Þjóðviljinn - 06.10.1982, Blaðsíða 15
Sjónvarp kl. 21.10
DALLAS
hefur göngu
sína að nýju
Miðvikúdágúr 6! 'október 1982 ÞJ
RUV ©
7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn. Gull í
mund.
8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.15 Veðurfregnir.
Morgunorð: Gunnlaugur Snævarr talar.
8.30 Forustugr. dagbl. (útdr.).
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna: „Eldfær-
in”, ævintýri H.C.Andersens Þýðandi:
Steingrímur Thorsteinsson. Eyvindur
Erlendsson les.
9.20 Tilkynningar. Tónleikar.
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir.
10.30 Sjávarútvegur og siglingar Umsjón-
armaður: Ingólfur Arnarson. Fjallað
um málefni er varða Sjómannasamband
íslands og rætt við Óskar Vigfússon.
10.45 Tónleikar. Þulur velur og kynnir.
11.05 Lag og Ijóð Þáttur um vísnatónlist í
umsjá Gísla Helgasonar.
11.45 Ur byggðum Umsjónarmaður: Rafn
Jónsson.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Til-
kynningar.
13.00 Dagstund í dúr og moll Umsjón:
Knútur R. Magnússon.
14.30 „Ágúst” eftir Stefán Júlíusson. Höf-
undurinn les (3).
15.00 Miðdegistóníeikar:
15.40 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregn-
ir.
16.20 Litli barnatíminn
16.40 Tónhornið Stjórnandi: Anne Marie
Markan.
17.00 Djassþáttur í umsjáJóns Múla Árna-
sonar
17.45 Neytendamál Umsjónarmenn: Anna
Bjarnason, Jóhannes Gunnarsson og
Jón Ásgeir Sigurðsson.
17.55 Tilkynningar. Tónleikar.
18.45 Veðurfrgnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir
19.45 Daglegt mál. Ólafur Oddsson flytur
þáttinn. Tilkynningar. Tónleikar.
20.00 Áfangar Umsjónarmenn: Ásmund-
ur Jónsson og Guðni Rúnar Agnarsson.
20.40 Klarinettukonsert í A-dúr K.622 eftir
Wolfgang Amadeus Mozart.
21.10 Stefán íslandi 75 ára Guðmundur
Jónsson flytur formálsorð. Stefán ís-
landi syngur m.a. atriði ur óperunni
Rigcúetto eftir Verdi.
21.45 Útvarpssagan: „Brúðarkyrtillinn”
eftir Kristmann Guðmundsson Ragn-
heiður Sveinbjörnsdóttir les (2).
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá
morgundagsins. Orð kvöldsins
22.35 Iþróttaþáttur Hermanns Gunnars-
sonar
23.00 Kammertónlist Leifur Þórarinsson ■
kynnir.
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
RUV -
18.00 Stikilsberja-Finnur og vinir hans
NÝR FLOKKUR - 1. þáttur. Velkom-
inn, nágranni. Þýsk-kanadískur fram-
haldsmyndaflokkur gerður eftir bókum
bandaríska rithöfundarins Marks Twa-
ins, Sögunni af Tuma litla og Stikils-
berja-Finni. Söguhetjurnar eru drengir,
sem alast upp í smábæ við Mississippi-
fljót á öldinni sem leið, og lenda í alls
konar ævintýrum. Þýðandi Jóhanna Jó-
hannsdóttir.
18.25 Svona gerum við NÝR FLOKKUR -
1. þáttur. Máttur loftsins. Breskur
fræðslumyndaflokkur í 12 þáttum sem
ætlaður er 10-14 ára börnum. í þáttun-
um er leyndardómum eðlisfræðinnar
Iokið upp á nýstárlegan og skemmti-
legan hátt.Þýðandi og þulur Guðni Kol-
beinsson.
18.50 Hlé.
19.45 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.35 Auglýsingar og dagskrá.
20.35 Nýjasta tækni og vísindi. Umsjónar-'
maður Sigurður H. Richter.
21.10 Dallas. Bandarískur framhaldsflokk-
ur um hina auðugu Ewing-fjölskyldu í
Texas. Aðalhlutverk: Larry Hagman,
Linda Gray, Patrick Duffy, Victoria
Principal, Jim Davis, Barbara Bel
Geddes og Charlene Tilton. Dallas lauk
síðast með því að Sue Ellen og J.R.
eignuðust erfingja og verður nú þráð-
urinn tekinn upp þar sem frá var horfið í
janúar 1982. Þýðandi Kristmann
Eiðsson.
22.00 Er heilinn óþarfur? Bresk heimildar-
mynd um börn, sem fæðast með svo-
nefnt vatnshöfuð, og nýjar aðferðir tii
að koma þeim til eðlilegs þroska.
22.55 Dagskrárlok.
frá lesendum
Eru íslenskir
ferðamenn rændir?
Ferðalangur skrifar:
Oft auglýsa íslenskar ferða-
skrifstofur með miklum fyrir-
gangi að þær hafi vegna góðra
sambanda sinna erlendis, og
að því er manni stundum
skilst, fyrir sérstaka góðvild
og kunningsskap, náð „sér-
lega“ góðum samningum um
sólarlandaferðir. Ég ætla nú
að greina hér frá hve „ódýr“
ein slík ferð getur verið.
Ég fór í sérstökum erinda-
gjörðum til Kaupmannahafn-
ar í síðasta mánuði og ákvað
áður en ég fór að heiman að
nota tækifærið og fara með
danskri ferðaskrifstofu suður
til Portúgal. Keypti ég því
miða hér heima hjá ferða-
skrifstofu sem er umboðsaðili
þeirra dönsku. Tveggja vikna
ferð kostaði okkur hjónin frá
Kaupmannahöfn kr. 11.700,
greitt í íslenskum krónum.
Þegar íslensk hjón, sem við
þekkjum, koma svo til þriggja
vikna dvalar á sama stað, á
vegum Útsýnar, spyr ég þau
hvað þau hafi þurft að borga
fyrir ferðina. Svar: Um kr.
37.000 með tveimur nóttum í
London á heimleið! Hefði ég 4
verið þrjár vikur, þyrfti ég að
borga danskinum ca. ísl.
krónur 1600 til viðbótar,
11.700 plús 1.600 = 13.300.
Tvær nætur í Kaupmannahöfn
kosta ca 1200. Þá erum við
komin í kr. 14.500 og er þá
ótalin ferðin til Kaupmanna-
hafnar frá íslandi og heim
aftur.
Apex-fargjald var þá kr.
6.250 fyrir okkur. Fyrir hjónin
er það 12.500 plús 14.500 eins
og áður sagði og heildarkost-
naður 27.000 krónur. Mis-
munur á okkar verði og því
sem íslensku hjónin frá Utsýn
greiða er því kr. 10.000!
Það voru tuttugu manns í
Útsýnarferðinni, 20x5000 ger-
ir litlar eitt hundrað þúsund
krónur. Nú geri ég alveg ráð
fyrir því, að danskurinn vilji fá
eitthvað fyrir sinn snúð og
verður því að ætla að þessi
upphæð komi til viðbótar eðli-
legum hagnaði. Einnig er á
það að líta að ódýrara er að
fljúga til London, en um verð-
lag enskra veit ég ekki.
Þeir eru kannski svona dýr-
ir? Ef svo er, skiptir Útsýn
ekki við rétta aðila. Ég ætla
allavega að athuga vel minn
gang áður en ég kaupi hópferð
með íslenskri ferðaskrifstofu.
Kostnaður við skoðunar-
ferðir úti er svo kapítuli út af
fyrir sig.
Ferðalangur
Stikilsberja-Finnur og vinur hans Tumi.
♦
Barna- og unglingadagskrá hefst
í sjónvarpinu kl. 18
Stikilsberj a-F innur
og vinir hans
Stikilsberja-Finnur, sögu-
persónan sem Mark Twain
gerði ódauðlega, ætti enn að
verða börnum og unglingum
nokkur dægrastytting, því í
dag byrjar í sjónvarpinu
framhaldsmyndaflokkur um
Finn og félaga hans, ævintýri
þeirra á bökkum Missisippi-
fljótsins.
Þættirnir eru alls 26 talsins,
og í kynningarriti sem sjón-
varpið hefur sent frá sér vegna
þáttanna segir að framhalds-
myndaformið geti gert
Stikilsberja-Finni mun betri
skil en stuttar myndir. Aðal-
leikararnir eru tveir 15 ára
gamlir Kanadabúar, Ian Trac-
ey sem leikur Finn, og Sammy
Snyder sem Ieikur Tom Sawy-
er. Mikið við sögu kemur
einnig þrællinn Jim, sem
leikinn er af Blu Mankuna.
Þess er einnig getið, að vegna
þess að Mississippifljótið sé
ekki það sama og var hér í
eina tíð, þá hafi myndatakan
að mestu farið fram við
Fraser-ána, rétt hjá Vancouv-
er í Kanada.
Fróður maður stakk inn
höfðinu þar sem þetta var rit-
að og sagði, að þó öfgamenn
til hægri vildu oft banna hinar
og þessar bækur, mætti finna
talsmenn slíks banns í röðum
vinstrimanna og frjálslyndra.
Þannig teldu margir Stikils-
berja-Finn vart boðlegan þar
sem blökkumenn væru í bók-
inni afgreiddir á lítt verð-
skuldaðan hátt og að þar jaðr-
aði við að alið væri á kynþátta-
hatri.
Sjónvarp kl. 22.00:
Börn með
vatnshöfuð
öðlast
aukna
möguleika
I sjónvarpinu í kvöld er á
dagskrá þáttur sem nefnist
„Er heilinn óþarfur?” Þýð-
andi þáttarins er Jón O.
Edwald, en þulur Friðbjörn
Gunnlaugsson..
Að sögn þýðandans Jóns O.
Edwald fjallar þátturinn um
batamöguleika þeirra cinstak-
linga sem fæðast með vatns-
höfuð. I mörgum tilvikum hef-
ur tekist að leiða vatnið sem
safnast fyrir í heiianum niður í
Sharon. „Hcili hcnnar hefur
orðið fyrir þeim breytingum
að óeðlilega mikið vatn hefur
orðið eftir í honum“, sagði
þulur þáttarins, Friðbjörn
Gunnlaugsson.
blóðrásina og þeir einstak-
lingar sem notið hafa þcirrar
læknismeðferðar hafa komist
til nokkurs þroska, jafnvel þó
svo all-stór hluti heilans nýtist
ekki.
DALLAS - þátturinn sem af
einhverjum ástæðum hefur
hlotið meiri vinsældir en aðrir
- hefur göngu sína að nýju í
íslenska sjónvarpinu. Síðasta
Dallasskammt þraut um
miðjan síðasta vctur við mikla
ánægju sumra - óánægju ann-
arra.
Þátturinn í kvöld hefst kl.
21.10 og stendur í tæpa
klukkustund. Þar var komið
sögu síðast, að Sue Ellen ól
barn, og er ýmislegt sem
bendir til þes að J.R. sé ekki
hinn eini sanni faðir þess. Cliff
Barnes á til þess sterkt tilkall.
Þátturinn í kvöld og næsti
þáttur snýst að miklu leyti um
það hvort Ewing-fjölskyld-
unni tekst að forðast það
hneyksli sem barnsburðurinn
kann að valda. Cliff Barnes
fer á stúfana og er til alls vís.
Að venju er það hinn illvígi
J.R. sem allt snýst um. Þrátt
fyrir illt innræti er þarna á
ferðinni ein vinsælasta
persónusköpun amerísku
sjónvarpsfabrikkunnar.
Grípum niður í hið vinsæla
ameríska TV-guide:
J.R. birtist aftur á skjánum í
kvöld. Þátturinn um
Ewing-fjölskylduna tekur um
eina klst. í flutningi.
„...Hversvegna J.R. er svo
vinsæll er langt í frá auðsætt í
fyrstu. Það hafa verið til
skúrkar fyrr í sjónvarpsmynd-
um, en tæplega nokkrir á borð
við hann. J.R. myndi selja
mömmu sína ef það yrði hon-
um til framdráttar á fjármála-
sviðinu. Einhliða umgengni
hans við kvenfólk minnir á
kynhegðan kanína. Honum er
ekki treystandi, - og hvernig
hann umgengst systur konu
sinnar..."
Dallas-aðdáendur geta
tekið gleði sína.