Þjóðviljinn - 11.12.1982, Qupperneq 7
i
Helgin 11.-12. desember 1982 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 7
Dœmisögur nútímans
Jan Terlouw: Barist til sigurs
Iðunn 1982
Barist til sigurs er fimmta bók
Jan Terlouws hér á landi og hann
er orðinn mjög vinsæll fyrir þær
fyrri, sem eru: Stríðsvetur, Fár-
viðri, í föðurleit og Dulmáls-
bréfið. Þessi bók er að mörgu leyti
ólík hinum fyrri. Barist til sigurs
er ævintýri um sautján ára strák,
Starkað, sem ætlar sér að verða
kóngur í landi sem heitir Katóría.
Hann fæddist sömu nótt og
gamli, góði kóngurinn dó, en þá
tóku við sex leiðinlegir ráðherrar
sem sögðust ætla að finna nýjan
kóng en sátu svo bara sjálfir við
völd. Þegar Starkaður er sautján
ára fer hann til ráðherranna og
spyr hvað hann þurfi að gera til
að verða kóngur Katóríu. Þá
leggja ráðherrarnir fyrir hann sjö
þrautir sem hann á að leysa til að
verða kóngur.
Bókin er vei skrifuð og fyndin á
köflum en ég held að hún sé frek-
ar fyrir yngri aldurshóp en hinar
bækurnar hans.
Þrautunum sjö sem hann leysir
má líkja við nokkurskonar nú-
tíma dæmisögur, t.d. fer hann til
Svindlbæjar þar sem fólk er með
nefsjúkdóm út af sjaldgæfri mý-
flugnategund. En Svindlbæingar
eiga sér lækna sem kallast Tarar
og þeir selja lyf fyrir okurverð
I sem læknar sjúkdóminn. Og það
er orðið svo að allir eru skítblankir
nema Tararnir sem sópa að sér
' fé. Starkaður kemst að því að
lyfin eru bara búin til úr mó,
hveiti, olíu og sinnepi og að hver
bæjarbúi getur læknað sig sjálfur
og bjargar þannig Svindlbæing-
um frá gjaldþroti.
Mottó: Ekki svindla á
náunganum.
Ennþá nærtækari nútímanum
er sagan um vopnaverksmiðjuna
sem mengar svo mikið út frá sér
að á gömlu eplatré fara að vaxa
handsprengjur í staðinn fyrir
epli. Mottó: Stoppið vígbúnað,
minnkið mengun.
Þrautirnar eru sem sé margar
um háskaleg vandamál nútímans
en höfundur tekur ansi létt á
þeim og það reynist leikur einn
að leysa hin geigvænlegustu
vandamál. En þó fer höfundur
sniðuglega að því að sýna krökk-
um fram á hætturnar sem steðja
að mannkyninu.
Ekki tók ég eftir öðru en að
bókin væri ágætlega þýdd og
einnig eru fallegar myndir í henni
en hinsvegar hefur forlagið
gleymt að geta nafns þessa ágæta
listamanns, sem er auðvitað há-
borin skömm. Að öðru leyti er
frágangur góður.
Sif
Verslið ódýrt og saumiö sjálfar,
því þannig gerum við
viðnám í veröbólgunni.
Eigum mikiö úrval af bómullarefnum
ullarefnum, rifflað flauel,
slétt flauel, velúr.
Ennfremur mikiö úrval af
gardínuefnum, margar tegundir.
Dúkar, dúkaefni ásamt miklu
úrvali af jóladúkum.
Allskonar gæöavara.
Erum í Verslanahöllinni
aö Laugavegi 26.
Gjöriö avo vel aö líta inn
viö fyrata taakifæri.
V efnaðarvör ubúöin
Laugavegi 26, sfmi 14974,
^ (éöur til húsa aö Grundarstig 2) .
Af furðulegum
farartækjum
Bókaútgáfan Örn og Örlygur hf.
hefur nú endurútgefið bókina „Bíl-
ar, Flugvélar og öll heimsins furð-
ulegustu farartæki“ eftir Richard
Scarry, en hinar svonefndu Scarry-
bækur hafa notið vinsælda hér-
lendis um langt skeið, enda sér-
stæðar bækur.
í bókinni kynnir Richard Scarry
hin margvíslegustu farartæki og
lenda söguhetjurnar í skemmti-
legum ævintýrum á ferðum sínum í
farartækjunum. Fá lesendur og
skoðendur að kynnast þróun sam-
göngutækjanna og hinu fjölbreytta
úrvali þeirra um leið og farið er
yfir texta bókarinnar.
Bókina þýddi Loftur Guð-
mundsson. Meginmál bókarinnar
er sett í Prentsmiðjunni Eddu hf.
en bókin er prentuð og bundin hjá
Gyldendal í Kaupmannahöfn.
Ráðleggingar
kvenlæknis
Frá konu til konu heitir rit eftir
bandarískan kvcnlækni, Lucienne
Lanson, sem Skjaldborg hefur gef-
ið út.
Þar ræðir höfundur við kynsyst-
ur sínar um margvísleg mál er lúta
að heilbrigði, getnaðarvörnum,
streitu, meðgöngutíma og fleiru.
Bókin er rituð að því er í bókar-
kynningu segir „á. alþýðlegan hátt,
líkt og viðmælandinn sæti í stól
fyrir framan höfundinn og ræði við
hana eins og maður við mann“.
> m PRJÓNASTOFAN
Uduntu.
SKERJABRAUT 1. SELTJARNARNES
Gott úrval af prjónavörum
DÖMUPEYSUR.
PRJÓNAKJÓLAR.
PRJÓNABUXUR.
HERRAPEYSUR.
HERRAVESTI.
PRJÓNAJAKKAR.
BARNAPEYSUR
HEILAR OG HNEPPTAR
BARNAVESTI.
LEGGHLÍFAR.
%
y m -L. PRJÓNASTOFAN
Uéuntu.
SKERJABRAUT 1. SELTJARNARNES
VERSLUNIN ER OPIN
FRÁ KL. 9—6 DAGLEGA
OG Á LAUGARDAGINN
11. DES. FRÁ KL. 10-6
NÆG BÍLASTÆÐI.