Þjóðviljinn - 11.12.1982, Page 10
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN. Helgin 11.-12. desember 1982
myndlist
Frá sýningunni NÓVEMber í Listmunahúsinu 1982
„Ráðsettir byltingarmenn?”
Rétt fyrir helgina vatt ég mér úr
slabbinu í Lækjargötu inn í
bjartan og hlýjan sal
Listmunahússins, til aö ræöa
við Jón GunnarÁrnason
myndlistarmann. Tilefnið var
ný sýning sem hafið hefur
göngu sína í Listmunahúsinu
og ber heitir NÓVEMber. Þetta
er sýning 8 meðlima hins áður
umdeildaSÚM, þeirraGylfa
Gíslasonar, Hauks Dórs, Jóns
Gunnars Árnasonar, Kristjáns
Guðmundssonar, Magnúsar
Tómassonar, Sigurjóns
Jóhannssonar, T ryggva
Ólafssonar og Vilhjálms Bergs-
sonar.
Jón Gunnar tók þátt ásamt þeim
Hauki Dór, Sigurjóni og Hreini
Friðfinnssyni í fyrstu sýningum
SÚM sem haldin var í Ásmundar-
sal við Freyjugötu og Mokka, árið
1965. Síðan sýndi hann á flestum
meiriháttar samsýningum félags-
ins, meðan það var og hét. Fair
þekkja því eins vel innviði SÚM,
sögu þess og meðlimi.
„Hér er samvinnan 100%. Við
þekkjumst svo vel. Sýning hlýtur
að verða góð þegar menn hafa
þekkst svona náið og lengi. í>á er
samvinna og skilningur fyrir
hendi,“ sagði Jón Gunnar þegar
við settumst í þægilega stóla gegnt
verkunum. „En að þessu sinni er
það Knútur Bruun sem á heiðurinn
skilinn fyrir framtakið. Hann átti
alfarið hugmyndina að þessari sýn-
ingu. Hann kallaði okkur saman
fyrir þremur mánuðum og stakk
upp á því að við sýndum það sem
við værum að gera þá stundina.“
„Maggi (Magnús Tómasson) sá
um upphengingu og sýningarskrá.
Hann er svo lunkinn við þetta og
hefur næmt auga fyrir hlutunum.
Annars tókum við allir þátt í þessu
að einhverju leyti.“
- Nafnið NOVEMber, er það
fundið til að gera gys að SEPTEM-
hópnum?
„Það held ég varla. Það var
Maggi sem ann upp á þessu heiti.
Kannski hexur það verið hugsað
sem stríðni, ég veit það ekki, en
það var samþykkt án slíkra
þanka.“
- Finnst þér ekkert skrýtið að sjá
samsýningu gamalla SÚMara í
svona virðulegu galleríi?
Halldór B. \
Runólfsson
skrifar
- í sjálfu sér ekki. Þetta er falleg-
ur salur og við vorum strax pósití-
vir. Þetta er sérlega góður staður til
samsýninga," Jón bætir við.
„Sjáðu til, sýning er eitt, myndirn-
ar annað. Það er hægt að gera góða
sýningu úr slæmum myndum og öf-
ugt. Eg held að þessi sýning sé góð í
heild sinni, það er annarra að
dæma um hvert einstakt verk.“
Frá samsýningu í Gallcrí SÚM 1969
„Þó er þetta ekki svo blönduð
sýning heldur er hver okkar með
sinn afmarkaða stað og svona 6-10
myndir. Haukur Dór og Gylfi eru
með færri verk, reyndar of fá til að
þau gefi einhverja „rétta“ mynd af
því sem þeir eru að fást við um
þessar mundir.“
Við tökum okkur hvíld frá talinu
til að virða fyrir okkur þrjár stór-
skornar og frumstæðar
steinleirsgrímur eftir Hauk Dór,
þar sem þær hanga lóðrétt niður
vegginn. Til hliðar við þær má sjá
smágerðar khppimyndir Sigurjóns
Jóhannssonar,„Paradoxa“,ogsýna
þær andstæður eða móthverfur
eins og heitin benda til. Gegnt
þeim hanga 5 teikningar Gylfa
Gíslasonar, „Skissur úr sögu
Pfaff“. Þær sýna þróun fyrirtækis-
ins frá einu húsnæðinu til annars á
einfaldan, grafískan og húmorísk-
an hátt.
„Þetta er skemmtilegt," segir
Jón Gunnar. „En Gylfi var að ljúka
við verk sem hefði sómt sér vel á
þessari sýningu." Hann réttir mér
bók sem gefin er út af Nordisk
Konstcentrum og ber titilinn „Att
hánga konst“ og undirskriftin er
„En handbok om utstállningshant-
ering“. Bókin hefuraðgeymaýtar-
legar leiðbeiningar um það hvernig
halda eigí myndlístarsýningu.
Myndskreytingar eru eftir Gylfa og
eru þær meinfyndnar og spaugi-
legar.
„Þarna er Gylfi í essinu sínu,
akkúrat eins og hann getur verið
skemmtilegastur. Það hefði verið
gaman að hafa uppi nokkrar
teikningar úr þessari bók.“
Síðan snýr Jón Gunnar sér við og
bendir á málverk Vilhjálms Bergs-
sonar. „Sjáðu hvað það eru miklar
víddir í þessu. Villi er að dýpka
mjög litaskalann. Það væri frábært
að sjá hann mála svona geimmynd-
ir á risastóran flöt.“
Við höldum inn í innri salinn.
Þar hanga myndir eftir þá Magnús
Tómasson og Kristján Guðmunds-
son. „Þetta er fín sería, þessi með
regnboganum,“ og Jón bendir á
túss- og vatnslitasyrpu Magnúsar,
næmar og látlausar myndir sem
snúast um hið óefniskennda og
heillandi náttúrufyrirbæri, sem
menn dreymir um að uppfylli óskir
þeirra.
- En Kristján, spyr ég. - Þetta er
mjög ólíkt því sem hann sýndi á
gullaldarárum SÚM?
„Já, þetta eru málverk, lands-
lagsmyndir. Þær eru fallegar,
nokkurs konar summa af íslensku
landslagi, ís, eldi og skammdegi."
í bakherberginu hanga klippi-
myndir Tryggva Ólafssonar.
„Þetta er glæsileg útkoma, finnst
þér ekki? Tryggvi þróast hægt og
bítandi. En þegar maður skoðar
þessar myndir, sér maður hvað
hann hefur breyst frá því hann hélt
sínar fyrstu sýningar.“
- En hvað geturðu sagt um þig
sjálfan, eru þetta ný verk?
„Ekki öll, en ég hef aldrei sýnt
þau áður hér a landi. Þau voru á
sýningum í Málmey, Álandseyjum
og Þýskalandi, ef ég man rétt.“
Jón Gunnar sýnir þrjú verk úr
„Sólarspeglasyrpu" sinni, en einn-
ig 6 smámyndir gerðar með bland-
aðri tækni, eins konar minnismerki
um þekkta höfunda vísindaskáld-
sagna.
- Sólvagninn þarna, segi ég og
bendi á fágað smáverk, sem stend-
ur á stalli við gluggann. - Hann er í
Senn forsögulegur trúargripur á
borð við Sólarvagninn frá Trund-
holm og fútúrískt geimfarartæki.
Er samruni fortíðar og framtíðar
þér hugstæður?
„Má vera,“ segir Jón Gunnar og
glottir íbygginn. Honum er greini-
lega ekkert um það gefið að ræða
inntak eigin verka. Hann sveiflar
hendinni út yfir salinn. „Þessi sýn-
ing bregður dálitlu ljósi á það sem
við erum að gera í dag.“
“Er þetta nostalgísk sýning, er
einhver söknuður á ferðinni, eða
eruð þið orðnir ráðsettir byltingar-
menn?
“Nei, ekkert af þessu,“ segir Jón
Gunnar og hlær við.
Að svo mæltu tökum við hring
um salinn og hverfum á braut.
• )
Fjölskyldu-
ævintýri
í Mexíkó
Bókaútgáfan Hregg hefur gefið
út nýstárlega bók, „Undir Mexík-
ómána - Brot úr dvöl íslenskrar
fjölskyldu í landi andstæðnanna“,
eftir Jónu Sigurðardóttur og Si-
gurð Hjartarson. í bókinni segir
m.a. frá fjölbreytilegum kynnum.
íslendinganna af mexíkönsku lög-
reglunni, kynnum þeirra af
tveimur ólíkum smáþorpum, af
þjóðlegri áfengisneyslu innfæddra,
af hanaati og trúarsiðum, og af
eymdarkjörum alþýðu.
Bókina prýða 47 svart/hvítar
ljósmyndir og 8 litsíður. Auk þess
eru í bókinni 75 smáteikningar eftir
Sigríði Elfu, elstu dótturina í fjöl-
skyldunni, en hún hefur einnig gert
kápu. Fjölskyldan sá um útlit
bókarinnar.
Ráðherrann
í tugthúsið
Bókaútgáfa Menningarsjóðs hef-
ur gefíð út ritið íslandsráðherrann i
tugthúsið eftir Jón Sigurðsson
skólastjóra í Bifröst, en þar er rak-
in sagan af Peter Adler Alberti
(1851-1932) og ævintýrum hans en
einkum sá hluti hennar er snýr að
íslandi og Islendingum. Alberti var
einna aðsópsmestur og umdeildast-
ur stjónmálamaður i Danmörku
um síðustu aldamót en sætti að lok-
um þeim örlögum að hrapa úr
háum valdastóli ofan í tugthúss-
klefa eftir harðar sviptingar.
Haustið 1908, tveim dögum áður
en íslendingar gengu til kosninga
um „uppkastið“ fræga, urðu
tíðindin um örlög Albertis fyrrum
fslandsráðherra að stórkostlegri
kosningasprengju hér á landi. Þá
barst hingað sú frétt að Alberti
hefði gefið sig fram við lögregluna í
Kaupmannahöfn fyrir fjársvik og
skjalafals; en í hans hlut hafði fallið
að veita Islendingum heimastjórn
1904.
Slta iKGIJlK SIGUKJÓNSSON
SVIP MYNDIR
Listræmr
Ijósmyndir
IÐUNN hefur gefið út bókina
Svip myndir, safn ljósmynda eftir
Sigurgeir Sigurjónsson. Formála að
bókinni skrifar Páll Steingrímsson.
Þar rekur hann að nokkru feril
Sigurgeirs sem ljósmyndara og
segir m.a.: „Þessi bók er afrakstur
þjálfunar og sköpunargáfu sem
ekki er öllum gefin. Sigurgeir Sig-
urjónsson nýtur í dag viðurkenn-
ingar sem einn af bestu ljósmynd-
urum landsins." - í bókinni eru 41
svart-hvít ljósmynd. Þær eru tekn-
ar á árabilinu 1966 til 1981, og eru í
bókinni myndir af ýmsum þekktum
mönnum, teknar bæði hérlendis og
erlendis, ennfremur nokkrar mó-
delmyndir.