Þjóðviljinn - 11.12.1982, Side 17

Þjóðviljinn - 11.12.1982, Side 17
Helgin 11.-12. desember 1982 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA li7 Vorum að taka upp mikið úrval af vörum: Hjónarúm — Einstakl- ingsrúm — Svefnbekki — Skrifborössamstæö- ur — Skrifborðsstóla meö og án pumpu — Vegghillusamstæöur — Boröstofuborö og stól- ar. Verðið er líka alveg hlægilegt. iAnó erum komin í ióla- OPIÐ í DAG, LAUGARDAG, TIL KL. 19.00. Á MORGUN, SUNNUDAG, KL. 14.00—17.00. Notið helgina, komið, skoðið og sannfærist. Sjón er sögu ríkari. Gunni Þórðar ogPálmimeð nýja plötu Fjölnir hf. gefur nú fyrir jólin út sína fyrstu hljónrplötu, sem nefnist Gunnar Þórðarson og Pálmi Gunn- arsson. Hér er um að ræða hæg- genga plötu með tíu nýjum lögum Gunnars Þórðarsonar, öll sungin af Pálma Gunnarssyni. Upptökur fóru fram í Lundúnum í október og nóvember. Á A-hlið eru þessi lög: Aftur heim, við texta Pálma Gunnarsson- ar, Gísli í Uppsölum og Hleyptu mér inn, við texta Þorsteins Egg- ertssonar, Trúarjátning, texti Pálmi Gunnarsson, og Kona, sem Toby Herman, eiginkona Gunnars Þórðarsonar, hefur gert texta við. Á B-hlið eru þessi lög: Kveiktu Ijós, Eitthvað hefur skeð, Bíddu og Velgengni, öll við texta Jóhanns G. Jóhannssonar, og lagið Á Uppsöl- um, sem er án texta en raddað af Pálma Gunnarssyni. Öll lögin eru sem fyrr segir sung- in af Pálma, en auk þess aðstoða Shady Owens og Agnes Kristjóns- dóttir við bakraddir. Allar útsetn- ingar eru eftir Gunnar Þórðarson, sem einnig stjórnaði upptöku í samvinnu við Pálma Gunnarsson. Gunnar leikur á gítar og Pálmi á bassa, en aðrir hjóðfæraleikarar eru enskir, og tölvuundirleikur mikið notaður. Plötuumslag gerði Gunnar örn, prentun annast Prisma hf. og pressun Alfa hf. Drauma- ráðningar Ut er komin hjá Ingólfsprenti hf. „Draumaráðningabókin þín“ eftir Lady Stearn Robinson og Tom Cor- bett. Draumaráðningabókin þín er bók fyrir þá sem reyna að leita svara við draumum sínum. Ef þig dreymir athyglisverðan draum, eru líkur á að þú finnir ráðningu hans í þessari bók, sem hefur að geyma hátt á þriðja þús- und uppsláttarorð auk um fimrn- hundruð tilvísana, sem höfundarn- ir, Lady Stearn Robinson og Tom Corbett hafa safnað. „Lykilorðunum" er raðað í stafrófsröð, svo þú finnur þá ráðningu sem við á, á andartaki. Auk þess gefa höfundarnir þér leiðbeiningar svo þú getir skorið úr hvaða draumum má taka mark á og hvernig þú getir ráðið af þeim, hvað framtíðin ber í skauti sér. Bókin er 224 bls að stærð og hef- ur ekki áður komið út á íslensku. Þýðandi er Ingólfur Árnason. Gátur og þrautir Bókaútgáfan Vaka hefur gefið út bókina Þrautir fyrir börn. Guðni Kolbeinsson þýddi og staðfærði. Þrautir fyrir börn hefur að geyma hundrað skemmtileg og myndræn viðfangsefni fyrir börn. Sumar þrautirnar eru léttar en aðrar svolítið þyngri með tilliti til þess, að börn á aldrinum frá 6-12 ára fái hér frístundaverkefni við sitt hæfi. En bókin er í raun fyi ir börn á öllum aldri. Vaka hefur og sent frá sér nýja gátubók. 555 gátur er uppfull af glettnum og skemmtilegum gátum, eins konar framhald af 444 gátum, sem sló svo rækilega í gegn fyrir síðustu jól. Sigurveig Jónsdóttir þýddi og staðfærði 555 gátur eins og fyrri gátubókina. Þrjú toppmerki í hátölurum: UBL Infinity Bostonficoustics Verð frá kr. 4.500.- parið Dynavector hljóödósir í hæsta gæöaflokki

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.