Þjóðviljinn - 11.05.1982, Page 6
6
STEFNUSKRÁ
SAMFELLD, HEILSTEYPT OG
HAGKVÆM BORGARMYND
Þróun byggðar verði eftir mætti haldið innan
núverandi borgarmarka, og er uppbygging á Ár-
túnsholti og Selási og áform um framtiðarbyggð
á Rauðavatnssvæði auk þéttingar svæða rökrétt
og skynsamlegt framhald þeirrar stefnu.
Alþýöubandalagiö telur aö fara
eigi varlega 1 frekari útþenslu
borgarinnar, og leggur áherslu á
aö haldiö veröi fast viö þá stefnu
sem mökruö hefur veriö á kjör-
timabilinu; aö þróun byggöar
veröi eftir mætti haldiö innan nú-
verandi byggöarmarka eöa i nán-
um tengslum viö þá byggö sem
fyrir er.
Uppbygging I Ártúnsholti og
Selási auk þéttingasvæöanna er
framkvæmd þessarar stefnu I
raun og áform um framtföar-
byggö viö Kauöavatn eru rökrétt
og skynsamlegt framhaid henn-
ar. Meö þvi tengist byggö viö
byggö sem gerir væntanlegum
ibúum kleift aö nýta sér alla þjón-
ustu fyrstu árin innan seilingar I
grónum hverfum Arbæjar og Sel-
áss og I beinni nálægö viö fagra
náttúru.
Meö þessu móti veröur sköpuö
samfelld, heilsteypt og hagkvæm
borgarmynd á höfuðborgarsvæö-
inu.
Frekari þétting byggðar i borg-
inni er aö mati Alþýðubandalags-
ins mikilvægt verkefni á næsta
kjörtimabili og bendir flokkurinn
á því sambandi sérstaklega á
nýja miöbæjarsvæöiö I Kringlu-
mýri og flugvailars væðið I
Skerjafiröi.
Endumýjun
eldri hverfa
Alþýöubandalagiö mun áfram
sem hingaö til standa vörö um
svipmót gamla bæjarins og stuöla
aö þvi aö sú endurlifgun húsa og
mannlifs sem þar hefur átt sér
staö á kjörtimabilinu haidi
áfram.
I samræmi viö þá stefnu hafa
núverandi borgaryfirvöld ekki
leyft niöurrif húsa fyrr en 1 jóst er
hvaö koma skal i þeirra staö. Al-
þýöubandalagiö mun halda fast
viö þessa stefnu og sporna þannig
viö þvi aö menningarverömætum
sé spillt meö ótimabærum
ákvöröunum. Alþýöubandalagiö
munáfram halda viö þá stefnu aö
auövelda fólki búsetu i gömlum
hverfum meö þvi aö leyfa viö-
byggingar og breytingar á húsum
svo þau uppfylli kröfur um nú-
tima þægindi. Alþýðubandalagiö
mun þó, sem hingað til, leggja
áherslu á að slikar breytingar
spilli ekki útliti húsa og umhverf-
is þeirra.
Alþýöubandalagiö leggur sér-
staka áherslu á aö viðreisn gamla
miöbæjarins veröi ekki stöðvuö,
heldur haldiö áfram i þeim anda
sem unnið hefur verið i á kjör-
tlmabilinu: að tengja nýtt viö
gamalt þannig aö vel fari og
halda tii haga þvl sem eftir er af
svipmótiliðins tíma. Mikilvægt er
aö framkvæmdir við hið nýja
verndunarskipulag Grjótaþorps
veröi hafnar sem fyrst meö
myndarlegu átaki Reykjavikur-
borgar.bá mun Alþýðubandalag-
ið áfram beita sér fyrir þvi að
Reykjavikurborg taki virkan þátt
i uppbyggingu Bernhöftstorfunn-
arog renna þannig enn fleiri stoð-
um undir þá endurlifgun miöbæj-
arins sem hafin er.
Alþýöubandalagið mun áfram
og af alefli beita sér gegn þeim
hugmyndum Sjáifstæöisflokksins
aö auka verulega uppbyggingu
atvinnuhúsnæöis i gamla bænum,
sem raska mun svipmóti hans og
kalla á stórvirk umferðarmann-
virki til aö þjóna þeirri umferð,
sem af slikri uppbyggingu myndi
leiöa. Alþýöubandalagiö mun
þvertá móti beita sér fyrir þvi aö
sem mest aukning veröi á ibúðar-
húsnaáii i gamla bænum.
Nýjan flugvöll
utan þéttbýlis
Alþýöubandalagiö telur, aö
kanna veröi itarlega hvort grund-
völlur sé fýrir þvl aö byggja nýj-
an flugvöll utan þéttbýlis á höfuö-
borgarsvæðinu vegna þeirrar
hættu og hávaöamengunar sem af
honum stafar á núverandi stað.
Alþýðubandalagið telur hug-
myndir um aö reisa 8 - 10 þúsund
manna byggð á svæöinu, sem
tengjastmyndimiðbænum á eðli-
legan hátt svo og útivistaraöstöðu
I Skerjafiröi, Nauthólsvik og
öskjuhlið, athyglisveröar og opna
stórkostlega möguleika á þróun
byggðar i Reykjavi'k. Taka verö-
ur ákvöröun um framtið flugvall-
arins þannig aö hægt sé að taka
afstööu til varanlegrar mann-
virkjageröar á svasðinu.
Aðlaðandi
ný hverfi
í skípulagi nýrra hverfa hefur á
kjörtímabilinu verið lögö veruleg
áhersla á að breyta útaf þeirri
stefnu að meirihluti ibúðarhús-
næöis sé byggöur i fjölbýlishús-
um, en þess í stað skipulögð lág
og þétt byggð sérbýlis af ýmsum
gerðum. Jafnframt hefur fjölbýl-
ishúsum veriö haldið i þremur
hæöum og meiri áhersla lögð á
gæöi en magn. Þessari stefnu
mun Alþýðubandalagiö halda
áfram og leggja áherslu á eftir-
farandi atriði:
— Umferöarkerfið tryggi öruggt
umhverfi fyrir óvarða vegfar-
endurá ieiö til skóla eöa i aöra
þjónustustaði.
— Leiöir strætisvagna veröi, eins
og nú er, skipulagöar um leið
og aörirþættir byggöarinnar og
þjónusta SVR geti þvi hafist.
strax og hverfin byggjast.
— Hraðakstur gegnum ibúöar-
hverfi verði hindraöur.
— Séö veröi fyrir leiksvæðum i
nánum tengslum við heimilin.
— Gert verði ráö fyrir fjölþættari
starfsemi i ibúöarhverfum en
tiðkast hefur meö staösetningu
atvinnufyrirtækja i tengslum
viö þau.
— Gertveröi ráö fyrir fjölbreytni
i' stæröum ibúða og húsagerð-
um.
Alþýöubandalagiö vill aö á ný-
byggingarsvæöum veröi sam-
hliða malbikun gatna, gengið frá
gangstéttum, leiksvæöum, hjól-
reiöastigum og ræktun i samræmi
viö áætlun sem gerö veröi fyrir
hvert hverfi.
Byggingar
Alþýöubandalagiö mun vinna
aö þvi áfram aö algjört bann
verði lagt viö noíkun alkalivirkra
efna i steypu og koma þannig i
veg fyrir að skammtimahags-
Stöndum vörð um
svipmót gamla
bæjarins.
munir steypuframleiöenda og
byggingaraöila geti valdið eig-
endum fasteigna stórtjóni að
nokkrum tima liönum.
Alþýðubandalagiö leggur rika
áherslu á aö nýrri byggingar-
reglugerð um aögengi fatlaðra
verði framfylgt i hvivetna.
— Séð veröi til þess að á jaröhæö-
um fjölbýlishúsa verði hentug-
ar ibúðir fyrir aldraða og fatl-
aða og þannig stuölað aö eðli-
legri ibúasamsetningu ný-
hverfa.
Borgaryfirvöld hafa þegar haf-
ið breytingar á stofnunum borg-
arinnari' samræmi við þarfir fatl-
aöra og mun Alþýöubandalagið
beita sér fyrir að haldið veröi
áfram á þeirri braut og stuðla
þannig að jafnrétti fatlaðra i
starfi og féiagsiffi.
Alþýðubandalagið mun áfram
stuðla að betri nýtingu á bygg-
ingarlandi i borginni, heldur en i
stjórnartið Sjálfstæðisflokksins,
með þvi aö úthluta lóðum undir
þétta lága byggð. Til þess að
stuðla að hagkvæmari landnýt-
ingu og ná fram auknu réttlæti i
greiðslu gatnagerðargjalda viU
Alþýðubandalagið breyta gjald-
skránni. Kostnaður viö að gera
lóðir byggingarhæfar er mun
meiri en sem nemur gatna-
gerðargjöldum. Mismuninn
borgar Reykjavikurborg, en eins
og málum er nú háttað greiðir
borgin miklu hærri upphæð i
krónum talið með stórum ein-
býlishúsalóðum en raöhúsa- og
blokkarlóöum.
Alþýðubandalagið vill beita sér
gegn slíku óréttlæti og álitur eðli-
legast að allir byggjendur sitji við
sama borð að þessu leyti og fái
sömu meðgjöf.
NÁTTÚRUVERND OG ÚTIVERA
Skipulögð garðsvæði
og torg verði gædd
lifi og búin bekkjum
og leiktækjum.
t ört vaxandi borgarsamfélagi
er brýnt aö standa vörö um
óspillta náttúru og náttúruminjar
innan borgarlandsins og bæta aö-
stööu til útiveru I litt snortnu um-
hverfi, jafnframt þvi sem skipu-
lögö garösvæöi og torgveröi gædd
lifi og búin bekkjum og leiktækj-
um.
Alþýðubandalagiö telur brýnt
að útrýmt verði skólpmengun úr
fjörum borgarinnar með samein-
ingu og lengingu holræsaútrása
jafnframt þvi sem unnið veröi aö
lengingu megin stofnræsa. Hér er
um dýra framkvæmd að ræða
sem leita þarf samstarfs við önn-
ur sveitarfélög á höfuðborgar-
svæöinu um lausn á.
Alþýöubandalagiö leggur
áherslu á samtengingu útivistar-
svæöanna i Nauthólsvik og öskju-
hlið og mun áfram berjast gegn
áformum Sjálfstæöisflokksins um
lagningu hraðbrautar um Foss-
vogsdal og sjávarmegin öskju-
hliöar. Slik vegalagning mun
valda alvarlegum skemmdum á
umhverfi, náttúruminjum og úti-
vistarsvæöum.
Alþýöubandalagið vill láta bæta
aðstöðu til baöa og snyrtingar við
heita iækinn i Nauthólsvik án þess
aö þar risi dýrir búningsklefar
meö starfsliöi. Nú þegar holræsa-
útrásir I Fossvogi og Kársnesi
hafa veriö lagfæröar hafa skapast
skilyröi fyrir hreinsun fjörunnar i
Nauthólsvik sem þá getur oröið
ákjósanleg til útíveru og sjóbaða.
Bæta þarf aðstööu fyrir siglingar
i vflrinni og koma þar upp flot-
bryggjum.
Alþýöubandalagiö vill að i Við-
ey verði komið upp aðstöðu til úti-
vistar og samgöngur viö eyna
tryggðar. Leitað verði eftir sam-
vinnu við rikið um nýtingu Við-
eyjarstofu. Þá verði Korpúlfs-
staðir gerðir aðútilifs- og menn-
ingarmiöstöð i tengslum viö frið-
lýsingu Blikastaðaleiru.
Aðstaða til baða og
snyrtingar við heita
lækinn i Nauthólsvlk
verði bætt án þess að
þar rísi dýrir bún-
ingsklefar með
starfsliði
Alþýðubandalagið fagnar frið-
lýsingu Elliðaárdals og ieggur
áherslu á aö framkvæmdum viö
göngu-,h jólreiöa- og reiöstiga um
dalinn veröi haldiö áfram.
Fjölbreyttara
útilíf
Alþýöubandalagið leggur
áherslu á að bæta alla aöstööu til
útiveru og leikja, jafnt á skipu-
lögðum garösvæöum og torgum
sem á stóru útivistarsvæðunum i
Laugardal, Elliöaárdal, Oskju-
hliö og Nauthólsvik. Stefnt verði
að þvi að útívistarsvæðin veröi
nýtt tíl skemmtana og tónleika-
halds, sýninga og leikja i meira
mæli en nú er.
Alþýðubandalagiö mun beita
sér fyrir þvi aö jafnhliða fjölgun
skólagarða, verði sambærilegri
starfsemi komiö á fót fyrir eldri
borgarana þar sem þeir geta
stundaö ræktun með aðstoð kunn-
áttumanna. Ennfremur er nauð-
synlegt aö aukið svæði verði ekið
frá fyrir garðlönd Reykvikinga,
þar sem nú komast færri að en
vilja.
Nú þegar börnum fer aftur
fjölgandi I eldri hverfum borgar-
innar er brýnt að koma þar upp
öruggum útivistar- og leiksvaeð-
um. Bendir Alþýðubandalagið i
þvi sambandi á tíllögur um leik-
Stefnt verði að þvi að
útivistarsvæði verði
nýtt til skemmtana-
og tónleikahalds,
sýninga og leikja I
meira mæli en nú er.
götur sem lokaðar eru fyrir bila-
umferð. Með auknu aödráttarafli
gamla miöbæjarins eykst einnig
þörf á bættri aöstööu til útiveru
þar, einkum i kringum Tjörnina.
Alþýöubandalagiö telur brýnt
aö lokiö veröi gerð nýrrar fram-
kvæmdaáætlunar fyrir Breið-
holtshverfi sem miöi aö þvi aö
frágangur opinna svæöa, leik-
svæða og útivistarsvæöa veröi
lokiö á næsta kjörtimabili. Veröi
áætlunin kynnt Breiöholtsbúum
og forgangsrööun verkefna
ákveðin i samráði viö þá.