Þjóðviljinn - 11.12.1982, Page 18

Þjóðviljinn - 11.12.1982, Page 18
18 SÍÐA — ÞJ6ÐVILJINN Helgin 1Í.-12. desember 1982 SÓI hf. Þverholti 19, sími 91-26300 Gjöfin sem gefur aro Sodastream tækið er tilvalin jólagjöf fyrir alia fjölskylduna. Gerið sjálf gosdrykkina og sparið meira en helming. Kvistir í lífstrénu Árni Johnsen blaðamaður hefur tekið saman bók sem inniheldur viðtöl við 20 þjóðkunna einstak- linga sem hafa það allir sameigin- legt að hafa ekki bcinlínis fetað troðnar slóðir í lífshlaupi sínu. Bók þessi er gefin út af bókaforlaginu Orn og Örlygur og er 195 blaðsíður að stærð, unnin að nokkru leyti í dagblaðsformi, þ.e. hvað varðar uppsetningu efnis, en viðtölin hafa flest birst áður í Morgunblaðinu, en koma þó fyrir sjónir lesenda með nokkrum breytingum. Tvö viðtal- anna eru frumsamin. Formálsorð ritar Steinar J. Lúðvíksson. Á blaðamannafundi sem Árni Johnsen hélt ásamt bókaforlagi sínu, sagði hann að með þeim mikla fjölda viðtala sem hann hefði tekið við menn úr öllum stéttum þjóðfélags sýndist honum verið komið efni í heila bók, ef ekki bækur. Þessi bók geymdi á einum stað efnivið og heimildir um menn sem fyrir löngu síðan væru orðnar þjóðsagnapersónur. Þar mætti t.d. nefna Gísla á Uppsölum, Hannibal Valdimarsson, Björn á Löngum- ýri, Einar Gíslason safnaðarform- ann Fíladelfíu og fleiri og fleiri. í bókinni kvað Árni að kæmi fram áður óbirtur texti um hin frægu á- tök á Bolungarvík þegar kennarinn Hannibal Valdimarsson var fluttur í böndum til ísafjarðar vegna af- skipta sinna af verkalýðsmálum. Viðtalið við Hannibal er annað tveggja sem ekki hefur birst áður. Hitt er við Björn Pálsson á Löng- umýri. Fyrsti viðmælandi Árna í bókinni er Gísli á Uppsölum, en við hann átti Árni viðtalið nokkru áður en Ómar Ragnarsson gerði Gísla að sjónvarpsstjörnu undir lok síðasta árs. í niðurlagi inngangsorða Steinar Af minnis- verðum persónum Bókaútgáfan Ið'unn hefur sent frá sér bókina Erlend andlit. Undirtitill: Myndbrot af mann- fólki. Höfundur er Ingólfur Marg- eirsson og er þetta önnur bók hans. í fyrra kom út bókin Lífsjátning, endurminningar Guðmundu Elías- dóttur sem Ingólfur skráði. - Er- lend andlit segir frá kynnum hö- fundar af fólki erlendis. Um efni bókarinnar segir svo í formáls- orðum höfundar: „Á flækingi mín- um í útlöndum hefur aragrúi and- lita orðið á vegi mínum og flest þeirra þotið gegnum nethimnu augans líkt og þokukennd leiftur. Sum hafa þó af einhverjum ástæð- um staðnæmst í vitund minni og Kaup- maðurinn óheppni Iðunn hefur gefið út bókina Hrakfallabálkurinn. Viðtöl við Plum kaupmann í Ólafsvík. Höf- undur er Einar Bragi. - Jakob Plum var danskur kaupmaður á síðari hluta átjándu aldar. Hann kom til Ólafsvíkur 17 ára sem lær- lingur við konungsverslunina dön- sku og tók þar við kaupmennsku þegar einokun var aflétt 1788. Plum gaf út tvær bækur þar sem hann rekur verslunarsögu sína og mannraunir á sjó og landi, segir frá kynnum sínum af Islendingum og lýsir sóknum þeim sem hann var kunnugastur. Á grundvelli þessara heimilda Kápumynd á bók Árna Johnsen Kvistir í lífstrénu. Hún er hönnuð af Árna Jörgensen J. Lúðvíkssonar er minnst á sam- skipti Árna og Gísla með þessum orðum: „... Árni Johnsen kom einbúan- um Gísla í Selárdal í sviðsljósið með viðtali því sem birtist á sínum tíma í Morgunblaðinu og aftur í þessari bók. Tveimur árum eftir að viðtalið kom í Morgunblaðinu heimsóttu hann krakkar, sem voru hjá Ólafi Hannibalssyni í Selárdal, Gísla og reyndu að spjalla við hann. Meðal annars spurðu þau hann hvort hann myndi eftir hon- um Árna, blaðamanninum sem hefði tekið viðtal við hann í hitteð- fyrra. „Jú,“ svaraði Gísli sem sinni sérkennilegu röddu. „Jú, ég man vel eftir honum - hann var svo skrítinn.“ Sínum augum lítur hver á silfrið.“ Kvistir í Lífstrénu er fyrsta bók Árna Johnsen. Hún er sett og prentuð hjá Prentstofu G. Bene- diktssonar, Arnarfell annaðist bókband, en bókarhönnun annað- ist Steinar J. Lúðvíksson. - hól leitar æ sterkar á hug minn, hvert með sínum hætti." - Erlcnd andlit hefur að geyma sex þætti. Frá Síberíu, Mr. Hollins opnar hjarta sitt, Kopar frá Chile, Fílótímo, Heimsmaður frá Búdap- est og Byr undir báða vængi. hefur Einar Bragi sett á svið „við- töl“ við Plum þar sem hann segir sögu sína sem var ærið hrakfalla- söm. í bókinni er fjöldi mynda frá íslandi og Kaupmannahöfn á þess- um tíma.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.