Þjóðviljinn - 06.10.1982, Qupperneq 16

Þjóðviljinn - 06.10.1982, Qupperneq 16
DIOÐVIUINN Miðvikudagur 6. október 1982 Hagkaup hyggljast stækka við sig: Vai fá 28 þúsund fermetra og 1500 bflastæði! Hagkaup hafa sent inn um- sókn um lóð í nýja miðbænum við Kringlumýrarbraut og hyggjast reisa þar „Kaupvang“ eða „Shopping Mall“ eins og segir í bréfi fyrirtækisins. Hefur fyrirtækið fengið arkitektana Hilmar Ólafsson og Hrafnkel Thorlacius til þess að gera fyrstu drög að fyrirkomulagi svæðisins. Fyrirætlanir Hagkaupa eru stór- ar í sniðum: Sótt er um 28 þúsund fermetra verslunarpláss og 1500 bílastæði. Sigurður Harðarson, fulltrúi Alþýðubandalagsins í skipulagsnefnd sagði að í umsókn- inni kæmi fram að Hagkaup hyg- ðust sjálf nýta helming þessa pláss en fá með sér nokkra „öfluga aðila" til að reisa og reka hinn helminginn, sem yrði með fjöl- breyttum verslunum. Sigurður sagði að innan skamms yrði í skipulagsnefnd kynnt forsögn að nýju skipulagi í Nýja miðbænum í kjölfar verslunarkönnunar sem Borgarskipulag hefur gert. Niður- staða þeírrar könnunar var m.a. sú að ekki eigi að byggja upp verslun- armiðstöð í Nýja miðbænum held- ur austar í borginni og þá helst í Mjóddinni. Sagðist hann hafa lagt til að umsókn Hagkaupa yrði látin bíða þar til fjallað hefði verið um svæðiö í heild og það væri sín skoðun að fráleitt væri að afhenda fyrirtækjum svo stór svæði til þéss að skipuleggja án tillits til heildar- skipulags. Þess má að lokum geta að Útgáfufélag Morgunblaðsins, Árvakur, hefur sótt um 14 þúsund fermetra lóð í Nýja miðbænum. / Aætlun um endurbætur á styttum borgarlnnar Umhverfísmálaráð Reykjavíkur samþykkti fyrir skömmu að gerð skyldi áætlun um endurbætur og viðhald á myndastyttum borgar- innar. Fól ráðið garðyrkjustjóra og list ráðunaut borgarinnar að annast málið í samráði við Myndhöggva- rafélagið. Gerir tillagan ráð fyrir gerð kostnaðaráætlunar og tillögu um forgangsröðun verkefna. Flutningsmaður var Álfheiður Ing- adóttir. Fyrir skömmu birtist hér í Þjóð- viljanum viðtal við Ragnar Kjart- ansson myndhögvara þar sem hann átaldi harðlega þá niðurníðslu sem margar höggmyndir borgarinnar eru í. Að sögn Hafliða Jónssonar, garðyrkjustjóra borgarinnar, hefur í sumar verið unnið að viðgerð á nokkrum styttum, en mjög skiptar skoðanir hafa verið um hvort hreinsa ætti spanskgrænu af eirnum. Sagði Hafliði að í fram- haldi af samþykkt umhverfismála- ráðs yrði nú leitað samráðs við Myndhöggvarafélagið og kannað hvernig best er að standa að við- gerðum á höggmyndum. Aðalsími Þjóðviljans er 81333 kl. 9-20 mánudag til föstudags. Utan þess tíma er hægt að ná í blaðamenn og aðra starfsmenn blaðsins í þessum Aðalsími Kvöldsími Helgarsími sínum: Ritstjórn 81382,81482og81527, umbrot 81285, ljósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9 - 12 er hægt að ná í afgreiðslu blaðsins í síma 81663. Prentsmiðjan Prent hefur síma 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. 81333 81348 afgreiðslu 81663 Friðarhópur kvenna frá vinstri, efri röð: Kristín Ástgeirsdóttir, Ragna Bergmann, Svanlaug A. Árnadóttir, Helga Jóhannsdóttir, Sigrún Sturludóttir, Unnur S. Ágústsdóttir, María Pétursdóttir. Neðri röð: Ólöf P. Hraunfjörð, Guðlaug Pétursdóttir, Margrét S. Björnsdóttir, Helga Kr. Möller, Elín Pálmadóttir, Esther Guðmundsdóttir, Valborg Bentsdóttir, Kristín Guðmundsdóttir, Gérður Steinþórsdóttir, Mar- grét Einarsdóttir, Björg Einarsdóttir, Guðríður Þorsteinsdóttir, Guð- rún Helgadóttir, Guðrún Gísladóttir og María Jóhanna Lárusdóttir. Á myndina vantar Sigríði Thorlacius, Bessí Jóhannsdóttur, Auði Eir Vilhjálmsdóttur, Hrefnu Arnalds og Álfheiði Ingadóttur. Ljósm. -gel. Friðarhópur kvenna sendir frá sér ávarp Við viljum afvopnun „Við viljum frið. Við viljum að framleiðsla kjarnorkuvopna verði stöðvuð og bann verði lagt á framlciðslu efnavopna og sýklahernað. Við viljum að öll kjarnorkuvopn verði eyðilögð. Við viljum afvopnun.“ Þetta er upphafið að ávarpi sem Friðarhópur kvenna hefur sent frá sér, en það undirrita 27 konur sem einstaklingar. Þær hafa starfað á vegum Bandalags kvenna í Reykjavík, Kvenfél- agasambands íslands, Kvennaframboðsins, Kvenréttindafé- lags íslands, Menningar og friðarsamtaka íslenskra kvenna, Prestafélags Islands, samvinnuhreyfingarinnar, skátahreyfing- arinnar, stjórnmálaflokkanna fjögurra og verkalýðshreyfingar- innar. í sumar og haust hefur hópur kvenna á höíuðborgarsvæðinu komið saman og rætt samstarf íslenskra kvenna að friðar- og afvopnunarmálunum. Ávarpið sem konurnar 27 senda nú frá sér hefur verið sent stjórnum kvenfélaga og kvennasamtaka um Iand allt, og er óskað liðsinnis félaganna við starf á þeim grund- velli sem í ávarpinu felst. Verði undirtektir góðar er áformað að boða til ráðstefnu á fyrri hluta næsta árs þar sem rætt yrði um stofnun friðarhreyfingar íslenskra kvenna og þau verkefni sem slík hreyfing ætti að vinna að. Friðarhópurinn hefur utaná- skriftina: Friðarhópur kvenna, Hallveigarstöðum við Túngötu, Reykjavík. - ekh Hannes Hafstein flekkóttur af spanskgrænu. Stefna Sjáfstæðismanna í Reykjavík: Stjóm verður Borgarráð samþvkkti í gær gegn atkvæðum Oddu Báru Sigfúsdóttur og Guðrúnar Jónsdóttur að fela borgarstjora að taka upp viðræður við menntamálaráðherra um starf- semi og stöðu fræðsluskrifstof- unnar í Reykjavík. Adda Bára Sigfúsdóttir sagði eftir fundinn að Ijóst væri að stefnt væri að því að takmarka störf nýráðins fræðslustjóra I Reykjavík við þau verk sem ráðuneytið ákvæði og væru lagaleg skylda. Adda sagði að á b'orgarráðsfund- inum hefði komið skýrt fóam að til- fræðslumála skipt í Röng stefna og aukinn kostnaður, segir Adda Bára Sigfúsdóttir lagan væri sprottin einvörðungu af því að menntamálaráðherra hefði skipað í stöðu fræðslustjóra gegn vilja meirihluta Sjálfstæðismanna í fræðsluráði. Þeir teldu að þar með tvennt gæti borgin ekki litið á hann sem starfsmann sinn heldur starfsmann menntamálaráðuneytisins. Það virðist stefnt að því að kljúfa stjórn fræðslumála í Reykjavík í tvennt, sagði Adda og því er ég andvíg. Gamla fyrirkomulagið, þar sem einn fræðslustjóri sér bæði um rekstur skólanna og kennslueftirlit er gott, og ástæðulaust að hverfa frá því. Þarna er í fjótræði verið að gera glappaskot sem síst mun leiða af sér sparnað eða betri stjórnun fræðslumála. Þvert á móti verður dýrara að reka fræðslumálin í tvennu lagi og býður upp á fjölda árekstra -Á1

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.