Þjóðviljinn - 14.05.1982, Blaðsíða 3
Föstudagur 14. mal 1982 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 11
um helgina
Ymislegt:
Samhygöarfélagar ætla að efla tengslin við nágrannann og félagann um helgina.
„Grasrótartengsl”
Maímót Samhygðar á sunnudag
Sunnudaginn 16. mai verða
haldin mai-mót Samhygðar.
Mót þessi eru haldin fjórum
sinnum á ári og eru orðin fastur
iiður I starfsemi hreyfingar-
innar. Tilgangurinn með þeim
er að efla mannleg tengsl og
kynna starf og markmið Sam-
hygðar.
Raunveruleg mannleg tengsl
eru algjör forsenda þess að hægt
sé að bæta þjóðfélagsástandið,
þess vegna vinna hópar Sam-
hygðar að þvi að mynda net
„Grasrótartengsla”, hver i sinu
umhverfi, meðal nágranna
vina, fjölskyldu og vinnufélaga.
Ýmislegt verður til skemmt-
unar og fróðleiks á mótunum,
leikrit, ljóð, söngur og fl. og
verða þau haldin á eftirtöldum
stööum:
Samhygðarhúsið v/Flatar-
hraun, Hafnarfirði kl. 16.00
Djúpið, Hafnarstræti 15 kl. 15.30
Skipholti70 kl. 16.00
Freygjugötu27 kl. 16.00
Djúpið.Hafnarstr 15 kl.2030
Siðumúla 11 kl. 16.00
Þrótth.v/Holtaveg kl. 16.00
Kynningarfundur:
Sóleyjar-
samtökin
Kynningarfundur um Sóleyj-
arsamtökin og Siðdegisblaðið
verður haldinn næstkomandi
laugardag, 15. mai kl. 14.00 i
AÐALSTRÆTI 16, 2. hæð.
Sóleyjarsamtökin eru ó-
flokkspólitisk, þjóðleg baráttu-
hreyfing sem berst fyrir auknu
sjálfsforræði íslendinga I menn-
ingarmálum, yfirstjórn Islend-
inga á vörnum landsins og gegn
aukinni ásókn erlendra auð-
hringa i islensku efnahagslifi.
Allir þeir sem vilja styrkja is-
lenska þjóðmenningu og sjálf-
stæði lands og þjóðar á öllum
sviöum eru sérstaklega vel-
komnir á fundinn.
I
Fyrirlestur:
Ný-
húmanisia
„Proutistinn” Ac.
Abadevananda Atv. heldur
fyrirlestur um NÝ-
HUMANISMA I Aðalstræti 16, 2.
hæð á morgun laugardaginn 15.
maf kl. 16.00
Allir þeir sem fylgjast með
gangi heimsmála og gera sér
grein fyrir að þjóðfélögum
heims verður ekki stjórnað öllu
lengur á grundvelli þröngsýnna
kenninga er skipta mannkyninu
upp i striðandi hagsmunahópa,
ættuekki að láta fyrirlestur Ac.
Abadevananda fram hjá sér
fara.
Hinn almenni
bænadagur:
Lotning
fyrir lífi
Hinn almenni bænadagur,
fimmti sunnudagur eftir páska,
verður næsta sunnudag, þann
16. mai. Eru nú þrjátiu ár siðan
sá dagur kirkjuársins var útval-
inn bænadagur islensku þjóðar-
innar. Fyrsti almenni bæna-
dagurinn var árið 1951.
Bænadeginum i ár hefur
biskup íslands, Pétur Sigur-
geirsson valið bænarefnið:
Lotning fyrir lifi. 1 fréttatil-
kynningu biskups er tekið fram
aö kristin kirkja vekji athygli i
boöun sinni og bænargjörð á
þeirri frumskyldu jarðarbúa að
þeir beri lotningu fyrir öllu lifi i
hvaða mynd sem það birtist.
Það sé brýnna nú en nokkru
sinni áður að mannheimurinn
vakni til vitundar um þessa
helgustu köllun sina.
Húnvetninga-
félagið býður
í kaffi
Eins og undanfarin ár býður
llúnvetningafélagiö eldri
félögum og gestum þeirra til
kaffidrykkju i Domus Medica,
sunnudaginn 16. mai kl. 3 e.h.
Til skemmtunar verður kór-
söngur, upplestur, og hljóðfæra-
leikur. Allan undirbúning veit-
inga og framreiðslu hafa félags-
konur annast eins og áöur.
Við vonum að sem flestir not-
færi sér þetta tækifæri til að
hitta gamla vini og kunningja og
njóta um leið góðra veitinga.
Húsið opnar kl. 2. eftir hádegi.
Stofnfundur um
söngleikjahús
Stofnfundur félags um dans-
og söngleikjahús i Reykjavlk
verður haidinn n.k. sunnudag
kl. 2 i Atthagasal Hótel Sögu.
Allir sem áhuga hafa á fyrir-
. tækinu eru hvattir til að mæta,
og sagði Auður Haralds, einn
aðstandenda þess, að á annað
hundrað tillögur að nafni á leik-
húsið hefðu borist. Hugmyndin
eraðreyna aö koma rekstrinum
afstaðeftir aö félagum hann er
stofnað og siöan aö taka ákvarð-
anir i húsnæðismálum. Sagði
Auður aö veriö væri aö leita að
hentuguhúsnæöi fyrir leikhúsið,
en slíkt liggur ekki á lausu I
borginni eins og flestum mun
kunnugt.
Moldarsala
í Kópavogi
um helgina
Núna um helgina verður hin
árlega moldarsala Lionsklúbbs-
ins Munins i Kópavogi og rennur
allur ágóði moldarsölunnar til
Hjúkrunarheimilis aldraðra þar
i bæ, en nú stendur einmitt loka-
átakiö yfir við þá byggingu.
Lionsklúbburinn Muninn
selur moldina i heilum bil-
hlössum og er moldinni ekið
hvert sem er á Stór-Reykja-
vikursvæðinu. Moldin er ýmist
tekin i Fossvogi eða Sundahöfn.
Tekið er á móti pöntunum i
simum. 42058, 17118 Og 44731.
Vorkapp-
reiðar Fáks
haldnar á
morgun
Vorkappreiöar Fáks verða
haldnar laugardaginn 15. mai
að Viöivöllum og hefjast þær kl.
14.30. Þetta verða fyrstu kapp-
reiöar ársins og er fjöldi
keppnishesta nokkuö á annað
hundrað. Eins og kunnugt er
veröur Landsmót hestamanna i
Reynt er að geta sér til hverjir
séu liklegastir til að blanda sér i
baráttuna um toppinn á Lands-
móti.
Af skráningum er ljóst að
óvenju mikið er af nýjum hest-
um I flestum keppnisgreinum. 1
hverri grein má þó þekkja nöfn
margra þeirra sem helst komu
viö sögu s.l. sumar.
Hvorki Skjóni né Fannar
munu þó mæta til leiks I skeiö-
inu og vafalaust veröur úrslita
þar beðið með mestri spennu.
Til að auka spennuna verður
veöbanki Fáks starfræktur að
venju. Þá veröur forvitnilegt aö
sjá hvernig nýjum knöpum reið-
ir af, þvi með samþykkt siðasta
ársþings L.H. hækkuðu aldurs-
mörk þeirra i 16 ár og eru þar
með flestir helstu knapar kapp-
reiðahrossa frá siðasta ári úr
leik.
1. júní er dregið
í kosningahappdrætti
Alþýðubandalagsins.
Gerið skil sem fyrst.
Kosningahappdrætti
Alþýðubandalagsins
Happdrættismiðar i kosningahappdrætti Alþýðubandalagsins
hafa veriðsendir út til stuðningsmanna og velunnara Alþýöu-
bandalagsins I Reykjavik.
Miðanamá greiða i öllum bönkum og póstútibúum og á skrif-
stofu ABR að Grettisgötu 3 og Siðumúla 27.
Þeir sem ekki hafa fengið senda miða geta snúiö sér til kosn-
ingamiðstöðvar félagsins aö Siðumúla 27 (simar 39813 og
39816).
VINNINGAR: Suzuki Alto. Sérlega sparneytinn og hag-
kvæmur fjölskyldubillað verðmæti kr. 81.000.- og 8 ferðavinn-
ingar með Samvinnuferðum-Landsýn.
Samtals að verðmæti 40.600
Tryggjum öfluga kosningabaráttu G-listans i Reykjavik.
'Gerum skilsem fyrst.
Staða yfirbókavarðar
við Bæjar- og héraðsbókasafnið
á Selfossi er laus til umsóknar
Hér verðurum fullt starf að ræða og gert
er ráð fyrir að viðkomandi hafi búsetu á
Selfossi. Leitað er að manni sem lokið hef-
ur prófi i bókasafnsfræðum, hefur starfs-
reynslu og góða stjórnunarhæfileika.
Starfið er veitt frá 1. júli 1982. Umsóknar-
frestur er til 1. júni 1982.
Umsóknir sendist til formanns safn-
stjórnar, Karls J. Eiriks, Þóristúni 17.
Selfossi, sem gefur nánari upplýsingar ef
óskað er. Simi 99 — 1268.
Lausar stöður
Við Fjölbrautaskólann á Akranesieru lausar til umsóknar
kennarastöður i stærðfræði, eðlisfræði og viðskiptagrein-
um.
Launsamkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir með ýtarlegum upplýsingum um námsferil og
störf skulu hafa borist menntamálaráðuneytinu, Hverfis-
götu 6, 101 Reykjavik, fyrir 9. júni nk. Umsóknareyðublöð
fást i ráðuneytinu.
Menntamálaráöuneytiö
11. mal 1982.
Ath.
Fundist hefur kvenúr i Efstasundi.
Uppl. isima 34088.