Þjóðviljinn - 11.12.1982, Side 12

Þjóðviljinn - 11.12.1982, Side 12
12 SIÐA — ÞJ6ÐVILJINN Helgin 11.-12. desember 1982 Hugsjónamaður skrifar um hugsjónamann Guðjón ( Friðriksson ' skrifar Gunnar Benediktsson: Oddur frá Rósuhúsi Sögufélagið 1982. Oddur frá Rósuhúsi er svana- söngur sr. Gunnars Benedikts- sonar. Hann lauk viö ævisögu sr. Odds V. Gíslasonar skömmu áður en hann lést í fyrra og fer ekki illa á því að sú verði hans seinasta bók. Raunar má segja að margt líkt sé með þeim klerkum. Báðir voru upp- reisnarmenn gegn kirkjunni, hvor með sínum hætti. Báðir helguðu þeir sig mannúðar- og björgunar- málum þó með ólíkum hætti væri og báðir urðu þjóðsagnapersónur. Oddur var presturinn sem rændi brúði sinni og Gunnar presturinn sem lét af prestsskap fyrir komm- únisma. Séra Oddur var uppi á árunum 1836 til 1911 og er margt á huldu um ævi hans og upphaf. Á titilblaði segir sr. Gunnar að ævisagan sé -staðreyndir, hugleiðingar og tilgát- ur í eyður. Sr. Oddur og sr. Gunnar Hann var alinn upp í Rósuhúsi í Grjótaþorpi, sonur Rósu Gríms- dóttur sem þekktir samtíðarmenn kalla kvenskörung og mikilúðlega. Fer fáum sögum af Oddi fyrr en hann tekur embættispróf í guð- fræði. Þá á að skikka hann skv. gamalli konungstilskipun að fara norður til Grímseyjar og þjóna þar. Sr. Oddur kemur sér undan þessu og um málið verða harðvítug blaðaskrif. Þetta er fyrsta hersla Odds. Snemma verður hann góður í kv'J ' BYGGINGAVORUR IC HRINGBRAUT120: Símar: Byggingavörur ________ ...28-600 Gólfteppadeild ....... ....28-603 Timburdeild__________________28-604 Málningarvörur og verkfæri...28-605 Flísar og hreinlætistæki 28-430 tungumálum, siglir út um álfur, er fylgdarmaður útlendinga, semur kennslubók á ensku og blæs fantas- íur í franskt horn. Og skyndilegá er nafn hans á hvers manns vörum um allt land. Hann nemur brúði sína á brott að næturþeli frá stórbóndan- um Vilhjálmi Hákonarsyni í Kirkjuvogi í Höfnum. Þessi atburður verður þegar að þjóðsögu og hefur lifað í vitund þjóðarinnaræ síðan.Eru til margar útgáfur af þjóðsögunni en sr. Gunnari tekst að ná tali af gömlu fólki sem er börn samtíðarmanna sr. Odds suður í Höfnum og ná- grenni og smám saman fær hann rétta mynd af atburðunum. Hann fer um söguna nærfærnum höndum leynilögreglumanns, raðar saman brotunum og fær út spennandi sögu. Sr. Gunnar er nógu forvitinn og nægilegur mannþekkjari til þess að gera sögu sína að heillandi lesn- ingu á köflum Fyrir utan brúðarránið er sr. Oddur frægastur fyrir forgöngu sína í slysavarnamálum sjómanna. Sjálfur var hann mikill sægarpur og dæmi um mann sem er sjómenn- skuprestur en ekki landbúnaðar- prestur eins og flestir prestar í þá tíð voru. Honum ofbauð hversu háan toll sjórinn tók af mannslífum og taldi fákunnáttu og kæruleysi ekki síst eiga sök á því. Um nokkur ár helgaði hann sig úrbótum í slysa- varnamálum. Hann ferðaðist um landið og hélt fyrirlestra um nyt- semi sundkunnáttu, um lýsi eða ol- íu til að lægja brim eða öldugang, um að hafa sjó fyrir kjölfestu í stað grjóts o.s.frv. Hann gaf um hríð út blaðið Sæbjörgu. Og vegnaþessara hugsjóna varð fátæktin hans föru- nautur. í raun og veru má segja að pré- dikun sr. Odds hafi hnigið í þrjár áttir. Hann barðist fyrir björgun- armálum sjómanna, fyrir bindindi og heitri trú. Hann var nánast heimatrúboðsmaður og flutti árang- urslaust um það tillögur á kirkju- þingi. Þetta kemur dálítið á óvart þegar bókin er lesin því að Oddur er í hugum manna fyrst og fremst ævintýra- og slysavarnamaður. Eins og flestir miklir. hugsjóna- menn lét sr. Oddur sér fátt mann- legt óviðkomandi. Hann barðist fyrir úrbótum og nýjungum í fisk- verkun, skólahaldi í Grindavík o.s.frv. Árið 1894 fluttist hann til Vesturheims og lenti þar í harðri andstöðu við vestur-íslensk kirkju- völd er hann tók að stunda þar huglækningar. Þar lauk hann síðast læknisprófi og varð félagi í lækna- félagi í Bandaríkjunum. Sr. Oddur var sem sagt ekki við eina fjölina felldur um ævina og fjallar sr. Gunnar með nærfærnum og lifandi hætti um feril hans. Þar skrifar hugsjónamaður um hug- sjónamann. ■HRINGBRAUT 120 (Aðkeyrsla frá Sólvallagötu Tröllasögur pg teikningar Bókaútgáfan Örn og Örlygur hefur gefið út bók um TRÖLL með tcikningum eftir Hauk Halldórsson myndlistarmann. Listamaðurinn valdi sjálfur eða samdi nokkrar þjóðsögur og myndskreytti. Sögurnar voru jafn- framt þýddar á ensku og samhliða íslensku útgáfunni kemur sjálfstæð ensk útgáfa. Mörg orðtök eru í íslensku máli tengd tröllum, svo sem trölla- tryggð, tröllatrú, þursabit, skessu- skak o.s.frv.Haukur Halldórsson leitast við í mörgum mynda sinna að draga fram meiningu slíkra orð- taka.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.