Þjóðviljinn - 06.10.1982, Síða 9

Þjóðviljinn - 06.10.1982, Síða 9
Miðvikudagur 6. október 19821 ÞJóÐVILJINN — SIÐA 9 Hér má fá nokkra hugmynd um hvernig glerveggurinn mun taka sig út og hvert rýmið verður í skólanum, sem Maggi Jónsson hefur teiknað. Litlu Herramennirnir í módelinu eru ekkert stærri en unglingarnir verða í „alvöruhúsinu". - (Ljósm.: eik). Ekki eru allar byggingarnar jafn glæsilegar og sú á myndinni til hægri - eða þá starfsemin innan H er nyti tyi ji uennsui n»pa n og þar á töflu hangir þessi orðsending sem sjá má hér á myndinni til vinstri. - (Ljósm.: gel). Fjölbrautaskólinn á Selfossi er hvorki aldinn að árum né íburðarmikill að sjá. Hann tók til starfa haustið 1981, ogívetur munu um 330 nemendur vera innritaðir í dagskólann. Öldungadeild er einnig starfandi við skólann. Við Gunnar Ijósmyndari reyndum að finna „skólann”, þeg- ar við vorum á ferð um Selfoss um daginn. „Skólinn” reyndist vera á ekki færri en sex stöðunr í bænum og þarna sá maður kennara þjóta út úr einu húsi, upp á bak hjólhesta og þeysa af stað í næstu byggingu. Og nemendur? Ekki eru þeir á minni þeytingi. Þeir hafa enga aðstöðu fyrir sitt félagslíf og „bóka- safnið” og önnur „söfn” fjarlægir draumar. Þarna verða menn veskú að læra bara heima - nú eða þá nota gangana í þeim byggingum, sem skólahaldið hýsa eins og við sáum dæmi um. Ja, mikill er áhug- inn Jeremías minn! Skólameistarinn, Heimir Páls- son, leiddi okkur góðfúslega um ríki sitt. Stjórnstöð skólans er í húsi Búnaðarbankans við Austurveg. Þarna eru tvær skólastofur - litlar - og pínulítil kompa sem hýsir tölvur skólans. í kompunni ræður ríkjum Tómas Rasmus. , Þrjár kennslustofur fær Fjöl- brautaskólinn í húsi gamla barna- skólans. „Skemmtilegt hús,” segir skólameistari og bendir ineð píp- 1 ustertinum. „Hér var samkomu- hús, hér var messað, hér var leikið og hér var iðnskólinn með aðstöðu þar til Fjölbrautin var stofnuð”. Næst liggur leiðin eftir Tryggva- götunni. Þar er lítill og lágreistur timburhjallur, sem heitir Sjálfstæð- ishúsið. Þar hefur Fjölbrautin ' eina kennslustofu. „Við holum , okkur alls staðar niður”, segir j Heimir og brosir. Fjölbrautaskólinn hefur fimm kennslustofur í gagnfræðaskóla- húsinu. Skoðunarferðin endar í verknámshúsi Fjölbrautarinnar, | sem áður tilheyrði iðnskólanum. „Þetta er fullkomnasta trésmíða- kennslustofa landsins,” segir ; skólameistari og sviptir upp dyrun- um. Og þaðeralvegrétt. Viðgöng- um um salinn og skólameistari skýrir fyrir okkur starfsemina, sem þarna fer fram. Og í einu horninu stendur nokkuð, sem okkur hafði ekki órað fyrir: lieil kennslustofa! ounuiau ui ius.au Nýja skólahúsið á að rísa sunnan við verknámshúsið. Byggingin verður liðlega 5000 fermetrar og er ekki hægt að segja annað en hug- rnyndir dr. Magga Jónssonar séu nýstárlegar. Kennslurými verður á þremur hæðum og er gengið inn í kennslustofur af svölum, en á þeim verður svæði fyrir hópvinnu og samskipti nemenda. Það sem vekur kánnski mesta at- hygli er að veggur á suðurhlið skólans verður mestallur úr gleri. (Ljósmyndin hansEinars af módeli sýnir þessa hugmynd með gler- vegginn). Birtu verður stjórnað með flekum á milli bita, sem hreyfast fyrir rafmagni. Við spurðum Heimi hvort þetta væri ekki bruðl. Ekki kvaðst hann vilja taka undir það. Byggingin væri öll mjög einföld að öðru leyti en þessu, og sparaðist mikið á því. „Fólk er bara ekki vant þessari hugmynd og heldur þess vegna að hún muni kosta offjár”, sagði Heimir. Þess má einnig geta, að þegar til Reykjavíkur var komið hafði ég samband við dr. Magga Jónsson til að fá teikningar og ljósmynda mó- delið. Ég.spurði hann hvort hann væri ekkert hræddur við vegginn. „Nei, það er engin ástæða til þess”, sagði Maggi. „Það hafa ver- ið byggðir svona veggir svo þús- undum skiptir víða um heim og tæknileg atriði löngu leyst. Við erum bara hrædd við þetta, vegna þess að hér á árunum voru byggðir flennistórir stofugluggar sem gerðu stofurnar að óþolandi vistarverum. En glerið stendur fyrir sínu”. Við óskum Heimi og Selfyssing- um til hamingju með skólann. ast samheldnin sterk Ferö um Fjölbmutaskólann á Selfossi Við vissum, að þarna ríkti húsnæð- isleysi - en þetta! Kvöldið áður en við vorum þarna á ferð (22. september sl.) samþykkti stjórn bæjarins teikningar dr. Magga Jónssonar, arkitekts, að húsnæði fyrir Fjöl- brautaólann. Væntanlega verður byrjað strax á framkvæmdum. Skólameistari virðir fyrir sér fínasta trésmíðakennslusal landsins. - (Ljósm.: gel.) Tómas Rasmus kennir á tölvur Fjölbrautaskólans á Selfossi, en slík kenn- Hér er allt i scnn - kennarastofa, vinnuherbcrgi kennara og „bókasafn“ sla er komin í kjarna velflestra fjölbrautaskóla landsins. - (Ljósm.: gel). skólans. - (Ljósm.: gel).

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.