Þjóðviljinn - 11.12.1982, Qupperneq 14
14 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 11.-12. desember 1982
Leikföng í
lfld vopna
gaman af að fá góða jólagjöf? Ekki
bara vegna þess sem hún er, heldur
einnig vegna tilefnisins og hugar-
farsins sem henni fylgir frá gef-
anda.
Víst má ýmislegt fjölyrða um
jólagjafir okkar á þessum tímum
sem kenndir eru við neyslu og
kapphlaup um veraldleg gæði. Þó
er gleðin yfir að gefa öðrum og
gleðja okkar nánustu eða bág-
stadda ennþá stór þáttur í tilhlökk-
un okkar fyrir jólin, og hún er
góðra gjalda verð ein sér. Við
leggjum metnað okkar í að finna
eitthvað sem kemur sér vel, stytt
getur stundir eða yljað á einhvern
hátt þeim sem þiggja skal. Ég hef
stundum hlegið að því með sjálfri
mér hvað ég gerist persónugerv-
ingur margra síðustu dagana fyrir
jól þegar ég er að velja gjafirnar.
Að mestum meirihluta eru það
gjafir handa börnum innan við
Senn halda kristnir menn jól.
Fæðingarhátíð frelsarans, hátíð
ljóss og friðar, hátíð nýrra vona og
fyrirheita hjá flestum okkar. Minn
ágæti íslenskukennari Árni heitinn
Kristjánsson á Akureyri sagði eitt
sinn við okkur í tíma, að sá maður
sem ekki hlakkaði til jólanna væri
eins og „harðsoðinn hrossaskítur."
Ég hygg þeir séu fáir sem ekki
hlakka til jólanna. Fjölskyldur og
vinir sameinast, gleðjast yfir
endurfundum, allir skarta sínu
besta og gjafir eru gefnar. Hvers-
dagslegt amstur hverfur frá okkur
um sinn. Börnin, sem beðið hafa
óþreyjufyllst allra, fá nú loks svör
við spurningum og væntingum
undanfarinna daga, þegar „pakka-
tírninn" kemur eftir helgistund og
stórmáltíð á aðfangadagskvöld.
Við sem eldri erum skynjum jól-
in fremur sem daga friðar og gleði-
boðskapar, en hver hefur ekki
Njótum útiverunnar
ívetur
Hvort sem þú ætlar að koma þér upp skíðafatnaði
eða einfaldlega góðum og hlýjum vetrarfatnaði
fyrir gönguferðir og aðra útiveru í vetur — þá áttu
erindi til okkar.
Gott úrval af vandaóri vöru á hagstæðu verði.
Dömugalli: kr. 1.289.- Herragalli: kr. 1.289,-
Barnagalli: kr. 459.- Barnagalli: kr. 799,-
Sími póstverslunar er 30980.
HAGKAUP
Reykjavík - Akureyri
Hug-
leiðing
tveggja
barna
móður um
jólagjafir
fermingu. Mínum tveimur sem eru
níu og ellefu ára, og öðrum
skyldum og kunnugum. Þær finnst
mér vandasamast að velja. Sama
hvort um er að ræða keypt eða
heimatilbúið, flík, bók eða leik-
fang, börn eru gagnrýnin og hika
ekki við að láta skoðanir sínar í
ljós. Ég ber alltaf á vissan hátt virð-
ingu fyrir því'að heyra barn segja
hátt og snjallt „oj bara“ upp úr
miðju kafi á aðfangadagskvöld.
Það er ekki ætíð af einskæru van-
þakklæti sprottið. Börnin okkar
eru hreinskilin og oft skynsamari
en við höldum. Fegurðarskyn
þeirra og verðmætamat er annað
en okkar fullorðna fólksins, eðli-
lega fyrir sakir aldursmunar og
þroska, en umfram allt skulum við
gera okkur ljóst að þau eru mótuð
af því umhverfi og þeim aðstæðum
sem við ölum þau upp við. Það er
meginkjarni málsins og þess vegna
sting ég niður penna.
Uppeldi barna okkar er það sem
skiptir hvað mestu máli bæði fyrir
nútíð og framtíð. Líf - og/eða
dauði - komandi kynslóða mun
síðar bera þess merkin, vond eða
góð eftir atvikum, hversu okkur
tekst til. Við erum ekki fullkomnir
uppalendur, en öll óskum við börn-
um okkar langra og góðra lífdaga á
þeim vegi sem þau velja senn út í
veröld sem þau eiga sjálf að byggja
upp. Þessi ábyrgð er sú hin mesta
sem okkur hefur verið á herðar
lögð og við megum engan tíma
missa né láta nokkurt tækifæri úr
greipum renna. Ekki heldur jólin.
Það skiptir máli hvað þú setur í
jólapakka handa barninu þínu og
annarra. Hugsaðu ekki bara um
hvað gleður, heldur líka hvað
þroskar og stuðlar að jákvæðu hug-
arfari þjóðfélagsþegns, sem síðar á
að axla ábyrgð. Láttu barnið þitt
ekki einrátt um hvað það velur í
jólagjöf, hvorki handa sjálfu sér né
félögum og systkinum.
Leiðbeindu, - á rétta braut. Þá
braut sem þú sjálf(ur) gætir frekast
kosið þínu eigin barni og börnum
þess síðar.
Við lesum undanfarna daga í ís-
lenskum dagblöðum um síendur-
teknar ofbeldisárásir á gamalt fólk.
Árásarmennirnir eru oft sorglega
ungir. Við jesúsum okkur og dæs-
um. Og nú eru að koma jól.
„Eigum við ekki að gefa honum
Bjössa byssur og byssubelti, boga,
sverð og skjöld og heilar herdeildir
af kúrekum og indíánum í jóla-
gjöf, hann hefur svo gaman af
bófaleik, strákurinn?“
Getur leikfang eða bók sem vaf-
ið er inn í jólapappír handa barni
stuðlað að ofbeldishneigð síðar? Ef
til vill. Það eru ekki bara kvik-
myndir í bíóhúsum og sjónvarpi
(að myndsegulböndum ógleymdum)
sem kveikt geta hugmyndir og
kenndir af vafasömu tagi. Leikföng
og lesefni eru stórir þættir í daglegu
lífi barna okkar einnig.
Vígbúnaðarkapphlaupið og ógn-
arfréttir af hryðjuverkum sam-
tíðarmanna okkar um víða veröld