Þjóðviljinn - 12.05.1982, Síða 7

Þjóðviljinn - 12.05.1982, Síða 7
Miðvikudagur 12. mai 1982 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 7 „Hlustar nokkur á okkur?” Allt frá aldamótum og jafnvel eitthvaö fyrr, hefur smábátaút- gerö verið snar þáttur og mikil- vægur í atvinnulffi allra smáþorpa viðsjóá Islandi; Neskaupstaður er þar engin undantekning — á siðasta ári lönduðu smábátarnir um 1.400 tonnum af fiski, og það munar um minna. En á síðustu árum hefur eðli útgerðarinnar breyst þrátt fyrir allt. Þeir eru nú orðnir fáir, sem stunda trilluút- gerð sem sinn aðalatvinnuveg; meira er orðið um það, að þetta sé n.k. sumarsport. Og hver veit, nema trilluútgerðin sé í þann mund að syngja sitt síðasta. Allaf þegar gefur______________________ Hjörtur Arnfinnsson er einn þeirra fáu, sem rær á trillunni sinni hvern dag sem gefur, og hann tók vel i það að spjalla stutta stund við mig um trilluútgerðina. Vinnudeginum var lokið og Hjörtur búinn að leggja bátnum i nýju smábátahöfninni i Neskaupstað, þegar viö tylltum okkur niður i lúkarinn hjá honum skrafs. I smábáta- höfninni ber nú meira en áður á lögulegum skemmtiskútum; þó hafa trillurnar samt vinninginn. Ennþá. ,,Ég fer alltaf á sjó, þegar gefur, en þaö getur nú samt orðið oft, sem ég þarf aö liggja i landi. Það er róðið nokkuð mikið um sumarið, en þegar fer að hausta er þetta nú voðalega stopult”, segir Hjörtur i upphafi samtals okkar, og getur þess um leið að Hjörtur Arnfinnsson um borð i bát sinum, Dröfn frá Neskaup- stað. A innfeiidu myndinni sést yfir hluta af nýju smábáta- höfninni i Neskaupstað. Ljósm.: — jsj. misjafnlega fiskast einnig — i fyrra var metár, en þá veiddi Hjörtur um 75 tonn. Meðalveiðin er nálægt 40 tonnum. Ég er að minnsta kosti lifandi „Þetta verður náttúrlega eitthvað minna i ár. Það var engin grásleppa i vor, sérðu, enda er ég rétt aö byrja núna. Það þýðir ekki að fara á grásleppu, það er ekki hægt aö selja hrognirt* ætli sé nokkur áhugi á aö að selja þau. Við getum ekki veitt þetta á lager,” segir Hjörtur sposkur, og bætir þvi við að það verði auövitaö fariö á grásleppu aftur, um leiö og einhver grundvöllur verð- ur fyrir henni.” En tekst þá Hirti aö lifa af trilluútgerð- inni? ,,Já, ég lifi”, svarar Hjörtur snöggur upp á lagið. ,,Ég er að minnsta kosti lifandi — ha?” Sama dag og við Hjörtur ræddum saman, frétti ég af þvi, að hann hefði verið að sækja um leyfi hjá sjávarútvegsráðuneytinu. ,,Já, ég var að sækja um leyfi fyrir þorskanetum,” segir Hjörtur. ,,Við erum settir undir alveg sömu reglur og 1000 tonna skipin. Við erum vist að drepa siðasta þorsktittinn einsog þau. Við erum ekkert alltof ánægðir með þetta fyrirkomulag, trillukarlarnir, að þurfa að hlita þvi sama hér og gildir á vertið fyrir sunnan, bæði hvað snertir möskvastærðir og veiöistopp, já allt annað lika. Þeir fyrir sunnan eru búnir á sinni vertiö, þegar við hér erum að byrja Borgar sig ekki aö liggja í landi Okkur finnst þetta eiginlega orðin of- stjórnun. Viö þurfum núna að liggja meö minnst tvenn veiðarfæri, sjötommumöskva fyrir hálfan mánuð og svo sextommu- möskva fyrir sumarið. Ein veiðarfæri kosta kannski 30-40.000 krónur, og þaö er drjúgur biti. En það getur verið dýrt að sleppa þessum fyrsta hálfa mánuði. Þaö borgar sig aldrei að liggja i landi.” An efa eru þetta orð að sönnu. En þau leiða hugann ósjálfrátt aðnæstu spurningu: borgar trilluútgeröin sig? Leggst hún ekki einfaldlega niður einn góðan veðurdag og siðan ekki söguna meir? „Ef menn reikna ævina út i krónum og aurum, þá er mikil hætta á þvi,” segir Hjörtur, „ég held aö menn verði að hafa sérstakan hugsunarhátt til þess aö vera i þessu. Það þýöir ekki að standa i trilluút- gerð, ef menn ætla að reikna launin sin út frá venjulegu timakaupi, mánaðarkaupi eða einhverju svoleiðis. Þaö koma góðar glefsur af og til, en þetta er lika dýrt”. Frjálsari stundir En i hvaða-gjaldmiðli reiknar Hjörtur, þegar trillan er annars vegar? „Ég reikna þetta út i heldur frjáisari og betri stundum, en ef ég væri lokaður ein- hvers staðar inni. Ég gæti alveg eins verið lokaður inni á Litla-Hrauni i 10 mánuöi, eins og vinnandi i einhverri verksmiöju allt upp i 16 tima á sólarhring og rétt komiö heim til að sofa og varla það. Mér liður vel á sjónum, maður er engum háður og ekki lokaður inni, þó þaö sé að visu oft erfitt og vinnudagurinn langur. En auö- vitað snýst þetta alltaf lika um peninga. Allt lifið snýst um peninga.” Eins og öllum standi á sama Borgar þá ánægjan sig, þegar á allt er litið? Spyr sá, sem ekki veit. „Maður á nú svo sem ekki kost á svo miklu,” segir Hjörtur og þyngist aðeins á brún. „Maður er búinn aö vera á þessum stórum bátum frá þvi áöur en þú fæddist” — hann litur á mig — „og búinn að vera á þeim mestallan sinn aidur. Maöur á þvi ekki kost á öðru en frystihúsavinnu eða verksmiðjuvinnu. Ég held ég sleppi þvi,meöan ég get annað. En það er auövitaö ekki létt aö stunda sjóinn á svona smábát, þegar er alls staðar unnið að þvi að drepa þessa útgerð niður. Og það er eins og öllum standi á sama um hana— ja, nema auövitað okkur, sem stöndum i þessu. En hlustar nokkur á okkur?” Það er kannski von að Hjörtur spyrji. Að sögn hans sjálfs hefur litiö tillit veriö tekiö til óska þeirra trillukarlánna, og mér fróðari menn staðfesta þaö við mig. Kannski verður endurinn sá, að trillurnar hverfi i hendur sumarsportiðkenda og smábátaútgeröin leggist niður sem sjálf- stæð atvinnugrein Það yrði missir að henni. — jsj. Rabbaö viö Guömund Bjarnason formann Þróttar ELDRA FÓLKIÐ HVERFUR „Gróskan er langmest í knattspyrnunni, frjáls- íþróttunum og skiðaíþrótt- inni, og það er mestur f jöldinn i þessum greinum innan Þróttar", sagði Guð- mundur Bjarnason, for- maður íþróttaf élagsins Þróttar í Neskaupstað, þegar blm. Þjv. spjallaði við hann. „Knattspyrnudeildin var t.d. að fá sér enskan þjálfara, Ron Lewin, til aö þjálfa strákana, sem keppa i 2. deild. Ron hefur áður verið hér á landi, hann þjálfaöi Akurnesinga fyrir nokkrum ár- um, og við höfum fengiö hann til að vera hér i sumar og einum von á þvi að honum takist að gera ým- islegt gott meö þessum ungu strákum, sem eru núna að taka við i knattspyrnunni.” — Er það ekki dýrt fyrirtæki aö fá eriendan þjáifara til starfa? „Það er ekki neitt óskaplega dýrt. Erlendu þjálfararnir eru ekki dýrari en þeir islensku. Og iþróttafélagið fær styrk frá bæj- arfélaginu, sem nær aö visu ekki til að greiða allan kostnaö við rekstur knattspyrnudeildarinnar — styrkurinn er eitthvað yfir eitt hundrað þúsund krónur, en rekst- urinn kostar nálægt eitthundrað og áttatiu þúsund. Af þeirri upp- hæð fer langstærstur hluturinn i feröalög á keppnistimabilunum”. — Tekur almenningur mikinn þátt I iþróttalifinu? „Það er nú svona upp og ofan. Skiöaiþróttin er i miklum Guðmundur Bjarnason uppgangi hérna m.a. vegna til- komu skiðalyftunnar i Odds- skarði. Og hér hefur veriö skiða- þjálfari i allan vetur, Ingþór Sveinsson, gamall Noröfirðingur, sem hefur verið lengi i Noregi. En það er nú einu sinni þannig, ekki sist i litlum bæjarfélögum eins og hér i Neskaupstaö, aö starfsemi iþróttafélagsins grund- vallast á starfi fárra manna, kannski 10—12 manna. Og starf þeirra er aðallega fólgið i þvi aö safna peningum, og þaö verður of litill timi til annarra hluta. Núna er það lika nær eingöngu ungt fólk, sem vinnur það, sem þarf að vinna til aö halda félaginu gang- andi. Það er eins og menn hverfi úr iþróttafélaginu, eftir að þeir hafa náö vissum aldri. Það er mikil breyting frá þvi sem áður var”. — Eru til einhver ráð tii Urbóta á þessu? „Ég veit það ekki”, segir Guð- mundur, „það væri þá kannski helst það að loka sjónvarpinu. Nei, i alvöru talað, þá er þetta alvarlegur hlutur. Það hefur til dæmis áhrif á iþróttalifið, þegar eldra fólkið hreinlega hverfur burt. Það stefnir i það, að ef á að sinna þessum málum og vera meö unglingunum, þá þarf hrein- lega að borga einhverjum manni laun fyrir það. Auðvitað er miklu þægilegra aö sitja bara heima hjá sér og glápa á einhverja mynd i sjónvarpinu, en fyrr má nú vera. iþróttafélagið á Eskifirði er til dæmis stjórnlaust, af þvi að eng- inn fæst til að sitja i stjórn. Þetta er náttúrlega mjög dap- urlegt ástand — og það lagast ekki, fyrr en fólk tekur sig á. Þetta er verst fyrir krakkana, sem vilja vera i iþróttum, en fá færri tækifæri til þess en mögu- legt væri.” —jsj.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.