Þjóðviljinn - 11.12.1982, Side 15
Helgin 11.-12. desember 1982 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 15
hrellir okkur og þreytir. Við
megum þó vara okkur á að þreytast
svo, að vænting okkar um frið og
göfugt mannlíf börnum okkar til
handa slævist. Fréttir og myndir í
fjölmiðlum eru hið hroðalegasta
lestrar- og áheyrnarefni fyrir unga
sál ef hún er látin ein um að njóta.
Ekki tjóar að fela þessi mál fyrir
ungviðinu, þau eru staðreynd nú-
tímans, bláköld og ógeðsleg, en af-
leiðing hvers? Hvert er keppikeflið
- hvað brást? Þegar nýr rass sest í
risavaldastól, eyðum við löngum
tíma og mörgum dálksentimetrum
í að velta fyrir okkur væntanlegum
áhrifum eiganda hans á
heimsfriðinn. Við eyjarskeggjar
hér norður í Dumbshafi gónum oft
býsna glaseygir á þessar fræðilegu
og langdregnu vangaveltur, eða
sleppum því alveg (sem við köllum
gjarnan að finna okkur eitthvað
þarfara að gera) og víst er um að að
fæst börn hafa þolinmæði eða sjálf-
skapaðan áhuga á slíku. Þetta
skiptir okkur þó mun meira máli en
veðrið og verðbólgan í dag eða
aflinn upp úrsjó á morgun. Það eru
bara vissir þættir sem vilja
gleymast í umræðunni, maður líttu
þér nær. Það er m.a. þátturinn sem
spunninn hefur verið frá vöggu til
grafar sérhvers einstaklings inni á
sérhverju heimili, fátæklega jafnt
sem ríkmannlega búnu, menntuðu
jafnt sem ómenntuðu, í austri jafnt
sem vestri og allt þar í milli frá örófi
alda. Þátturinn sem við erum sífellt
að spinna, þú og ég og við öll, hvert
í sinni stofu. Við höfum e.t.v. úr
mismjúku hráefni að vinna og mis-
góðir eru rokkarnir, en þeir mega
þó aldrei þagna. Við spinnum ekki
snurðulausan þráð, en vöndum
okkur til hins ítrasta og gefumst
aldrei upp.
Ræddu við barnið þitt um styrj-
aldir og voðaverk samtíðar og for-
tíðar á skiljanlegu máli fyrir það en
umfram allt: tengdu það daglegu
lífi þess sjálfs. Sýndu því fram á
hversu stutt er í raun og veru á milli
þess að lemja hana Stínu í næsta
húsi og blóðugrar innrásar eins
ríkis í annað. Ræddu við það um
byssuna eða tindátana sem það fær
e.t.v. í jólagjöf eftir örfáa daga.
Ræddu um bófahasarinn sem þú
sérð út um gluggann eða heyrir inni
í herbergi. Sennilega þýðir ekkert
að banna hann, en það er þó alltént
hægt að spyrja um hve margir voru
drepnir.
Friðarhátíðin mín fer í hönd.
Engin styrjöld hefur verið háð svo
grimntileg að ekki hafi verið gert
vopnahlé yfir helgasta tíma jól-
anna. Spaugilegt, ef maður hug-
leiðir eðli styrjaldar, en satt. För-
um að dæmi níðinganna: Gerum
vopnahlé, og látum það standa
lengur en jólin.
Kæru vinir og vandamenn! Fyrir
hönd barna minna og vegna sam-
tíðar þeirra seinna meir bið ég ykk-
ur að gefa þeim ekki leikföng í líki
vopna í jólagjöf.
Gleðileg jól, í friði.
P.s. „Bjössi minn! Það er ljótt að
skjóta hana ömmu á jólunum!“
Sólveig Brynja Grétarsdóttir.
ACTfON
„Flataratiönissviö a Dolby stillingu
hefur vart sést “ Audio Magazine
\iemi
Skúlaaata61 14363
RAKA-
TÆKIN
Tilvalin jólagjöf
Verdkr. 968,00
Póstsendum
REMEDÍA
Borgartúni 29 Sími 27511.
'Opið bréf til allra barnavina:
Það er ánægjuleg sjón að sjá
barn að heilbrigðum leik. Það
gleður auga okkar og ekki síður
huga okkar vegna þess, að við vit-
um að í leik barnsins felst undir-
búningur undir þá framtíð, sem
bíður þess - að taka við af hinni
fullorðnu kynslóð.
Á sama hátt ér það dapurleg
sjón að sjá saklaust barn fást við'
iðju, sem er í mótsögn við lífið
sjálft. Það er dapurlegt að sjá barn
handfjalla leikfang í vopnalíki.
Með vopnum eru menn vegnir.
Það er dapurlegt að sjá börn líkja
eftir þeirri iðju vegna þess að þau
hvorki skynja né skilja það sem þar
býr að baki.
Hér á landi eru ekki borin vopn
og hér er ekki herskylda. Samt sem
áður kynnast böm vopnum og stríði
af myndum í sjónvarpi, á mynd-
böndum, í kvikmyndahúsum og í
myndablöðum. Getum við sporn-
að gegn þeim neikvæðu áhrifum
sem barn verður fyrir frá þessum
fjölmiðluin? Já, - en aðeins með
því að gera okkur ljósa grein fyrir
þeim voða sem felst í notkun
vopna. Það er skylda okkar, hinna
fullorðnu, vegna þess að við erum
fyrirmynd barnsins í leik og starfi.
Viljum við að börn okkar líki
eftir stríði í daglegum leikjum
sínum?
Viljum við að börn okkar líti á
vopn og dráp sem sjálfsagðan
hlut?
Viljum við að börn okkar beri
vopn?
Stríðsleikföng eru eftirlíking af
raunverulegum vopnum. Kennunt
börnum þetta! Innrætum þeim
andúð á drápstækjum!
Foreldrar og aðrir uppalendur!
Hernaðarleikföng eru ekki sarn-
boðin börnum okkar.
Sýnum ábyrgð.
Félag íslenskra sérkennara, Félag
þroskaþjálfa, Fóstrufélag íslands,
Hin íslenska þjóðkirkja, Hjúkrun-
arfélag íslands, Kcnnarasamband
lslands, Menningar- og friðar-
samtök íslenskra kvenna, Stéttarfé-
lag íslenskra félagsráðgjafa.
Ertu aö spa i gylliboð eöa gæöi?
Kröfuhöröustu gagnrýnendur um allan heim eru sammala um aö
NAD eru hágæöa hljómflutningstæki ó ótrúlega lágu veröi.
,rr..
NAD
í • iéí AAií is w
„NAD á engan keppinaut i nalægum
veröflokkum. Þaö er því auðvelt aö
mæla meö ..NAD“ hí-fí Answears
„NAD hefur bestu mogulegu „sound“
eiginleika af öllum útvarpsmögnurum
í skaplegum verðflokkum“ PopuiarHi-Fi
I mótsögn
við lífið
Píta með buffi
Píta með kótilettum
Píta með fiski
---- --*-
^\T A/y
Ljúffengir píturéttir:
PITAN ~
BfRCPORUCATA 21
SIMI 13730