að bandariska leyniþjónust-
an hélt þvi fram að Vietnamar
hefðu notað eiturgas i Kampútseu
og Sovétmenn i Afghanistan, sem
Carter-stjórnin leyföi að fram-
leiðsla á eiturgasi yrði hafin á ný
og 3,5 milljónum dollara var var-
ið til byggingar eiturefnaverk-
smiðjunnar i Pine Bluff.
Þessar ástæður, sem Banda-
rikjamenn hafa gefið upp fyrir
eiturgasframleiðslu sinni, hafa þó
aldrei verið sannaðar, og eins og
gefur að skilja, þá hafa bæði
rikisstjórnir Vietnam, Sovétrikj-
anna og Afghanistan neitað þess-
um ásökunum um eiturhernað.
Tveir háttsettir fulltrúar banda-
risku leyniþjónustunnar voru að
þvi spurðir i yfirheyrslu þing-
nefndar, hvort upplýsingar þær,
sem þeir byggju yfir varðandi
eiturefnahernað i Afghanistan
væru byggðar á sönnunum eða á
orðrómi. Þeir svöruðu báðir, að
hér væri um orðróm að ræða, sem
ekki væri staðfestur eða sann-
aður. Annar þessara leyni-
þjónustumanna lýsti þvi jafn-
framt yfir, að hann sæi ekkert
rangt vib það, að slikum orðrómi
væri komið af stað.
Áróðursstríð
Þótt eiturefnahernaður Sovét-
manna i Afghanistan hafi þannig
verið dreginn stórlega i efa, þá
telja jafnvel gagnrýnendur
áforma Reagan-stjórnarinnar um
eiturefnaframleiðslu i hernaðar-
skyni það litlum vafa undirorpið,
að Sovétmenn séu búnir undir
eiturefnahernað. Þannig heldur
t.d. yfirmaður rannsóknardeildar
Konrad Adenauerstofnunarinnar
þvi fram, að Sovétmenn búi yfir
200-700 þús. tonnum af eiturefna-
vopnum. Sérfræðingur þýska
sósialdemókrataflokksins hefur
hins vegar sagt, að „sérhver sá
útreikningur á styrkleikahlutföll-
um, sem stuðningsmenn eitur-
efnahervæðingarinnar hafa
brugðið fyrir sig, sé áróðurs-
leikur, sem hvorki verði hrakinn
né sannaður með fræðilegum rök-
um.”
Reagan sleit
afvopnunarviðræðum
Arið 1974 komu þeir Nixon og
Bresjnef sér saman um að
Bandarikin og Sovétrikin skyldu
hefja tvihliða viðræður um út-
rýmingu eiturefna i hernaði. A
árunum milli 1976 og '80 hittust
sendinefndir rikjanna 12 sinnum i
Genf. Siðasti viöræðufundurinn
átti sér stað i Genf 1980, og sam-
kvæmt orðum bandariska
varnarmálaráðuneytisins endaði
hann með „litilvægum árangri,
þar sem miklar hindranir væru i
vegi fyrir samkomulagi”. Þegar
Ronald Reagan kom til valda var
þessum samningaviðræöum hætt.
Það er fyrst núna, eftir að Reag-
an hefur ákveðið að hefja fram-
leiðslu á eiturvopnum i stórum
stil, sem hann lætur þau orð falla,
að hann hafi áhuga á að taka
þessar samningaviðræður upp að
nýju. Hins vegar hafa gagnrýn-
endur Reagans i öldungadeild
þingsins lýst þessu tilboði Reag-
ans eins og „sykurhúð” sem
Reaganstjórnin noti til þess að
hylja með „bragðvondan og óæt-
an rétt”. Sérfræðingur Þýska
jafnaðarmannaflokksins i af-
vopnunarmálum hefur sagt um
þetta tilboð Reagan-stjórnarinn-
ar, að það sé liður i „vel undirbú-
inni áróðursherferð,” sem miði
að þvi að fá almenning til þess að
taka við þeirri eitursúpu, sem nú
sé verið að malla i Pine Bluff-
verksmiðjunum.
Reagan
skellir skuldinni
á Sovétríkin
Þegar umræður fóru nýverið
fram á öryggisráðstefnunni i
Madrid, ásakaði Kampelman,
fulltrúi Reagan-stjórnarinnar,
Sovétmenn um að hafa notað
efnavopn i Afghanistan, Laos og
Kampútseu, auk þess sem hann
sagði, að 1000 sovéskir borgarar
hefðu látið lifið i slysi, sem orðið
hefði i eiturefnaverksmiju i
Swerdlowsk. Sovéski fulltrúinn
lýsti þessu sem hinni örgustu
lygi, en bandariski fulltrúinn
sagði, að með brotum sinum á al-
þjóðasamkomulagi um bann við
notkun eiturefna hefðu Sovétrikin
leitt Bandarikin út f þáð aö hefja
framleiðslu þessara vopna á ný.
Eiturgas
fyrir miljarð $
A næsta fjárhagsán munu
Bandarikin verja yfir einum
miljarði dollara i framleiðslu tvö-
faldra eiturefnasprengja, og jafn-
framt er nú unnið að þvi i Banda-
rikjunum að gera sprengjur þess-
ar þannig úr garði, að hægt verði
að setja þær i þær miðlungslang-
drægu eldflaugar, sem fyrirhug-
aðer að koma fyrir i Evrópu. Þær
eldflaugar eru annars fyrst og
fremst smiöaöar til þess að bera
kjarnorkuvopn. Meðþvi móti yrði
i fyrsta skipti mögulegt að hefja
eiturhernað á Moskvuborg frá
Mið-Evrópu.
ólg/Spiegel. ■
Árið 1968 úðaði flugvél úr bandariska flughernum 80 I. af taugagasi yfir
Utah-ríki I Bandarikjunum vegna bilunar, sem fram kom i gastankin-
um. Vindátt réði þvi að gasskýið fór ekki yfir mannabyggiX en 6400
sauðkindur sem voru á beit á 500 ferkm. svæöi i eyöimörkinni i margra
milna fjarlægö frá slysstaðnum dóu eiturgasdauðanum. Flugherinn
viðurkenndi fyrst 14 mánuðum siðar að um siys með eiturgas hefði
verið að ræða.
Bygging B-álmunnar gengur vel:
Ein hæð í
gagnið á
þessu árí
„Það er mér mikið gleöiefni að
fá einmitt þessa fyrirspurn nú, en
svarið er aö fjármögnun til bygg-
ingar B-álmu Borgarspitalans
hefur aldrei verið öruggari en nú.
Það er eins tryggt og hægt er að
byggingin mun halda áfram með
eðlilegum hraða og ein hæö af sjö
vcrður tekin í gagniö á þessu
ári”. Þetta sagöi Adda Bára Sig-
fúsdóttir m.a. i borgarstjórn fyrir
skömmu þegar hún svaraöi fyrir-
spurn frá Páli Gfslasyni um
hvernig fjármögnun byggingar-
innar væri háttað nú og hvaða
horfur væru á að hægt yrði að
opna sjúkrarými þar á þessu ári.
Adda sagði að ástæöan fyrir
öruggri fjármögnun væri aö
stofnaður hefði verið Fram-
kvæmdasjóöur aldraðra með lög-
um frá 22. mai 1981. Hlutverk
þessa sjóðs er að sjá fyrir hlut
rikisins i byggingum fyrir
aldraða og hann hefur tii umráða
annað og meira fé en það sem rik-
ið lagði áður til slikra fram-
kvæmda. Með lögunum var
ákveðið að innheimta 100 króna
nefskatt á hvern landsmann en að
auki komu til fjárveitingar skv.
fjárlögum, t.d. 6,4 miljónir króna
i B-álmu Borgarspitalans. Þessi
lög voru endurskoðuö 18.
desember s.l.
Adda sagði að nýlega hefði
stjórnarnefnd sjóðsins, (sem hún
á sæti i ásamt tveimur öðrum),
gert þá tillögu til ráðherra að á
þessu ári yrði veitt 18 miljónum
króna til B-álmunnar úr Fram-
kvæmdasjóði aldraðra. Sagðist
hún ekki hafa ástæöu til aö ætla
annað en að ráðherra féllist á þá
tillögu, en sjóðsstjórnin væri
sammála um að bygging B-áim-
unnar væri nú mikilvægasta
framkvæmdin i þessum mála-
flokki. A fjárhagsáætlun borgar-
innar i ár eru rúmar 4 miljónir
króna og sagði hún að með þessu
móti væri tryggt að hægt yrði að
taka eina hæð i gagnið fyrir árs-
lok.
Steypuvinnu viö þessa 7 hæða
byggingu er nú að ljúka og búiö er
að glerja allt nema efstu hæðina.
Hiti er kominn i allt húsiö nema
tvær efstu hæðirnar og verður þvi
lokið fyrir páska. Inni er að sögn
öddu unnið af fullu kappi; múr-
verki og pipulögn lýkur 1. júli og
verður byggingin þá öll tilbúin
undir tréverk. Veröur svo lokið
viö eina hæð á siðari hluta ársins,
i október skv. áætluninni.
Adda sagöi að fjárhagslega og
framkvæmdalega væri þvi ekkert
i vegi með bygginguna, en hinu
væri ekki aö neita að erfitt hefði
reynst að fá hjúkrunarfræðinga
til starfa hjá borginni.
Adda sagðist visa á bug ásök-
unum um aö bygging B-álmunnar
hefði tafist um tvö ár, 1978 og
1979, eins og Páll Gislason hélt
fram. Hið rétta væri aö á fjár-
hagsáætlun Sjálfstæöisflokksins
1978 hefði veriö harla litiö fé til
byggingarinnar auk þess sem
viðskilnaðurinn hefði veriö slikur
að skera hefði þurft niöur allar
framkvæmdir. Ég held ekki að
Sjálfstæöisflokkurinn hefði getaö
galdrað fram fé i þessa fram-
kvæmd frekar en við 1978, sagði
Adda. Þaö var frekar fundiö að
þvi aö viö værum of spör á niður-
skurð en hitt. Það var mat okkar
aö rétt væri að ljúka þjónustu-
álmu spitalans, þar sem rétt
vantaöi herslumuninn og einbita
okkur siöan aö B-álmunni, sagöi
hún. Ég er sannfærð um aö það
var rétt mat og mun skynsam-
legra en að vera meö tvær bygg-
ingar hálfkaraðar i gangi.
—AI
Steypuvinnu við 7 hæða byggingu B-álmunnar er að Ijúka þessa dagana
og búið er aö glerja allt nema efstu hæðina. Ljósm eik.
Samband íslenskra sveitarfélaga
Fulltrúaráðsfundiir
Fulltrúaráð Sambands is-
lenskra sveitarfélaga heldur fund
i fundarsal borgarstjórnar
Reykjavikur á fimmtudag 25. og
föstudag 26. mars. Jón G. Tómas-
son, formaður sambandsins, set-
ur fundinn, en siðan flytja ávörp
Svavar Gestsson, félagsmálaráð-
herra og Sigurjón Pétursson, for-
seti borgarstjórnar Reykjavíkur.
A fundinum verða þrjú megin-
umræðuefni: Ólafur Jónsson, for-
maður stjórnar Húsnæðisstofn-
unar rikisins og Björn Friðfinns-
son, framkvæmdastjóri fjár-
máladeildar Reykjavikurborgar,
flytja framsöguerindi um hús-
næðislöggjöfina, Sigurbjörn Þor-
björnsson, rikisskattstjóri og
Logi Kristjánsson, bæjarstjóri,
eru frummælendur um frumvarp
til laga um staögreiöslu opin-
berra gjalda og Alexander
Stefánsson, varaformaður sam-
bandsins, er málshefjandi um
rekstur heilsugæslustöðva. Þá
gerir Magnús E. Guðjónsson,
framkvæmdastjóri, grein fyrir
starfsemi Lánasjóös sveitarfé-
laga.
1 fulltrúaráði sambandsins eiga
sæti 34 fulltrúar úr öllum lands-
hlutum svo og formenn og fram-
kvæmdastjórar landshlutasam-
taka sveitarfélaga með málfrelsi
og tillögurétti.