Þjóðviljinn - 06.10.1982, Qupperneq 2

Þjóðviljinn - 06.10.1982, Qupperneq 2
2 StÐAr^- ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur.6. október 1982 „Safnast samt alltaf fynr „Ég er að leita mér að BASIC bók“, sagði hann og mældi út hill- una í kjallaranum hjá Eymuds- son. Við vorum að leita uppi áhugasama bókamenn, sem gcta helst aldrei brugðið sér í bæinn án þess að líta inn í næstu bókabúð. Þurftum ekki lengi að lcita. Höf- um strax rekist á einn. - B ASIC, er það eitthvað í sam- bandi við tölvur? spurði blaða- maður og þóttist fróður. / - Já, svaraði viðmælandinn, ég var að kaupa mér tölvu fyrir hálf- um mánuði sem hægt er að „próg- rammera." - Eru tölvur nýjasta dellan? - Það eru margir komnir með þessi tæki, segir viðmælandinn og heldur áfram að mæla út hill- urnar. - Hvað heitir þú, og ertu í skóla? spyr blaðamaður sem vill kynnast viðmælandanum aðeins nánar. - Ég heiti Svavar Sigurðsson og er í Armúlaskóla. - Ferðu oft í bókabúðir? - Já, frekar. Mér þykir alltaf gaman að koma í bókabúðir. „Var að kaupa mér tölvu fyrir há - Hvað lestu helst, spennu- bækur? - Nei, ég les frekar klassískar. bækur: Tolstoj, Hemmingway, Romain Rolland. Ég er t.d. að lesa Jóhann Kristófer núna. -Lestu mikið á veturna? - Já ég les miklu meira á vet- urna heldur en á sumrin. Hvað þurftir þú að eyða miklu í námsbækur fyrir veturinn? mánuði“, sagði Svavar og sökkti Rúmlega 2000 krónur. Það var illa sloppið. Mér gekk illa að fá lán aðar bækur. Það er líka alltaf verið að skipta um kennslubækur. Það kostar sitt fyrir okkur. - Finnst þér bækur dýrar? - Nei, bækur eru fremur ódýr- ar, miðað við margt annað. Sér- staklega pappírskiljur. - Áttu erfitt með að komast 1 bókarlaus út úr bókabúð? spyr sér niður í tölvubækurnar. blaðamaður og minnist eigin veikleika. - Mér finnst auðvelt að komast út án þess að kaupa, en það safn- ast samt alltaf fyrir heima, segir Svavar. Hann er enn að mæla út bóka- hillurnar þegar við læðumst upp úr kjallaranum. -•g Frjálshyggjan Friðhelgi einkalífsins er slagsmál án vitna. síöan viöboiri Ðringubein / > ' / Xiphoid þessu svæði. Setjið handarrót annarrar hand- ar ofan á skyggða svæðið á bringubeininu (sjá mynd A). Setjið hina höndina ofan á handarbakið. Látið fingurna ekki snerta brjóstkassann. Hafið handleggina beina. Kannt þú hjarta- hnoð? Þegar hjarta er hnoðað þá á að nota handarrótina, ekki fing- urna. Hnoðið felst í því að klemma hjartað á milli bringu- beins og hryggsúlunnar - og fá þannig nægilegt blóðstreymi frá hjartanu til hjartavöðvans og annarra viðkvæmra vefja. Við hjartahnoð þarf að reyna að komast hjá þvf að brjóta rif sjúklingsins, en stundum er slíkt óhjákvæmilegt. Sá sem hnoðar - á að vera beint yfir sjúklingnum, með báða handleggi beina (ekki beygja í olnbogum) og nota allan líkams- þunga sinn (sjá mynd d), en ekki vöðvakraft. Mjög erfitt er að hnoða lengi. Því er afar mikilvægt að hafa rétt handtök strax í upp- hafi svo viðkomandi geti haldið út eins lengi og þörf er á. Hnoða þarf 60-80 sinnum á mínútu í flestum tilvikum. Hnoð er fullnægjandi, finnist púlsar í nárum og á hálsi, og ef sjáöldur halda áfram að vera þrengd (og þá er öndunin einnig fullnægj- andi). — og þegar dimmir nota allir í fjölskyldunni end- urskinsmerki. Vísindi á íslandi Fiskur f í sjókrapa Gerðar hafa verið ýmsar rann- sóknir á gæðum bolfisks sem geymdur er í sjókrapa í stað venjulegrar ísunar. Niðurstöður hafa verið svipaðar og gerist meðal nágrannaþjóðanna, þ.e. að gæðin séu í stórum dráttum hliðstæð og við ísun séu geymslu- aðstæður góðar. Við þessar til- raunir hafa verið notaðir einangr- aðir gámar ca. 1 m2 stærð. Góður árangur með geymslu fisksins í þessum gámum hefur náðst þegar blöndun í gámnum er nægjanleg, t.d. við velting um borð í veiðiskipi. Hins vegar myndast auðveldlega hitapollar í gámunum þegar þeir eru í kyrr- stöðu og skemmist fiskurinn mjög fljótt. f undirbúningi eru til- raunir til að leysa þetta vand- amál. Mesta hraungosið 1783. í Skaftáreldum 1783 kom upp mesta hraunmagn sem komið hefur í einu gosi á sögulegum tíma. Frumathugun hefur verið gerð á efnasamsetningu hrauns- ins og sýnir að hraunið virðist allt hafa nánast sömu efnasam- setningu. Kemur sú niðurstaða nokkuð á óvart.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.