Þjóðviljinn - 28.04.1982, Blaðsíða 5
Miðvikudagur 28. aprll 1982. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5
Samþykkt aðalfundar verkalýðsmálaráðs Alþýðubandalagslns:
Kosnlngamar í vor eru
kjarabaratta
Styðjum kröfur verkalýðssamtakanna
l. Tryggjum kjarabætur —
hindrum k jaraskerðingu
Aðalfundur verkalýðsmálaráðs Alþýðu-
bandalagsins, haldinn 25. april 1982 minn-
ir á að verkalýðshreyfingin stendur nú
frammi fyrir þýðingarmiklum kjara-
samningum. Kröfur verkalýðssamtak-
anna eru i meginatriðum: hækkun grunn-
kaups, örugg verðtrygging launa og af-
nám eftirvinnu i áföngum. Verkalýðs-
málaráð Alþýðubandalagsins styður
þessar kröfur eindregið.
Réttmætum kröfum verkalýðshreyfing-
arinnar hafa atvinnurekendur hafnað
með öllu. Vinnuveitendasambandið hefur
m. a. sett fram gagnkröfur um launa-
lækkanir, fyrst og fremst með afnámi
verðbóta á laun, sem hefðu i för með sér
20—30% kaupmáttarskerðingu á næstu
tveimur árum.
Verkalýðsmálaráð Alþýðubandalagsins
fordæmir þessar ósvifnu kauplækkunar-
kröfur atvinnurekenda og hvetur til þess
að nú þegar verði gengið til alvarlegra
samningaviðræðna. Við þessar aðstæöur
hvetur fundurinn verkalýðsfélögin til þess
að afla sér verkfallsheimildar hið allra
fyrsta, eins og samninganefnd Alþýðu-
sambandsins hefur þegar farið fram á,
þannig aö verkalýðshreyfingin sé i stakk
búin á næstu vikum til að fylgja eftir rétt-
mætum kröfum sinum með þvi að beita
verkfallsvopninu ef þörf krefur.
II. Alþýðubandalagið
eitt ilokka styður
tiska baktrygging Vinnuveitendasam-
bands tslands. Enn stendur baráttan milli
þeirra annars vegar og Alþýðubandalags-
ins hins vegar, milli atvinnurekendasam-
takanna annars vegar og verkalýðssam-
takanna hins vegar. Kosningarnar eru þvi
stéttabarátta, allir þeir sem taka þátt i
kosningum eru að ákvarða lifskjör sin.
Þeir sem styðja Alþýðubandalagið leggja
fram kröfu um varöveislu þeirra lifskjara
sem unnist hafa en ganga ekki til liðs við
kauplækkunaröflin.
Aðalfundur verkalýðsmálaráðs Alþýðu-
bandalagsins telur að það sé eitt megin-
,verkefni næstu ára að tryggja fulla at-
vinnu, aukinn hagvöxt og þjóðarfram-
leiðslu undir öruggu islensku forræði,
þannig aö unnt verði að treysta betur þau
lifskjör sem islensk alþýða hefur barist
fyrir á liðnum árum og áratugum. Þess
vegna leggur aðalfundurinn áherslu á að
framfylgt verði þeim orku- og iönaöar-
áformum sem Alþýöubandalagið hefur
beitt sér fyrir i núverandi rikisstjórn. Aö-
alfundur verkalýðsmálaráðsins minnir
jafnframt á nauðsyn þess að gætt verði
fyllstu hagsýni við nýtingu auðlindanna.
Þess vegna verður að sporna við innflutn-
ingi fiskiskipa, þannig að fiskiskipastóll-
inn stækki alls ekki frá þvi sem nú er. Þá
ber að gera ráðstafanir til þess að draga
úr kostnaði við framleiðsluna i heild, bæði
i iðnaði, sjávarútvegi og landbúnaöi,
einkum fjármagnskostnaði, sem hefur
tekið sifellt stærri skerf af þjóðarfram-
leiðslunni á liðnum árum. Sérstaka
áherslu ber að leggja á það að dregið
verði úr milliliðakostnaði i þjóðfélaginu,
einkum innflutningsverslunarinnar.
baráttu láglaunafólks III. Framfarasókn
Aðalfundur verkalýðsmálaráðs Alþýðu-
bandalagsins heitir á alla launamenn I
landinu, hvar i flokki sem þeir standa, að
minnast þess að kosningabaráttan i vor er
jafnframtkjarabarátta.
Alþýðubandalagið er eini flokkurinn,
sem lýst hefur andstöðu við launalækkun-
arkröfur Vinnuveitendasambands
Islands.
Alþýðubandalagið hefur lýst stuðningi
við kröfur láglaunafólks um batnandi
kaupmátt á komandi samningstimabili.
Alþýðubandalagið er þannig enn sem fyrr
eini flokkurinn sem hefur skipað sér við
hlið launafólks gegn atvinnurekendasam-
tökunum og flokkslegum fulltrúa þeirra,
Sjálfstæðisflokknum.
Kauplækkunarflokkarnir eru hin póli-
í félagsmálum
Alþýöubandalaginu tókst vegna kosn-
ingarúrslitanna 1978 að slá skjaldborg um
kaup og kjör. Verulegur ávinningur hefur
náðst i félagslegum efnum i máiaflokkum
sem verkalýðsstéttin hafði barist fyrir ár-
um og áratugum saman. Aðalfundur
verkalýðsmálaráðsins fagnar þessum fé-
lagslegu framfaramálum og minnir i þvi
sambandi sérstaklega á eftirfarandi
málaflokka:
1. Sett hafa verið ný lög um félagslegar
ibúðabyggingar, sem skapa Bygg-
ingasjóði verkamanna tekjustofna til
þess að tryggja 90% lán til mörg
hundruð ibúða á ári hverju.
2. Sett hafa verið lög um fæðingarorlof.
3. Sett hafa verið ný lög um atvinnuleys-
istryggingarþarsem komið hefur ver-
ið til móts við sjónarmið verkalýös-
samtakanna iöllum meginatriðum.
4. Sett hafa verið lög um aöbúnaö, holl-
ustuhætti og öryggi á vinnustöðum,
sem skapa launamönnum aukinn rétt
til hvers konar áhrifa á sitt nánasta
starfsumhverfi.
5. Lög um starfskjör launafólks hafa
verið endurnýjuð og kveða nú á um
skyldutryggingu lifeyrisréttinda.
6. Lagaákvæði um ellilifeyri sjómanna
hafa verið lagfærð, þannig aö þau ná
nú til 60 ára sjómanna.
7. Þær bæjarstjórnir, þar sem Alþýðu-
bandalagið hefur haft forystu hafa
lagt grundvöll að stórátaki i dagvist-
armálum. I þvi sambandi skal sér-
stakiega minnt á Reykjavik og þann
mikla mismun sem er á þeim bæjarfé-
lögum þar sem Alþýðubandalagið hef-
ur haft forystu annars vegar og þar
sem ihaldiö hefur haft forystu bæjar-
málanna hins vegar.
8. Lögfest hafa verið ný ákvæði um upp-
sagnarfrest og rétt verkafólks i veik-
indum og vegna vinnuslysa.
10. Tekjutrygging aldraðra hefur hækkað
langt umfram laun á liðnum árum.
Þessi dæmi sýna, að á Islandi hefur ver-
ið haldið áfram félagslegri framfarasókn
á sama tima og atvinnuleysi fer vaxandi i
grannlöndum okkar og félagsleg þjónusta
hvers konar hefur veriö skorin niður til-
finnanlega.
IV. Pólitísk og fagleg
eining gegn leiftur
sókn V.S.Í. og
Sjálfstæðisflokksins
Ýmsar blikur eru á lofti, sú hætta gæti
verið yfirvofandi að leiftursóknarihaldið
Frá aðalfundi verkalýðsmálaráösins,
sem haldinn var 25. april.
taki hér völdin annað hvort eitt sér eða
meö stuöningi milliflokkanna. Eina leiðin
til þess að verjast leiftursókninni er póli-
tisk og fagleg eining launamanna. Þeir
launamenn sem styöja aðra flokka en
Alþýðubandalagið i kosningunum i vor,
eru i raun að styðja andstæðinga sina til
valda. Það er of seint að átta sig eftir að
kjörstöðum hefur verið lokað að kvöldi 22.
mai. Þess vegna skorar verkalýðsmála-
ráð Alþýðubandalagsins á alla launa-
menn að hefjast nú þegar handa I kosn-
ingastarfi Alþýðubandalagsins þannig, að
útkoma flokksins veröi sem best i kosn-
ingunum i vor.
Sigur Alþýðubandalagsins er ósigur
ihaldsins og Vinnuveitendasambandsins.
Arangur kosningabaráttunnar mun
ráöa úrslitum i kjarabaráttunni.
Stjórn verkalýðsmálaráðsíns
A aðalfundi verkalýðsmálaráðs
Alþýðubandalagsins, sem haldinn var s.l.
sunnudag var kjörin ný 26 manna stjórn
verkalýðsmálaráðsins. Stjórnin skiptir
siðar með sér verkum, en hana skipa:
Benedikt Daviðsson, formaður Sam-
bands byggingarmanna, Arna Jónsdóttir
formaður kjaranefndar fóstra, Asmundur
Stefánsson, forseti ASl, Arthur Mortens,
kennari, Bjarnfriöur Leósdóttir, vara-
form. Verkalýðsfél. Akraness, Björn
Arnórsson hagfræðingur BSRB, Dagbjört
Sigurðardóttir, form. Verkalýðsfél.
Bjarma Stokkseyri, Eðvarð Sigurðsson,
formaður Dagsbrúnar, Einar ögmunds-
son fyrrverandi form. Sambands vörubif-
reiðastjóra, Erlingur Viggósson, skipa-
smiöur, Esther Jónsdóttir varaformaður
Sóknar, Grétar Þorsteinsson, formaöur
Trésmiðafél. Reykjavikur, Guðjón B. J.
Jónsson, kennari, Guðjón Jónsson, for-
maður Málm- og skipasmiðasambands-
ins, Guðmundur Arnason, varaformaður
Kennarasambands Islands, Guðmundur
J. Guðmundsson, formaður Verkamanna-
sambands Islands, Guðmundur Hilmars-
son, form. Fél. Bifvélavirkja, Guðmundur
Jónsson, stjórnarmaður Landssambands
Verslunarmanna, Guðmundur M. Jóns-
son, i stjórn Sjómannasambandsins,
Guðmundur Þ. Jónsson formaöur Lands-
sambands iðnverkafólks, Hafsteinn Egg-
ertsson, framkvæmdastjóri INSI,
Ingólfur S. Ingólfsson formaöur Vél-
stjórafélags tslands, Gisli ÓI. Pétursson
varaformaður launaráðs BHM, Kristin
Guðbjörnsdóttir i launanefnd BSRB,
Snorri Jónsson, fyrrverandi forseti ASl og
Vilberg Sigurjónsson vélstjóri.
Mótmælasvelti gegn bandaríska flotanum:
Á að kenna atómkafbát
við líkama Krists?
Mitch Snydcr er ákveðinn að svelta sig I hel ef þurfa þykir.
Mitch Snyder heitir ungur
Bandarikjamaður sem hefur ver-
ið i mótmælasvelti i tvo mánuði.
Ástæðan er sú, að hann vill ekki
sætta sig við það, að bandariski
fiotinn hefur nefnt einn af kjarn-
orkukafbátum sinum „Corpus
Christi” eöa Likami Krists. Snyd-
er ætlar ekki að láta undan, hann
er reiðubúinn aðsvelta sig I hel.
Og talsmaður flotans segir að
þaðkomiekki til mála.að nafninu
á kafbátnum sé breytt. Flotinn
segir lika, að kafbáturinn fái nafn
af borg einni i Texas, sem heitir
Corpus Christi, en ekki af Kristi
sjálfum. Corpus Christi er og ein
af bækistöðvum bandariska flot-
ans. Þá hafa talsmenn flotans af-
sakað sig með þvi, að floti Brasi-
liu eigi sér herskip sem heitir Es-
pirito Santo eða Heilagur andi og
mörg dæmi þessu skyld séu til.
Mitch Snyder tekur ekki mark á
þessu. Hann segir að það sé van-
virðing við fyrsta boðorðið að
kenna kafbát við Krist. Og þegar
hiö illa hafi einu sinni verið bless-
að með guðs nafni, þá sé verið að
fegra hið illa.
Reyndar hafa fleiri tekið undir
það við Snyder, að nafngiftin sé
óviðeigandi. Margir kristnir hóp-
ar hafa skrifað Reagan forseta og
Lehman flotamálaráðherra til að
mótmæla. Meðal þeirra sem mót-
mælabréf hafa skrifað er og hinn
kaþólski biskup i borginni Corpus
Christi.