Þjóðviljinn - 11.12.1982, Síða 11

Þjóðviljinn - 11.12.1982, Síða 11
Helgin 11.-12. desember 1982 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 11 Margar húsmæður á Akureyri drýgðu í þá daga tekjur heimilanna með því að salta síld. Séra Matthías Jochumsson í heimsókn hjá syni sínum, Steingrími lækni og konu hans, Kristínu Thoroddsen og börnum þeirra. Sitjandi á grasinu frá vinstri: Anna, barnfóstra, Jón og Baldur. Þorvaldur stendur á borð- inu hjá föður sínum. Mynd- in er tekin árið 1919 í garði læknishússins. Hallgrímur Einarsson Ijósmyndari á Akureyri Hallgrímur Einarsson Ijós- myndari. Um þessar mundir er að koma út falleg bók með gömlum Ijósmyndum er nefnist Akureyri 1895-1930, Ijósmyndir. Eru myndirnareftireinn kunnasta Ijósmyndara Akureyrar á fyrri tíð, Hallgrím Einarsson. Valgerður Einarsdóttir, forseti bæjarstjórnar, fyjgir bókinni úr hlaði og segir m.a.: „Akureyri stendur í mikilli þakkarskuld við Hallgrím Einarsson, sem gerði tímabil í ævi bæjarins ógleymanlegt með töku fjölda frábærra Ijósmynda. Ég vil einnig þakka afkomendum hans og öðrum sem að bókinni standa, fyrir að gera okkur öllum kleift að upplifa brot úr þessu æviskeiði í myndunum." Það var fyrir nokkrum árum að afkomendur Hallgríms sýndu Akureyrarbæ þann höfðingsskap að gefa Akureyrarbæ myndasafn, plötur og myndavélar hans og tveggja sona hans sem voru líka Ijósmyndarar. Gísli Jónsson menntaskólakennari skrifar formála fyrir bókinni, og eru Fremsta húsið er Norðurgata 2. Við það standa hestvagnartil fólksflutninga og Ford-bíll Soffanías- ar Baldvinssonar ökumanns, sem hann eignaðist árið 1914. Hann fór til Reykjavíkur og tók bílpróf fyrstur manna á Akureyri og fékk ökuskirteini nr. I. eftirfarandi upplýsingar teknar úr honum. Hallgrímur Einarsson var fæddur á Akureyri 1878, sonur Einars Th. Hallgrímssonarverslunarstjóra Gránufélagsins og konu hans Vilhelmínu Pálsdóttur. Þegar Hallgrímur var aðeins 16 ára réðst hann til utanfarar að læra Ijósmyndasmíði í Danmörku, og var kennari hans þar Christian Christiansen, formaður Félags Ijósmyndara í Kaupmannahöfn, kunnur snillingur á sínu sviði. Lauk Hallgrímur prófi ári síðar með ágætum vitnisburði, kom heim og starfaði fyrstu árin eftir heimkomuna á Seyðisfirði. Hlaut hann tvívegis verðlaun fyrir Ijósmyndir sínar. Árið 1901 fluttist Hallgrímur á æskustöðvar sínar á Akureyri og tveimur árum síðar stofnaði hann Ijósmyndastofu í Hafnarstræti 41 og rak hanatil dauðadags1948. Gísli Jónsson segir í formála sínum: „Hann er sagður hafa verið listelskur, svo að af bar, hafaunnað kvæðum og kunnað, og sjálfur fengist nokkuð við Ijóðagerð á unga aldri, þótt ekki flíkaöi hann slíku. Myndskyn hans var næmt og skarpt að öllu leyti, svo sem brátt sannaðist og bók þessi vottar." Lærisveinn hans og síðar starfsbróðir, Jón Sigurðsson, sagði í minningargrein árið 1948: „Var Hallgrímur um langt skeið talinn besti Ijósmyndari hér norðanlands og hélt hann þeim vegsaukatildauðadags, þóttoft væri við ramman reip að draga, er hinir yngri menn gengu fram fyrir skjöldu í iðninni. Gerði hann sér ætíð far um að vanda myndir sínar, og fylgdi hann þar sinni meðfæddu listgáfu. Hann lét sér mjög annt um iðnnema þá, sem hjá honum lærðu, og var þeim ætíð velviljaður og vinuríraun." A hlaðinu á Stóra-Eyrarlandi árið 1913. Kristín Guðmundsdóttir á Skjóna með dóttur sína, Snjólaugu Baldvinsdóttur. Anna Tómasdóttir, kona Jóns Helgasonar, sést í bæjardyrunum. Eyrarlandsbærinn var rifinn árið 1949.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.