Þjóðviljinn - 19.10.1982, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 19. október 1982 ÞJóÐVILJINN — SÍÐA 3
Ein dönsku stúlknanna á Þingeyri farin heim,
en hinar ætla að halda áram að vinna
„Klaufaskapur hjá
Vin nn málasamhandi”
,,Mistökin eru mín” segir lögfræðingur VMS
„Ég/tek á mig þessi mistök“, sagði síðustu viku, en þegar í ljós kom að um þessa 40% reglu væri ekki að
Sigmundur Hannesson lögfræðing- henni var aðeins heimilt að yfir- finna í þeim kynningarbæklingi
ur Vinnumálasambands samvinn- færa 40% af tekjum sínum til Dan- sem VMS lét dreifa á atvinnumiðl-
ufélaganna, aðspurður hver bæri merkur meðan hún er hér við unarskrifstofur í Danmörku og
ábyrgð á því að ónógar upplýsingar vinnu, ákvað hún að halda utan væru það sín mistök. „Aðalatriðið
til danskra stúlkna sem ráðið hafa aftur, þar sem þessi 40% dygðu er þó, að við höfum ekki gefið
sig í fiskvinnslu víða um land, urðu ekki til að standa undir afborgun- neinar rangar upplýsingar, nema
þess valdandi að ein þeirra hefur um sem hún þarf að standa í skilum að tekjutrygging var miðuð við
farið til síns heima aftur. Umrædd við. laun í ágúst s.l. en síðan hafa komið
stúlka réð sig í vinnu til Þingeyrar í Sigmundur sagði að upplýsingar 7,5% verðbætur.
■ Nú eru 19 danskar stúlkur starf-
) andi við fiskvinnslu hérlendis, 8 á
Vopnafirði, 6 í Grundarfirði og 5 á
Þingeyri.
„Það er leiðinlegt að þetta skyldi
koma upp á Þingeyri, en aðalatrið-
ið í þessu máli er að við erum að
reyna að útvega frændum okkar
sem eiga við atvinnuleysi að stríða,
atvinnu hér á landi. Við eigum von
á fleiri dönskum stúlkum til vinnu
hér ef þetta umrædda mál hefur
ekki sett strik í reikninginn,“ sagði
Sigmundur.
Árrisulir borgarbúar ráku upp stór augu í gærmorgun, þegar Rán, þyrla
Landhelgisgæslunnar sendi körfu sína niður á ólgandi Fossvoginn. Sem
betur fer kom í Ijós, að hér var aðeins um björgunaræfingu að ræða og
enginn í nauðum staddur. Myndina tók gel af þyrlunni, en karfan er beint
undir henni.
Sögulegt þing Iönnemasambandsins:
Formaðurinn
sagði af sér!
„Ég harma þau gerræðislegu
vinnubrögð sem skipulagður hópur
hægri manna viðhöfðu á nýaf-
stöðnu þingi Iðnnemasambands ís-
lands. Samtök iðnnema hafa í gegn-
um árin unnið sér sess í atvinnulífi
og menntakerfi þjóðarinnar, sem
óflokkspólitísk samtök, en með
skrípaleik hefur þessum mönnum
tekist að vinna ætlunarverk sitt,
þ.e. að rýra álit manna á Iðnnema-
sambandinu”, sagði Pálmar Ilall-
dórsson fráfarandi formaður Iðn-
nemasambands íslands í samtali
við Þjóðviljann í gær.
40. þing INSÍ var haldið um sl.
helgi og varð all sögulegt áður en
yfir lauk. Eftir að Haraldur Krist-
jánsson hafði hlotið kosningu sem
formaður með 2ja atkvæða meiri-
hluta ákvað stór hluti sambands-
stjórnarframbjóðenda að draga
framboð sín til baka, þar sem þeir
treystu sér ekki til að starfa með
nýkjörnum formanni. Þar á meðal
var frambjóðandi til
varaformannsembættis. Tókst þó
að ná saman nýrri stjórn að skapi
hins nýkjörna formanns og var þar
um fólk að ræða sem flest hafði
ekki tekið þátt í félagsstarfi fyrr, né
höfðu þekkingu á málefnum iðn-
nema. 66 þingfulltrúar tóku þátt í
kosningu nýrrar sambandsstjórn-
ar. 23 seðlar voru auðir og 6 ógild-
ir.
Eftir almennar umræður að
loknu þessu stjórnarkjöri sögðu
enn fjórir • nýkjörinna stjórnar-
manna af sér og varamaður þar að
auki! Kom þá fram dagskrártillaga
um að efnt yrði til nýrra kosninga,
þar sem sýnt væri að nýja stjórnin
nyti ekki lengur meirihluta þing-
fulltrúa. Þá brá svo við að nýkjör-
inn formaður INSf, Haraldur
Kristjánsson sagði af sér for-
mennskunni og gekk af þinginu
ásamt hópi stuðningsmanna og var
því ekki unnt að taka tillögu um
endurtekið stjórnarkjör til at-
kvæða. - v.
Þær fimm dönsku stúlkur sem
eftir eru á Þingeyri ætla að halda
þar áfram vinnu, en þó er óvíst með
eina þeirra sem haldin er „ein-
hverri heimþrá", að því er Sigurður
Kristjánsson kaupfélags- og frysti-
hússtjóri á Þingeyri upplýsti í sam-
tali í gær.
Sigurður sagði að Kaupfélagið á
Þingeyri væri alger þolandi í þessu
máli. Klaufaskapurinn lægi hjá
Vinnumálasambandinu. Aðspurð-
ur um laun dönsku stúlknanna fyrir
síðustu viku sagði hann að þær
hefðu náð 3-4000 í vikulaun, en
hæstu vikulaun heimamanna með
bónus væru um 6000 kr. ,
Ráðningartími stúlknanna er til
maíloka á næsta ári og greiðir þá
frystihúsið fargjaldið fyrir þær til
Danmerkur. Stúlkan sem hætti
vinnu í síðustu viku greiddi sitt far
sjálf, en lögfræðingur VMS taldi
líkur á því að krafist yrði endur-
greiðslu á fargjaldinu. -Ig-
Breiðafjarðarferja:
Leiðréttíng
Útaf villandi frétt, sem birtist í
Þjóðviljanum 14. þ.m. og byggð er
á viðtali við stjórnarformann Bald-
urs h.f. varðandi tcikningar af
væntanlegri ferju yfir Breiðafjörð,
þar sem sagt er að Þorbergur Olafs-
son hjá Bátalóni í Hafnarfirði hafi
gert teikningu af ferju, kannski
fyrir áeggjan frá Snæfellsnesi, eða
kannski bara mcð viðskiptasjón-
armið í huga, vil ég undirritaður
taka það fram, að því aðeins fór ég í
það verk að gera tillöguteikningu af
ferjunni að þess var óskað, bæði af
Olafi E. Olafssyni, sem þá átti sæti í
stjórn Baldurs h.f. svo og Kristni
Gunnarssyni deildarforstjórna í
samgönguráðuneytinu, sem þá var
formaður ferjunefndar.
Teikninguna af ferjunni lauk ég
við 26. maí s.l. en útboðslýsing
ásamt ferjuteikningu kom ekki
fram frá Siglingamálastofnun fyrr
en í ágúst s.l. svo að ekki er Um það
að ræða að teikningar frá undirrit-
uðum og Siglingamálastofnun hafi
komið fram samtímis. Það var
fyrirfram vitað að teikning mín
kæmi því aðeins að notum að hug-
myndin væri í samræmi við sjónar-
mið alls þorra þeirra manna, sem
nefndarfundi Baldurs h.f. og ferju-
nefndar sóttu og þeir töldu að hent-
aði best. Nefndarfundi var ég be-
ðinn að sitja í þeim tilgangi einum
að samræma hin ólíku sjónarmið
sem fram komu, og kom með til-
lögu.
Þorbergur Olafsson.
LEIRKERASMIÐIR
TAKIÐ EFTIR
I. Guðmundsson & Co hf heldur í samvinnu við
Podmore & Sons Ltd, námskeið í leirkeragerð að
Þverholti 18, Reykjavík, dagana 23. og 24. október
nk. Andrew Holden leirkerasmiöur sýnir notkun
„Alsager" rennibekks, mótar og skfeytir krukkur og
skálar úr Podmore leir og svarar fyrirspurnum um
leirgeragerð. D.W.PIant flytur fyrirlestur um
Podmore og svararfyrirspurnum. Við hvetjum alla
leirkerasmiði til að taka þátt í þessu námskeiði.
Þátttökugjaldió er mjög í hóf stillt.
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku hið allra fyrsta í síma
24020.
I. GUÐMUNDSSON & CO. HF.
Þverholti 18, Reykjavík. Sími 24020
Hitaveita
Reykjavíkur
óskar eftir verkamönnum til starfa.
Upplýsingar hjá verkstjóra, Grensásvegi 1
LAUS STAÐA
Við Flensborgarskólann í Hafnarfirði er laus til umsóknar-
kennarastaða í íslensku.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir, ásamt vtarlegum upplýsingum um námsferil og
störf, skulu hafa faorist menntamálaráðuneytinu, Hverfis-
aötu 6, 101 Reykjavík, fyrir 12. nóvemfaer n.k.
Sérstök umsóknareyðublöð fást í ráðuneytinu.
Menntamálaráðuneytið
15. október 1982.
Verkakvennafélagift
Framtídin Hafnarfirði
Tillögur stjórnar og trúnaöarmannaráös fyrir
áriö 1982 liggja frammi á skrifstofu félagsins
Strandgötu 11 frá og meö þriðjudeginum 19.
októbertil föstudagsins 22. október kl. 17.00
öörum tillögum ber aö skila fyrir kl. 17.00
föstudaginn 22, október, er þá framboðs-
frestur útrunninn. Tillögum þarf aö fylgja
meðmæli 20 fullgildra félagsmanna.
Verkakvennafélagið Framtíðin
Atvinnulóðir
Reykjavíkurborg auglýsir eftir umsóknum um
byggingarrétt á atvinnulóðum við Grafarvog
og nyrst á Ártúnshöfða.
Umsóknir skulu ritaðar á sérstök eyöublöö,
sem fást afhent á skrifstofu borgarverkfræö-
ings, Skúlatúni 2.
Umsóknarfrestur er til og meö 29. október
1982.
Athygli er vakin á því aö allar eldri umsóknir
eru hér meö fallnar úr gildi og ber því aö
endurnýja þær.
Allar nánari upplýsingar veröa veittar á skrif-
stofu borgarverkfræðins, Skúlatúni 2, 3.
hæö, þar sem jafnframt er tekiö á móti um-
sóknum.
Borgarstjórinn í Reykjavík.